Morgunblaðið - 11.07.1981, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 11.07.1981, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ1981 Ummæli þýskra blaöa um söng Hamrahlíðarkórsins „Hvað liður lanxur tími. þar til okkur xefst færi á að sjá og hlýða á eitthvað sambærilejít i Alten- kirchen?u Með þessari spurninRu hefst fráso«n biaðsins Rheinische Post af tónleikum Hamrahliðar- kórsins undir stjórn Þorgerðar InKÓlfsdóttur i Christuskirche i þýska bænum Aitenkirchen skammt frá Köln. Yfirskrift Kreinar blaðsins um heimsókn kórsins var þessi: „Hjórtun slá hraðar við sönx islensks kórs — áheyrendur i Christuskirche djúpt snortnir.“ Laíið tekið á tröppum sendiráðs íslands i Bonn, fremst á myndinni við hlið Þorgerðar Ingólfsdóttur söngstjóra er Pétur Eggerz sendiherra. Ljósm. Agnar Óskarsson. þar á Möller við verkið Örvænt- ingu eftir Hauk Tómasson, en tónlistina samdi hann við ljóð kórsystur sinnar, Bergþóru Ing- ólfsdóttur. Um útitónleikana í Bonn segir í þýskum blöðum, að kórinn hafi átt betra veður skilið, þegar hann kom fram. Kuldi hafi valdið því, að alltof margir fóru á mis við listrænan flutning kórsins. Yfir mynd af kórnum stendur þessi fyrirsögn, „Kórinn, sem kom úr kuldanunf". „Forystusöngsveit úr norðri“ Hamrahlíðarkórinn fór í söng- för til Vestur-Þýskalands dagana 7. til 20. júní og kom fram á tónleikum í Altenkirchen, Halver, Essen, Wuppertal, Dússeldorf, Rheydt, Langenfeld, Leichlingen og Bonn. Aðaltónleikar ferðarinn- ar voru í Jóhannesarkirkjunni í Dússeldorf í tónleikaröð, sem þarlendir kalla „Internationale Chöre zu Gast“. í Bonn efndi Hamrahlíðarkórinn til útitónleika á vegum listahátíðarinnar Bonner Sommer og hinn 17. júní söng hann í sendiráðí íslands í Bonn. í ferðinni flutti kórinn jafnt veraldlega sem andlega tónlist. Er í blaðinu Rheinische Post farið lofsamlegum orðum um breiddina í verkefnavali kórsins, sem spanni tónbókmenntirnar frá gregorísk- um söng til verka fyrir tvo kóra frá 16. öld og nái jafnt til Bachs sem franska nútímatónskáldsins Messiaen auk margra íslenskra tónverka. Segir blaðið, að athygli hafi vakið, hve auðveldlega kórn- um tókst að hverfa frá angurvær- um ijóðum og syngja af léttleika gleðilög. Er í blaðinu sérstaklega minnst á lögin Móðir mín í kví, kví, íslenskt þjóðlag í útsetningu Wilhelm Lanzky-Otto og Abba- labba-Iá eftir Friðrik Bjarnason þessu til staðfestingar. Segir frá því, að áheyrendur hafi klappað lengi og innilega á eftir laginu Abba-labba-lá. Þá er því lýst, að tónleikunum í Altenkirchen hafi lokið á frum- flutningi verks eftir Þorkel Sigur- björnsson, sem hafi gert sér ferð frá París til að vera viðstaddur. Hafi verið svo mikil hrifning í kirkjunni, þegar kórinn gekk syngjandi út úr henni, að á kirkjuhlaðinu hafi kórfélagar enn orðið að taka lagið og þá jafn- framt stigið dans. Segir Rhein- ische Post, að Elisabeth Schubart organleikari við Christuskirche í Altenkirchen hafi stuðlað að komu kórsins og hafi hún leikið á orgel á tónleikunum. I blaðið Allgemeiner Anzeiger skrifar Herbert Möller um komu kórsins til Halver og lætur þess getið, að þar hafi Harald Falk formaður Tónlistarfélagsins boðið kórinn velkominn með ræðu og einnig borgarstjórinn, Gúnther Vahlefeld. Hrósar Möller fram- komu kórsins og fer fögrum orð- um um íslenska