Morgunblaðið - 28.07.1981, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ1981
27
• Jón Oddsson skoraði mark ísfirðinga. Jón lék áður með KR ok sést
hér i KR-búninKÍ-
ísfiróingar enn efstir
unnu Þrótt R 1:0
„VIÐ unnum bara einn leik núna, ekki deildina, en ætlum okkur að
halda okkar striki ok stefnum á 1. deildina,“ saKði Magnús
Jónatansson, þjálfari ísfirðinKa, eftir að hans menn höðfu laKt Þrótt
Reykjavik að velli á LauKardalsvellinum. 1:0, siðastliðinn lauKardaK-
„Þetta var sannnjarn sÍKur ok við erum mjöK ánæKðir að hafa náð
báðum stÍKunum. Við höfðum aðeins Kert okkur vonir um annað
þeirra eftir að hafa séð Þrótt vinna FH i bikarkeppninni, en það
virtist sitja þreyta i þeim eftir þann leik. Ef við náum næKÍleKum
stöðuKÍeika í leik liðsins ættum við að hafa KÓða möKuleika á sÍKri i
deildinni, en það verður bara að koma i ljós,“ saKði MaKnús.
„ísfirðingar áttu þennan sigur
fyllilega skilið, við vorum lélegir
og megum ekki tapa stigi það sem
eftir er mótsins, ef við ætlum
upp,“ sagði Ásgeir Elíasson, þjálf-
ari Þróttar, eftir leikinn. „Við
vorum að vísu klaufar að skora
ekki þegar við vorum tveir við
knöttinn fyrir opnu marki, en
þetta verður að vera betra en núna
ef við ætlum okkur upp. Annars
sat í okkur þreyta frá bikarleikn-
um við FH, þetta hefur verið anzi
stíft hjá okkur að undanförnu, en
við ætlum okkur alls ekki að
gefast upp,“ sagði Ásgeir.
Gangur leiksins var annars sá
að bæði liðin börðust nokkuð vel í
fyrri hálfleik, einkum þó ísfirð-
ingar, sem gáfu Þrótturum engan
frið til samleiks og tókst að brjóta
niður nær allar sóknaraðgerðir
þeirra. Leikurinn fór því að mestu
fram á milli vítateiga liðanna án
þess að þeim tækist að skapa sér
veruleg marktækifæri.
Seinni hálfleikur var svo heldur
fjörugri og voru Þróttarar þá öllu
ákveðnari. Á 48. mínútu leiksins
skaut Páll Ólafsson hörku skoti að
marki Isfirðinga úr aukaspyrnu,
markvörður þeirra varði, en hélt
ekki knettinum, sem hrökk til
tveggja Þróttara, Ásgeirs og Arn-
ars, en þeir misstu hann frá sér
fyrir opnu marki og ísfirðingar
náðu að bægja hættunni frá. Þá
átti Baldur Hannesson jgott skot,
en rétt fram hjá marki Isfirðinga.
Á 54. mínútu komst Jón Oddsson
inn í sendingu Þróttara til mark-
manns, en honum tókst ekki að
nýta færið. Á 63. mínútu kom svo
eina mark leiksins, Jón Oddsson
fékk þá gullfallega sendingu frá
Kristni Kristjánssyni inn fyrir
vörn Þróttar, hann lék inn í
vítateiginn og skoraði örugglega
framhjá markverði Þróttar, sem
kom út á móti honum. Þróttarar
reyndu nú að sækja meira, en
komust lítt áfram gegn baráttu-
glöðum ísfirðingum. Á 70. mínútu
skaut Páll Ólafsson rétt yfir
markið úr aukaspyrnu og Sverrir
Pétursson skaut í utanvert hlið-
arnet Isafjarðarmarksins er tvær
mínútur voru til leiksloka. Fleiri
uðru því mörkin ekki og Isfirð-
ingar hrósuðu sigri í lokin.
Með þessum sigri styrktu ísfirð-
ingar stöðu sína í baráttunni um
efsta sætið mjög verulega og hafa
nú þriggja stiga forskot á Þrótt og
Keflavík, sem á einn leik til góða
þegar þetta er skrifað. Möguleikar
Þróttar minnkuðu að sama skapi
við þessi úrslit og verða þeir nú
helzt að vinna alla sína leiki, sem
eftir eru og ÍBK og ÍBÍ afur á móti
að tapa leikjum eigi Þróttur að
eiga möguleika á sæti í 1. deild að
ári.
