Morgunblaðið - 11.07.1981, Side 24

Morgunblaðið - 11.07.1981, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ1981 HVAÐ ER AÐ GERAST UM HELGINA? MYNDLIST Ljósmyndasýning í Djúpinu Nú stondur yfir sýninK ú verkum Jay W. Shoots i galleri Djúpinu. A henni eru 50 ljósmyndir flestar í svart hvítu og eru allar teknar á 35 mm Leica M2. Jay W. Shoots er fæddur í Winter Park, Florida árið 1957. Hann byrjaði að fást við ljós- myndun 14 ára gamall og sl. 5 ár hefur hann eingöngu unnið við ljósmyndun sem listform. Hann stundaði nám við New England School of Photography í Boston. Sýningin er opin daglega frá 11 til 23 og stendur til 22. júlí. TÓNLEIKAR Kvartett l Norrœna húsinu Á morgun klukkan 17.00 mun kvartettinn „Quatuor via nova“ halda tónleika i Norræna húsinu. Á efnisskrá eru Kvartett opus 41, no. 3 eftir Robert Schumann, Kvartett nr. 1 (næturmyndanir) eftir Gyorgy Ligeti og kvartett (L903) eftir Maurice Ravel. Kvartettinn var stofnaður árið 1968 og hefur hann hlotið m.a. „Le Grand prix du Disque Francais le Prix de 1 academie Charles Cros." Nú mun kvartettinn hefja tón- leikaferð sína um Norðurlönd í Reykjavík, en að því loknu mun hann halda til Stokkhólms og Helsinki þar sem hann tekur þátt í listahátíð Helsinkiborgar. TÓNLIST Orgeltón- leikar í Dóm- kirkjunni Á morgun klukkan 18 verða orgeltónleikar í Dómkirkjunni, en eins og undanfarin ár verður leikið í 30 til 40 mínútur á orgel á hverjum sunnudegi fram í ágústlok. CiwCo fcTU2 mjf.* ——————— Skuggi i landslagi, performance eftir Nan Hoover, sem var gerður undir áhrifum frá islensku landslagi. MYNDLIST Myndlistarhátíð um helgina Nú um helgina verður i Ný- listasafninu myndlistarhátið á vegum Nýlistasafnsins og í samvinnu við Wies Smalls for- stjóra Gallerie De Apple í Amst- erdam. Nefnist þessi myndlist- arhátíð „Samtímalist frá Hol- landi“ og byggist á verkum sex þarlendra listamanna. Á dagskránni eru m.a. Video- sýningar, performance, kvik- myndir, fyrirlestrar og fleira. í dag klukkan 13.15. mun Cristine Koenigs flytja stuttan fyrirlestur og sýna nýlegar kvik- myndir eftir sig í Regnboganum c. sal. Hefur hún gert margar kvikmyndir og verk í formi ljósmynda. Klukkan 16.00 í dag heldur Wies Smalls fyrirlestur í Nýlist- asafninu um performance og kemur með stutt dæmi af Video- spólum. Að síðustu mun Harry De Kroon flytja performance sinn í Nýlistasafninu. Á morgun mun Krijn Gizen opna installationverksýningu utanhúss hjá Nýlistasafninu klukkan 16.00. Þess má geta að Krijn vinnur oft með lífræn efni. Annað kvöld klukkan 20.00 opnar svo Nicolaus Urban In- stallation í Nýlistasafninu. Árni Garðar sýnir í Þrastalundi Árni Garðar er með mál- verkasýningu í Þrastalundi nú um þessar mundir. Sextán myndir eru á sýningunni sem unnar eru með vatnslitum. núpastel. olíupastel og bland- aðri tækni. Árni Garðar hefur áður haldið einkasýningar og tekið þátt í samsýningum. Myndirnar eru flestar til sölu og er sýningin opin til 20. júlí. Hægt er að njóta veitinga meðan sýningin er skoðuð. Ofeigur Olafsson í Eden Sýningu Ófeigs Ólafssonar í Eden í Hveragerði lýkur annað kvöld, en hún er opin í dag og á morgun. SYNINGAR Flugminjasýning í Arhœjarsafni Nú stendur yfir sýning á flugminjum í Árbæjarsafni. Sýning þessi er gerð í samvinnu við íslenska flugsögufélagið, Flugmálafélag Islands og Svifflugfélag Akureyrar. Á sýningunni er m.a. nýuppgerð flugvél Flugmálafélags íslands TF-SUX, TF-ÖGN, sem íslenska Flugsögufélag- ið er að endurbyggja og hlutar úr öðrum flugvélum. Sýningin er opin til fyrsta september. til ——M—iM——M—MiM———M

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.