búninginn, sem söngfólkið klæddist og kynningu stjórnandans á efni hinna íslensku verka. Herbert Möller segir, að kórinn hafi á valdi sinu margar stílteg- undir og verk frá mörgum löndum. Hann fylgi stjórnanda sínum af einbeitni og næmleika — í andlit- um söngfólskins speglist með sjaldséðum hætti svipbrigði stjórnandans. Raddtækni kórsins sé mjög lifandi og blæbrigðarík, áhrifamáttur söngsins sé ekki síst mikill, þegar lágt sé sungið. Nefn- ir hann sérstaklega verk Páls Pampichler Pálssonar við limruna Öld hraðans eftir Þorstein Valdi- marsson og segir, að þar hafi „glissandó" endað nákvæmlega á einum tóni og náð listavel að líkja eftir hvin í nútímaþotu. Um ís- lensku nútímaverkin segir Her- bert Möller, að þau hafi vakið mikla athygli, en sum tónverk samtímatónskáldanna íslensku hafi verið samin sérstaklega fyrir kórinn, þar á meðal hljómfagurt verk tveggja ungra kórfélaga. En Arnd Richter skrifar í West- deutsche Zeitung um tónleika Hamrahlíðarkórsins í Wuppertal undir fyrirsögninni „Forystu- söngsveit úr norðri“. Segir hann, að kórinn hafi að mestu flutt tónlist frá heimalandi sínu. Er gagnrýnandinn undrandi yfir því, hve lítið hin norræna tónlist sé frábrugðin tónlist Mið-Evrópu sé tekið mið af innri gerð og hljóm- hrifum. í fíngerðum tónlínum hinna marghljóma laga hafi ekki gætt neinna áhrifa frá viðhafn- armiklum stíl Griegs og Síbelíus- ar, aðeins stöku sinnum hafi stuttar yfirdrifnar lagfléttur rofið sérkenni hinnar íslensku tónlist- ar. Richter fer lofsamlegum orðum um söng kórsins, sem hann segir, að hafi verið óvenju hreinn, vel Að hafa eitthvað að segja Frelsið 1. árgangur 1980 Utgefandi: Félag frjálshyggjumanna Ritstjóri: ílannes Hólmsteinn Gissurarson Frelsið, tímarit Félags frjáls- hyggjumanna, hefur nú komið út í rúmlega eitt ár og dafnar vel. Það er vandað að öllum ytra búnaði, pappír góður, myndir skýrar og letur læsilegt, og efnið, sem birzt hefur á þessu fyrsta ári, hefur átt erindi til lesenda, að því er bezt verður séð. Málfar er vandað, lítið um prentvillur, og ekkert efni sýnist mér vera sett í tímaritið fyrir þá sök eina að það þurfi að fyila upp, auka síðufjölda ritsins. Ritstjórinn, Hannes Hólmsteinn Gissurarson, hefur þvi, ásamt Félagi frjálshyggjumanna, unnið þarft verk, þegar hann hleypti þessu tímariti af stokkunum. Til þess var rík ástæða til mótvægis við þau tímarit, sem út eru gefin og fjalla um stjórnmál, því þau sigla flest undir fánum samhyggju af einhverju tæi. Frelsið er kjör- inn vettvangur allra þeirra, sem hneigjast til að trúa því, að lýðræði og vestræn menning séu þess virði að vera varin. Efni ritsins má skipta í tvennt. Ritdóma um innlendar og erlend- ar bækur og annað efni. Um ritdómana verður ekki fjallað hér. Frjálshyggja hefur átt verulegu fylgi að fagna á síðari árum meðal borgaralegra stjórnmálamanna og menntamanna. Þótt þetta sé stað- hæft, þá þýðir það ekki að allir hafi gerzt fylgisménn frjáls- hyggju, öðru nær. En það er athyglisvert við viðbrögð sósíal- ista á íslandi, að enginn þeirra hefur færzt í fang að færa fram rök fyrir því, að frjálshyggjumenn hafi á röngu að standa. Það ætti varla að standa á því, svo umdeild- ar, sem kenningar frjálshyggju- manna eru. Það einasta, sem maður heyrir, er nöldur í greinum í dagblöðum eða fögnuður yfir fylgi