Morgunblaðið - 09.07.1981, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 09.07.1981, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ1981 35 Tvenns konar taflmennska Tvenns konar taflmennska: Nafn á frummálinu: Hopscotch Handrit: Ryan Forbes/Brian Garfield. Leikstjórn: Donald Neame. AAstoðarleikstjórar: Patrick Clayton/William Hassel/ Maurice Marks/Cris Carreras/ Kieron Phipps. Sýninjfarstaður: LauKarásbió. Það er ósköp notalegt í þessum björtum sumarmánuðum að bregða sér á létta gamanmynd fulla af sólríkum húmor. „Hopscotch" sem Laugarásbíó sýnir um þessar mundir er kannski ekki svo ofsafyndin en ekki vantar sólskinið. Er óvenju bjart yfir myndinni allan tím- ann og ekki sakar að sá tónsnill- ingur sem hvað sólríkastar melódíur hefir skapað — sjálfur Mozart — leggur til tónlistina. Dettur manni í hug hvort Moz- art hafi ekki á sínum tíma verið flokkaður sem „poppari". Svona eins og Paul McCartney er í dag? Hver veit hver lifir augnablikið? Það er nefnilega ekki formið sem skiptir máli í tónlistinni heldur melódían. Hvað um það, þá eru það hinar ljúfu melódíur Mozart (Puccini o.fl.) sem ljá þessari hálf gamansömu njósnamynd fremur geðþekkan hugblæ. En ekki dugir ljúf músík til að gera ljúfa kvikmynd. Ef leikar- arnir eru andstyggilegir, heyrir maður vart tónlistina eða hún fer í fínustu taugar. Stórleikar- inn Walter Matthau er jafn ljúfur og tónlist Mozarts og án hans væri þessi mynd hvorki fugl né fiskur. Skyggir hann gersamlega á aðra leikara mynd- arinnar. Þó er eins og Matthau sé ekki hér í sínu besta formi. Finnst mér raunar kappinn hafa slakað full mikið á uppá síðkast- ið. Hann sé búinn að koma sér upp býsna þægilegu gervi. Sá Matthau sem við sjáum á tjald- inu sé sá sami og við mætum í kjörbúðinni. Það er varla að maður þoli Glendu Jackson við hlið á slíkum öðlingi. Mætti sú kvenpersóna gjarnan snúa sér að einhverju öðru en gamanmynd- um. Annars er efni „Hopscotch" ekki sérlega kómískt, raunar fremur tragískt. Miles Kendig starfsmaður CIA er settur af. Yfirmaðurinn sem rekur hann er dæmigerður kerfisþræll sem hinn slungi Kendig snýr ræki- lega á með ýmsum hundakúnst- um. Ég hef grun um að fyrir- mynd CIA yfirmannsins sé Stansfield Turner aðmíráll, sem Carter skipaði á sínum tíma í sæti yfirmanns CIA, en Turner byrjaði sinn feril á að reka 820 gamalreynda starfsmenn — raunar gætu Schlesinger og Col- by eins verið fyrirmyndin — skiptir ekki máli þvi hér er ekki verið að deila á ákveðinn mann heldur ákveðna manngerð. Manngerð þessi hefur það helst sér til ágætis að vera gersneydd öllum húmor. Fyrir henni er lífið sem skákborð þar Grautfú! Glenda Jackson káss- ast utaní hinum kostulega Walter Matthau. Kvlkmyndlr eftir ÓLAF M. JÓHANNESSON sem hvítu og svörtu reitirnir skarast ekki. í kvikmyndinni „Hopscotch" er taflmönnunum í upphafi raðað snyrtilega á þessa hvítu og svörtu reiti. Svo kemur Walter Matasschanskayasky og sullar þeim út um allt borð. Einhvern veginn finnst manni að slíkur sóðaskapur sé helst til bjargar mannkyninu, en því miður, ætli það verði ekki þessir með hvítu flibbana og svörtu bindin sem tefla fyrir okkur skákina? Búnaðarsamband Vestur- Húnavatnssýslu fimmtíu ára Staðarbakka. 7. Júli. ÞANN 5. júlí síðastliðinn voru liðin 50 ár frá þvi að Búnaðar- samhand Vestur-Húnvetninga var formlega stofnað. í tilefni þessara tímamóta bauð stjórn sambandsins til kvöldfagnaðar i Staðarskála 3. þessa mánaðar og voru gestir um 70. Formaður sambandsins, Sigurð- ur J. Líndal, Lækjarmóti, setti hófið, en veizlustjóri var Aðal- steinn Benediktsson, ráðunautur. Sigurður flutti yfirlit um störf sambandsins þessa hálfu öld og kom þar fram að það hefði verið frumkvöðull eða tekið virkan þátt í öllum meiriháttar framkvæmd- um á sviði búnaðarmála í hérað- inu á þessu árabili. Fyrsti formað- ur þess var Gísli Eiríksson bóndi á Stað og gegndi hann því starfi í 18 ár. Við þetta tækifæri fluttu ávörp landbúnaðarráðherra, Pálmi Jónsson, formaður Búnaðarsam- bands Islands, formaður Stéttar- sambands bænda og formenn bún- aðarsambandanna í Austur- Húnavatnssýslu og Strandasýslu. Fyrir nokkrum árum tók sam- bandið upp þá nýbreytni að veita viðurkenningu til þeirra, sem á einhvern hátt sköruðu fram úr á sviði búnaðarmála. Einu sinni áður hafði slík verðlaunaafhend- ing farið fram, en að þessu sinni hlutu hjónin Hjálmar Pálmason og kona hans, Guðlaug Sigurðar- dóttir, Bergsstöðum á Vatnsnesi, viðurkenningu fyrir sérlega góðan árangur í heyverkun, votheysgerð og mjög mikla arðsemi sauðfjár, en fyrir framúrskarandi snyrti- mennsku og umgengni fengu við- urkenningu hjónin á Akurbrekku í Hrútafirði, Böðvar Þórhallsson og Kristín Jóhannsdóttir. Á milli ávarpa og atriða var almennur söngur, sem Ólöf Pálsdóttir stjórnaði. Veitingar voru rausnar- legar og samkoman í alla staði hin ánægjulegasta. Benedikt ntÖt'"s'Wla aö toa''t'Wo^a.^p\av"a Heildsöludreifing iUÍAorhf Símar 85742 og 85055

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.