Morgunblaðið - 09.07.1981, Side 3

Morgunblaðið - 09.07.1981, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ1981 Viðræður um stuðning við Flugleiðir: Luxemborgarmenn gefa svar eftir rikisstjómarfund * Steingrímur Hermannsson leggur til stuðning af hálfu Islands Skýrt var frá viðræðum fulltrúa íslands og Luxemborgar á blaðamannafundi í gær. FUNDI samgönguráðhcrra Lux- emborgar og íslands og flug- málastjóra landanna ásamt öðr- um embættismönnum um stuðn- ing ríkisstjórna landanna við Atíantshafsflug Fluglciða lauk i Reykjavik í gærmorgun án þess að niðurstaða fengist. Stein- grímur Hermannsson kvaðst mundu leggja til við ríkisstjórn- ina að Flugleiðum verði aftur veittur 3 milljóna dollara stuðn- ingur í eitt ár. en Jose Barthcl, samgönguráðherra Luxemborg- ar, kvaðst verða að gefa ríkis- stjórninni skýrslu um viðræð- urnar og sagði hann að á fundi hennar á morgun yrði tekin ákvörðun um stuðning. Steingrímur Hermannsson kvaðst telja áframhaldandi að- stoð ríkisins verjanlega þar sem svo virtist sem framundan væru nú horfur á öruggari rekstrar- grundvelli Atlantshafsflugsins og sagðist hann þar byggja á skýrslu bandaríska ráðgjafarfyrirtækis- ins Aviation Consulting, sem fengið var til að kanna rekstur- inn á þessari flugleið og framtíð- arhorfur. Sagði hann í skýrslunni m.a. gert ráð fyrir notkun breið- þotu, daglegum ferðum yfir hafið og að hallalausum rekstri yrði náð eigi síðar en árið 1984 og gert ráð fyrir um 65% til 85% sæta- nýtingu á næstu árum. Jose Barthel, samgönguráð- herra Luxemborgar, sagði við- ræðurnar hafa verið vinsamlegar og gagnlegar, öll spil hefðu verið lögð á borðið og menn rætt opinskátt um þennan vanda. Sagðist hann vera jákvæður í garð Flugleiða og gera sér ljósa grein fyrir þýðingu starfsemi fyrirtækisins fyrir bæði löndin, en í Luxemborg væri einnig við Luxemborgar. Ljósm.: Guðjón. aðra erfiðleika að etja í efna- hagslífi, atvinnuleysi og erfið- leika í stáliðnaði. Því gæti hann ekki sagt fyrr en eftir ríkisstjórn- arfund á morgun hvaða afstöðu Luxemborgarmenn tækju til hugsanlegs stuðnings við Flug- leiðir og þá með hvaða hætti. Sigurður Helgason forstjóri Flugleiða, sagði að á stjórnar- fundi fyrirtækisins í dag yrðu þessi mál rædd, m.a. skýrsla Bandaríkjamannanna, en ekki teknar neinar stórar ákvarðanir, t.d. um breiðþotukaup. Sigurður sagði sjáanleg ákveðin merki um hatnandi stöðu fyrirtækisins á næstunni og kvaðst vona að grundvöllur fyndist fyrir áfram- haldandi Atlantshafsflugi. Breiðþota hentugust í Atlantshafsflug Flugleiða? Skýrslan byggð á raun- sæi en ekki bjartsýni - segir forstjóri ráðgjafarfyrirtækisins er tók saman skýrsluna „BREIÐÞOTA hæfir betur Norð- ur-Atlantshafsfluginu og nú er gott tækifæri til að kaupa slíka þotu. Um þessar mundir eru fáanlegar g«jðar notaðar breið- þotur á kringum 25 milljónir dollara. en nýjar kosta þær um 50 milljónir dollara. Þær eru scldar á lægra verði nú en nokkru sinni áður eða mun verða og þetta ta kifa ri eiga Flugleiðir að nota sér.“ Það er Dixon Speas, sem rekur bandaríska ráðgjafarfyrirtækið Aviation Consulting, sem mælir þessi orð, en fyrirtæki hans hefur síðustu mánuði kannað rekstr- argrundvöll og horfur Norður-Atl- antshafsflugs Flugleiða. Skýrsla þessi var unnin eftir viðræður stjórnvalda íslands og Luxem- borgar, m.a. fyrir Luxair, Cargo- lux og Flugleiðir. „Flugleiðir standa á gömlum merg á leiðinni yfir Norður-Atl- antshaf þar sem Loftleiðir hafa getið sér góðan orðstír í gegnum 25 ár,“ sagði Dixon Speas enn- fremur. „Fyrirtækið er vel þekkt í Bandaríkjunum og fólk minnist lengi ferða með viðkomu á Islandi. T.d. ungt fólk með lítil auraráð, sem notaði sér hin ódýru fargjöld Loftleiða, það vill gjarnan ferðast með Flugleiðum enn í dag. Starfs- fólkið er líka vel þjálfað og með mikla reynslu i öllu er lýtur að flug- og ferðamálum. Stjórnendur fyrirtækisins hafa gegnum árin notað tækifæri sem buðust til að treysta grundvöll sinn, efla og endurnýja flugvélakost og koma til móts við óskir farþega. Þrátt fyrir að nú gangi illa um sinn álít ég að enn séu tækifæri og þar á ég við breiðþotur. í skýrslu okkar teljum við hag- kvæmast að breiðþota sé notuð til ferða milli New York og Luxem- borgar og að flogið verði beint eða með viðkomu á íslandi. Tel ég að R. Dixon Speas. forstjóri handariska ráðgjafarfyrirtækisins, sem kannaði rekstrargrundvöll og framtíðarhorfur flugs Flugleiða á Norður-Atlantshafsleiðinni (t.v.) og Einar Aakrann. stöðvarstjóri Flugleiða i Luxemborg, en þeir hafa unnið mikið saman vegna könnunar þessarar. I.jósm. Rax. full þörf verði á breiðþotu og að Flugleiðir eigi að stefna að því að taka hana í notkun vorið 1982 og held að upp frá því muni hún henta bezt á þessari leið sumar sem vetur." Kinar Aakrann, stöðvarstjóri Flugleiða í Luxemborg, tók undir með Speas að ferðamannastraum- ur væri vaxandi. Sagði hann að í sumar væru nú farnar 9 til 10 ferðir yfir hafið í stað 6 til 7 eins og ráðgert hafði verið og auknar bókanir hefðu orðið til þess að ferðum var fjölgað. Sagði Einar að með bættri aðstöðu í Luxemborg mætti einnig búast við auknum ferðamannastraumi. „Ekki er óeðlilegt að flugfélag, sem í 25 ár hefur staðið sig í samkeppni á þessari erfiðu flug- leið, lendi einhvern tíma í erfið- leikum og nú eru þeir vegna síharðnandi verðstríðs og frjáls- ræðis í fargjaldamálum," segir Speas. „Einnig hefur hækkandi eldsneytiskostnaður aukið á erfið- leikana. Nú er svo komið að stærstu flugfélögin í Bandaríkjun- um tapa stórfé á flugleiðum sinum yfir Norður-Atlantshaf og þau eru nú að sjá að það getur ekki gengið lengur. Jafnvel þótt þessi flugfélög hafi aðrar leiðir, sem skila hagn- aði, þola þau ekki til lengdar að tapa stórfé." Dixon Speas sagði, að meðal skýringa á þessu mikla verðstríði væri tilkoma Laker Airways og Air Florida. Félögin hafi komið snögglega inn á þennan markað og boðið ódýr fargjöld til að ná farþegum. Nú þegar þau væru búin að koma sér fyrir á þessum leiðum gætu þau hins vegar tekið upp breytta stefnu og segir Speas að þess verði skammt að bíða, að mörg flugfélög sameinist um að hækka fargjöld sín yfir hafið, mörg teikn séu á lofti um það. „Þetta er að mínu viti ekki bjartsýni heldur raunhæf spá og á þessum upplýsingum byggjum við,“ segir Speas. „Við reynum að vera íhaldssöm og jafnframt raunsæ í útreikningum okkar og ég held að Flugleiðir muni á næstunni ná mun betri stöðu á Norður-Atlantshafinu. Erfiðleikar í 2 til 3 ár eru ekki mikið þegar litið er til 25 góðæra, en þeir eru að sjálfsögðu miklir meðan þeir standa yfir. Við höfum líka fundið, að Lux- emborg á vaxandi vinsældum að fagna meðal ferðamanna, því þar lenda menn ekki í örtröð og eilífum biðröðum eins og á flestum stórum flughöfnum í Evrópu. Þá hefur ísland í síauknum mæli verið í fréttum m.a. vegna eldgosa og allt eykur þetta áhuga manna fyrir landinu og þrá til að ferðast hingað. Áður fyrr var nauðsynlegt að ferðast um Island vegna ódýrra fargjalda, en nú er það orðið aðlaðandi og allt rennir þetta stoðum undir þá skoðun okkar, að Flugleiðir nái aftur fyrri stöðu á þessari flugleið." Fyrirtæki sitt um ráðgjöf fyrir flugrekstur stofnaði Dixon Speas árið 1951 og hefur það yfir að ráða sérfræðingum á sviði fjármála, tæknimála varðandi flugvélar og flugrekstrarmála. Hafa 7 menn tekið saman skýrsluna, en af þeim eru 4 fyrrverandi starfsmenn bandarískra flugfélaga. Aviaton Consulting hefur annast ráðgjöf m.a. fyrir SAS, Swissair, Air France, British Airways svo dæmi séu nefnd, einnig starfað nokkuð í Afríku og Asíulöndum. Dixon Speas starfaði sjálfur í 10 ár hjá American Airlines og á stríðsár- unum átti hann oft viðkomu hér- lendis. „Þá flugum við DC-3 vélum og fórum mikið milli Evrópu og Ameríku, en nú er ég alveg hættur að fljúga og hefi síðustu 30 árin starfað að hvers kyns ráðgjöf fyrir flugfélög. Hef ég áður unnið fyrir íslendinga, t.d. með Loftleiða- mönnum þegar þeir ákváðu að kaupa CL-44 vélar sínar, sem lengi voru notaðar á flugleiðinni yfir Norður-Atlantshaf,“ segir Speas að lokum. Sigrún Magnúsdótt- ir leikkona látin SIGRÚN Anna Magnúsdóttir leikkona lézt i Reykjavik hinn 7. júli si. Sigrún var (ædd 24. nóvember 1904 á Ísaíirði. Sigrún Magnúsdóttir vann við afgreiðslustörf á Isafirði og tók þar mikinn þátt í sönglífi og starfaði með Leikfélagi ísafjarð- ar. Að áeggjan Haraldar Björnssonar hélt hún árið 1928 til náms við Konunglega leik- skólann í Kaupmannahöfn og dvaldi þar í 2 ár. Eftir heimkom- una 1930 hóf hún að leika með Leikfélagi Reykjavíkur, en fimmtug að aldri ákvað hún að hætta leikstörfum og fluttist til ísafjarðar. Þar fékkst hún við verzlunarstörf og gerðist meðeig- andi að Hannyrðabúð ísafjarðar með mágkonu sinni Kristínu Gísladóttur. Síðustu árin vann hún á skrifstofu Skipasmíða- stöðvar Marselíusar Bernharðs- sonar. INNLENT

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.