Morgunblaðið - 28.07.1981, Side 4

Morgunblaðið - 28.07.1981, Side 4
4 Peninga- markaðurinn t \ GENGISSKRANING Nr. 139 — 27. júlí 1981 Nýkr. Ný kr. Eining Kl. 12.00 Kaup Sala 1 Bandaríkjadollar 7,433 7,453 1 Sterlingspund 1*929 13,967 1 Kanadadollar 4112 6,129 1 Dönsk króna 0,9777 0,9804 1 Norsk króna 1,2187 1,2220 1 Sænsk króna 1,4341 1,4380 1 Finnskt mark 1,6405 1,6449 1 Franskur franki 1,2874 1,2908 1 Belg. franki 0,1871 0,1876 1 Svissn. franki 3,5421 3,5516 1 Hollensk florina 2,7531 2,7605 1 V.-þýzkt mark 3,0639 3,0721 1 Itölsk líra 0,00616 0,00618 1 Austurr. Sch. 0,4358 0,4370 1 Portug. Escudo 0,1145 0,1146 1 Spánskur peseti 0,0763 0,0765 1 Japanskt yen 0,03166 0,03174 1 Irskt pund 11,163 11,193 SDR (sérstök dráttarr.) 24/07 8,4596 8,4732 _________________________________/ / GENGISSKRANING FEROAMANNAGJALDEYRIS 27. júli 1981 Ný kr. Ný kr. Eininq Kl. 12.00 Kaup Sala 1 Bandaríkjadollar 8,178 8,198 1 Sterlingspund 15,322 15,364 1 Kanadadollar 6,723 6,742 1 Dönsk króna 1,0755 1,0784 1 Norsk króna 1,3406 1,3442 1 Sænsk króna 1,5775 1,5818 1 Finnskt mark 1,8046 1,8094 1 Franskur franki 1,4161 1,4199 1 Belg. franki 0,2058 0,2064 1 Svissn. franki 3,8963 3,9068 1 Hollensk florina 3,0284 3,0366 1 V.-þýzkt mark 3,3703 3,3793 1 Itölsk lira 0,00678 0,00680 1 Austurr. Sch. 0,4794 0,4607 1 Portug. Escudo 0,1260 0,1263 1 Spánskur peseti 0,0839 0,0642 1 Japanskt yen 0,03463 0,03491 1 Irskt pund 12,279 12,312 V Vextir: (ársvextir) INNLÁNSVEXTIR: 1. Sparisjóðsbækur .............34,0% 2. Sparisjóösreikningar, 3 mán.1).... 37,0% 3. Sparisjóðsreikningar, 12. mán. 1) . 39,0% 4 Verðtryggðir 6 mán. reikningar. ... 1,0% 5. Ávísana- og hlaupareikningar. 19,0% 6. Innlendir gjaldeyrisreikningar: a. innstæður í dollurum........10,0% b. innstæður í sterlingspundum ... 8,0% c. innstæður í v-þýzkum mörkum .. 7,0% d. innstæður í dönskum krónum .. 10,0% 1) Vextir færðir tvisvar á ári. ÚTLÁNSVEXTIR: (Verðbótaþáttur í sviga) 1. Víxlar, forvextir ....(26,5%) 32,0% 2. Hlaupareikningar ......(28,0%) 33,0% 3. Lán vegna útflutningsafuröa.. 4,0% 4. Önnur afuröalán .......(25,5%) 29,C% 5. Skuldabréf ............(33,5%) 40,0% 6. Vrsitölubundin skuldabréf ..... 2,5% 7. Vanskilavextir á mán...........4,5% Þess ber að geta, að lán vegna útflutningsafuröa eru verðtryggö miöaö við gengi Bandarikjadollars. Lífeyrissjódslán: Lifeyrissjðður starfsmanna ríkisins: Lánsupphaeö er nú 120 þúsund ný- krónur og er lániö vísitölubundiö með lánskjaravísitölu, en ársvextir eru 2%. Lánstími er allt að 25 ár, en getur verið skemmri, óski lántakandl þess, og eins ef eign sú, sem veð er í er Iftltfjörleg, þá getur sjóöurinn stytt lánstimann. Lifeyríssjóður verzlunarmanna: Lánsupphaeö er nú eftir 3ja ára aöild að lífeyrissjóönum 72.000 nýkrónur, en fyrir hvern ársfjórðung umfram 3 ar bætast við lánið 6.000 nýkrónur, unz sjóðsfélagi hefur náö 5 ára aöild aö sjóðnum. Á tímabilinu frá 5 til 10 ára sjóðsaöild bætast við höfuðstól leyfi- legrar lánsupphæöar 3.000 nýkrónur á hverjum ársfjóröungi, en eftir 10 ára sjóösaöild er lánsupphæðin orðin 180.000 nýkrónur. Eftir 10 ára aðild bætast við 1.500 nýkrónur fyrir hvern ársfjóröung sem líöur. Því er í raun ekkerl hámarkslán í sjóðnum. Höfuðstóll lánsins er tryggöur meö byggingavísitölu, en lánsupphæðin ber 2% ársvexti. Lánstíminn er 10 til 32 ár aö vali lántakanda. Lánskjaravísitala fyrir júlímánuð 1981 er 251 stig og er þá miöaö við 100 1. júní '79. Byggingavísitala var hinn 1. júlí síðastliðinn 739 stig og er þá miöaö við 100 í október 1975. Handhafaskuldabréf í fasteigna- viðskiptum. Algengustu ársvextir eru