Morgunblaðið - 11.07.1981, Page 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ1981
3. flokkur KR hársbreidd frá
sigri í Partille keppninni
- tap í úrslitaleik eftir framlengingu
endur KR búnir að sjá í hendi sér
auðveldari leiki í fjórðungsúrslit-
unum ef KR hafnaði í 2. sæti.
I fjórðungsúrslitum lék KR
fyrst gegn danska liðinu Holm-
beck og sigraði 10—9. Síðan var
mótherjinn landslið Kuwait og
enn sigraði KR, nú 8—7. Var KR
nú komið í undanúrslit og þurfi
þar að mæta Cliff öðru sinni. Og
eins og fyrri daginn sigraði KR,
nú 10—9 og sigurgangan orðin æði
glæsileg. I úrslitum var mótherj-
inn gamall kunningi, HP Warta,
eina liðið sem hafði sigrað KR í
keppninni fram að því. Leikurinn
var æsispennandi, en eftir venju-
legan leiktíma var staðan jöfn,
12—12. Framlengingin fór þannig
fram, að dómarinn lét knöttinn
skoppa á vallarmiðjunni, bæði lið
reyndu að ná honum, því aðeins
var leikið upp á eitt mark.
KR-ingar festu klærnar í knött-
inn, en fengu dæmdan á sig
ruðning. Svíarnir náðu knettinum
og skoruðu sigurmarkið, markið
sem færði þeim sigur í 3. flokki.
3. flokkur KR lék 10 leiki í
keppninni, sigraði átta sinnum, en
tapaði- tvívegis. Markatalan var
133-96.
Fleiri íslensk lið voru þarna
meðal keppenda og náði 3. flokkur
Víkingskvenna besta árangrinum,
komst í undanúrslit í sínum
flokki. 3. flokkur HK í karlaflokki
hafnaði í fimmta sætinu í sínum
flokki, tapaði lykilleikjum fyrir
HP Warta, sem var íslensku
liðunum erfiður ljár í þúfu, og
tékkneska liðinu Bohemians Prag.
2. flokkur karla frá Þór Vest-
mannaeyjum, sami aidursflokkur
Þórs í kvennaflokki og 5. flokkur
karla frá HK unnu þau afrek að
komast í framhaldskeppni. íslensk
lið hafa tekið þátt í Partille-Cup
síðustu árin og hafa staðið sig veí.
3. flokkur KR I handknattleik
stóð sig fráhærlega í hinni um-
fangsmiklu Partille-keppni i
handknattleik. sem haldin er
árlega á Norðurlöndum. Að þessu
sinni i Gautaborg i Sviþjóð. 3.
flokkur vesturbæjarliðsins gerði
sér litið fyrir og komst i úrslit i
sínum flokki og tapaði þar ekki
fyrr en eftir nýstárlega fram-
lengingu. 13 lið frá Sviþj(>ð,
Noregi, Danmörku, Vestur-
Þýskalandi, Tékkóslóvakiu,
Kuwait. Sviss, Póllandi. Spáni,
Júgóslavíu. ítaliu, írak og
Frakklandi auk íslands kepptu i
þessum aldursflokki. en um 320
lið allt i allt i öllum flokkum.
• Hinn glæsilegi bikar sem ivii
hreppti.
KR byrjaði keppnina á því að
sigra danska liðið Mejdal með
miklum yfirburðum, 23—5, þá
sænska liðið Cliff 10—6 og loks
norska liðið Stabeck 14—8. Vann
KR sinn riðil þannig með miklum
yfirburðum, því hin liðin reyttu
stigin hvert af öðru og fengu mest
3 stig, KR hins vegar 6 stig. Með
þessum sigri komst KR áfram í
framhaldsriðil og mætti þá þýsku
liðunum Duvo 08 og Itzehove,
einnig sænska liðinu HP Warta.
KR sigraði Duvo 17—10 og Itze-
hove 18—12, en tapaði 12—18 fyrir
Warta. Gegn sænska liðinu var
litið tekið á, enda voru aðstand-
Pressuleikur í
knattspyrnu á
mánudagskvöldið
• 3. flokkur KR. Standandi frá vinstri: Helgi Ilelgason, Davið
Jóhannsson, Einar Axelsson, ólafur Danielsson, Einar Sigurðsson,
Stefán Erlendsson og Þorvarður Höskuldsson þjálfari. Miðröð f.v.:
Pétur Stefánsson fararstjóri, Bjarni ólafsson, Hlynur Sævarsson,
Hoskuldur Þ. Höskuldsson, Steinar Jóhannsson, Guðjón Bragason og
Guðlaugur Einarsson. Sitjandi f.v.: Skúli Skúlason, Hinrik Þráinsson,
Stefán Pétursson fyrirliði, Sævar Bjarnason og Hannes Jóhannsson.
