Morgunblaðið - 11.07.1981, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 11.07.1981, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ1981 2 7 Áslaugur Ingibjörn Stefánsson - Minning sveitungum sínum sýndi hann einnig hug sinn á merkisdögum í lífi þeirra og kom þá ýmsu til leiðar, svo þeim yrði verðugur sómi sýndur. Hann missti föður sinn ungur og fluttist þá með móður sinni af Vatnsleysuströnd- inni til Reykjavíkur, en tryggð sinni hélt hann alltaf við þessar slóðir. Egill varð snemma að fara að vinna fyrir sér og mun hafa byrjað sem unglingur í vöruhús- inu í Reykjavík, en síðar varð hann svo afgreiðslumaður í versl- uninni Breiðablik í Lækjargötu. Á þeim árum sem hann vann þar kynntist hann mörgum nemend- um í Menntaskólanum, en þeir lögðu á þeim tíma margir leið sína í þá verslun. Margir urðu þessir nemendur Menntaskólans kunn- ingjar hans og vinir upp frá því, enda hafði Egill það til að bera, sem þessum ungu mönnum eins og öðrum, sem kynntust honum, hefir fallið vel og tekið fljótt eftir, en það var gamansemi hans og hin létta lund, ásamt sérstakri frá- sagnargáfu, sem hann hafði til að bera og fáum er gefin að því marki, sem honum hafði hlotnast. Hann kunni það flestum betur, þegar honum tókst vel upp að gera frásögn sína lifandi, á góðu máli og án hiks, af því að honum yrði orðs vant, því hann hafði gott vald á íslensku og hún lá honum létt á tungu og frásögn hans öll var skipuleg og hnitmiðuð. Það var því ekki tilviljun, að hann dáði þau íslensk ljóðskáld, sem fegurst hafa ort á íslens'ka tungu og stórbrotnast, t.d. Einar Benediktsson og Davíð Stefáns- son, en eftir þá kunni hann fjölda af ljóðum utanbókar og kunni auk þess góð skil á skáldskap þeirra. Ekki get ég varist þeirri hugsun að Egill hefði, á þeim tíma sér- staklega, er hann hafði mest samneyti við nemendur úr Menntaskólanum vegna starfs síns, getað hugsað sér að vera í þeirra sporum og ganga þá braut, sem beið þeirra, því öruggt er að hugur hans var alla tíð mjög bundinn þeim sviðum, sem hin æðri menntun opnar leiðina til. Og þar hefði hann að mínu mati getað náð langt á fleiri en einu sviði. Til þess hafði hann hæfileikana. En aðstæður þeirra tíma leyfðu það ekki. Egill hafði ákveðnar skoðanir á þeim hlutum, sem hann hafði áhuga á, og um dagana hafði hann lifandi áhuga á mörgu, sem hann kynnti sér og íhugaði rækilega, bæði menn og málefni. Hann var mikill vinur vina sinna og var í því efni ekki eitt í dag og annað á morgun. Hann lét sér annt um hag þeirra og fylgdist vel með þeim og gladdist af óeigingirni og einlægni yfir velgengni þeirra. Slíkt lét hann í ljós af þeirri hreinskilni, sem honum var gefin. Slíka vin- áttu getur enginn, sem hún er veitt, metið til fjár eða fullþakkað. Eins og Egill var mikill vinur vina sinna, þá átti hann bágt með að gleyma því, sem honum var misgert um dagana, enda stál- minnugur. En auk þess var hann viðkvæmur og auðsærður, eins og margir þeir, er hafa næma list- ræna æð. í stjórnmálum hafði hann ákveðna afstöðu. Hann var þar eins og í öðru heill og óskiptur og fylgdi Sjálfstæðisflokknum að málum alla tíð og vann honum vel og lengi, þegar til hans var leitað. Egill var trúmaður og hafði áhuga á hinu þýðingarmikla starfi kirkjunnar. Hjartalag hans og hugsun öll var í anda þess boð- skapar, sem kirkjan flytur og átti hann því góða samleið með kirkj- unni og sýndi það í verki. Hann var yfirlætislaus drengskapar- maður og hreykti sér ekki. Frá árinu 1943 rak Egill sína eigin umboðs- og heildverzlun og þar réðu hinu sömu sjónarmið, sem á öðrum sviðum í lífi