Morgunblaðið - 28.07.1981, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ1981
31
líklegar til að bera árangur.
Innan Samstöðu eru þó sterk öfl
sem krefjast þess að samtökin
gerist virkt afl í stjórnmálum, en
forystan er því andvíg. Lech Walesa
leggur áherslu á að samtökin verði
eingöngu stéttarfélag. Vafalaust
mun verða deilt um þetta á fyrsta
ársfundi Samstöðu, sem haldinn
verður í næsta mánuði.
Umbætur
Margt hefur breyst í Póllandi á
síðasta ári. Flokkurinn hefur orðið
að gefa eftir á mörgum sviðum. Til
dæmis hefur verið slakað á ritskoð-
un, Samstaða gefur út sitt eigið
blað og Trybuna Ludu, flokksmál-
gagnið, er hlutlausara í frásögnum
af stjórnmálum. Fólk nýtur meira
tjáningarfrelsis en það hefur nokk-
urn tíma gert síðan Kommúnista-
flokkurinn komst til valda 1947.
Það sem nú liggur fyrir nýkjör-
inni stjórn Póllands er að leysa
efnahagsvanda þjóðarinnar. Hann
eykst stöðugt. Biðraðir verða stöð-
ugt lengri og hillur í verslunum
fátæklegri. Nýlega var efnt til
skyndiverkfalla í borgunum
Gdansk og Szczecin (Stettin). Þar
lögðu 35 þúsund manns niður vinnu
í nokkrar klukkustundir. Starfs-
menn ríkisflugfélagsins LOT lögðu
niður vinnu í tvo tíma því að
starfsmenn þess vildu hafa áhrif á
það hver yrði valinn forstjóri.
Vörubílstjórar í borginni Bydgoszcz
lögðu niður vinnu í tvær klukku-
stundir til þess að knýja á um að
yfirmaður flutningamála í borginni
yrði rekinn vegna spillingar. Hann
sagði af sér stuttu síðar.
„Þær launahækkanir og kjara-
bætur, sem Samstaða hefur náð
fram veröa einskisnýtar ef efna-
hagsástandið batnar ekki,“ segir
Lech Walesa. „Þeir sem hylltu
okkur fyrir ári munu þá grýta
okkur."
(Observer, L'Express, Time.)
Skyndiverkfall. Ilafnarverka-
menn yfirgefa vinnustað sinn.
gert áætlun um hvernig mæta
skuli uppbyggingu SS-20-flauga
Rússa.
Vestur-Þjóðverjar hafa sam-
þykkt að taka við 108 Pershing
II-eldflaugum, sem verða stað-
settar á landi. Til viðbótar verða
staðsettar 464 stýriseldflaugar á
landi í Vestur-Þýzkalandi, Italíu
og Bretlandi: í Greenham Comm-
on í Berkshire og í Molesworth í
Cambridgeshire. Og í Vestur-
Þýzkalandi segja bandarískir
embættismenn að 108 Pershing-
flaugum verði komið fyrir ná-
lægt bæjunum Schwáb-
isch-Gm-nd, Neu-Ulm og Neck-
arsulm.
Umræður fara stöðugt fram í
Belgiu og Hollandi um hvort
taka skuli við nýjum NATO-
flaugum eða ekki. Líkur á því að
staðsetning þeirra verði sam-
þykkt dvína stöðugt, þar sem
hreyfingu baráttumanna kjarn-
orkuafvopnunar hefur vaxið fisk-
ur um hrygg.
Jafnvel þótt komið verði fyrir
572 nýjum kjarnaoddum fyrir
miðjan þennan áratug og fullum
styrkleika verði náð mun kjarn-
orkuliðsafli NATO ekki geta
skákað Rússum, sem þá munu
alls hafa komið fyrir 750
SS-20-kjarnaoddum að því er
BandtwíkjomenB 4ætla.-------- -
Vlð verðum tilbúnir með bflinn,
þegar þið komið!
ÍSLANDSREISA
íslandsreisur Flugleiða eru sumarleyfisíerðir
innanlands íyrir ísiendinga. Nútíma íerða-
móti. Flogið er til aðalcdangastaðar og lerða-
mannaþjónusta notuð, rétt eins og þegar
farið er til útlanda.
NÚTÍMA FERÐAMÁTI
islandsreisur Fugleiða gera ráð fyrir því að þú
og fjölskylda þín geti tileinkað sér nýtískulega
ferðahœtti hér innanlands - eins og ferðaíólk
gerir á ferðum sínum erlendis. Þess vegna
gerir Reisupassinn þér mögulegt að
að fljúga á ákvörðunarstað, en þar
tekurðu við hreinum og fínum
bílaleigubíl, sem þú hefur til
fullra aínota á mjög hag
stœðu verði. Það er óneit-
anlega þœgilegra en að
flengjast langar leiðir á
misjöfnum vegum á eigin
bn.
ÖSA
REISUPASSINN
Flugmiðinn í íslandsreisumar nefnist Reisu-
passi. Hann veitir eiganda sínum aðgang að
ýmis konar þjónustu á sérstöku verði. Reisu-
passa er hcegt að kaupa til Akureyrar, Egils-
staða, Homafjarðar, Húsavikur, ísafjarðar,
Sauðárkróks, Reykjavíkur og Vestmannaeyja.
Ef millilenda þarf í Reykjavík er geíinn 50%
aísláttur af fargjaldi þangað.
DVALARTÍMI
Lágmarksdvöl í íslandsreisu er 4 dagar, nema
Reykjavík þar sem lágmarksdvöl er 6
dagar. Hámarksdvöl er aftur á
móti 30 dagar í öllum tilfellum,
gildistíminn er til l .október
nœstkomandi.
FLUGLEIÐIR
Traust fálk hjá gúöu felagi