andstæðinga frjálshyggjunn- ar. En fylgi við skoðun er afar vondur mælikvarði á réttmæti hennar. Viðbrögðin við Frelsinu hafa aðallega verið illskiljanlegur taugatitringur og upphrópanir hjá þeim, sem telja sig hafa einhverju að tapa, verði þegnarnir sem frjálsastir gerða sinna. En hver er frjálshyggjan, sú skoðun, sem fer í taugarnar á sósíalistum og veldur stundum fjaðrafoki meðal borgaralegra manna? Það er ekki einfalt að gera grein fyrir henni í stuttu máli, en hér skal það þó reynt. Eitt megineinkenni frjálshyggj- unnar er sú skoðun, að beint samband sé á milli frelsis ein- staklinga og valds ríkisins. Ef ríkisvald er aukið, dregur úr frelsi einstaklinganna og öfugt, aukist frelsi einstaklinganna, minnkar vald ríkisins. Þriðji kosturinn, að auka frelsi einstaklinganna og efla um leið vald ríkisins, eða minnka frelsi einstaklinganna og takmarka völd ríkisins, er ekki hugsanlegur. Ef menn telja sér trú um, að svo sé, þá eru þeir að blekkja sjálfan sig og skilja ekki eðli málsins. Þetta er ein höfuð- ástæða til árása frjálshyggju- manna á velferðarríkið, eins og það hefur verið framkvæmt á síðustu áratugum á Vesturlönd- um. Önnur er sú, að kostnaður, sem af því leiði, komi í veg fyrir hagvöxt, sem veldur því, að lífs- kjör versna. Þriðju ástæðuna nefnir Hayek í fyrirlestri sínum, sem birtur er í fyr^ta árganginum. Annað einkenni hennar er að telja, að eðlilegasta leið sem flestra efnahagslegra samskipta manna, sem stjórnast af hags- munum hvers og eins, sé frjáls markaður. Til þess hníga þrenn rök. í fyrsta lagi er frjáls markað- ur grundvöllur þess, hve lífskjör alls almennings hafa batnað sið- ustu hundrað árin eða rúmlega það. I öðru lagi er frjáls markaður eina leiðin, sem er fær í slíkum samskiptum, ef mann vilja á annað borð varðveita mannrétt- indi. Þriðju rökin fyrir því, að frjáls markaður stjórni öllum efnahagslegum samskiptum manna, eru þau, að hann leiðir til réttlátastrar skipanar mannfé- lagsins. Nú þykir sumum eflaust fullfast að orði kveðið, en þá ber að hafa það í huga, að ftjáls markaður leiðir ekki til „hins bezta heims allra heima", eins og Birtingur myndi orða það. Sú samfélagsskipan, sem leiðir af frjálsum markaði er skást af því, sem við eigum ^öl á, þótt ekki sé hún algóð. Hún er skást vegna þess, að hver og einn hefur möguleika á að móta þá skipan sem hann býr við, að nokkru leyti eftir sínu höfði óttalaust. Nú er það stundum sett fram í andmælaskyni við frjálsan mark- að, að það hljóti að leiða til ófarnaðar og ringulreiðar, en ekki til þess að allir hljóti hag af, láti þeir stjórnast af eiginhagsmunum einum saman. Adam Smith skýrði, með hinni ósýnilegu hönd, að sú skipan leiddi til hins mesta velfarnaðar. Sá, sem léti stjórnast af eiginhagsmunum, ýnni miklu betur að almannaheill en sá, sem segðist stefna að henni og bæri fyrir sig óeigingjarnar hvatir og göfug markmið. Ég hef grun um, að sumum mönnum finnist það nánast ósiðlegt, að grundvöllur hins frjálsa markaðar sé að sinna eigin hagsmunum. Þess er að geta um þessi and- mæli við frjálsan markað, að það er ekkert í hugtakinu eigin hags- munir, sem segir, að ringulreið skapist, láti allir stjórnast af þeim. Og reynslan bendir ekki til, að svo sé heldur. Auk þess þá er

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.