Morgunblaðið - 09.07.1981, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 09.07.1981, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ1981 39 Frá Orkuþingi Kostnaðarspá húshitimar 1981—1985; „Þrátt fyrir verulegt átak í húshitunarmálum haf a óleyst verkefni vaxið,“ — sagði Jónas Elíasson, prófessor, á Orkuþingi m Æs. mm Jónas Elia8Son, prófessor Kostnoðorspó húshitunar 1981-1985 I9731'74' 75' 76' ’ 7 7' '78' ' ?9 ,8o' ’01' '82' ‘83' '841 '85 Kostnoður iandsmanno við húshitun 1973-1980, -Kipt niður ð orkugjafo Verðlog mars 1981. Jarðh iti Rofmogn . 011 o Kostnaóarspá húshitunar 1981 — 1985. Meginniðurstöður i erindi Jón- asar Eliassonar, prófessors, „Um húshitun“, sem hann flutti á Orkuþingi, vóru þessi: • Þrátt fyrir mjög mikilvægar framkvæmdir hér á landi til að auka hlut innlendra orkugjafa i húshitun, sem leitt hafa til veru- legs samdráttar i oliunotkun, hefur kostnaðarhlutur oliunnar i heildarorkunotkun til húshitun- ar haldizt. • Oliuverð mun halda áfram að hækka og vaxandi notkun á jarðvarma og raforku til húshit- unar mun ekki leiða til lækkaðs verðs á þessum innlendu orku- gjöfum frá þvi sem nú er. • Heildarkostnaði við húshitun má þó halda innan núverandi kostnaðar með umtalsverðum og fjárfrekum framkvæmdum, sem enn gengu á hlut oliu i heildar- notkun okkar, i samræmi við þá áætlun sem orkuspá orkuspár- ncfndar felur i sér. Hækkanir frá 1973 Jónas Elíasson sýndi fram á það með niðurstöðum úr könnun á þróun raunverðs orku til húshit- unar, að það hefði hækkað um 34% á hverja orkueiningu á tíma- bilinu 1973—1979. Meginorsök þessa er sú að kostnaðarhlutur olíunnar hefur haldizt í ,heildar- kostnaði húshitunarþáttarins, þrátt fyrir stórminnkaðan magn- hlut hennar. Spá um hitunarkostnað lands- manna fram til 1985 sýnir að meðalverð orkugjafanna á eftir að hækka, þegar miðað er við raun- verð á orkueiningu. Meðalverð hitakostnaðar á orkueiningu á hins vegar að geta haldizt stöðugt fyrir landið í heild, sagði Jónas, ef tekst að útrýma olíukyndingu í þeim mæli sem húshitunarspá orkuspárnefndar gerir ráð fyrir og hagkvæmur orkusparnaður kemst í framkvæmd að öðru leyti. En til þess þarf að leggja fram „mikla fjármuni í hitaveituframkvæmdir og rafhitun á næstu 6 árum. Hagkvæmni reiknast nokkur af þessum framkvæmdum, en sú niðurstaða er ekki ótvíræð, og þetta atriði þarf nánari athugunar við. í þeirri athugun þarf að styðjast við nákvæmari kostnað- aráætlanir en hér eru tiltækar. í stuttu máli má segja að hitunarkostnaður landsmanna hefur hækkað verulega á síðustu 6 árum, og sú hækkun verður var- anleg. Verulegt átak þarf til að halda í horfinu næstu 6 árin svo hitareikningur landsmanna haldi ekki áfram að hækka." Helmingur 1973 — fimmtungur 1979 Jónas Elíasson sagði að hlutur olíu hefði að magni til, mælt í orkueiningum, verið helmingur þess er landsmenn nýttu til hús- hitunar 1973. Þessi hlutur er kominn niður í fimmtung nú. Þrátt fyrir þetta heldur kostnað- arhlutur olíunnar í heildarnotkun velli. Slík eru áhrif olíuverðs- hækkana. Hlutföll orkutegunda í húshitun vóru þessi 1979: Jarðhiti 71,1%, rafmagn 10,7% og olía 18,2%. Tilsvarandi tölur um kostnað eru þessar: jarðhiti 33,9%, rafmagn 15,4% og olía 50,7%. Kostnaði við húshitun er og mjög misskipt eftir landshlutum, en það eru ekki nema tveir landshlutar sem hafa jarðhita að marki: Suðurland og Norðurland, sem eldvirka beltið liggur um. Óleyst verk- efni hafa vaxið Því næst fjallaði