Morgunblaðið - 11.07.1981, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 11.07.1981, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ1981 17 Sendiboðar Kabúl- stjórnar myrtir í Paktia-héraði Nýju Delí, Moskvu, 10. júli. AP. TILRAUN stjórnvalda i Kabúl til að kaupa sér frið i Kunar-héraði mistókst nýlega, þegar uppreisnarmenn tóku við mútufé, en skutu síðan til bana sendiboða stjórnarinnar. Einn fulltrúi úr 10 manna sendinefnd fékk að snúa aftur til Kabúl. Þar sagði hann, að mennirnir hefðu verið myrtir, af þvi að uppreisnarmennirnir álitu þá „Moskvuleppa“ og sendiboða Marxistaflokksins, sem stjórnar Afgan- istan. Svipaður atburður átti sér stað i Paktia-héraði i september. Víða er barist í Afganistan, en uppreisnarmönnum gengur best baráttan á móti sovéskum og afgönskum hersveitum í Kunduz- héraði. Þar hefur héraðsstjórinn þurft að flytja stjórnarskrifstofur 100 km leið til Poli-Chomri. Þar hafa Sovétmenn komið á fót meiriháttar herstöð og borgin þess vegna talin „öruggur staður" fyrir stuðningsmenn stjórnarinn- ar. Sovésk blöð sögðu á föstudag, að ákvörðun Bandaríkjamanna að senda 21 milljón dollara til viðbót- ar fyrri styrkjum til afganskra flóttamanna í Pakistan, vseri hættuleg og myndi kynda undir bardögum í Afganistan. Banda- ríkjamenn hafa nú sent um 81 milljón dollara til Pakistan, þar sem um 2 milljónir afganskra flóttamanna halda til. Andrei Gromyko, utanríkisráð- herra Sovétríkjanna, átti í dag fund með Habib Mangal, sendi- herra Afganistan í Sovétríkjun- um. Gromyko sagði, að tillögur EBE um lausn deilunnar í Afgan- istan væru „óraunsæjar og óað- gengilegar". Bretar, sem sömdu tillöguna um samningafund nokk- urra þjóða um ástandið í Afgan- istan, halda enn í vonina um, að sovétmenn eigi eftir að ganga að tillögunum, þrátt fyrir kaldar viðtökur, sem þær hafa fengið til þessa. Gæzlu- sveitir á Sínaí- skaga Kairó. 10. júlí. AP. EGYPTALAND, ísrael og Bandaríkin hafa komizt að sam- komulagi um stofnun hersveita til að annast gæzlu á Sinai- skaga, eftir að ísraelsmenn hverfa á braut og láta Egyptum skagann eftir. Egypska utanrík- isráðuneytið skýrði frá þessu i Kairó i dag. Samningaviðræður um stofnun hersveita þjóðanna þriggja hafa staðið yfir í um sex mánaða skeið. ísraelsmenn hernámu Sínaí- skaga i sex daga stríðinu árið 1967. Þeir hafa þegar afhent Egyptum stærsta hluta skagans. Heimildir segja, að í herliðinu verði ekki fleiri en 2300 hermenn. Þeim verður skipt í þrjú herfylki. Ríkin þrjú munu skipta kostnaði af gæzlusveitunum jafnt á milli sin. Bandaríkin munu leggja til um 800 hermenn í gæzlusveitirn- ar. Þá segja heimildir í Kairó, að samkomulagið verði undirritað innan fárra daga en staður hefur ekki verið ákveðinn; aðeins að samkomulagið verði undirritað í Evrópu. Jimmy Carter, fyrrum forseti Bandaríkjanna, hét að beita sér fyrir stofnun hersveita til að annast gæzlu á Sínaískaga þegar Camp David-samkomulagið var undirritað í Washington 1979. Veður víða um heim Akureyri 11 skýjaó Amsterdam 27 skýjaó Aþena 33 heiöskírt Barcelona 25 alskýjað Berlín 30 skýjaö Briissel 24 skýjað Chicago 30 heiöskírt Denpasar 30 rigning Dublin vantar Feneyjar 27 heióskírt Frankfurt 30 heióskírt Færeyjar vantar Genf 29 skýjaó Helsinki 25 heióskírt Hong Kong 31 heiöskírt Jerúsalem 25 heióskírt Jóhannesarborg 12 heiðskirt Kairó 30 heióskírt Kaupmannahöfn 26 heióskírt Las Palmas 23 hálfskýjaö Lissabon 23 heióskírt London 26 rigning Los Angeles 28 skýjað Madrid 29 heióskírt Malaga 31 léttskýjaó Mallorka 24 skýjaó Mexicoborg 22 heióskírt Míami 30 heiöskírt Moskva 26 heiðskírt Nýja Dehlí 35 heiöskírt New York 31 heióskírt Osló 25 heióskírt París 31 skýjaö Perth 17 heiöskírt Reykjavík 14 léttskýjaö Ríó de Janeíro 24 heiðskírt Rómaborg 30 heiðskírt San Francísco 18 heiöskírt Stokkhólmur 24 heiðskírt Sydney 14 skýjað Tel Aviv 30 heiðskírt Tókýó 33 heiðskírt Vancouver 19 skýjaó Vínarborg 23 heiðskírt Reagan hittir Trudeau WashinKton. 