Morgunblaðið - 11.07.1981, Page 1

Morgunblaðið - 11.07.1981, Page 1
36 SÍÐUR OG LESBÓK ©r^ttttXiIab tS> 152. tbl. 68. árg. LAUGARDAGUR 11. JtJLÍ 1981 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Gierek sviptur heiðursmerkjum Varsjá. 10. iiili. AP. MIÐSTJORN pólska kommúnistaflokksins, sem nú situr á fundum í Varsjá, steig í dag fyrstu skrefin í þá átt að reka Edward Gierek, fyrrum flokksleiðtoga, úr kommúnistaflokkn- um. Miðstjórnin, en í henni eru 143 menn, mælti með þvi, að flokksaðild Giereks verði endurskoðuð, svo og aðild nokkurra annarra valdamikilla flokksleiðtoga á valdaferli Giereks. Meðal þeirra er Edward Babiuch, fyrrum forsætisráðherra, en ákvörðun stjórnar hans um verðhækkun á kjöti varð kveikjan að verkföllunum i Gdansk, sem leiddu af sér stofnun Samstöðu, hinna óháðu verkalýðsfélaga í Póllandi. Þá mælti miðstjórnin með því að Gierek, Babiuch og nokkrir áhrifamenn frá valdatíð Giereks, verði sviptir heiðursmerkjum, sem þeir voru sæmdir. Að sögn fréttaskýrenda, er markmið brottvísunar Giereks og félaga gerð i því augnamiði að koma í veg fyrir umræður á þingi flokksins um mistök Giereks. Miklar umræður eru í Póllandi um væntanlegt þing kommúnista- flokksins, sem hefst eftir þrjá daga. Fastlega er reiknað með að þingið muni leggja blessun sína yfir þær félagslegu og efnahags- legu umbætur, sem stjórnvöld hafa samið um við Samstöðu. Starfsmenn LOT, hins ríkis- rekna pólska flugfélags, höfnuðu í dag skipan nýs framkvæmda- stjóra félagsins. Starfsmenn fóru í gær í fjögurra klukkustunda langt verkfall til að leggja áherzlu á kröfur sínar um, að þeir öðlist vald til að eiga hlut að máli um skipan framkvæmdastjóra. Verkamenn í Bydgoszcz fengu því framgengt í dag, að starfsmað- ur kommúnistaflokksins, sem þeir höfðu ásakað um spillingu, yrði settur af og virðist deilum í borginni lokið, um sinn að minnsta kosti. Indland: Fjöldi manns lézt er verksmiðja hrundi Nýju I)elhi, 10. júlí. AP. í KVÖLD var enn óljóst, hversu margir hefðu beðið bana i ind- verska bænum Surat fyrir norð- an Bombay, þegar ketilsprenging varð í silkiverksmiðju og bygg- ingin hrundi eins og spilaborg. Staðfest hefur verið að 27 séu fundnir látnir. en óttast að sú tala eigi eftir að hækka. Um eitt hundrað eru slasaðir, þar af margir alvarlega, og enn eru margir grafnir í rústunum og ekki vitað um afdrif þeirra. Alls voru fjögur hundruð starfsmenn í verksmiðjunni, þegar þetta gerðist því að vaktaskipti voru að fara fram og því fleiri á staðnum en endranær. Björgunarsveitum hefur tekizt að bjarga þó nokkrum og aðrir komust upp af eigin rammleik. En eins og fyrr segir er óttazt að fjöldi særðra og látinna sé grafinn í rústunum. Ástvinir þeirra sem saknað er þustu á staðinn eftir að spurðist út um slysið og átti lögregla í erfiðleikum um hríð með að hafa hemil á harmþrungnu og skelfdu fólki. I fyrstu komust á kreik sögu- sagnir um að skemmdarverk hafi valdið þessari sprengingu, en tals- maður lögreglunnar í Bombay segir það vera fleipur eitt. Isabel komin til Spánar Isabel Peron, fyrrverandi forseti Argentínu, sést hér við komuna til flugvallarins í Madrid i gær, föstudag. Hún var látin laus úr stofufangelsi, sem hún hefur mátt dúsa i siðustu fimm ár, á mánudag. Hún neitaði að ræða nokkuð um framtiðaráform sin við blaðamenn og er ekki vitað hvort hún hyggst setjast að i húsi þvi sem hún og Peron bjuggu i, áður en þau héldu til Argentinu á ný á sínum tíma. Mikið fjölmenni var á vellinum. hrifnir aðdáendur Perons hrópuðu til hennar og buðu hana velkomna en einnig var hópur manna sem lét i ljósi andúð á þvi að hún væri komin til Spánar og kallaði til hennar ýmis ókvæðisorð. Tyrkland: Stjórn- lagaþing komi sam- an í haust Ankara. Istanhul. 