Morgunblaðið - 25.08.1981, Side 3

Morgunblaðið - 25.08.1981, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1981 3 Þröstur Þúrhallsson. skólaskákmeistari Reykjavikur, og Tómas Björnsson. skólaskákmeistari íslands, munu tefla fyrstu skákina á útitaflinu á Torfunni. Þeir hafa tekið mjö« virkan þátt í starfsemi Taflfélags Reykjavíkur ok hafa báðir teflt á mótum erlendis. Útitaflið á Torfunni vígt Taflmót haldin þar á næstunni ÚTITAFLIÐ á Torfunni verður vÍKt um næstu mánaðamót ok fer vÍKsIuathöfnin fram helgina 29.—30. ágúst. Vcrður annar hvor daKurinn valinn eftir veð- urhorfum föstudatíinn 28. ág- úst. Borgarstjóri, Egill Skúli Ingi- bergsson, mun flytja ávarp og formaður Taflfélags Reykjavík- ur, Friðþjófur M. Karlsson, mun einnig halda ræðu. Að ávörpum loknum munu tveir ungir skákmenn úr Reykja- vík tefla vígsluskák. Tómas Björnsson, skólaskákmeistari Is- lands, og Þröstur Þórhallsson, skólaskákmeistari Reykjavíkur, báðir tólf ára, tefla fyrstu skák- ina. Borgarstjórinn leikur fyrsta leik skákarinnar. Næstu þrjár helgar mun fara fram hverfakeppni í skák á Torfunni. Átta 5 manna sveitir á Stór-Reykjavíkursvæðinu munu heyja útsláttarkeppni í skák. Umhugsunartími á hvern kepp- anda verður 20 mínútur á hverja skák. Helgina 5.-6. september mun fara fram sveitakeppni milli unglinga utan af landsbyggðinni og unglinga í Reykjavík. Þá verður einnig tefld önnur umferð hverfakeppninnar, milli þeirra fjögurra sveita sem verða hlut- skarpastar á vígsludaginn. Helgina 12,—13. september verða úrslit í hverfakeppninni og einnig munu tveir eldri skák- meistarar tefla 4 skákir. Cargolux flaug með vörur en ekki hergögn - segir Einar ólafsson, forstjóri Cargolux BANDARÍSKA fréttastöðin ABC hélt þvi fram i siðustu viku að Ísraelsmenn hefðu selt írönum vopn og var látið að þvi liggja, að Cargolux hefði siðan flutt um- rædd vopn til íran og var vitnað tii ákveðins flugs Cargolux til íran i október sl. Morgunblaðið bar þessi ummæli undir Einar Ólafsson, forstjóra Cargolux, sem sagði, að talsvert fjaðrafok hefði orðið út af þessum fréttum þar sem reynt væri að bendla Cargo- lux við þessi vopnamál. Sagði Einar, að það eina sem væri rétt varðandi Cargolux í sambandi við flug til íran, væri það, að félagið hefði flogið þangað eina ferð í október sl. með vörur frá Frakklandi, aðallega dekk og Jaguarmótora, sem flokkaðist ekki undir hergögn og sagði Einar, að Cargolux hefði haft fullt leyfi franskra stjórnvalda til þessara flutninga, með leyfi til flugs yfir Júgóslavíu, Ítalíu, Grikkland og Tyrkland. Það hefði því verið um venjulega vöruflutninga að ræða hjá Cargolux, enda varningurinn skilgreindur á farmskjölum. Strokufanginn úr Vestre-fangelsinu: Var með 18 grömm af kannabisefni ÁTJÁN grömm af kannabisefni fundust í fórum Sigurðar Þórs Sigurðssonar, strokufangans úr Vestre-fangelsinu í Kaupmanna- höfn, sem gaf sig fram við sendiráðið í London fyrir nokkru. Sigurður kom siðan til landsins á fimmtudagskvöld, af fúsum og frjálsum vilja, og biðu hans þá óeinkennisklæddir lög- rcglumcnn og fluttu hann i Hegn- ingarhúsið við Skólavörðustig. Sigurður á eftir að afplána tæp- lega 400 daga í fangelsi hér á landi vegna afbrota sinna, sam- kvæmt upplýsingum sem Morg- unblaðið fékk hjá Þorsteini Jónssyni i dómsmálaráðuneytinu og hjá fíkniefnadómstólnum i Reykjavik. í Morgunblaðinu 14. september 1979 var skýrt frá flótta Sigurðar úr Vestre-fangelsinu. Sigurður komst undan með þeim hætti að hann sagaði sundur rimla í glugga fangaklefans, en klefinn var á fjórðu hæð. Síðan seig Sigurður niður í fangelsisgarðinn í lökum sem hann hafði hnýtt saman. Loks komst hann yfir fangelsismúrinn, sem er tveir og hálfur metri á hæð, með því að fikra sig eftir símalínum sem lágu yfir vegginn. Eftir