10. júli! AP. PIERRE Trudeau, forsætisráðherra Kanada, átti í dag fund með Ronald Reagan, Bandaríkjaforseta. Trudeau hafði hug á að spyrja Reagan um stefnu hans í efnahagsmálum og hvenær hann teldi líklegt, að hún færi að bera árangur. Háir vextir í Bandaríkjunum hafa valdið öðrum iðnaðarþjóðum áhyggjum undanfarið. Trudeau sagði áður en hann fór til Washington frá Ottawa, að vextir í Bandaríkjunum væru „alltof háir“. Trudeau er í Washington til að undirbúa árlega efnahags- ráðstefnu leiðtoga sjö stærstu lýðræðis-iðnríkjanna, sem verð- ur í Ottawa dagana 20,—21. júlí. Hann hefur átt fundi með leiðtogunum undanfarið til að tryggja að fundurinn fari frið- samlega fram, þrátt fyrir óánægju Evrópumanna með sí- felldar vaxtahækkanir í Banda- ríkjunum. Lögreglan á Bretlandi hefur ekkert nema hjálminn og plastskjöld sér til varnar gegn óeirðaseggjum í stórborgum landsins. Breskir lögregluþjónar ekki búnir undir óeirðir London. 10. júlí. AP. BRESKA lögreglan, sem hef- ur aldrei þótt sérstaklega víga- leg, var illa búin undir óeirðirn- ar. sem hafa átt sér stað i cnskum borgum undanfarið. Ilún fór til móts við óeirða- rseggina aðeins búin sinum vel kunnu hjálmum og plastskjöld- um. Að öðru leyti var hún óvopnuð. Hundruð lögreglu- manna hafa slasast i ólátunum. en aðeins nokkrir tugir ungu uppreisnarmannanna. I öðrum löndum Evrópu er lögreglan yfirleitt undir átök búin. Á Bretlandi hefur þess þótt lítil þörf, þangað til ólæti brut- ust út í London fyrir þremur mánuðum. Ólætin nú í vikunni í London, Liverpool og Manchest- er hafa sýnt enn betur að vígalegri útbúnaðar er þörf. „Okkur hefur ávallt verið mikið í mun að breyta ekki hugmynd fólks um bresku lögregluna," sagði formaður lögreglufor- ingjasamtakanna. „En nú bendir allt til þess, að ekki verði hjá því komist lengur." Óeirðaseggirnir, sem eru að mestu hvitir og svartir ungl- ingar, telja lögregluna í hópi þeirra, sem hafa dæmt þá til eymdar og volæðis. Þeir hafa ráðist gegn lögreglunni með skóflum, múrsteinum, flðskum og járnbútum. Þeir spörkuðu í marga lögregluþjóna, þegar þeir voru fallnir, og sumir þeirra munu aldrei geta unnið á ný. Á sunnudag greip lögreglan til þess örþrifaráðs að nota táragas sér til varnar. Það bar tilskilinn árangur og strax næsta dag fóru þingmenn fram á það í þinginu, að lögreglan yrði almennilega úr garði gerð gegn óeirðaseggjun- um. William Whitelaw, innan- ríkisráðherra, kunngerði þá, að lögreglan muni á næstunni fá sérstaka hjálma og eldvarnar- klæði. Hann sagði, að lögreglan kynni einnig að skjóta plastkúl- um til að sundra óeirðahópum í framtíðinni. Þetta var áður National Westminster-bankinn í Liverpool. Hann var eyðilagður í óeirðunum í Liverpool 6. júlí. Guatemala: Hermenn drápu 14 skæruliða GuatemalaborK, 10. júli. AP. Stjórnarhermenn börð- ust í þrjár klukkustundir við hóp vinstrisinna og sögðust hafa fellt fjórtán manns í húsi nokkru, sem var sagt vera skæruliða- hreiður og sprengjuverk- smiðja. Eftir að skothríðin var um garð gengin var húsið nánast í rústum. Björgunarmenn og slökkvi- liðsmenn lokuðu svæðinu meðan þessi ósköp stóðu yfir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.