Morgunblaðið - 28.07.1981, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ1981
19
Símamynd-AP.
Elízabet EnKlandsdrottning og Nancy Reagan forsetafrú ræðast við þar
sem þær voru að fyigjast með póló-keppni í Windsor á sunnudag. Meðal
keppenda í enska liðinu var Karl rikisarfi. en mótherjarnir voru frá
Spáni. Nancy Reagan verður viðstödd brúðkaup Karls prins og lafði
Díönu á miðvikudag.
draga á fingur lafði Díönu á mið-
vikudag er gerður í welsku gulli,
sem er heldur dekkra en venjulegt
gull. Hringurinn er gerður úr gulli
úr einu gullnámu Bretlands; hún
fannst í Clogan St. David’s í
Bontddu-héraði árið 1923. Fjórir
aðrir meðlimir konungsfjölskyld-
unnar hafa fengið hringa gerða úr
námunni í Bontddu. Hinn fyrsta
fékk móðir Elísabetar drottningar
árið 1923 þegar hún giftist hertog-
anum af York; síðar Georg 6. Árið
1947 var gull úr Bontddu notað í
hring handa Elísabetu drottningu.
Aftur var gull sótt til Wales 13
árum síðar þegar Margrét prinsessa
giftist Snowdon lávarði og loks 1973
þegar Anna prinsessa giftist Mark
Phillips.
Sir John Betjeman, hirðskáld
Breta, hefur samið ljóð til heiðurs
brúðhjónunum. Sir John, en meðal
forvera hans eru þjóðskáld á borð
við Dryden, Wordsworth og Tenny:
son, er nýkominn af sjúkrahúsi. í
apríl síðastliðnum fékk hann
hjartaslag en sir John er 75 ára
gamall. Hann var skipaður hirð-
skáld 1972 og hefur skáldið sætt
gagnrýni fyrir að stinga penna of
sjaldan í blek.
Að lokum: Thailenskur stjörnu-
fræðingur spáir því, að Karl prins
og lafði Díana muni eignast son
innan tveggja ára. Og einnig, og það
ætti að vera Bretum ekki síður
kærkomið; vegna jákvæðra afstöðu
stjörnumerkja, mun brúðkaupið
stuðla að því rétta við bágan
efnahag Bretlands.
Mútuhneyksli
í sovétlýðveldi
Moskvu. 27. júlí. AP.
TVEIR sovézkir landbúnaðar-
starfsmenn hafa verið fangelsaðir
fyrir að þiggja mútur fyrir að
falsa gæðaflokka ullar, sem er
útveguð handa ríkisverksmiðjum
að sögn sovézkra hlaða i gær.
Mikhail N. Gorelov, kunnur sér-
fræðingur stjórnardeildar í rússn-
eska sovétlýðveldinu, var dæmdur í
12 ára fangelsi og eignir hans voru
gerðar upptækar. Honum var gefið
að sök að hafa skipulagt svindlið.
Maður að nafni Voropinov,
skrifstofustjóri í borginni Nevinn-
omyssk, var dæmdur í 10 ára
fangelsi og ýmsir aðrir vitorðs-
menn í suðurhluta rússneska lýð-
veldisins fengu einnig dóma.
Gorelov fékk þúsundir rúblna á
sjö ára tímabili frá ullarframleið-
endum fyrir að skrá ull, sem hann
hafði eftirlit með, í hærra gæða-
flokki en hún átti að vera. Einnig
var blandað saman góðri ull og
slæmri til að fela slæmu ullina
fyrir verksmiðjunum.
Gorelov hélt nákvæma skýrslu
um múturnar, sem hann þáði, og
skýrslur hans voru meðal 15 binda
af sönnunargögnum er sækjandinn
lagði fram í réttarhöldunum.
Battek fyrir
rétti í Prag
Vín. 2t. júlí. AP.
EINN af leiðtogum baráttumanna mannréttinda i Tékkóslóvakíu.
Rudolf Battek. var leiddur fyrir rétt í Prag í dag, ákærður fyrir
undirróður og viðnám gegn yfirvöldum, að sögn útlaga í dag.
Battek var þingmaður á dögum
sér fimm ára fangelsi.
Battek var í hópi hinna fyrstu
sem skrifuðu undir mannréttinda-
yfirlýsinguna 1977 og einn af stofn-
endum nefndar sem berst fyrir
málstað fórnarlamba óréttlátra
ofsókna í Tékkóslóvakíu.
Hann er félagsfræðingur að
mennt og varð að sjá sér farborða
með rúðuhreinsun. Lögreglan í
Prag handtók hann í júní 1980 og
gaf honum að sök að hafa ráðizt á
lögregluþjón. Samkvæmt áreiðan-
legum heimildum vildi Battek til-
kynna að bifreið hans hefði verið
stolið.
Hann hefur verið í haldi síðan og
.vorsins í Prag“ 1968 og á yfir höfði.
Amnesty International hefur sagt
að mál hans sé skýlaust brot á
mannréttindum.