Jónas Elíasson um hitunaraðferðir, m.a. með hliðsjón af hagkvæmni, og kom þar fram að 108 þúsund lands- menn nota einfalda hitaveitu, 50 þúsund tvöfalda hitaveitu, 27 þús- und rafmagn og 42 þúsund olíu. Þegar þessar tölur eru skoðaðar, sagði Jónas, veldur það óhjá- kvæmilega nokkrum vonbrigðum að olíukostnaður við hitun húsa hefur haldið velli þrátt fyrir miklar og dýrar gagnaðgerðir. Ef hinsvegar er litið til þess kostnaðar sem verið hefði ef notkun einstakra orkugjafa hefði verið hin sama 1979 og 1973 kemur í ljós að heildarkostnaður við húshitun hefði verið 47,6% hærri 1979 en raun varð á. Hér verður þó að hafa í huga að hér er fremur um reikningslegar afleiðingar olíuverðshækkana að ræða en raunverulegan sparnað. Raun- veruleikinn er sá að landsmenn borga 34% meira fyrir hverja orkueiningu 1979 en þeir gerðu 1973. Auk þess er orkuverðið bæði á dýrari hitaveitum og rafhitun niðurgreitt svo raunveruleg hækk- un er meiri en 34%. Þetta verða að teljast nokkuð alvarleg tíðindi því þau sýna að „þrátt fyrir verulegt átak í húshitunarmálum hafa óleyst verkefni vaxið“. Með öðrum orðum brýn nauðsyn er til sparn- aðar í húshitunarmálum. Eftir að hafa farið ofan í saumana á orkukostnaði í húshit- un, aflkostnaði og fleiri þáttum þessa athugunarsviðs komst Jónas að þeirri niðurstöðu, að hugsan- lega megi spara 33% af orkunotk- un olíukyntra húsa og 35% af orkunotkun rafhitaðra húsa, ef hagkvæmum orkusparnaði er beitt til hins ýtrasta. Ilorft til framtíðar Síðan ræddi Jónas Elíasson um húshitunarspá fram til 1985, en þar er m.a. reiknað með að olíuverð tvöfaldist fram til þess tíma, rafhitun hækki um 30%, og að náðst hafi 30% orkusparnaður í olíukyndingu og 15% orkusparn- aður í rafhitun. Rakti hann í ítarlegu máli forsendur spárinnar, sem hér er ekki rúm til að rekja nánar. Lokaorð hans vóru þessi: „Á grundvelli þessara kostnað- artalna og orkuspárinnar má reikna spá um húshitunarkostnað fram til 1985. í spánni er tekið tillit til orkusparnaðar að hluta. Niðurstaðan er sú, að raungildi hitunarkostnaðar alls landsins mun hækka í réttu hlutfalli við orkumagn, en meðalverð ein- stakra orkugjafa hækkar. Meðal- orkuverð helzt þó stöðugt vegna minni olíukyndingar. Til að ná þessum árangri þarf hins vegar miklar fjárfestingarframkvæmdir í nýjum hitaveitum og rafhitun. Beinn hagnaður af þessum fram- kvæmdum verður væntanlega miklu minni en hagnaðurinn af tilsvarandi framkvæmdum 1973—1979. Því er ástæða til að gæta fyllstu varkárni og hag- kvæmni í öllum þessum fram- kvæmdum. Niðurstöðurnar benda því ekki til að ástæða hafi verið til að fara hraðar í þessar fram- kvæmdir en gert hefur verið". „Versin mín“ Sjaldan eða aldrei, þótt vel hafi verið, hafa passíusálm- arnir verið betur lesnir en nú á síðustu föstu í útvarpinu. Passíusálmarnir minna á svo margt. Ekki sízt versin, sem við áttum að læra utan að. Nú er tízkan, að börn læri sem minnst utan að. Allt slíkt er fordæmt með fyrirlitningu af mörgum og kallað þululær- dómur og þeir prestar vinsæl- astir, sem láta börn læra sem minnst í fermingarfræðslu sinni. Þau eiga sem sagt að til- einka sér efni og fegurð fræða og ljóða, án þess erfiðis og tíma, sem „utanað“-lærdómur hefur í för með sér fyrir þau. En sannleikurinn er sá, að efni, sem hefur verið lært með vandvirkni orði til orðs og síðan útskýrt til fullkomins skilnings er hið fullkomnasta stig þekkingar sem mannssál getur náð. Það verður þannig grunnur