Morgunblaðið - 11.07.1981, Side 18

Morgunblaðið - 11.07.1981, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ1981 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ1981 19 fHtfgtmltfftfttfe Otgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, StyrrrHr Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 80 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 4 kr. eintakiö. Þolinmæði á þrotum Frá því kjördæmaskipan var síðast breytt, 1959, hefur orðið mikil breyting á búsetu fólks í landinu. Jafnræðið milli einstaklinga og byggðarlaga, sem að var stefnt með breytingunni, er nú fjær en nokkru sinni. Rétturinn til að hafa áhrif á skipan og stefnumótun löggjafarvaldsins er einn af hornsteinum almennra mannréttinda — og hver einstaklingur á kröfu á jafnræði á sviði þegnréttar. Erfitt kann að reynast að tryggja til fulls slíkt jafnræði áhrifa, en þegar vægi atkvæða er fjórfalt meira í einu kjördæmi en öðru er ranglætið orðið svo himinhrópandi að ekki verður við unað. Stjórnarskrárnefnd bar að skila tillögum varðandi viðfangsefni sitt, þar á meðal tillögum til jöfnunar á vægi atkvæða, fyrir 1. desember sl. Það gerði hún ekki. í þess stað sendu hún gagnasafn sitt til þingflokka, án beinnar tillögugerðar, sem sýnist hafa sett málið í biðstöðu. Þingflokkar munu misjafnlega hafa sinnt erindi stjórnarskrár- nefndar, en þingflokkur sjálfstæðismanna hefur þegar fyrir nokkru sett fram stefnumótun sína. Ólafur G. Einarsson, formaður þingflokksins, segir hana felast í þremur meginatriðum: 1) Að jafna vægi atkvæða milli kjördæma, 2) Að tryggja jafnræði milli stjórnmálaflokka og 3) Að skapa kjósendum kost á persónulegri kosningu en nú er. í greinargerð eru einmenningskjördæmi viðruð sem Ieið að persónulegra vali kjósenda, sagði þingflokksformaðurinn, en þar sem ekki er líklegt að samstaða náist um hana, er samtímis bent á aðrar leiðir m.a. til að rétta hlut Reykjavíkur- og Reykjaneskjördæma. Þolinmæði fólks, sem harðast verður úti vegna ranglætis þess er nú viðgengst, er á þrotum, enda líður nú ört á kjörtímabil þingsins án þess að sjáist fyrir endan á leiðréttingu. Ríkisstjórnin sýnist ekkert frumvæði ætla að hafa í málinu. En stjórnmálamönnum verður ekki liðið að velta þessum vanda óleystum á undan sér — eins og þeir hafa gert í áravís. Ýmislegt ójafnræði, sem strjálbýlisfólk býr við vegna fjarlægðar frá helzta þéttbýlissvæði landsins og staðbundinna aðstæðna, verður að leysa með öðrum hætti en svo grófri mismunun í mannréttindum sem hér ríkir varðandi einstaklingsbundinn kosn- ingarétt. Það eru ýmsar leiðir til að brúa bil slíks aðstöðumunar, svo sem um skattalög og verðjöfnun. Og stjórnvöld gætu til að mynda sýnt smá lit með því að hætta að auka á flutningskostnað nauðsynja til strjálbýlis með því bæta 23xh% söluskatti ofan á þann kostnað. „Nú er lag“ Olafur Ragnar Grímsson, formaður þingflokks Alþýðubandalags- ins, sagði nýlega í Þjóðviljanum: „Efnahagsstefna ríkisstjórnar- innar ber mjög svipmót þeirrar afstöðu, sem Alþýðubandalagið hefur haft síðan 1978.