Lið ísfirðinga var jafnt í leikn-
um allir leikmenn börðust af
krafti allan leiktímann, en mest
bar á þeim Jóni og örnólfi
Oddssonum og miðverðinum Har-
aldi Stefánssyni. Þróttarliðið var
fremur slakt að þessu sinni, en
þeir Páll og Baldur áttu góða
spretti. HG.
Hjélreiðakeppni frá Reykjavík til Þingvalla og til baka:
Einhvern tíma hefði
bílferð tekið lengri tíma
„VIÐ GERÐUM okkur vonir um að getraun sem efna átti til i
sambandi við hjólreiðakeppnina mundi færa íþróttafélagi
fatlaðra í Reykjavik einhverja tugi þúsunda i sinn hlut, en á
síðustu stundu bannaði Dómsmálaráðuneytið getraunina. Eng-
in skýring var gefin á banninu, aðeins visað til einhverra
lagagreina,“ sagði Magnús H. Kristjánsson hjá Hoilywood, en
um siðustu helgi efndu Hollywood, Fálkinn og Hótel Valhöll til
hjólreiðakeppni frá Reykjavik til Þingvalla og tii baka.
Hugmyndin með keppninni var að vekja athygli á aðstöðuleysi
fatlaðra til íþróttaiðkunar og styrkja starfsemi Iþróttafélags
fatlaðra i Reykjavik.
„Af fyrrgreindum ástæðum var inntektin Htil, og hlutur
íþróttafélags fatlaðra því aðeins rúmar 2.000 krónur,“ sagði
Magnús.
Alls létu rúmlega 40 hjól-
reiðamenn skrá sig til keppn-
innar. Veður var hins vegar
slæmt í höfuðborginni og á
keppnissvæðinu á laugardag,
og hefur það líklega átt sinn
þátt í því að aðeins rúmlega
20 mættu til leiks.
Þrátt fyrir mikinn mótvind
og rigningu á báðum leiðum
var keppnisharkan mikil all-
an tímann. Hjólað var til
baka á sunnudag. Náðu 15
hjólreiðamenn til Þingvalla
Þrir fyrstu (f.v.): Einar Jó-
hannsson. Pálmi Krist-
mundsson og Kjartan M.
Kjartansson.
og sami fjöldi lagði af stað til
Reykjavíkur, en níu komust
alla leið í mark.
Það var á hjólreiðamönn-
unum að heyra, að þeim
fyndist bifreiðastjórar marg-
ir hverjir sýna þeim litla
tillitssemi, og kom það í ljós í
keppninni. Margir bifreið-
astjórar gáfu helst ekki
tommu af veginum og neyddu
hjólreiðamennina hálfvegis
útaf. í þessu sambandi munu
bifreiðastjórar hafa misnot-
Hluti keppenda fyrir fram-
an Hollywood að lokinni
keppni.
K)órn S<KurAHNon.
að flautur sínar, að sögn
hjólreiðamannanna. Undan-
tekningar voru þó á þessu.
Sigurvegari í hjólreiða*
keppninni var Einar Jó-
hannsson, íslandsmeistari 1
hjólreiðum, hjólaði fram og
til baka á 3:50,34 klst., en
einhvern tíma mun það hafa
tekið lengri tíma að aka
þessa leið fram og til baka. í
öðru sæti varð Pálmi Krist-
mundsson á 3:53,43 klst., en
hann mun hafa staðið sig
með ágætum í hjólreiða-
keppni í Danmörku á síðustu
misserum, og þriðji varð
Kjartan M. Kjartansson á
4:04,16 klst.
Hjólreiðamenn láta ekki
deigan síga því á sunnudag
var háð keppni frá Keflavík í
Kaplakrika við Hafnarfjörð.
Hjólreiðamenn hafa ekki
fengið leyfi til að hjóla í
keppni innan höfuðborgar-
innar, þar sem það brýtur í
bága við umferðarlög að
hjóla hraðar en 25 km/klst.
Blautur og þreyttur, en
ánægður keppandi kominn i
mark eftir tvo erfiða keppn-
isdaga.
Dyttað að „keppnisfákunum“ i Hótel Valhöll eftir fyrri daginn.
Hjólreiðaumboðin eru farin að leggja áherslu á að senda sveitir
í hjólreiðakeppni. Hér eru keppendur og viðgerðarmenn frá
einu umboðanna.