vitrænnar menntunar í víð- tækustu merkingu, ef slík þekking nær tökum á tilfinn- ingu og vilja. Satt bezt að segja, þá er ekki unnt að læra neitt vel án þess að læra það utan að orði til orðs að meira eða minna leyti. Enda er sá orðaforði, sem nemandi nær á sitt vald, miklu meiri með slíku námi. Færni hans, geta og þroski til að tjá sig og vald hans yfir málinu og umhverfi sínu öllu verður að bezta veganesti, eykur sjálfstraust og öryggi, hvert sem spor liggja í fram- tíð. Þetta gildir ekki sízt með listræn efni, ljóð og sálma, sem snerta tilfinningar, ást og trú. Hve mörg ljóðkorn og sálmavers, sem lærð voru í bernsku, hafa einmitt þannig orðið perlur og gull í minja- safni vitundar og vits, gæti enginn fullmetið. Gersemar, sem þá ljómuðu skærast, þegar dimmast var og kaldast, urðu mestur auður og dýrmætastur, þegar allt um þraut í sárustu örbirgð og örvæni lífsbaráttunnar. Versin, stökurnar, sem ís- lenzkan er svo auðug af, verð- ur að teljast meðal þess menn- ingarauðs, sem mótað hefur styrk þjóðarinnar, víðsýni, drenglund og dug á stærstu og örlagaríkustu úrslitastundum einstaklinga og heildar. Þess vegna þarf að læra þau af mestu nákvæmni og sam- vizkusemi. Jafnvel smááherzla getur gjörbreytt efni þeirra og blæ, anda þeirra og snilli. Þess vegna má hvorki brengla þau né brjóta, heldur umgangast þau með auðmýkt og lotningu sem andleg djásn og dýrgripi, eilífa helgidóma. Heill þeirri móður og fóstru, kennara og presti, sem veitir barni og nemanda slíkt vega- nesti. Vart gæti bjartara leiðar- ljós í gleði og sorg. Fátt á fermingarbarn fegra en „vers- in sín. “ Sú náms- eða fræðslustefna sem gleymir íslenzkum sálm- um eða gengur fram hjá þeim í skólum sínum, heimilum og kirkjum, er á villuvegum, hversu vísindaleg og tæknileg, sem hún kynni annars að vera. Þeir hafa öldum saman ver- ið siðræn og trúarleg upp- spretta hjartahlýju og hug- arljósa hjá þessari fámennu menningarþjóð. Vart gæti skólum orðið raunalegri örlög en vanrækja þar hið bezta, sem jafnvel vesælustu heimili gátu veitt á fyrri árum. Takmark skólanna er ein- mitt að varðveita og veita hið við gluggann eftirsr. Arelius Níelsson bezta, sem heimilin gátu gefið og bæta bar við enn meiri þekkingu eftir föngum og lær- dómi. Islenzku skólarnir hafa þarna of mjög gleymt og vanmetið gersemar þjóðar- arfs, gull andlegs auðs. Þarna þarf að snúa við, leita hins týnda og gefa því aftur gildi. Þetta gull er æðra öllum „Torfum" og „Grjótaþorpum", þótt gott sé. Við „utanað“-lærðu versin verður kennarinn og skólinn síðar sveipaðir sælum ljóma minningalands í vitund góðs nemanda, ekki sízt ef lögin voru lærð um leið og sungin inn á strengi hjartans. Og á fjölbreyttum vettvangi starfs úti og inni, á landi og sjó, í sorg og gleði, verða Ijóðbrot lærð í bernsku líkt og blómstur, sem eiga sér eilíft vor og blæ til að veita ilm víðsýni, vizku, áminningu, feg- urð, von og trú. En til þess verður „að kunna" þessi ljóð. Annars hljóðnar bergmál þeirra, deyr ilmur þeirra og áhrif. Það sem við höfum á tak- teinum sem hluta eigin vit- undar er eilífðar eign í æðst- um skilningi. Ljóðblómstur, sem opnast í huga eða hjarta, hljómar á vörum, verður þannig lykill að æðri og fegri veröld, likt og perla við sólgullna svanatjörn minninganna, sem bergmálar skærast í auðn heiðarinnar og hrauni einsemdar og rauna. Þannig varða „versin mín“ veginn til vorlanda gæfunnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.