Morgunblaðið - 28.07.1981, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ1981
25
Ljósm. óskar Sæmundsson
aeðum á brautunum. Hér er McHenry frá írlandi að leita að
s úti í skurði, og hann varð að taka víti.
igruðu óvænt
naði í tíunda sæti
Sigursveit Spánar í Evrópumeistaramóti unglinga í golfi.
(Þ i COLF
Valur í toppbaráttuna
VALSMENN eru komnir á bóla-
kaf í toppslaginn i 1. deild
íslandsmótsins i knattspyrnu,
cftir að hafa sigrað FH 2—1 á
Laugardalsvellinum. Var sá sig-
ur sanngjarn nokkuð eftir gangi
Iciksins, en undir lok hans fengu
bæði liðin dauðafæri, Valsmenn
til þess að innsigla enn frekar
sigur sinn, en FH-ingar færi á að
jafna. Ekkert varð þó úr neinu,
mörkin komu öll i fyrri hálfleik.
FH-ingar byrjuðu leikinn á því
að reka votan hanska í andlit
Valsmanna, en þeir skoruðu mark
sitt strax á 4. mínútu leiksins.
Eins og öll mörkin í leiknum, var
markið stórglæsilegt. Sókn FH
hófst á því, að knettinum var rænt
af Magna Péturssyni nokkuð fyrir
utan vítateig Vals. FH fékk síðan
aukaspyrnu rétt fyrir utan teiginn
hægra megin. Viðar tók spyrnuna,
sendi fast fyrir markið og Tómas
Pálsson skallaði þrumufast í blá-
hornið, gersamlega óverjandi fyrir
Sigurð Haraldsson markvörð.
FH-ingar hafa löngum átt erfitt
með að halda forystu og þessari
hélt liðið í alls fimm mínútur. Þá
bætti Magni Pétursson fyrir hlut
sinn í marki FH með því að jafna
með glæsilegu skoti utan úr víta-
teignum. Hilmar Sighvatsson
sendi fyrir frá hægri og knöttur-
inn barst til Magna eftir nokkuð
| þóf í teignum.
Valsmenn voru mun sterkari í
fyrri hálfleik og sótti liðið lengst
af með miklum þunga. Matthías
Hallgrímsson og Hilmar Sighvats-
son voru nokkrum sinnum nærri
því að skapa sér færi og næst því
að skora komst Matti, er Guð-
mundur Hilmarsson bjargaði
skalla hans af línunni eftir góða
fyrirgjöf frá Hilmari. FH-ingar
áttu fáein upphlaup og Ingi Björn
fékk í einu þeirra gott færi, en
hann skaut yfir. Tveimur mínút-
um fyrir leikhlé skoraði Njáll
Eiðsson það sem reyndist sigur-
mark Vals. Glæsilegasta mark
leiksins, þrumuskot af rúmlega 20
metra færi!
Síðari hálfleikur var lengst af
tíðindalítill, talsvert þóf, en öðru
hvoru virtust liðin bæði vera að ná
efnilegum sóknarlotum. En þær
urðu aldrei annað en efnilegar, því
allar fjöruðu út. Undir lokin fóru
varnirnar hins vegar að opnast
fyrir alvöru og þá sóuðu bæði
liðum dauðafærum eins og þau
ættu nóg af slíkum varningi. Hjá
Val fékk Hilmar Sighvatsson að
minnsta kosti þrjú opin færi, en
lét ýmist verja frá sér, eða þá að
hann brenndi af. Þá voru Vals-
menn á bak við eitt æsilegasta
atvik leiksins á síðustu mínútunni,
er Guðmundur Þorbjörnsson
spyrnti viðstöðulaust að marki FH
eftir stórgóða fyrirgjöf Hilmars.
Var sóknarlotan afar góð, en
Hreggviður markvörður FH setti
punktinn yfir sérhljóðann er hann
varði stórkostlega skot Guðmund-
ar. Ingi Björn brenndi af dauða-
færi fyrir FH, en besta tækifæri
leiksins klúðraði hins vegar Óli
Dan. Á undirritaður ekki von á að
sjá opnara færi á næstunni. Ólaf-
ur fékk knöttinn eftir að allmargir
Valsmenn höfðu látið fram hjá sér
fara fyrirgjöf Tómasar frá hægri.
Markið var gapandi fyrir framan
Ólaf og hann gaf sér góðan tíma
til að leggja knöttinn fyrir sig
áður en hann mokaði honum
langleiðina út á bílastæðin.
