Morgunblaðið - 25.08.1981, Page 11

Morgunblaðið - 25.08.1981, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1981 11 Aðal8töðvar Sameinuöu þjóðanna i Libanon i Naqoura i Suður-Líban- on. Neðst til vinstri á myndinni má sjá bækistöðvar bila- og flutningadeildar. Stóru húsin þar fyrir ofan á myndinni eru skrifstofubyggingar. fallegt land“ Hér stendur Trausti fyrir utan eina rútuna sem hann sótti til Ismalia i Egyptalandi og ók til Naqoura i Libanon. að fólk rumskaði ekki einu sinni á meðan þeir létu greipar sópa. Við lentum einu sinni í þessu, því þegar við vöknuðum um morguninn vorum við ákaflega þung fyrir höfði, en innbrots- mennirnir höfðu lítið komist með á brott vegna þess að við bjugg- um á annarri hæð í blokk. Þetta er orðið alvarlegt vanda- mál þarna fyrir útlendinga sér- staklega og til að bæta gráu ofan á svart þá gerir eða getur lögregl- an lítið gert í þessu. Það sem bjargar okkur nú er að við höfum þýskan scháeffer-hund fyrir utan hús okkar þannig að það verður að ganga frá honum fyrst, þvi hann er sérstaklega þjálfaður sem varðhundur." „Engin kynþátta- vandamál meðal starfsfólks“ Trausti sagði að hjá SÞ væru starfandi menn úr öllum heims- hlutum og af öilum kynþáttum og hefðu þar af leiðandi mismun- andi lífsviðhorf og venjur. „Sem dæmi um mismunandi lífshætti get ég nefnt," sagði Trausti, „að Ghana-menn grilla ketti og snæða. Indónesar borða apaheila, hunda, engisprettur og slöngur með góðri lyst. Eitt sinn er ég var að ræða þessi mál við nokkra vini mína þarna sagðist einn þeirra hafa heyrt það að einhversstaðar í veröldinni ætu menn hesta!! Var hann ekki lítið hissa á þessu framferði. En eins og ég hef áður lýst þá er samkomulag manna á milli þarna mjög gott hvort sem þeir leggja sér til munns svín, kjúklinga, slöngur eða apaheila og kynþáttavandamál er ekki fyrir hendi meðal starfsmanna. Hvað varðar frídaga þá er það einfaldlega leyst með því að tekin eru frí á þeim dögum sem tíðkast í því landi sem dvalið er hverju sinni. En þó eru frídagar hverrar þjóðar virtir og fáum við t.d. frí 17. júní.“ Mikið ferðast í fríum Guðbjörg sagði að starfsmenn SÞ í Israel og Líbanon gerðu mikið af því að ferðast enda væri stutt á mjög marga sögufræga staði bæði úr Biblíunni og úr mannkynssögunni. „Það er alveg óskaplega gaman að ferðast þarna, margir staðir og stutt að fara til margra staða s.s. Golg- ata, Dauðahafsins og margra fleiri." Að lokum sögðu þau Trausti og Guðbjörg að það væri synd hvernig Líbanon væri farið. Þetta land hefði verið paradis á jörðu og Beirút höfuðborg Líbanons hefði verið miðstöð viðskiptalífs í Miðausturlöndum, en nú væri land þetta rústir einar. - je. Amerískir hermannajakkar fóöraöir og ófóöraöir Stæröir 8—18. Stæröir XS, S, M, L, XL. Sendum í póstkröfu VINNUFATABÚÐIN Laugavegi 76, sími 15425, — Hverfisgötu 26, sími 28550. Fjölbreytt námskeiðahald hefst í september ★ Sérnámskeið fyrir fólk sem ætlar í modelstörf. ★ Sérnámskeið fyrir herra. ★ Sérnámskeið fyrir konur á hesta aldri. Fjallað er um framkomu, kurteisi og siðvenjur, andlits- og handsnyrtingu, hárgreiðslu, líkamsrækt, göngulag, fataval, mataræði og ræðumennsku. Sérfrœðingar á hverju sviði annast leiðbeiningar og ráðgjöf. llilmar Jónsson, ritstjóri Gestgjafans, annast sýni- kennslu i tilbúningi og framreiðslu samkvæmis- rétta. Snyrtiþjónusta og sólarium. Sól alla daga, öll kvöld. Innritun og upplýsingarí síma 15118, kl. 2—6 daglega. Módelsamtökin Skólavöröustíg 14 Unnur Arngrímsdóttir. Heimasími 36141.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.