nú 18—20%. MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ1981 Klukkan rúm- lega eitt í dag Þriðjudags- syrpan Klukkan rúmleKa eitt i dag er Þriðjudagssyrpan svokallaða á dagskrá í umsjá Páls Þor- steinssonar or Þorgeirs Ást- valdssonar. t þættinum verður meðal annars töluvert leikið af sænskri tónlist og þá Abba t.a.m. og citt lag sem er dálítið frábrugðið lögum þeirra félag- anna i Abba verður leikið. sagði Páll er blm. hafði samband við hann. Wolfetones munu koma við sögu í dag og einnig Kate Bush. Útvarp kl. 10.30 „íslenzk tónlist” nefnist þátt- ur sem er á dagskrá hljóðvarps- ins klukkan 10.30 i dag. Þar syngur Sigrún Gestsdóttir „Fimm íslenzk þjóðlög" í útsetn- ingu Sigursveins D. Kristinsson- ar. Einar Jóhannesson leikur með á klarinettu. Þá leika Haf- liði Hallgrímsson og Halldói Haraldsson á selló og píand „Þrjú íslenzk þjóðlög" í útsetn ingu Hafliða Hallgrímssonar. Gylfi Þ. Gislason prófessor. Bubbi Morthens. Hljóðvarp klukkan 11.00 „Leikur { dag klukkan 11.00 er á dagskránni þátturinn „Áður Ólafur Jóhann Sigurðsson við lax“ fyrr á árunum“ i umsjá Ágústu Björnsdóttur. Sagði Ágústa er blm. hafði samband við hana að í þætinum yrði lesin gamansöm smásaga er nefnist „Leikur við lax“. Þessi smásaga er meðal æskuverka Ólafs Jóhanns Sigurðssonar en sem kunnugt er hóf hann ritferil sinn mjög ungur eða á fjórða áratugnum. Um efni sögunnar læt ég ekkert uppiskátt, sagði Ágústa, annað en það að þetta er dæmigert fyrir viðureign áhuga- veiðimannsins við „þann stóra“. Það sama má nú segja um „Einn lítinn veiðisálm" eftir Huldu Runólfsdóttur frá Hlíð sagði Ágústa en ljóðið flytur hún í enda þáttarins. Karl Guðmundsson les söguna „Leikur við lax“. Fótamennt Sumargleðinnar. „Hafiði heyrt um Reykvíkingiim...“ Það var mikið fjör i íþróttahús- inu i Hafnarfirði á fimmtudags- kvöldið var þegar Sumargleðin, með þá Bessa. Ómar, Magnús Ólafsson. Þorgeir Ástvaldsson og Ragnar Bjarnason i fararbroddi. mætti til leiks og skemmti Hafn- firðingum, sem fjölmenntu og virt- ust skemmta sér hið besta. Milli þess sem hljómsveit Ragnars Bjarn- asonar lék sögðu ómar og og Bessi hrandara, þó ekki Hafnfirðinga- brandara. Hins vegar lét Magnús nokkra vel valda Reykvlkinga- hrandara f júka og hlutu þeir góðar undirtektir hinna innfæddu. Ómar söng af mikilli innlifun um myndbandatæknina, sem nú tröllríð- ur þjóðfélaginu og þeir Ragnar fluttu leikþátt, sem gerast átti á veitingahúsi. Þar lék Ragnar gest- inn, sem mátti þoia vægast sagt dólgslega meðferð frá hendi þjónsins Bessa. Þá tók Magnús Ólafsson sig afar vel út í gervi fyrsta íslenska glasabarnsins og Ómar og einn hljómsveitarmanna líktu eftir sjáv- arútvegsráðherra og ráðuneytis- stjóra hans á nokkuð sannfærandi hátt. Ragnar stjórnaði spurninga- keppni nokkurra barna úr salnum og gafst ungmennunum færi á að spreyta sig á spurningum á borð við þá hvað Laddi héti fullu nafni. Svarið var auðvitað Halli, eins og einn tíu ára var snöggur að átta sig á og síðan hélt hópurinn hæstánægður niður af sviðinu með karamellurnar, sem Ragnar hafði útdeilt þeim hinn göfugmannlegasti. Bingóið var að sjálfsögðu á sínum stað og margt sem gefur forskot í lífsgæðakapp- hlaupinu í boði. Eftir að þeir félagar í Sumargleðinni höfðu brugðið sér í gervi nokkurra þjóðsagnapersóna til viðbótar, Ómar hermt eftir húsdýr- unum eins og honum einum er lagið, var komið að einu rismesta atriði hátíðarinnar. En þá var þremur hafnfirskum húsmæðrum, sem Bessi, maðurinn í heimasaumuðu fötunum, hafði fisk- að fram úr salnum ásamt eigin- mönnum, gefinn kostur á að ganga úr skugga um það hve vel