Valur - 0*1
fh Cr-1
Þetta var á köflum fjörugur
leikur, en datt niður í ekki neitt
þess á milli. Hjá Val bar afar
mikið á Njáli Eiðssyni, sem var
eins og torfærujeppi spólandi um
allt. Leikmaður með geysilega
yfirferð, gífurlega baráttu og tals-
verða getu í bland. Þá sakar ekki
að hann er markheppinn í meira
lagi. Hilmar Sighvatsson hlaut
loks náð fyrir augum þjálfarans
og hann var stórhættulegur í
framlínunni. Hins vegar var hann
bölvaður klaufi að skora ekki oftar
en einu sinni. Valur Valsson
skilaði sínu einnig vel og aðrir
leikmenn Vals voru traustir. Hjá
FH sýndi Viðar Halldórsson mik-
inn dugnað og elju þó uppskeran
væri rýr. Tómas átti spretti góða í
fyrri hálfleik og flestir hinna áttu
einnig sína spretti. Þó má skjóta
því að Inga Birni og Óla Dan að
einleika ívið minna. Magnús Stef-
ánsson var afar sterkur í stöðu
miðvarðar, en Hreggviður í mark-
inu var óvenjulega óöruggur.
Hann hefur þó kippt einum af
veikleikum sínum í liðinn, það er
farið að heyrast í honum í víta-
teignum.
I stuttu máli: íslandsmótið 1.
deild, Valur — FH, 2—1 (2—1).
Mörk Vals: Magni Pétursson á 9.
mínútu og Njáll Eiðsson á 43.
mínútu.
Mark FH: Tómas Pálsson á 4.
mínútu.
Áminningar: Engar.
Dómari: Kjartan Ólafsson. —gg.
• Njáll Eiðsson skorar sigurmark Vals með þrumufleyg. Ljósm.: Emiiía
Jóná
3:43,3
JÓN Diðriksson hlaupari úr
UMSB náði sínum bezta tíma í
1500 metra hlaupi á þessu ári á
frjálsíþróttamóti í Leverkusen i
V-Þýzkalandi sl. föstudag. Jón
hljóp á 3:43,3 minútum og varð
þriðji. Sigurvegari varð bezti
langhlaupari Þjóðverja um ára-
bil, Karl Fleschen, sem hljóp á
3i43,0. Annar varð Heinz-Paul
Wellmann, sem hlaut bronzverð-
laun i 1500 metra hlaupi á
Ólympiuleikunum í Montreal
Pólverjar
sigruðu
PÓLSKA knattspyrnulandsliðið
sigraði vestur-þýska félagsliðið
VFB Stuttgart 4—1 í æfingaleik
um helgina. Leikið var i Þýska-
landi. Staðan i hálfleik var 2—1,
en 12.000 áhorfendur urðu vitni
að atburðinum.
Staðaní
1. deild
STAÐAN í 1. deild eítir
leiki helgarinnar er nú
þannig:
Víkinifur 12 7 3 2 17-10 17
Breirtablik 12 4 7 1 15-10 15
Valur 12 6 3 3 23-11 15
Akranes 12 5 4 3 12-7 14
Fram 12 4 6 2 16-14 14
KA 12 4 4 4 12-11 12
ÍBV 12 4 3 5 18-16 11
Þór 12 1 6 5 10- 24 8
FH 12 2 3 7 14-24 7
KR 12 1 5 6 7-16 7
Nú er 12. umferð lokið. Næ9tu
leikir í 1. deild fara fram á
miðvikudag, þá leika saman, IA—
UBK, Þór-Fram og KR-ÍBV. Á
fimmtudag er stórleikur, þá mæt-
ast Valur og Víkingur. Sama kvöld
leika FH og KA. Eins og sjá má á
stöðunni hér að ofan er mikil
spenna komin í deildina og óger-
legt að spá nokkuð um hvaða lið
kemur til með að sigra í mótinu.
Hver leikur sem eftir er skiptir
gifurlega miklu máli. Spennan
komin í hámark.
Einkunnagjöfin
Lið Vals:
Sigurður Haraldsson 6
Þorgrímur Þráinsson 5
Grimur Sæmundsen 6
Sævar Jónsson 6
Jón G. Bergs 6
Njáll Eiðsson 7
Magni Pétursson 6
Guðmundur Þorbjörnsson 6
Matthías Hallgrimsson 4
Valur Valsson 6
Ililmar Sighvatsson 7
Þorsteinn Sigurðsson vm 4
Lið FH:
Hreggviður Ágústsson 5
Guðmundur Hilmarsson 5
Atli Alexandersson 6
Magnús Stefánsson 7
Guðmundur Kjartansson 6
Magnús Teitsson 5
Viðar Halldórsson 7
Sigurþór Þórólfsson 5
Ólafur Danivalsson 5
Ingi Björn Albertsson 5
Tómas Pálsson 6
Helgi Ragnarsson vm lék i 7 mín.