Morgunblaðið - 09.07.1981, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 09.07.1981, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 1981 27 Fyrstu húsin á Eyrar- bakka og Stokkseyri tengd í september BÚIST er við að fyrstu húsin á Eyrarbakka og Stokkseyri verði tenjfd við hitaveitu siðari hluta septembermánaðar i haust, að þvi er Einar Sveinbjörnsson stjórnarformaður Hitaveitu Eyra sagði i samtali við Morgunblaðið í jfspr. Hitaveita Eyra er sameign- arfyrirtæki sveitarfélaganna á Stokkseyri og Eyrarbakka, cn heita vatnið er fenjfið hjá Ilita- veitu Selfoss. Nú er unnið að fullum krafti við gerð aðveituæðar frá Selfossi að sögn Einars, og einnig er unnið að dreifikerfinu í þorpunum tveimur. Alls er aðveituæðin frá Selfossi um 15 kílómetra löng, en húsin, sem heitt vatn munu fá eru á milli 350 og 400 talsins. Alls vinna við framkvæmdirnar um 30 manns, á vegum þriggja verktaka. Einn þeirra, Kristján Magnússon frá Akranesi er ráðinn af Selfossbæ, en auk þess vinna við verkið Víkurverk hf. frá Grindavík og Ræktunarsamband Flóa og Skeiða. Selfossbær sér um að koma heita vatninu út fyrir bæj- armörk Selfoss, þar sem Hitaveita Eyra tekur við. Einar Sveinbjörnsson sagði, að reiknað væri með að verkið allt myndi kosta um 25 milljónir króna, eða um 2,5 milljarða gkróna. Vatnið verður um 70 gráðu heitt við inntak húsa, og sagði Einar gert ráð fyrir að kostnaður við kyndingu með þessu heita vatni myndi fyrst í stað nema um 65% af því sem nú kostar að hita húsin með olíu. Allur þorri húsa á Eyrarbakka og Stokkseyri er hitaður með olíu, aðeins um 30 til 40 hús eru kynnt með rafmagni. Einar sagðist búast við að langt yrði farið í að tengja öll hús á þessu ári, en fram- kvæmdum lyki vonandi alveg á næsta ári. „Þessi hitaveita er óumdeilanlega mikil lyftistöng fyrir þessi byggðarlög," sagði Ein- ar, „og gerir þeim kleift að keppa á jafnræðisgrundvelli við nágranna- byggðarlögin Selfoss, Hveragerði og Þorlákshöfn, sem öll hafa komið sér upp hitaveitum." Ljósm.: Sv.P. Laun bágbor- in segir Hlíf Mitsubishi-skrúfuþotan, sem Flugfélag Norðurlands hefur nýlega fengið. Mitsubishi skrúfuþota til Flugfélags Norðurlands: Flugf lotinn tekur nú aHs 61. ferþega Aðalfundur verkamannafé- lagsins Illifar var haldinn mánu- daginn 29. júni s.l. Formaður félagsins Hallgrímur Pétursson flutti skýrslu stjórnar og gerði grcin fyrir ársreikningum félags- ins. Veruleg aukning var á sjó- ðum félagsins. Við stjórnarkjör í félaginu komu fram tveir listar, en það hefur ekki skeð í 40 ár. A-listi var borinn fram af mei- rihluta uppstillingarnefndar og trúnaðarráðs og H-listi borinn fram af minnihluta uppstillingar- nefndar og trúnaðarráðs félags- ins. Stjórnarkjörið fór fram sunnu- daginn 31. maí s.l. og urðu úrslit þau, að A-listinn fékk 97 atkv. og H-listinn 142 atkv. Stjórn og varastjórn er því þannig skipuð: Formaður Hallgímur Pétursson, varaform., Sigurður T. Sigurðsson, ritari, Hörður Sigursteinsson, gjaldkeri, Eðvald Marelsson, var- aritari, Stefán Björgvinsson, fjár- málar., Guðbergur Þorsteinsson, meðstj., Ólafur Jóhannsson. Varastjórn: Sigurvin Guð- brandsson, Bjarni Guðnason og Sófus Berthelsen. Á fundinum var m.a. samþykkt eftirfarandi tillaga. Aðalfundur verkamannafélagsins Hlífar ha- ldinn 29. júní 1981 telur laun verkafólks orðin svo bágborin, að eigi verði við unað. Því skorar fundurinn á verkafólk um land allt að búa sig undir harða kjarabaráttu á komandi hausti. Jafnframt vill fundurinn minna háttvirta ríkisstjórn Islands á aðvaranir verkalýðshreyfingar- innar fyrr og síðar að fikt við vísitölu kaupmáttar verði ekki þolað. Akurcyri. 