“ „Hér ratast Ólafi satt á munn,“ segir Lárus Jónsson, alþingismaður, í grein hér í blaðinu í gær. „Á Islandi ríkir nú í efnahagsmálum afturhaldsstefna kommúnista með stuningi afvega- leiddra lýðræðisafla," segir Lárus ennfremur. Meðal einkenna þessarar stefnu segir Lárus vera: Illvíg verðlagshöft sem m.a. valda því að ríkisrekin sementsverksmiðja á ekki fyrir olíu nema með höppum og glöppum. Landsvirkjun og hitaveitur e'ru reknar með stórtapi. Sama máli gegni um flest atvinnufyrirtæki m.a. vegna þess að kostnaðarhækkanir útflutningsatvinnuvega fáist ekki viðurkennd- ar í gengisskráningu. Skattahækkanir hrjá bæði fólk og fyrirtæki, erlendar lántökur vaxa hraðfara og ríkisafskipti og umsvif aukast. Þá hefur afnám verðlagsbóta á laun, sem áður hét „kauprán" en nú „slétt skipti“, ásamt grófgerðum vísitöluleik stjórnvalds, verið eitt megin- einkenni efnahagsstefnu stjórnvalda eftir að Alþýðubandalagið var borið inn í stjórnarráðið. Lárus Jónsson segir í grein sinni að efnahagsstefna Bandaríkjafor- seta, sem m.a. hafi þýtt að íslenzkir útflutningsatvinnuvegir fái nú 19% fleiri krónur fyrir hvern dal, sem sölusamningar eru yfirleitt miðaðir við, hafi dregið úr því heljarstökki í atvinnu- og efnahagslífi okkar, sem stjórnarstefnan á heimavettvangi hefði ella leitt til. Verðþróun fiskafurða okkar í Bandaríkjunum hafi virkað til sömu "“lttar. Þessir utanaðkomandi búhnykkir og vaxandi góðæri ættu að auðvelda stjónvöldum viðureigninga við verðbólguna og verndun kaupmáttar. Svo er þó ekki. Ríkisstjórnin tók við um 42% verðbólguhraða og situr í henni enn. Og kaupmáttur kauptaxta hefur minnkað jafnt og þétt allan feril hennar, þrátt fyrir viðskiptakjara- bata. „Leiðin til bættra lífskjara er el^ki sú að svelta atvinnuvegina og drepa þá í dróma hafta og ríkisafskipta," sagði Lárus. Nú er lag Meiri góðærissveifla en oftast áður er í uppsiglingu. Þetta lag á að nýta til að gerbreyta efnahagsstefnunni, taka strax ákvarðanir um stórvirkjanir og stóriðju og efla hefðbundna atvinnuvegi. Slík jákvæð efnahags- stefna hefði í för með sér stórbætt lífskjör og svigrúm til að hemja verðbólguna á tiltölulega skömmum tíma. Pólitísk forsenda hennar er að eyða áhrifum kommúnista á sem flestum sviðum þjóðlífsins og losa þá úr ríkisstjórn. Um þá stefnu og pólitíska ákvörðun ættu lýðræðisöflin nú að sameinast. Samgönguráðherra frestar fram- kvæmdum við Hafnarfjarðarveg að beiðni félagsmálaráðherra SAMGÖNGURÁÐHERRA Steingrímur Hermannsson til- kynnti i gær, að hann hefði ákveðið að breikkun Hafnarfjarð- arvegar sunnan Hraunsholtslækjar að Engidal verði frestað til 1. september 1981. Ákvörðun þessi er tekin, segir í fréttatilkynningu frá samgönguráðuneytinu, vegna tilmæla félagsmálaráðuneytisins „svo svigrúm skapist fyrir það ráðuneyti til að taka afstöðu til skipulagslegra atriða og umkvartana varðandi ákvörðun um legu vegarins, en talið hefur verið að vafi leiki á að ákvæða skipulagslaga hafi veri nægilega gætt“, eins og segir orðrétt í fréttatilkynningunni. Hafnarfjarðarvegarmál þetta hefur verið mikið pólitiskt deilumál í Garðabæ siðustu árin og kvörtunin, eða kæran, sem greint er frá hér að ofan, og barst til félagsmálaráðuneytisins var frá minnihluta bæjarstjórnar Garðabæjar. Þess er skemmst að minnast, að nokkrir ibúar Garðabæjar fóru fram á við fógeta Garðakaupstaðar að lögbann yrði sett á framkvæmdir Vegagerðarinnar við breikkun