að Sigurður komst undan, hefur hann m.a. dvalið í Dan- mörku, í Englandi en þó lengst af í Mið-Ameríku, en ekki Mið- Afríku, eins og misritaðist í Morg- unblaðinu á sunnudaginn. Verulegir rekstrarörðugleikar hjá Jökli hf. á Raufarhöfn: Birgðasöfnun nemur um 9 millj. króna Áhöfn Rauðanúps íhugar að kyrrsetja togarann „ÞAÐ ER mikill urgur á meðal áhafnarinnar á Rauðanúp þessa dagana og hefur reyndar verið um tíma. vegna þess að erfiðlega gengur að fá hlutinn greiddan. Nú eiga nokkrir menn inni á þriðja túr. og þó að reynt sé að gera gott úr öllu saman, gengur það ekki til lengdar. Verði þessu ekki kippt í lag fyrir sunnudag. en þá á togarinn að fara á veiðar. tel ég alveg víst að áhöfnin kyrrsetji skipið þar til þessi mál hafa verið leiðrétt, en cins og er er togarinn i höfn til að liggja af sér skrapdaga." sagði Kristinn Guðmundsson. trúnaðarmaður áhafnarinnar á Rauðanúpi. er Morgunblaðið innti hann eftir því hvernig gengi að fá hlutinn greiddan. „Það hefur valdið okkur umtals- verðum vandræðum að undan- förnu, hve verðlag á Evrópumörk- uðum er lágt og hve mikil birgða- söfnun hefur fylgt í kjölfar þess. Við erum nú með um 22.000 kassa af freðfiski, í kringum 90 lestir af saltfiski og 80 lestir af skreið og munu verðmæti þessara birgða nema um 9 milljónum króna. Hingað til höfum við eingöngu selt til Evrópu, en vegna lágs verðs þar erum við nú farnir að framleiða í pakkningar á Bandaríkjamarkað, í trausti þess að við getum selt afurðir okkar þangað," sagði Ólaf- ur H. Kjartansson, framkvæmda- stjóri Jökuls hf. á Raufarhöfn, er hann var inntur eftir stöðunni hjá fiskvinnslunni þar. „Þetta er með mestu birgðum sem við höfum verið með og stafar þetta nær eingöngu af því að við treystum okkur ekki lengur til þess að selja á því verði, sem nú gildir í Evrópu vegna núverandi gengis pundsins. Alþjóð er það kunnugt að fjárhagsstaða okkar er mjög erfið og það er alveg ljóst að við stöndum svona birgðasöfn- un alls ekki af okkur. Þess vegna höfum við nú, þrátt fyrir að seljandi okkar, íslenzka útflutn- ingsmiðstöðin, hafi ekki útflutn- ingsleyfi á Bandaríkjamarkað, hafið framleiðslu á Bandaríkja- markað í trausti þess að útflutn- ingsleyfi fáist eða að við fáum annan seljanda. Gengisþróunin hefur útilokað viðskipti við Evr- ópu, dollarinn héfur hækkað um 22% frá áramótum, á sama tíma og pundið hefur lækkað um 10% þannig að mismunurinn er orðinn 32%. Síðan eru afurðalánin í dollurum og þarf að greiða þau í samræmi við það, sem er útilokað, ef selja á afurðirnar fyrir pund. Annars er Evrópumarkaðurinn að lagast aðeins, eða um 7%, vegna gengisbreytinga og verð hefur hækkað lítillega, en að mínu mati er það hvergi nærri nóg. Efna- hagsbandalagið hækkaði viðmið- unarverð á freðfiski fyrir nokkr- um vikum um nær 30%, en dró hana síðan til baka fyrir þtjsting Norðmanna og sennilega Islend- inga, sem ég tel hafa verið ákaf- lega misráðið. Því er staðan hjá okkur sú, að við erum ekki bjartsýnir á að birgðasöfnun okkar leysist á næst- unni vegna lágs verðs í Evrópu. Því verðum við að vonast til að komast inn á Bandaríkjamarkað- inn og að verð á Evrópumarkaðin- um hækki. Þó svo að við losnum við eitthvað af birgðunum nú mun fjármagn ekki skila sér fyrr en eftir nokkurn tíma og enn eru fyrirsjáanlegir talsverðir erfið- leikar," sagði Ólafur. Námsgagnaútgáfan úr skorðum vegna féleysis „ENN EINU sinni bcndir allt til þess, að Námsgagnastofnun tak- ist ekki að koma út öllum þeim námsgögnum, sem ráð var fyrir gert, áður en skólar hefjast i haust.