6. júlí. NÝLEGA keypti Flugfélag Norð- urlands hf. skrúfuþotu af Mitsu- bishi-gerð frá Venezuela, og var henni flogið frá Chicago til Akur- eyrar. Framkvæmdastjóri féiags- ins, Sigurður Aðalsteinsson, flaug vélinni heim ásamt Jóhann- esi Fossdal. flugstjóra. Vélin er mjög lítið notuð, hefir aðeins verið flogið 1200 flugtíma. Iiún er öllu hraðfleygari en Fokker- vélarnar. hefir 510 km farflug- hraða á klst.. þannig að hún er aðcins 40 mínútur að mcðaltali milli Akureyrar og Rcykjavikur. Hún þarf ekki lengri flugbraut en flestar litlar tveggja hreyfla flugvélar, sem eru i notkun hér á landi. og á mjög stuttri braut getur hún hcmlað með hreyflun- um auk hjólahemla. Gallinn cr sá, að vegna ha ttu á skemmdum af steinkasti er ekki gripið til þessa búnaðar á malarvöllum. Vélin tekur 10 farþega í sæti, og hana er hægt að nota á flestum áætlunarleiðum FN. í Ólafsfirði er flugbrautin þó of stutt, en á leiðinni Akureyri-Ólafsfjörður- Reykjavík mundi vélin henta afar vel og yfirleitt á öllum lengri leiðum. Nú er hún notuð til áætlunarflugs til Egilsstaða og Slökkviliðið á Keflavíkurflugvelli: Sættir í vinnudeilu og setuverkfaUi lokið Setuverkfalli slökkviliðs- manna á Keflavikurflugvelli lauk i gær, er samkomulag tókst milli þeirra og varnarliðsins i Filharmóníuhljómsveitin í Stokkhólmi: Næsta starfsár verð- ur með íslenzkum blæ NÆSTA starfsár Filharmóniu- hljómsveitarinnar i Stokk- hólmi mun hafa á sér islenskan blæ. Hljómsveitin er ein hin þekktasta í Evrópu og hefur hún aðsetur i Tónleikahúsinu i Stokkhólmi, þar sem eru tveir tónleikasalir. Flutt verða verk eftir íslensk tónskáld og íslenskir flytjendur munu koma þar fram sem hér segir: 19. sept. 1981 leika Guðný Guðmundsdóttir konsertmeist- ari, Hafliði Hallgrímsson selló- leikari og Philip Jenkins píanó- leikari í Grúnewald-salnum. Á efnisskránni eru m.a. Píanótríó í e-moll eftir Sveinbjörn Svein- björnsson og Origami eftir Haf- liða Hallgrímsson. 18. nóv. 1981 flytur Fílharm- óníuhljómsveitin Sögusinfóní- una eftir Jón Leifs undir stjórn Jussi Jalas. Þættir úr verkinu verða endurteknir þann 21. nóv. 29. nóv. 1981 heldur Kamm- ersveit Reykjavikur tónleika í Grúnewald-salnum. Stjórnandi verður Páll P. Pálsson og ein- söngvari Ruth L. Magnússon. Á efnisskránni eru verk eftir Jón Ásgeirsson, Pál P. Pálsson, Hjálmar Ragnarsson, Atla Heimi Sveinsson o.fl. 3. des. 1981 heldur Ruth L. Magnússon tónleika í Grúne- wald-salnum. Á efnisskránni verða sönglög eftir íslenska höf- unda. 16. des. 1981 verður frumflutt hljómsveitarverkið Hjakk eftir Atla Heimi Sveinsson. Fílharm- óníuhljómsveitin leikur undir stjórn György Lehel. Verkið verður endurtekið 17. des. 30. jan. 1983 leikur Nils-Erik Sparf, konsertmeistari, Forleik, prelúdíu og fúgu yfir BACH eftir Þórarinn Jónsson. 24. febr. 1982 flytur Fílharm- óníuhljómsveitin hljómsveitar- verkið Leiðslu ftir Jón Nordal undir stjórn Karsten Ander- sens. Verkið verður endurflutt 25. og 27. febr. 3. mars flytur Fílharmóníu- hljómsveitin Fiðlukonsert eftir Þorkel Sigurbjörnsson. Einleik- ari verður Hannele Segerstam og stjórnandi Leif Segerstam. 6. apríl leikur Hans Fagius á nýja orgelið í Tónleikahúsinu Inngang og passacagliu eftir Pál ísólfsson. 