Amnesty vitnaði í fréttir um að
kona Batteks, Dagmar, hefði ekki
fengið að hitta hann síðan í
október 1980 þegar hún heimsótti
hann í Ruzyne-fangelsi skammt frá
Prag. Lögfræðingur Batteks hefur
heldur ekki fengið að hitta hann
síðan.
Góðar heimildir herma, að yfir-
völd í Tékkóslóvakíu undirbúi rétt-
arhöld í málum 16 annarra andófs-
manna, þar á meðal Jiri Hajeks,
sem var utanríkisráðherra á
„frjálsræðistímanum".
Bandaríkin sökuð um
sýklahernað á Kúbu
Miami. 27. júli. AP.
FIDEL Castro Kúbuforseti sakaði
i gær Bandarikjamenn um að
hcyja „sýklahernað“ gegn Kúbu-
mönnum og hafa valdið drepsótt-
um á eynni.
Hann sagði að við öðru væri ekki
að búast af ríkisstjórn sem væri
„þekkt fyrir mannvonzku, lygar og
algert samvizkuleysi".
Castro sagði að eins og margir
aðrir væri hann haldinn þeim illa
grun að CIA hefði valdið þeim
drepsóttum sem hefðu komið upp á
eynni.
í einum síðasta faraldrinum
hafa 113 beðið bana, þar af 81
barn, 400 hafa tekið veikina.
Castro sagði þetta í tveggja og
hálfs tíma ræðu á afmæli upphafs
byltingarinnar á Kúbu 1953. í
Washington sagði talsmaður
bandaríska utanríkisráðuneytisins
að ráðuneytið vildi ekkert um
málið segja fyrr en ræðan hefði
verið rannsökuð.
Forsetinn veittist einnig að út-
lagasamtökunum Alpha 66 í Mi-
ami, sem viðurkenna að hafa sent
víkingasveitir til Kúbu í því skyni
að koma honum fyrir kattarnef og
vinna skemmdarverk á verzlunum
og fyrirtækjum.
Vilja skýringu
á flugslysinu
Lundon. 27. júlí. AP.
BRETAR hafa beðið Rússa um
staðfestingu á fréttum um að
brezkur rikisborgari hafi verið í
argentinsku flugvélinni sem fórst i
Sovétrikjunum skammt frá landa-
mærunum að Tyrklandi og íran i
siðustu viku.
Blaðið Sunday Times segir að
flutningaflugvélin hafi verið að
flytja hergögn frá ísrael til íran
þegar hún fórst. Blaðið segir að
Stuart Allan McCafferty, 38 ára
gamall Skoti, hafi verið i flugvél-
inni, sem var skrúfuþota af gerðinni
CL-44 og villtist yfir landamærin 18.
júlí og fórst eftir að sovézkar
orrustuflugvélar höfðu elt hana
uppi*
Talsmaður brezka utanríkisráðu-
neytisins sagði í dag að brezka
sendiráðið í Moskvu hefði spurt
sovézk yfirvöld um McCafferty og
beðið um skýringu á kringumstæð-
um flugslyssins. Blaðið sagði að
McCafferty hefði verið einn af
höfuðpaurum vopnasölunnar, sem
fréttir herma að samið hafi verið
um í London.
Flugvélin var notuð til að flytja
360 lestir af varahlutum í skrið-
dreka og skotfæri sem íranska
flugherinn vantar í stríðinu gegn
írökum að sögn blaðsins. Hergögnin
eru gerð í Bandaríkjunum.
Simamynd AP.
Darayosh Kherka majór úr írans-
her á hlaöamannafundi i Kairó
eftir flótta frá tran á laugardag á
flugvél af gerðinni B-707. Kherka
hefur fengið hæli sem pólitiskur
flóttamaður i Egyptalandi.
Góður ^
félagi
GF-8989H/E
Stereo Portable Radio Cassette
Stereo ferðatæki
frá kr. 1900,-
PAPSS
Auto Program Search System
Mt-Touch
Soft-Touch Operation
[ lfl| DCXBY SYSTEM |
Feröa- og kassettutæki meö 4 útvarpsbylgjum, FM stereó,
stuttbylgju, miöbylgju og langbylgju. 2x5,5 wött RMS. „2-way“
hátalarar, 2 innbyggöir míkrófónar. Óvenjulega góöir upptökueig-
inleikar.
Lengd 510 mm. Hæö 284 mm. Breidd 134 mm.
HLJÓMTÆKJADEILD
LAUGAVEGI 66 SÍMI 25999
Útsölustaöir: Karnabær Laugavegi 66 —
Karnabær Glæsibæ — Fataval Keflavik —
Portiö Akranesi — Patróna Patreksfiröi —
Epliö isafiröi — Álfhóll Sigluflröi — Cesar
Akureyri — Radíóver Húsavík — Hornabær
Hornafiröi — M.M. hf. Selfossi — Eyjabær
Vestmannaeyjum.