Morgunblaðið - 11.07.1981, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ1981
5
F.v. Sr. Frank M. Halldórsson, formaður Prestafélags Suðurlands, sr. Sigurður Pálsson, vigslubiskup,
frú Stefania Gissurardóttir og sr. Þorbergur Kristinsson, formaður Prestafélags íslands.
Séra Siaurður Pálsson heiðraður í Skálholti
í FYRRADAG var séra Sigurð-
ur Pálsson, vígslubiskup, heiðr-
aður í Skálholti í tilefni af
áttræðisafmæli hans.
Séra Frank M. Halldórsson,
formaður Prestafélags Suður-
lands, flutti sr. Sigurði kveðju
félagsins og færði honum að gjöf
frá því hina nýju útgáfu Skarðs-
bókar. Séra Þorbergur Krist-
insson, formaður Prestafélags
íslands, flutti kveðju Prestafé-
lags íslands og færði vígslubisk-
upi að gjöf frá félaginu veglegan
pappírshníf með áletrun.
Aðalfundur ísleifsreglunnar,
félags áhugamanna um gregor-
ískan kirkjusöng, stóð yfir í
Skálholti dagana 7.-9. júlí og
flutti séra Sigmar Torfason séra
Sigurði kveðjur og gjöf frá
ísleifsreglunni. Þá flutti séra
Eiríkur Eiríksson, prófastur,
kveðjur presta í Árnesprófasts-
dæmi, en séra Sigurður Pálsson
var prófastur þar um skeið.
Alþýðuflokkurinn um
kjarnorkuvopnalaust svæði:
Einhliða yfirlýs-
ing tilgangslaus
Morgunblaðinu barst í gær eftir-
farandi fréttatilkynnig frá for-
manni Alþýðuflokksins:
„Að marggefnu tilefni skal eftir-
farandi tekið fram:
Afstaða Alþýðuflokksins til
kjarnorkuvopnaleysis á Norður-
löndum er sú, að Island eigi að
verá reiðubúið til þess að taka
þátt í yfirlýsingu um að Norður-
löndin verði áfram kjarnorku-
vopnalaust svæði, svo framarlega
sem það sé liður í kjarnaafvopnun
í Evrópu í víðara samhengi. Ein-
hliða yfirlýsingu án samhengis við
stöðu afvopnunar í Evrópu telur
flokkurinn tilgangslausa.
Þetta er jafnframt stefna hinna
jafnaðarmannaflokkanna á Norð-
urlöndum. Alþýðuflokkurinn hef-
ur tekið fullan þátt í sameiginlegri
stefnumörkun jafnaðarmanna-
flokkanna á Norðurlöndum í þessa
veru og undirbjó ásamt bræðra-
flokkunum og samþykkti yfirlýs-
ingu um þetta efni, sem tekin var
til umfjöllunar í Bommersvik í
Svíþjóð.
Sá hluti yfirlýsingarinnar, sem
fjallar um þetta efni. er þannig:
„Norðurlöndin hafa stuðlað að
jafnvægi og slökun í allri Evrópu
með því að láta ógert að afla sér
kjarnorkuvopna eða láta önnur
lönd staðsetja slík vopn á lands-
svæði sem þau ráða yfir á friðar-
tímum. Norðurlöndin ættu að
ákveða hvaða sameiginlegur
grundvöllur sé fyrir því að koma á
varanlegu kjarnorkuvopnalausu
svæði á Norðurlöndum sem lið í
því að vinna að kjarnaafvopnun í
víðara evrópsku samhengi."
Það er þannig sameiginleg
stefna Alþýðuflokksins og bræð-
raflokka hans á Norðurlöndum að
vera reiðubúnir til yfirlýsingar
um áframhaldandi varanlegt
kjarnorkuvopnalaust svæði á
Norðurlöndunum, ef það má verða
heimsafvopnun að gagni og þá í
samhengi við aðra afvopnun í
Evrópu. Einhliða yfirlýsingar án
samhengis við umhverfið er hins
vegar ekki til umræðu."
F.h. Alþýðuflokksins,
Kjartan Jóhannsson
Heilsugæslustöðin á Dalvík:
Kvenfélög safna
fé til tækjakaupa
__ Dalvík. 10. júlí.
Á ÞVÍ hálfa ári frá því starfscmi
hófst í hinni nýju heilsugæslustöð
á Dalvik, hafa orðið mikil um-
skipti í heilbrigðisþjónustu fyrir
íbúa þessa læknishéraðs.
Eins og áður hefur fram komið í
fréttum er ekki búið að taka í
notkun allt húsnæðið en unnið er
að að fullgera 2. áfanga bygg-
ingarinnar og standa vonir til að
því ljúki áður en langt um líður.