23. júní 1982 stjórnar Páll P. Pálsson Fílharmóníuhljómsveit- inni. Einleikari verður Manúela Wiesler og leikur hún m.a. flautukonsertinn Evridís eftir Þorkel Sigurbjörnsson. Ennfremur kemur út bækl- ingur um íslenskt tónlistarlíf, höfunda og flytjendur á vegum Tónleikahússins. Höfundur hans er Göran Bergendal, þekktur tónvísindamaður og skipuleggjandi. Á undanförnum árum hefur Fílharmóníuhljómsveitin í Stokkhólmi kynnt eitt Norður- landanna á hverju starfsári. Forstjóri Tónleikahússins og Fílharmóníuhljómsveitarinnar er Bengt Olof Engström. (Frétt frá Tónskáldafélagi Islands). vinnudeilu er þar kom upp vegna breytinga á starfstilhögun á Keflavíkurflugvelli. Mik Magnússon blaðafulltrúi varnarliðsins sagði í samtali við blaðamann Morgunblaðsins í gær að málið hefði snúist um breytta vinnutilhögun við snjóruðning og hreinsun á flugbrautum, og um vinnu við svonefndar þotugildrur, sem þotur varnarliðsins lenda í. — Að öðru leyti kvaðst Mik Magn- ússon ekki vilja tjá sig um málið en ítrekaði að deilan væri leyst og setuverkfallinu lokið. Mik sagði einnig að aldrei hefði verið slakað á neinu í sambandi við öryggi á flugvellinum, vinnu- deilan hefði aðeins náð til hliðar- starfa og daglegra „rútínu starfa" Sveinn Eiríksson slökkviliðs- stjóri vildi ekkert um málið segja annað en að deilan væri leyst. — Stefán Björnsson talsmaður slökkviliðsmannanna tók í sama streng, og taldi málið ekki blaðamál, það yrði leyst af þeim aðilum er það snerti. ísafjarðar auk leiguflugs á lengri leiðum innanlands og til útlanda og er þar tiltölulega ódýr í rekstri miðað við aðrar flugvélar af sam- bærilegri stærð. Hún gæti t.d. flogið frá Akureyri til Kaup- mannahafnar á rúmum 4 klst. Vélin er með jafnþrýstiklefa. Vandað hefur verið til þjálfunar flugmanna á þessari vél, en 5 af flugmönnum félagsins hafa lokið þjálfun við stjórn hennar. Fyrsti maðurinn, sem fékk réttindi til flugs á Mitsubishi-vélum utan Japan og býr þ.ví yfir margra ára reynslu, kom til Akureyrar með flugvélinni og annaðist bóklega og verklega þjálfun hinna íslensku flugmanna. I flugflota Flugleiða Norður- lands hf. eru nú 6 flugvélar, þar af 5 farþegavélar, sem geta tekið samtals 61 farþega i sæti. Auk nýju vélarinnar á félagið 2 Twin- Otter-vélar með 19 sætum hvora, Piper Chieftain með 8 sætum og Piper Aztek með 5 sætum. Þar að auki á félagið kennsluflugvél og rekur flugskóla með bóklegri kennslu á vetrum og verklegri kennslu allt árið. Félagið leigir aðra Twin-Otter-vélina Flugleið- um hf. í sumar án fiafnar en hin verður um mánaðartíma í leigu- flugi á Grænlandi, en slíkt flug hefir verið mikið stundað undan- farin ár. Flugfélag Norðurlands hf. hefir nú 15 manna starfslið. Flugmenn í fullu starfi eru 7, þar á meðal framkvæmdastjórinn, Sigurður Aðalsteinsson, flugvirkjar eru 5 og svo 1 skrifstofumaður og 1 afgreiðslumaður. Flugleiðir hf. annast afgreiðslu flugvélanna í áætlunarflugi, en það sparar mik- ið mannahald. Auk mikils leigu- flugs, þ.á m. Grænlandsflugs og sjúkraflugs, heldur félagið uppi föstum áætlunarferðum til ísa- fjarðar, Siglufjarðar, Grímseyjar, Kópaskers, Raufarhafnar, Þórs- hafnar, Vopnafjarðar og Egils- staða, einnig á leiðinni Akureyri- Ólafsfjörður-Revkjavík. Sv.P. íbúasamtök Vesturbæj- ar funda um skólamál íbúasamtök Vesturbæjar héldu aðalfund þann 14. april sl. að Hallveigarstöðum við Túngötu. Auk venjulegra aðalfundarstarfa voru rædd skólamál hverfisins. Kristján Gunnarsson fræðslu- stjóri flutti þar ítarlegt erindi um skólamál. Formaður fræðsluráðs, Kristján Benediktsson, sat fund- inn, ásamt fulltrúum úr fræðslu- ráði. Núverandi stjórn íbúasam- taka Vesturbæjar skipa eftirtaldir menn: Brynhildur K. Andersen, formaður, Jóhannes Guðfinnsson, Stefán Örn Stefánsson, Þóra Benediktsson og Þórunn Klem- enzdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.