vegarins neðan Silfurtúns og i úrskurðarorði fógeta, Einars Ingimundarson- ar, um þá lögbannsbeiðni segir: „Án þess að bein afstaða sé tekin til þess hér, hvort á allan hátt hafi verið rétt að undirbúningi þeirra framkvæmda staðið sem hér um ræðir, en gerðarbeiðendur hafa haldið þvi á lofti i málflutningi sinum að svo hafi ekki verið, verður þó til þess að lita að i framkvæmdina þ.e.a.s. í breikkun vegarins, var ráðist af þar til bærum aðilum, þ.e. skv. meðmælum Skipulagsstjórnar rikisins og með samþykki bæjarstjórnar Garðakaupstaðar eða meiri hluta hennar. Ómótmælt er einnig að það land, sem undir breikkun vegarins fer er eign Garðakaupstaðar og verður því að lita svo á að með áðurnefndu samþykki bæjarstjórnar kaupstaðarins hafi einnig verið samþykkt að láta landið af hendi i þessu skyni. Verður því ekki séð að framkvæmd sú, sem hér ræðir um og lögbanns er krafist til stöðvunar á, sé i sjálfu sér ólögmæt. Ekki verður heldur á það fallist að „skipulagsóreiða“ sem gerðarbeiðendur telja í beiðni sinni að verið sé að leiða yfir kaupstaðinn og ibúa hans með þessum „handahófsaðgerðum“ eins og þeir orða það i beiðninni, og er þá af hálfu réttarins engin afstaða tekin til þess hvort slik „skipulagsóreiða“ sé fyrir hendi eða ekki, sé á svo háu stigi að helgi lögbannsað- gerðir eftir kröfu gerðarbeiðenda, enda hvergi nærri talið sannað, að „slík óreiða“, ef fyrir hendi er, raski eða muni raska rétti þeirra með ólögmætum hætti. Með tilliti til alls þessa sem hér að framan segir verður að telja að skilyrði til lögbanns sé ekki fyrir hendi i þessu tilviki og beri því að synja um framgang umbeðinnar gerðar. Rétt þykir að málskostnaður falli niður. Því úrskurðast: Hin umbeðna lögbannsgerð skal ekki fara fram. Málskostnaður fellur niður.“ Undir þetta ritar Einar Ingimundarson bæjarfógeti Garðakaupstaðar. I tilefni þessa ræddi Mbl. við Steingrim Hermannsson samgönguráðherra, Svavar Gestsson félagsmálaráðherra, Zophonias Pálsson skipulagsstjóra og Helga Hallgrimsson sem gegnir starfi vegamálastjóra i fjarveru Snæbjörns Jónassonar. Fara viðtölin við þá hér á eftir: Steingrímur Hermannsson samgönguráðherra: Eg fresta þessu eingöngu að ósk félagsmálaráðherra „ÉG OEF gefið Vegagerðinni fyrirmæli um, að framkvæmdir við syðri hlutann hefjist ekki fyrr en 1. september tii þess að skapa skipulagsyfirvöldum svig- rúm til þess að koma sinum málum i lag. Féiagsmálaráð- herra hefur óskað eftir þvi, að bæjarstjórn og skipulagsstjórn Garðabæjar hugi nú þegar að nýju skipulagi i kringum veginn og þær þurfa að hafa nokkurt svigrúm til þess. Ég get ekki frestað veginum fram yfir þetta ár, nema það komi þá úrskurður félagsmálaráðherra,“ sagði Steingrimur Hermannsson sam- gönguráðherra. — Telur þú þetta rétta af- greiðslu af félagsmálaráðherra að senda þér málið til úrlausnar, en taka ekki sjálfur afstöðu til kær- unnar? „Ég tek enga afstöðu til þess. Það verður þú að spyrja félags- málaráðherra um. Ég fresta þessu eingöngu að ósk félagsmálaráð- herra. Það er ekkert sem segir að þessi framkvæmd skuli gerð í júlí, ágúst eða september. Hún á að gerast á þessu ári.