Fékk líkan
um f rægu í
Starfsmenn Landhelgisgæsl-
unnar og aðrir samstarfsmenn
Péturs Sigurðssonar, forstjóra
Landhelgisgæzlunnar, afhentu
Pétri fyrir skömmu góðar afmæl-
isgjafir i tilefni af sjötugsafmæli
hans i sumar.
Var það gestabók með útskorn-
um útlínum varðskipsins Ægis á
Þrátt fyrir þetta mikla og góða
húsnæði er stöðin ekki fullbúin
tækjum, en mikill vilji er meðal
íbúa að vel sé að stöðinni búið. Nú
er í gangi fjáröflun til kaupa á
blóðrannsóknartækjum í heilsu-
gæslustöðina og standa fyrir því
kvenfélögin í læknishéraðinu, þ.e.
Vaka á Dalvík, Tilraun í Svarfað-
ardai, Hvöt á Árskógsströnd og
Kvenfélag Hríseyjar. Að sögn
formanns Vöku, Ragnheiðar Sig-
valdadóttur, hafa undirtektir hér
verið mjög góðar, en kostnaður við
tækjakaupin er um kr. 45.000.
Tollar og önnur gjöld fást niður-
felld. Eins og áður vinna kvenfé-
lögin gott og mikið starf í iíknar-
og menningarmálum í sínum
sveitarfélögum, enda þótt þeirra
sé ekki oft getið í fjölmiðlum.
Svarfdælir hafa ekki farið var-
hluta af starfsemi kvenfélaganna
Vöku og Tilraunar því framlag
þeirra til uppbyggingar Dalbæjar,
dvalarheimilis aldraðra, verður
seint fullmetið.
— Fréttaritarar.
af klippun-
afmælisgjöf
forsíðu, en myndina gerði Ásgeir
Torfason. Þá var honum gefið
líkan af klippunum frægu, sem
áttu svo mikinn þátt í sigri okkar
í Þorskastríðinu síðasta og voru að
mestu hugmynd Péturs. Líkanið
gerði Jens Guðjónsson gullsmiður
og er það úr silfri og gulli og
stendur á íslenzkri grásteinshellu.
Bautinn breytir um
svip á 10 ára afmælinu
GAGNGERAR breytingar hafa
verið gerðar á veitingastaðnum
Bautanum á Akureyri í tilefni af
10 ára afmæli hans i vor.
Staðnum hefur verið skipt í tvo
sali, efri sal, þar sem er öll almenn
þjónusta og neðri sal, sem er
eingöngu fyrir matargesti. Þá
hafa einnig verið teknir í notkun
nýir matseðlar í tilefni afmælis-
ins. Bautinn leigir út tvo sali, 15
og 30 manna.
Veitingastaðurinn Smiðjan, sem
rekinn er af sömu aðilum, býður í
sumar upp á nýjung. Um helgar
milli klukkan 22 og 24 er boðið upp
á létta máltíð og Hermann Arason
skemmtir undir borðum. Annars
telst Smiðjan til hinna „fínni"
staða og þar er boðið upp á
dinnermúsík með meiru.
Manstu
þegar hægt varaó boróa
fynr£150
askcmmtile
í London?
Þaó er hægt ennþá!
• 1 • r
Sumir hlutir breytast aldrei. Þannig
er því varið með ensku bjórstofurnar,
pöbbana vinsælu. Það er varla hægt
að segja að þeir hafi breyst nokkuð í
áratugi.
íslendingar, sem ferðast til London
hafa kunnað að meta bjórstofurnar
og hið sérkennilega andrúmsloft
þeirra. Margur ferðalangurinn hefur
notfært sér staðgóðan og ódýran
mat, sem fæst á hverri bjórstofu í há-
deginu. Pub lunch getur verið allt frá
ítölskum kjúklingarétti til enskrar
pylsu og bakaðra bauna - auðvitað
með tilheyrandi bjórkollu. Verðið er
nánast hlægilegt, - eitt og hálft
i sterlingspund eralgengt verð.
Bjórstofurnar ensku eru einn af
þægilegustu þáttum heimsóknar
þinnar til London. Ódýr og góður
matur, enskur bjór og sérkennilegt
umhverfi gerir sitt til þess að heim-
sókn þín til London verði eftirminn-
anleg.
Eitt geturðu bókað. Gamla, góða
London breytist stöðugt með tíman-
um en hún heldur samt áfram að vera
töfrandi borg, sem býður upp á
góðan ,,Pub Lunch“ á hagstæðu
verði. Apex fargjaldið til London með
Flugleiðum kostaraðeins kr. 2.465.-
FLUGLEIDIR
Traust fotk hjá góóu felagi