Morgunblaðið - 28.07.1981, Page 35

Morgunblaðið - 28.07.1981, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ1981 35 Minning - Sveinn Kristinn Jónsson • • - frá Innri- Veörará í Onundarfirði Fæddur 21. desember 1900. Dáinn 21. júlí 1981. Sveinn Kristinn Jónsson fædd- ist í Tungu í Önundarfirði, en þar bjuggu þá foreldrar hans, þau hjónin Hinrika Halldórsdóttir, f. 12.9. 1870, d. 26.8. 1943, og Jón Sveinsson, f. 14.11. 1866, d. 6.11. 1933. Sðiar búa þau um tima á Kirkjubóli í Korpudal. Mestallan búskap sinn búa þau á Innri- Veðrará, sem var eignarjörð þeirra og þar lá þeirra lífsstarf. Þau hjón voru bæði dugnaðarfork- ar og bættu jörð sína mikið í ræktun og húsakosti. Jón stundaði sjómennsku með búskapnum þeg- ar færi gafst. Hann var rammur að afli og þótti varla einhamur til vinnu og vinnuharður. Börnin lærðu því snemma að taka til hendi. Var Jón jafnan talinn í góðum efnum. Þegar Jón lést tóku þau við búskapnum, börn hans Magnús og Sigríður, og síðar með Magnúsi Gróa Þórðardóttir frá Breiðadal eftir að þau giftust. Þau eru fyrir áratugum flutt til Flateyrar, en hafa nytjað jörðina og dvalið meira og minna á Innri-Veðrará að sumrinu. En því minnist ég á þetta hér, að á orði er haft hve frábærlega skemmtilega þau Gróa og Magnús hafa haldið öllu í horfinu. Gamli bærinn og hjallur- inn við hann standa óbreyttir síðan ég var barn, og skarta stássklæðumm úti og inni. Tún- garðurinn, sem hlaðinn er úr grjóti, ver túnið á tvo vegu, og hefur verið svo viðhaldið, að hann þjónar sama hlutverki og í upp- hafi. Er hann góður vitnisburður um gamalt handverk, og sýnir með hvaða hætti menn vörðu tún sín áður en almennt var farið að nota girðingarefni. Væru þau vel að því komin, Magnús og Gróa, að sveitungar þeirra eða aðrir heið- ruðu þau fyrir varðveislu þessara minja. Ég ólst upp á Ytri-Veðrará hjá foreldrum mínum, en alfarið þar hjá afa mínum og ömmu eftir að foreldrar mínir létust. Báðir Veðr- arárbæirnir standa hátt, og er útsýni mikið um allan Önundar- fjörð og til hafsins. Svo stutt var milli bæjanna að glöggt mátti sjá mannaferðir þegar gengið var um hlað, en túnin lágu saman. Minn- ist ég alla tíð sérlega góðs sam- komulags milli heimilanna. Ef verkfæri eða annað, sem á þurfti að halda í bili, vantaði á öðrum bænum, var enginn hlutur sjálf- sagðari heldur en að það væri lánað og notað eins og þurfti. Þau Innri-Veðrarárhjónin áttu fjögur börn, eina dóttur, Sigríði, sem var elst. Sveinn sá, sem ég vil minnast hér, var elstur bræðr- anna, næstur var Guðbjartur, sem er löngu látinn. Magnús, hinn yngsti, er nú einn á lífi af þeim systkinum. Um fermingaraldur er Sveinn kominn til sjóróðra með föður sínum að Kálfeyri, sem þá var verstöð utarlega í Önundarfirði. Siðan ræðst hann háseti hjá þeim mikla sjómanni Finni heitnum Guðmundssyni frá Görðum, og hefur hann efalaust margt af honum lært. Rúmlega tvítugur ræðst hann sem formaður á vélbátinn Ölduna, sem var eign Hinna sameinuðu verslana, en framkvæmdastjóri var Kristján Ásgeirsson á Flat- eyri. Árið 1927 kaupir Sveinn í félagi við Ragnar Jakobsson vélbátinn „Geysi". Hélst samvinna þeirra til ársins 1940, og á því tímabili eignuðust þeir fjóra báta: „Geysi", „Smyril", „Reyni“ og „Einar Þveræing". Sveinn var skipstjór- inn, en Ragnar framkvæmdastjór- inn í landi. Var gert út á margs- konar veiðar, línu að vetrinum, kúfisk að vorinu, síldveiði með reknetum á sumrin, og handfæri. Þegar bátarnir stækkuðu tók Sveinn hið minna fiskimannapróf á Þingeyri 1934. Sveinn var afla- sæll og heppinn formaður, hlekkt- ist aldrei á og missti aidrei línu. Þótti séður og hirðusamur skip- stjóri. Var aldrei talað um tap á þeirri útgerð á þessum annars erfiðu árum. Voru þeir Ragnar og Sveinn einkar samhentir og sam- starf þeirra alltaf gott. Árið 1940 geri ég, sem þetta rita, út mótorbátinn „Vestra", og er þá við flutning á fiski frá Súgandafirði til ísafjarðar fyrir breska matvælaráðuneytið. Þá er það, sem Sveinn ræðst til mín, og er hann ýmist stýrimaður eða skipstjóri á „Vestra". Þannig stóð á þessum flutning- um, að öll striðsárin sendi mat- vælaráðuneytið breska fiskflutn- ingaskip til ísafjarðar til þess að kaupa fisk þar. Var losað úr bátnum yfir