“ — Hvað með samþykktir bæjar- stjórna Garðabæjar og Hafnar- fjarðar, Skipulagsstjórnar og Al- þingis? „Álþingi tekur enga afstöðu til þess, hvort formsatriði eru í lagi. Alþingi samþykkir fjárveitingar í veginn, enda séu formsatriði í lagi. En þú skalt tala um þetta við félagsmálaráðherra. Ég hef bara orðið við þessari ósk hans.“ — Skýtur ekki skökku við að vera að fresta framkvæmdum við vegarkafla sem alltaf hefur verið samstaða um? „Það var samkomulag um hinn veginn, enda hæfist þá einnig vinna við sjávarbraut, en þetta er allt annað, sem nú er verið að gera. Það er ekki samkomulag um seinni hlutann, verði vegurinn allur svona. — Reiknar þú með að frestur- inn renni út 1. sept. eða að um frekari frestun verði að ræða? „Ef það kemur ekki annað hvort úrskurður félagsmálaráðherra eða skipulagsyfirvöld önnur ákveða annað skipulag þá verður það framkvæmt." — Hvað verður þá framkvæmt? „Þetta sem ég er að fresta núna. Ef þar til hæf yfirvöld úrskurða þetta ólögmætt, þá verður náttúr- lega ekkert framkvæmt." — Telur þú ekki að hæf yfirvöld hafi úrskurðað um lögmæti þess- arar framkvæmdar? „Nei þau hafa ekki úrskurðað neitt í málinu. Æðsta yfirvald er félagsmálaráðuneytið og það get- ur úrskurðað. Það er búið að leita úrskurðar félagsmálaráðherra og hann hefur óskað að úrskurða ekki núna í þeirri von að aðilar setjist niður og reyni að leysa málin skipulagslega og til þess er veittur nokkur frestur." — Hvað kostar þetta skatt- borgara? „Það kostar ekkert meira. Framkvæmdir eru ekki stöðvaðar. Útboðsgögn eru ekki tilbúin. Stað- reyndin er sú, að framkvæmdir geta í fyrsta lagi hafist um miðjan ágúst eða um 20. ágúst, að mati Vegagerðarinnar." ur verið allt of mjór fyrir þessa umferð en það er náttúrulega hægt að leysa með því að gera veginn virkilega vel úr garði." Aðspurður um hans álit á frest- uninni sagði hann: „Það sem ég sé mest^ kostinn í því að fresta þessum kafla yfir Hraunsholti er að vegurinn þarf að breikka upp frá Lyngási og niður i Engidal yfir nokkra hæð og í brekkunum hafa oft orðið árekstrar í hálku. Það mætti endurskoða skipulagið og fella veginn niður í landið og fá brú yfir á láréttu, hvort sem það yrði akstursbrú eða göngubrú. Ég hef rætt þetta við formann skipu- lagsnefndar Garðabæjar, Ágúst Þorsteinsson, og við erum sam- mála um að þetta sé mjög góð lausn. Með frestun, til dæmis í eitt ár, yrði eflaust meiri möguleikar til að fá þetta í gegn, heldur en rokið væri til nú og vegurinn breikkaður." Zophonías sagði í lokin: „En ég vil að það komi fram í lokin að ég vil einnig að byrjað verði nú á Reykjanesbrautinni sem bráðligg- ur á að gera. Það myndi bæta endanleg þetta mál allt. Með frestun þessa vegarkafla mætti nýta þá peninga sem áttu að fara í hann til að byrja á Reykjanes- braut í Kaplakrika." Helgi Hallgrímsson yfirverk- fræðingur: Ljóst að ráðherrarnir haf a valdið til að ákveða „VIÐ ERUM engir samþykktar- aðilar i þessu. Það er ljóst, að ráðherrarnir hafa valdið til að ákveða. Það er réttara að orða það þannig, að þetta sé gert i samráði við okkur,“ sagði Ilelgi Hallgrímsson yfirverkfræðingur Vegagerðar rikisins. er Mbl. spurði hann, hvort Vegagerðin hefði samþykkt frestun fram- kvæmda við Iiafnarfjarðarveg. Helgi sagði einnig: „Ég hef nú ekki séð ákvörðun samgönguráð- herra á prenti, þannig að ég á erfitt með að tjá mig um málið. Ef sú frestun sem hér um ræðir er til 1. september er enn þá möguleiki á að koma þessari breytingu í gagn- ið í haust, en þá verður að hefjast handa strax 1. september. Það er okkar álit“. — Hvað gerist ef frestuninni verður framlengt 1. september? „Við höfum látið það koma fram, að það má ekki byrja mikið seinna heldur en þarna er gert ráð fyrir, ef þessu á örugglega að ljúka í haust, eða um það leyti.