hans, þ.e. heiðarleiki og hreinskiptni. Hann fer því áreiðanlega með hreinan skjöld frá því starfi sem og öðru, sem hann tók sér fyrir hendur um dagana. Egill var kvæntur hinni ágæt- ustu konu, Margréti Briem, og voru þau ákaflega samhent og samrýmd hjón. Foreldrar hennar voru hin mætu hjón, ólafur Briem, sem var skrifstofustjóri Sölusamb. ísl. fiskframleiðenda, og konu hans. Það verður því skarð fyrir skildi hjá henni nú, þegar Egill er horfinn af sjónarsviðinu eftir langt og hamingjusamt hjóna- band. Þau áttu tvo syni, Ólaf sendiherra í utanríkisráðuneyt- inu, og Kristján flugmann, form. FÍA og á hún þar tvær styrkar stoðir. Þeim öllum og öðrum nánustu ættingjum og aðstandendum vott- um við hjónin hér með einlæga samúð okkar og samhryggð. Eg kveð vin minn Egil Krist- jánsson að leiðarlokum og þakka honum heilshugar alla hans vin- áttu í minn garð. Vináttu, sem aldrei bar hinn minnsta skugga á. Páll Þorgeirsson Við andlát Egils Kristjánssonar stórkaupmanns rifjast upp fjöl- mörg atvik frá liðnum árum. Egill var aldavinur föður míns og fjöl- skyldu allrar og bernskuminn- ingar okkar systkinanna eru margar tengdar samvistum við þennan hlýlega og gamansama heiðursmann og fjölskyldu hans. Um nokkurt skeið rak Egill Efnagerðina Herco með frænd- fólki mínu. Það flutti síðar norður í land, en rómar ætíð samstarfið við Egil og tryggð hans við sig. Egill hafði yndi af skrítlum og margar græskulausar gamansög- ur, sem til urðu í smiðju hans, eru nú orðnar hluti af þjóðsagnaarfi okkar. Þannig er t.d. um söguna af skeytinu til Grímseyinga, sem átti að hafa brenglast frá því að hljóða: „Lengið frestinn, fiskur" í „Hengið prestinn, biskup." Slíkar skrítlur sagði hann til þess að skemmta vinum sínum, en þær voru ævinlega áreitnislausar og meiddu engan. í öllum viðskiptum var hann þekktur fyrir nákvæmni og reglu- semi í hvívetna. Þótt viðskipta- sambönd hans gæfu e.t.v. tækifæri til mikilla umsvifa, þá nýtti hann ekki þau tækifæri. Höfuðmarkmið hans var að bregðast aldrei trausti viðskiptavinanna og fær- ast eigi meira í fang, en hann með fyllsta öryggi gæti staðið við. Egill var maður margfróður og hann fylgdist vel með samtíma- viðburðum. Oft var hann manna fyrstur að fá fréttir af minnis- verðum atburðum og hringdi þá gjarna í vini sína og skýrði frá þeim. Hann var ráðhollur og grun hef ég um að oft hafi hann komið góðum málum til leiðar með ráðgjöf sinni við ýmsa þá, sem í aðstöðu voru til þess að hrinda þeim í framkvæmd. Að leiðarlokum bið ég Guð að blessa minningu Egils Kristjáns- sonar um leið og fjölskylda mín þakkar honum samfylgdina og sendir eiginkonu hans, systur, sonum og fjölskyldum þeirra sínar innilegustu samúðarkveðjur. Björn Friðfinnsson Fæddur 22. júní 1899. Dáinn 1. júli 1981. Þeim fækkar óðum sem stigu fyrstu skrefin aldamótaárið, og um leið fækkar þeim, sem muna gamla timann, gamla bændaþjóð- félagið, þetta eldskírða samfélag fólks, sem á frumstæðan hátt færði björg í bú og varð að hafa nægjusemina í öndvegi. Þeir, sem leiddu lítil börn um aldamótin, voru mótaðir af þröng- um kosti. Þeir þekktu sultinn, vissu þann vágest á næstu grösum og því var stritað myrkranna á milli og öllu fórnað til að reyna að afla matfanga. Ef bátskel var hrundið úr vör, fylgdust konurnar vel með land- töku og settu upp vonarvatnið í tæka tíð, því að oft biðu svangir munnar heima. Eitt barnanna frá aldamótun- um hefur nú nýlega kvatt þennan heim. Áslaugur var fæddur í Hraun- gerði í Álftaveri þann 22. júní 1899, sonur hjónanna Guðlaugar Einarsdóttur og Stefáns Jónsson- ar. Hraungerði var rýr jörð, en þau