í flutningaskipið þeg- ar komið var að landi með aflann. Hlutverk okkar á Vestra var að taka á móti fiskinum úr bátunum á Súgandafirði á kvöldin þegar þeir komu að, ísa hann og losa yfir í flutningaskipið á ísafirði næsta morgun. Reyndist Sveinn mér traustur stjórnandi og félagi þessi ár. Þetta voru oft erfiðar og slarksamar ferðir í næturmyrkri og slæmum veðrum að vetrinum. Stóðu þessir flutningar þar til striðinu lauk 1944. Sveinn snýr þá til heimilis síns á Flateyri, og hóf þá starf sem verkstjóri við frystihúsið á staðn- um, en þá er Ragnar Jakobsson þar framkvæmdastjóri. Sveinn starfar sem verkstjóri áfram eftir að Einar Sigurðsson eignaðist frystihúsið. Fór orð af Sveini sem verkstjóra, oft við erfiðar aðstæð- ur. Árið 1960 lét hann af störfum, og flyst með fjölskyldu sína til Reykjavíkur. Fljótlega eftir að Sveinn flytur hingað suður er hann orðinn starfsmaður minn á ný, og þá sem vélstjóri á m/s „Baldri", og síðan á m/s „Suðra". Starfar Sveinn hjá mér óslitið til ársins 1974, að hann fer í land vegna heilsubrests, þá orðinn 74 ára gamall. Sveini á ég mikið að þakka, en eins og áður getur þekkti ég hann frá því ég var barn að aldri. Reyndist Sveinn mér sérlega traustur starfsmaður og góður vinur. Hann var einstaklega til- lögugóður og útsjónarsamur. Sjó- mennska var honum í blóð borin. Oft fannst mér í erfiðum flutning- um kringum landið í vondum veðrum, að Sveinn kynni ráð við öllu. Hann kunni þá list þegar vanda bar að höndum, að setja fram tillögur sínar á svo einfaldan og látlausan hátt, að hljómaði aldrei sem skipun. Maður hlaut að fara að ráðum hans, og komst líka fljótlega að því, að ráðleggingum hans var óhætt að treysta. Sveinn Jónsson kvæntist árið 1931 Þóreyju Guðmundsdóttur frá Súgandafirði, en hún var fædd á Arnarstapa í Tálknafirði, og lifir hún mann sinn. Fyrsta búskaparár þeirra hjóna byggir Sveinn stórt íbúðarhús á Flateyri fyrir þau, og bjuggu þau þar uns þau flytja tií Reykjavíkur. Þau Sveinn og Þórey eignuðust þrjú mannvænleg börn. Þau eru: Jóna, f. 1932, kennari og formaður Öryrkjabandalags Islands, gift Sigurði Jóelssyni, kennara, og eru þau búsett í Kópavogi. Jón, f. 1940, skrifstofustjóri, kvæntur Elín- borgu Jónu Pálmadóttur, búsett í Garðabæ. Unnur, f. 1946, gift Guðmundi R. Ingasyni, fram- kvæmdastjóra, og búa þau í Hafn- arfirði. Barnabörnin eru ellefu. Vinur er kvaddur. Frá mér fylgja þakkir fyrir langa og góða samveru, sem aldrei bar skugga á. Ég bið honum guðs blessunar. Jón H. Franklin Nýr sendiherra Þýzkalands til starfa í ágúst NÝR sendiherra Þýzkalands kemur til landsins um miðjan næsta mánuð. Heitir hann dr. Jörg R. Krieg og kemur í stað Raimund Hergt, sem lét aí embætti íyrir aldurs sakir hinn 1. júní sl. Dr. Jörg R. Krieg var skipaður sendiherra Þýzka- lands á íslandi fyrir nokkrum mánuðum. Hann kemur frá Zagreb í Júgóslavíu þar sem hann hefur verið aðalræðis- maður frá því 1976. Hann hefur áður starfað í Mílanó, Madrid, Vín og Genúa. AKiI.ÝSINtiASÍMINN KR: 22480 kjíJ JUorjjunblatiib AÐ GEFNU viljum við upplýsa viðskiptavini okkar um þá staðreynd, að þar sem framleiðendur LUXOR sjónvarpstækja, keppa ætíð að því besta, hafa þeir hætt við Philipskerfið \/2000 í gerð myndsegulbandstækja og tekið TIIEFNI IU1Ö9V upp hið frábæra VHS kerfi sem viðurkenndir framleiðendur nota. LAUGAVEGI 66 SÍMI 25999 Útsölustaöir: Karnabær Laugavegi 66 — Karnabær Glæsibæ — Fataval Keflavík — Portiö Akranesi — Patróna Patreksfirði — Epliö ísafiröi — Álfhóll Siglufiröi — Cesar Akureyri — Bókav. Þ.S. Húsavík — Hornabær Hornafiröi — M.M. h/f. Selfossi — Eyjabær Vestmannaeyjum. harfaÖ _ snvm 3* Meiré 'St Fyrir rúmu ári völdum við úr 4 gerðum af gos- p, drykkjavélum á evrópumarkaði. SODA-MAT ^ varð fyrir valinu, þvl hún reyndist auðveldust _ I notkun. Ekkert mas með flöskur eða aðra kostnaðarsama aukahluti, þvi okkar reynsla ( sýndi, að gosið hélst ekki I sllkum flöskum. Þú framleiöir gosdrykkinn beint í glasið á svipstundu. Mikið úrval af gosdrykkja-kjörnum Eins árs ábyrgð á tækjum. _ Fyllum jafnóðum á kolsýruhylkin. CJn^) o JRSerVa^fooo. Meira en 1 árs reynsla á íslandi ■Ílllálll Armúla 21, simi 82888

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.