“ Zophonías Pálsson skipulags- stjóri rikisins: Efa að sjávarbraut komi fyrr en eftir aldamót gefið samþykki þitt fyrir þessari vegagerð, þrátt fyrir að skipulagið var ekki fullfrágengið? „Það sem skipulagsstjórn tók af skarið með var að í tillögu sem bæjarstjórn Garðabæjar lét gera var Hafnarfjarðarvegur tekinn í sundur og lagður af á partinum við Arnarneslæk. Það var það sem skipulagsstjórn gaf yfirlýsingu um, að hún teldi ekki raunhæft að leggja Hafnarfjarðarveginn niður á þessum kafia, því það getur orðið langt í land að leggja þessa ágætu sjávarbraut. Ég efa að hún komi fyrr en eftir aldamót, ef hún þá kemur nokkurn tíma. Hins vegar hefur verið trassað að ganga almennilega frá Hafnar- fjarðarveginum árum saman og hávaðinn sem verið hefur í Garða- bæ út af þesum malum stafar af því að Hafnafjarðarvegurinn hef- Séð niður i Engidal, Reykjanesbraut á hægri hönd, Bessastaðavegur á vinstri. Kaflinn úr Engidal yfir Hofsstaðahæð að gatnamótum Lyngáss í Garðabæ er framundan en það er vegarkaflinn sem samgönguráðherra. Steingrímur Hermannsson, hefur ákveðið að fresta skuli framkvæmdum við breikkun á fram til 1. september nk. Ljósm. Mbi. Guðjón. „ÞAÐ ER nú búið að framkvæma það sem mesta deilan var um, það er kaflann sunnan við Arnarnes- læk og að Vífilsstaðavegi. Það er búið og gert og eiginlega er ágreiningurinn úr sögunni,“ sagði Zophonias Pálsson skipu- lagsstjóri rikisins. — Nú hafði Skipulagsstjórn samþykkt þessa vegagerð og þvert ofan í þá ákvörðun ykkar er sett á frestun. Hvað viltu segja um það? „Ég held að það sé ekki hægt að tala um neina stöðvun. Mér finnst allt í lagi að fresta þessu um eitt ár. Það liggur miklu víðar á vegabótum en á kaflanum þarna fyrir sunnan Vífilsstaðaafleggjar- ann. Það er eiginlega Engidalur sem er erfiðastur, það er á gatna- mótum Keflavíkurvegar. Við vor- um einmitt að ræða það, ég og vegamálastjóri í dag, og kom saman um að á Engidal ætti að leggja höfuðáherzluna." Svavar Gestsson félags- málaráðherra: Við úrskurðum ekkert „MÁLIÐ var kært hingað til okkar og beðið var um úrskurð. Það höfum við ekki gert, heidur höfum við einungis sent sam- gönguráðuneytinu tilmæii og far- ið fram á að það taki sérstaklega á þessu máli, sem það hefur gert með frestun þessara fram- kvæmda fram til 1. september,“ sagði Svavar Gestsson félags- málaráðherra. Svavar sagði að kæra minni- hluta bæjarstjórnar í Garðabæ hefði verið til umræðu í ráðuneyt- inu og að hann hefði sent bæjaryf- irvöldum í Garðabæ og skipulags- stjóra ríkisins tilmæli um að sjá til þess, að aðalskipulagi Garða- bæjar verði hraðað svo sem kostur er, og einnig hefði hann sent samgönguráðherra beiðni um að framkvæmdum yrði frestað um sinn á meðan unnið væri að skipulagsmálunum. Aðspurður hvort og hvenær félagsmálaráðuneytið úrskurðaði í málinu sagði hann: „Við úrskurð- um ekkert í þessu máli. Þessi tilmæli okkar til samgönguráð- herra eru okkar orð í málinu. — Ertu þá að yfirfæra vanda- málið á samgönguráðherra? „Nei, þetta er mál sem við Steingrímur höfum komist að samkomulagi um.