Jordan til AC Mílanó?
PRESSULEIKUR í knattspyrnu
fer fram á mánudagskvöldið og
hefst hann klukkan 20.00. Mæt-
ast þar flestir ef ekki allir
sterkustu leikmenn islensku
knattspyrnunnar. Búið er að
velja 16-manna hóp sem skipa á
landsliðið og íþróttafréttamenn
hafa einnig slegið saman beina-
Knattspyrnuskóli Fram hefur
nú starfað af krafti frá 1. júni.
öll námskeið hafa til þessa verið
yfirfull, en nokkur pláss eru laus
á námskeiðunum, sem hefjast
eiga mánudaginn 13. júli og
mánudaginn 27. júlí.
Eldri hópur (f. 1969, 1970 og
1971) er frá kl. 9—12, en yngri
hópur (f. 1972, 1973, 1974 og 1975)
frá kl. 13—16. Námskeiðin eru að
sjálfsögðu opin drengjum og
stúlkum.
Kennarar á námskeiðunum eru
Agúst Hauksson og Guðmundur B.
Ólafsson, en skólastjóri er hinn
grind leikmanna sem þcir ætla að
byggja lið sitt á. Ekki þykir þó
rétt að birta nöfn leikmanna enn
sem komið er, þar sem óvist er
hverjir geta gefið kost á sér og
hverjir ekki. En leikurinn fer
fram, svo mikið er víst. Forleikur
verður, en verður innihaldi hans
haldið leyndu fyrst um sinn.
kunni knattspyrnuþjálfari Jó-
hannes Atlason. Landsliðsmenn-
irnir Marteinn Geirsson og
Trausti Haraldsson koma í heim-
sókn í skólann.
Það skal skýrt tekið fram, að
þátttaka í námskeiðum þessum er
ekki bundin við að viðkomandi sé
félagi í Fram, heldur er öllum
frjálst að taka þátt án þess að
binda sig á nokkurn hátt hjá
Fram.
Innritun fer fram í Félagsheim-
ili Fram við Safamýri alla virka
daga frá kl. 9—21.
• Stefán Erlendsson skorar i
úrslitaleiknum.
Tveir
leikir
TVEIR mikilvægir leikir fara
fram í knattspyrnunni á heima-
miðum um helgina. í dag leiða
saman hesta sina Fram og KR og
fer leikurinn fram á Laugardals-
vellinum klukkan 14.00. Er hér
um aukaleik félaganna að ræða í
bikarkeppni KSI, en þau skildu
jöfn, 1 — 1, í fyrri viðureign sinni.
Þá fer fram á Akureyri annað
kvöld leikur KA og ÍBV, leikur
sem varð að fresta fyrr í sumar.
Er um 1. deildar leik að ræða og
hefst hann klukkan 20.00.
SKOSKI landsliðsmiðherjinn i
knattspyrnu, Manchester Utd.-
leikmaðurinn Joe Jordan er nú
staddur i Mílanó, þar sem gangið
verður frá samningi milli hans,
United og AC Milanó á næstunni.
Fréttaskeyti AP höfðu eftir Ron
Atkinson framkvæmdastjóra
United, að þetta væri gifurlegt
áfall fyrir United, „samningur
hans rann út i vor, en ég hafði
gert mér góðar vonir um að halda
BÚIÐ er að raða niður leikjum i
1. deild íslandsmótsins i hand-
knattleik fyrir komandi keppn-
istimabil, en það hefst i október.
Óhætt er að segja að það hefjist
með hamagangi og látum, þvi
fyrsti leikurinn er einmitt viður-
eign Víkings og Þróttar, en
i hann. En þegar erlend félög
grípa inn í eigum við enga
möguleika. við getum engan veg-
in boðið leikmönnum okkar sömu
laun og erlendu risarnir,“ sagði
Atkinson. Jordan hefur leikið 40
landsleiki fyrir Skotland og þyk-
ir frábær miðherji, hann hefur
verið markakóngur United tvö
síðustu keppnistimabilin. Jordan
er metin á rúma milljón sterl-
ingspunda.
félögin voru alger yfirburðalið i
handknattleiknum á siðasta
keppnistimabili og skiptu með
sér þeim verðlaunum sem keppt
var um, Vikingur varð íslands-
meistari, en Þróttur bikarmeist-
ari.
Knattspyrnuskóli Fram
Meistararnir mæta
bikarmeisturunum
— í fyrsta leik íslandsmótsins í handbolta
N