10. júlí. AP. HERSTJÓRNIN í Tyrklandi kunngerði i dag að langþráð stjórnlagaþing myndi koma saman til fyrsta fundar þann 23. október. í tilkynningu ráðsins sagði að aldursforseti myndi stjórna þingstörfum unz forseti hefði verið kjörinn. Vestrænir fréttamenn í Tyrklandi telja að þar með hafi verið stigið fyrsta skrefið til endurreisnar þing- ræðis í Tyrklandi. og að starf- semi stjórnmálaflokka verði leyfð að nýju. bað er Kenan Evren sem er forseti Þjóðarráð- sins og mun það tilnefna 40 fulltrúa á stjórnlagaþingið en 120 verða kjörnir í 67 kjördæm- um Tyrklands. Ráðið mun hafa neitunarvald varðandi öll laga- frumvörp sem koma fyrir þing- ið. Meginverkefni stjórnlagaþings- ins er að semja nýja stjórnarskrá fyrir landið eins og orðið gefur raunar til kynna. Saksóknari herdómstóls Istan- bul hefur krafizt dauðadóms yfir 40 mönnum fyrir meinta aðild að þremur ólöglegum vinstri samtök- um og eru mennirnir bornir þeim sökum að hafa ætlað að koma á kommúnísku stjórnskipulagi í Tyrklandi. Þá segir og í fréttum að látinn hafi nú verið laus úr fangelsi Hikmet Cetinkaya, einn af rit- stjórum Cumhuryiets sem er eitt helzta málgagn vinstrimanna í Tyrklandi. Hann hefur verið í fangelsi og yfirheyrslum síðustu 17 daga. Hersveitir kynnu að verða sendar inn í breskar borgir I/ondon, 10. júli. AP. TIL UPPÞÓTA kom i Brixton i Suður-London i dag, en þar dró fyrst til óeirða fyrir þremur mánuðum. Undanfarið hefur allt verið með kyrrum kjörum i Brixton. Nú börðust um 400 svartir unglingar við lögregluna í klukkustund. Múrsteinum og flöskum var kastað að lögregl- unni og kveikt var i bifreið. brir lögreglumenn slösuðust. Japanir efla landvarnir - vegna aukinnar ógnunar frá Sovétríkjunum Tókýó. 10. júli. AP. JAPANSKA stjórnin er á sama máli og rikisstjórn Bandaríkj- anna um vaxandi hernaðarhættu sem stafi frá Sovétrikjunum og hefur ákveðið að gera „meirihátt- ar átak“ til að efla og bæta varnir sinar. að þvi er opinberar heimild- ir létu hafa eftir sér i dag. Kyodo-fréttastofan japanska sagði að fulltrúi ríkisstjórnarinnar hefði sagt fréttamönnum frá því að ákvörðun hefði verið tekin um að binda endi á þann ágreining sem hefur verið varðandi þetta mál milli stjórnanna í Tókíó og Wash- ington, en Bandaríkjamenn hafa hvatt Japani til að leggja meira fé af mörkum til varnarmála, og bent á að fuli ástæða væri til þess vegna aukinna umsvifa Sovétríkjanna, en Japanir hafa verið tregir til þar til nú. Fulltrúi ríkisstjórnarinnar vitn- aði til ríkisstjórnarsamþykktar frá 1976, þar sem ákveðið er að til varnarmála sé varið innan við sem svari einu prósenti þjóðartekna. Þrátt fyrir „andvígbúnaðarstefnu" sína hefur Japan á að skipa áttunda fjölmennasta herliði heims og árið 1981 var áætlað að Japanir verðu til hermála um 11 milljörð- um dollara. Ekki var skýrt í hverju efling varna landsins myndi falin, en sagt að stjórnin hefði tekið þessa ákvörðun eftir að hafa kannað skýrslu varnarmálaráðherra lands- ins sem kom í dag heim frá Washington. Þar átti varnarmála- ráðherrann viðræður við banda- rískan starfsbróður sinn svo og Alexander Haig utanríkisráðherra. Maður, sem var vitni að upphafi uppþotanna, sagði, að til þeirra hefði komið, þegar lögreglan stöðvaði bíl, sem hún taldi að væri stolinn, og handtók skömmu seinna verslunarmann í hverfinu, sem kom þar að. Hópur unglinga safnaðist saman á nokkrum mín- útum og byrjaði fljótt að kasta lausum hlutum að lögreglunni. Fólk í verslunarerindum flúði staðinn og verslunareigendur lok- uðu verslunum. William Whitelaw, innanríkis- ráðherra, sagði skömmu áður en til ólátanna kom, að ekki væri hægt að útiloka, að hersveitir yrðu sendar lögregluliðum í Liverpool, Manchester og London til aðstoð- ar, ef uppþotin héldu áfram. Hann sagðist þó vera mótfallinn því og reynslan í Norður-írlandi hefði sýnt, að erfitt væri að kalla herlið aftur frá ófriðarstöðum, þegar það hefði einu sinni verið sent þangað. Margaret Thatcher, forsætis- ráðherra, heimsótti í dag Southall í London, þar sem óeirðirnar hófust fyrir viku. Hún sagðist hafa átt „vinsamlegar" viðræður við leiðtoga í hverfinu. Óstaðfest- ar fréttir hermdu í dag, að hún myndi heimsækja Manchester ein- hverh næstu daga, en Whitelaw fór þangað í dag. Skila millj- arði dollara WashinKton 10. júli. AP. BANDARÍSKIR bankar afhentu i dag. fulltrúum bandariskra stjórnvalda. rösklega tvo millj- arða dollara. sem hafa verið í eigu írana og íranskra fyrir- tækja. en hafa verið frystir frá þvi bandariska sendiráðið i Te- heran var tekið. Eins og alkunna er, samdi bandariska stjórnin um það að láta ákveðna upphæð af hendi þegar gislarnir hefðu verið látnir lausir. Um helmingur fjárins verður síðan sendur til Irans eftir nokkra daga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.