þær þekktu maka sína. Var þatgert á þann hátt að bundið var fyrir augu kvennanna og þær síðan látnar fara höndum um fótleggi nokkurra sumargleðisveina. Var það að vonum að konurnar þekktu ekki kálfa bænda sinna, ein lýsti því reyndar yfir að hún eyddi nú ekki tímanum í slíkar rannsóknir dags daglega, en tvær staðnæmdust við fótleggi Þor- geirs Ástvaldssonar og sögðu þar vera komna hina einu sönnu kálfa. Hefur uppákoma þessi vonandi ekki stofnað hafnfirskum hjónaböndum í hættu, en að henni lokinni hélt fótamenntin áfram í formi dansleiks fram eftir nóttu. Margt var sér til gamans gert. Utvarp Reykiavík ÞRIÐJUDKGUR 28. júlí. MORGUNNINN 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. 7.15 Tónleikar. Þulur velur og kynnir. 8.00 Fréttir. Dagskrá. Morg- unorð. Anna Sigurkarlsdótt- ir talar. 8.15 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.). Tónleikar. 8.55 Daglegt mál. Endurt. þáttur Helga J. Halldórsson- ar frá kvoldinu áður. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: Svala Valdimarsdóttir les þýðingu sína á „Malenu í sumarfríi“ eftir Maritu Lindquist (3). 9.20 Tónleikar. Tilkynningar. Tónleikar. 10.00 Fréttir. 10.10 Veður- fregnir. 10.30 Islensk tónlist. Sinfóniu- hljómsveit íslands leikur „Sigurð Fáfnisbana", forleik eftir Sigurð Þórðarson, og „Lýríska svítu“ eftir Pál Isólfsson. Stjórnendur: Páll P. Pálsson og Róbert A. Ottósson. 11.00 „Áður fyrr á árunum". Ágústa Björnsdóttir sér um þáttinn. Meðal efnis er smá- sagan „Leikur við lax“ eftir Ólaf Jóhann Sigurðsson, Karl Guðmundsson les og Ijétðið „Einn litill veiðisálm- ur“ eftir Huldu Runólfsdótt- ur; höfundur flytur. 11.30 Morguntónleikar. Robert Shaw kórinn og RCA Victor hljómsveitin flytja atriði úr þekktum óperum; Robert Shaw stj. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. SÍÐDEGIÐ 12.20 Fréttir. 12.45 Veður- fregnir. Tilkynningar. Þriðjudagssyrpa — Páll Þorsteinsson og Þorgeir Ástvaldsson. 15.10 Miðdegissagan: „Praxis" eftir Fay Weldon. Dagný Kristjánsdóttir les þýðingu sina (17). 15.40 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Síðdegistónleikar. Grumiaux-tríóið leikur Strengjatríó í B-dúr eftir Franz Schubert/Félagar í Vínaroktettinum leika Di- vertimento nr. 17 i D-dúr eftir Wolfgang Amadeus Mozart. KVÖLDID 17.20 Litli barnatiminn. Stjórnandi: Guðríður Líllý Guðbjörnsdóttir. M.a. les Vil- borg Gunnarsdóttir Ævin- týrið um hérann og brodd- göltinn úr Grimms-ævintýr- um í þýðingu Theódórs Árnasonar. 17.40 Á ferð. óli H. Þórðarson spjallar við vegfarendur. 17.45 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.35 A vettvangi. Stjórnandi þáttarins: Sigmar B. Hauks- son. Samstarfsmaður: Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir. 20.00 Áfangar. Umsjónar- menn: Ásmundur Jónsson og Guðni Rúnar Agnarsson. 20.30 „Nú er hann enn á norð- an“. Umsjón: Guðbrandur Magnússon blaðamaður. 20.55 Frá tónlcikum Norræna hússins 13. mars s.l. Sólveig Faringer syngur lög eftir Gunnar dc Frumerie, Carl Nielsen, Claude Debussy og Erik Satie. Eyvind Möller leikur með á pianó. 21.30 Útvarpssagan: „Maður og kona“ eftir Jón Thoro- ddsen. Brynjólfur Jóhann- esson leikari les (11). 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.35 „Miðnæturhraðlestin" eftir Billy Hayes og William Hoffer. Kristján Viggósson les þýðingu sína (17). 23.00 A hljóðbergi. Umsjónar- maður: Björn Th. Björnsson listfræðingur. Þýska söng- konan Lotte Lehmann les Vetrarferðina eftir Wilhelm Muller og úr Ijóðhvíld Hein- es. Með lestrinum verða sungin nokkur sömu Ijóð. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.