Morgunblaðið - 25.08.1981, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1981
13
Maraþon
í París
Ekki alls fyrir löngu tóku þúsundir manna þátt í
Maraþonhlaupi sem fram fór í hjarta Parísar. Hinir
42,195 km voru bæði hlaupnir, hjólaðir og gengnir.
Áberandi var hvað margir fatlaðir í hjólastólum tóku
þátt í þessum „leik“. Eins og sjá má á myndunum fengu
leikmenn ekki mjög gott veður, það rigndi.
Texti og myndir: Anna Nissel
Jón I. Bjarnason:
Hallgrímsvarða
Vel af steinum veðurborðu
væri ég tenndur minu landi,
ef mér hlæði einhver vorðu
uppá miðjum SprenKÍsandi.
H.J.
P'yrir nokkuð löngu kom sú
hugmynd fram hjá ferðafélögum
Hallgríms Jónassonar, að hlaða
honum vörðu uppi á Sprengisandi.
Vísuna, sem tilfærð er hér að ofan,
mun Hallgrímur hafa ort af því
tilefni.
Hallgrímur er þekktur farar-
stjóri og leiðsögumaður um öræfi
íslands, og um Sprengisand hefur
hann skrifað bók, — árbók Ferða-
félags íslands 1967.
Fáir núlifandi íslendingar
munu eiga fleiri ferðir um óbyggð-
ir og öræfi íslands en Hallgrímur
Jónasson, enda er hann brátt
níræður og er enn að ferðast.
Sprengisandur liggur inn í
miðju landi, umkringdur jöklum
og víðáttum óbyggðanna. Hall-
grímsvarða verður hlaðin þar og
hann veiur sjálfur staðinn.
Það fer vel á því að slíkur
landnámsmaður öræfanna, sem
Hallgrímur Jónasson er, eigi sér
vörðu, þar sem hljóð auðnin blikar
skærast í árdagsglóð vorsins, og
fellir dekkstan skugga í skamm-
degi.
I þessari sérstæðu ferð mun
gefast tækifæri til að líta á
Sveina, á hinni fornu Sprengi-
sandsleið og einnig að ganga á
Fjórðungsöldu, en hún er næst því
allra fjalla á íslandi, að vera í
landsmiðju. Útsýn af Fjórðungs-
öldu er stórbrotin: I nærsýn, alit
um kring, er sandhafið voldugt
sem dökkur útsær. I fjarsýn,
tindrandi jöklar og dimmblá há-
fjöll miðhálendisins. Það er Úti-
vist sem skipuleggur þessa ferð og
gefur allar nánari upplýsingar í
síma 14606. Farseðlar eru seldir á
skrifstofu Útivistar í Lækjargötu
6. Það verður lagt af stað klukkan
átta nk. föstudagskvöld og farið
frá Umferðarmiðstöðinni að vest-
anverðu. Ekið verður í Nýjadal og
gist þar í húsi Ferðafélagsins. Á
laugardaginn verður varðan hlað-
in, en á sunnudag verður haldið
heim og komið um kvöldið í
bæinn.
Vinir og ferðafélagar Hall-
gríms, fyrr og síðar, munu nota
tækifærið og leggja stein í vörð-
una og launa þannig að nokkru,
frábæra frásögn hans og leiðsögn
um öræfi Islands á liðnum áratug-
um.
Rætt við Breta
um Rockall-svæöið
í GÆK var í Genf haldinn fundur
fulltrúa Oreta og íslendinga um
Rockall-málið og sagði Hans G.
Andersen, formaður islenzku
sendinefndarinnar, i samtali við
Morgunhlaðið. að fundurinn
hefði ha*ði verið nytsamlegur og
ána'gjulegur.
Sagðist Hans því miður ekki
geta sagt meira um fundinn á
þessu stigi málsins þar sem hann
væri nú að senda utanríkisráðu-
neytinu skýrslu um það, sem þar
hefði komið fram.
Enn hefur ekki verið ákveðið
hvenær næsti fundur Breta og
Islendinga um málið verður, en í
þessari viku verður rætt við Dani
og Færeyinga um sama mál.
þúert
á beinni
linu til Reykjavíkur
einu sinni i viku
Með aukinni strandferðaþjónustu býður Eimskip þér beint samband við Reykjavík, Akureyri og
Isafjörð einu sinni i viku. Hálfsmánaðarlega er einnig siglt á Siglufjörð og Húsavík og þannig
haldið upþi tíðum og öruggum strandferðum.
Við flytjum fyrir þig jafnt stóra vöru sem smáa í gámum eða frystigámum sé þess óskað. Eimskip
annast að sjálfsögðu flutning alla leið á áfangastaö ef þaö þykir henta, bæöi hérlendis og erlendis.
Reykjavík Akureyri
Húsavík
Aöalskrifstofa Pósthússtræti 2
Sími 27100 - telex 2022
Innanhússímar 230 og 289
ísafjörður
Tryggvi Tryggvason
Aöalstræti 24
Eimskip Kaupvangsstræti
Sími 96-24131 - telex 2279
Siglufjörður
Þormóður Eyjólfsson hf.
Slmi 96-71129
Kaupfélag Þingeyinga
Simi 96-41444
Sími 94-3126
Alla mánudaga frá Reykjavík
Á Akureyri alla miðvikudaga
*