hjónin komust samt sæmilega af með tvo syni sína, Ásiaug og Stefán, tveimur árum eldri. En svo barði vágestur að dyrum. Árið 1903 veiktist Stefán bóndi af holdsveiki og fór á spítala í Reykjavík þar sem hann andaðist árið 1905. Þá stóð Guðlaug ein uppi með tvo litla drengi og sagðist Áslaug- ur muna það að mamma þeirra hefði stundum sagt: „Jæja strákar mínir. Ég skal flóa mjólkina þá verður hún saðsamari." Og þegar þrengst var í búi var skammtur- inn einn og hálfur bolli af mjólk og hálf flatkaka. Nokkrum árum síður giftist móðir þeirra Helga Brynjólfssyni, bónda í Holti, og eignuðust þau fjögur börn, tvær dætur og tvo syni, sem öll eru á lífi. Áslaugur lærði fljótt að taka til hendinni. Hann var heima í Skaftafellssýslu, oftast í Álfta- veri, fram undir tvítugt og vann að landbúnaði en hugur hans hneigðist fljótt til sjósóknar og um tvítugsaldur fluttist hann til Vestmannaeyja. Nokkru síðar fer hann að róa á Austfjörðum á ýmsum stöðum, sem lýkur með því að hann rær 27 sumarvertíðir frá Bakkafirði. Áslaugur var sannur fulltrúi þeirra þrautseigu íslendinga, sem á litlum bátskeljum fluttu björg í bú öld eftir öld og reyndu þannig að bjarga þjóðinni frá sulti. Hann fórnaði kröftum sínum við fiskvinnslu og sjósókn á lítilli trillu, oftast við annan mann. Hann kvæntist aldrei, en tók tryggð við þá staði sem hann helgaði krafta sína lengst, Vest- mannaeyjar og Bakkafirði, og þar átti hann góða vini. Hann átti lengi heima í húsinu Mandal í Vestmannaeyjum, og allir þar þekktu hann undir nafninu Laugi í Mandal. Ég kynntist Áslaugi fyrst eftir að hann fór að dvelja á sumrin á æskustöðvum mínum á Bakkafirði og svo vildi til að konan mín, Selma, hafði áður kynnzt bróður hans, Stefáni, er hún dvaldi. um tíma sem ung stúlka í Vík í Mýrdal. Við höfum því til mjög margra ára átt þessa bræður að vinum, og þeir hafa oft heimsótt okkur. Áslaugur átti marga þá eðlis- kosti, sem mest prýða góða menn: IryKglyndi, glaðværð og nægju- semi. Hann kom á æskustöðvar mínar á vorin á svipuðum tíma og farfuglarnir. Hann kom með létt- an mal en það fylgdi honum hlýr andvari. Hann ýtti úr vör litlu trillunni sinni, oftast við annan mann og hann dró björg í bú. Alltaf náði hann landi án sigling- artækja og hann kvaddi á haustin á svipuðum tíma og farfuglarnir. Aldrei hitti ég hann svo að ekki bærist talið að Bakkafirði og dvölinni þar og síðast þegar við hjónin hittum hann á dvalarheim- ili aldraðra í Vestmannaeyjum á síðastliðnu sumri þá var rætt um æskustöðvar mínar. Vestmanneyjar sýndu honum hlýhug og þar átti hann marga góða vini enda hafði hann slitið kröftum sínum þar. Það fór mjög vel um hann á dvalarheimilinu og síðustu vikurnar var hann á sjúkrahúsinu. Þar dó hann 1. júlí og hvílir nú í kirkjugarðinum í Vestmannaeyjum. Hann var hættur að geta fylgt farfuglunum austur en hugur hans fylgdi þeim. Og nú hefur hann lagt frá landi í síðasta sinn og ég er viss um að hann nær höfn. Við Selma vottum Stefáni og hálfsystkinum hans innilega sam- úð og við kveðjum góðan vin okkar hjóna og æskustöðva minna. Blessuð sé minning hans. Jón Gunnlaugsson Ódýr garð-húsgögn w% sumarbústaða-húsgögn GRAFELDUR HE ÞINGHOLTSSTR/ETI 2 t Jaröarför bróöur okkar, BJÖRGVINS GUÐMUNDSSONAR, bankafulltrúa, Hlíöarvegi 45, Kópavogi, fer fram frá Kópavogskirkju þriöjudaginn 14. júlí kl. 13.30. Blóm eru vinsamlega afbeöin, en þeim sem vllja mlnnast hans er bent á Knattspyrnudeild Breiöabliks í Kópavogs. Rakel Guömundsdóttir, Friöbjörn H. Guömundsson, Ingvi Guömundsson, Kristvin Kristinsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.