“ — Er ekki hætta á að í fram- haldi af þessu komi fjölmargar álíka kærur frá minnihlutum bæja- og sveitastjórna af öllu landinu? „Ég veit það ekki. Þetta er alveg sérstaklega umdeilt mál. Það er ekki minnihlutinn í sjálfu sér sem veldur því heldur íbúarnir. Íbúar í Garðabæ mótmæltu harðlega þessari breikkun Hafnarfjarðar- vegar árið 1978 og þá samþykkti bæjarstjórnin að leggja þetta til hliðar.“ — Var það ekki gerð hrað- brautar sem þá var verið að mótmæla, en ekki breikkun vegar- ins? „Jæja, jú, þetta er mun minni framkvæmd. Hins vegar hefur þetta skipulag ekki verið hengt upp eins og venja er með skipulag og það hefur ekki verið lokið við gerð aðalskipulags í tengslum við það. Okkur þótti því rétt að fara fram á þetta við samgönguráðu- neytið og ég legg áherslu á, að þetta voru tilmæli af okkar hálfu.“ — Þú segir, að ekki hafi verið rétt að þessu staðið, það vanti þarna samþykkt. Bæjarstjórn Garðabæjar og bæjarstjórn Hafn- arfjarðar hafa samþykkt þessa vegagerð, einnig Skipulagsstjórn ríkisis, eins Alþingi með fjárveit- ingum til verksins? „Alþingi hefur sett í þessa vegagerð fjárveitingar en Alþingi hefur ekki tekið neina afstöðu til einstakra útfærslna skipulagsins. En varðandi það sem þú nefndir þá er það rétt, — en ég hef haft um þetta mál gott samstarf við skipulagsstjóra og varðandi efnis- atriði og forsendur málsins þá vísa ég bara á hann, Zophonías Pálsson." — Það var haldinn fundur með þingmönnum kjördæmisins á þriðjudag og þar Iýstu þingmenn allir yfir, samkvæmt heimildum Mbl., að þessari vegagerð ætti að halda áfram í núverandi mynd. Breytir það engu? „Ég held að það sé ofsagt, að þeir hafi allir verið sammála, en það er bezt að þú spyrjir þá sjálfa. Eg held að það sé ofsagt." — Hvað kostar þessi frestun? „Frestunin kostar i raun og veru ekkert vegna þess að þarna er um að ræða frestun til að athuga málin, hún breytir engu fjárhags- lega.“ Svavar Gestsson sagði að lok- um: „Ráðuneytið mun ekki fella úrskurð í þessu máli. Ráðuneytið hefur reynt að vinna að málinu með samkomulagi við alla aðila, það er að segja Vegagerðina, samgönguráðuneytið og skipu- lagsstjóra. Það hefur tekist. Þessi niðurstaða er í samkomulagi við þessa aðila og þeir munu vinna að þessu máli á næstu vikum. Vega- gerðin er heldur ekki tilbúin með þetta til útboðs og verður það sennilega ekki fyrr en um næstu mánaðarmót þannig að hér er ekki um stóran mun að ræða á tíma- setningu, — ef menn vilja fara þessa leið á annað borð að hafa veginn „akkúrat" þarna." Þá sagði skipulagsstjóri: „Ég hef lagt til, að Garðabær fengi frest til að ganga frá aðalskipu- laginu til næsta sumars. Það er ekki hrist fram úr erminni. Það er svo margt sem taka þarf tillit til, svo sem skólamál og annað. Svo þarf að auglýsa þetta og hafa almenningi til sýnis. Það liggur miklu víðar á vegabótum en á kaflanum þarna fyrir sunnan Víf- i lsstaðaaf leggj arann.“ — Þú hafðir samt sem áður

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.