“ Þannig hefst frétt í Fé- lagsblaði Kennarasambands ís- lands. þar sem birt er viðtal við Ásgeir Guðmundsson náms- gagnastjóra. „Eins og fyrr er MAÐUR fórst á laugardags- kvöldið þegar bifreið sem hann ók féll ofan i gljúfur árinnar Nýtt búvöruverð: Ákvörðun eftir mán- aðamótin? NÝTT verð á landbúnaðarafurð- um mun varla liggja fyrir fyrr en eftir næstu mánaðamót, að því er Gunnar Guðbjartsson formaður Stéttarsambands bænda sagði í samtali við Morgunblaðið í gær. Kvað hann útreikninga og kann- anir á nauðsynlegum hækkunum búvara enn vera það skammt á veg komnar, að ólíklegt væri að því yrði lokið fyrir mánaðamót. Scotice bilaður Sæsímastrengurinn Scotice slitnaði í gærkvöldi, og varð þá simasambandslaust við Bretlands- eyjar, Mið-Austurlönd og fleiri jönd, sem enn eru aðeins tengd Islandi um sæstreng, en ekki um jarðstöðina Skyggni. Samkvæmt upplýsingum er Morgunblaðið fékk í gærkvöldi, var vonast til að strengurinn kæmist í lag í nótt, og bilunin því ekki talin mjög alvarlegs eðlis. fyrst og fremst fjárskorti um að kenna og hefur Hagsýslustofnun tilkynnt stofnuninni, að ekki verði um frekari fjárveitingar til hcnnar að ræða á þessu ári en þegar er orðið.“ Af þessum sökum hefur útgáfu- áætlunin fyrir árið 1981 verið endurskoðuð með það fyrir augum að koma nauðsynlegustu náms- Ilellá á Fellsströnd i Dalasýslu. Talið er að maðurinn hafi látist samstundis. Samkvæmt upplýsingum sýslu- mannsins í Búðardal, er álitið að slysið hafi orðið með þeim hætti, að maðurinn hafi misst stjórn á bifreiðinni við beygju á veginum, en þar er jafnframt blindhæð, og brúin yfir ána er þar skammt undan. Ekki mun vera merki við veginn, þar sem varað er við þessu. Maðurinn sem fórst hét Einar Júliusson og var hann frá Akranesi. Einar heitinn lagði af stað frá Akranesi um klukkan 4 á laugardaginn, en þegar hann kom ekki fram á eðlilegum tíma, var farið að svipast um eftir honum. Einskis varð vart fyrr en á sunnudag, en þá fannst bíllinn í árgljúfrinu, eins og áður gat. Á FUNDI byggðasjóðs síðastlið- inn föstudag var samþykkt að veita fyrirtækinu Búlandstindi á Djúpavogi lán að upphað tæpar tvær milljónir króna til kaupa á fa'reyska togaranum „Froy“, en það mun nema um 20% af kaup- verði hans. Er hér um undantekningu frá lánareglum byggðasjóðs að ræða gögnum til skólanna í tæka tíð áður en kennsla hefst. „Við vinn- um að því núna að raða verkefnum þannig, að komist verði hjá alvar- legum vandræðum," segir Ásgeir Guðmundsson í viðtali við blaðið. í lok mánaðarins verður væntan- lega tilbúinn listi yfir þær náms- bækur, sem reynt verður að koma út á tímabilinu september til janúar. Eftir að ljóst var hversu miklu fé gert var ráð fyrir á fjárlögum 1981 að verja skyldi til Náms- gagnastofnunar, var farið fram á aukafjárveitingu. Beðið var um 2.480.354 krónur til útgáfu náms- gagna. Þessi beiðni var sett fram í marz. Svar barst frá Hagsýslu- stofnun 1. júní og upphæðin 500 þúsund með yfirlýsingu um að ekkert frekara fjármagn fengist í ár. Hinn 16. júní sendi Náms- gagnastofnun menntamálaráð- herra bréf, þar sem farið var fram á 1.382.649 krónur. Svar við því bréfi hefur ekki borizt. Hins vegar hafa farið fram viðræður milli menntamálaráðuneytisins og fjár- málaráðuneytisins um fjárhag Námsgagnastofnunar. I viðtalinu við Ásgeir Guð- mundsson segir hann í lokin: „Ég geri ekki ráð fyrir því, að þar sé aðeins verið að ræða lausn á þessum aðkallandi fjárhagsvanda, heldur um lausn til frambúðar." um að lána ekki til kaupa á erlendum skipum, en stafar hún af því ófremdarástandi, sem ríkt hefur í atvinnulífi á Djúpavogi og erfiðleikum sem stafað hafa af því að ekkert stórt skip hefur verið á staðnum. Með þessari lánveitingu má því telja víst að af þessum skipakaupum verði þar sem áður hafði fengizt ríkisábyrgð fyrir 80% af kaupverði skipsins. Bifreið féll í árgljúfur: Ökumaður lést samstundis Djúpivogur: Því nær öruggt að af togarakaupum verður

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.