Morgunblaðið - 25.08.1981, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 25.08.1981, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1981 17 Vinnuslysin, unga fólkið og fræðslukerfið að vera að koma með fisk í land, sem ekki er hægt að vinna fyrr en mörgum dögum seinna, af slíkum ástæðum, og þá skemmist þessi afli eða ef allur flotinn er að veiðum, en fjölmörg fiskvinnslu- fyrirtæki lokuð eða hálflokuð vegna sumarleyfa. Markaðsmál: Það er ekki nægilegt að veiða fiskinn og vinna hann heldur þarf líka að finna honum markaði. Við þurfum að stefna að því að geta unnið allan fisk, sem við veiðum í okkar landhelgi hér á landi, en selja hann ekki öðruvisi úr landi en hann fari beint til markaðs- landa en sé ekki unninn annars staðar og skapi samkeppni við okkar framleiðslu. Við þurfum líka að stefna sem mest að því að geta unnið fiskinn á þann hátt að sem mest fáist fyrir hann, en ekki á þann hátt sem er fljótlegastur og þægilegastur til að forða fisk- inum frá skemmdum. Það verður líka alltaf betra að selja fram- leiðsluna, ef hún er vönduð og góð, en getur orðið verra ef gæðin eru ekki nóg og við háðir lakari mörkuðum að öllu jöfnu. Við sölu á íslenzkum sjávaraf- urðum á erlendum mörkuðum eru það einkum tvö atriði, sem eru mest áberandi. Islenzki fiskurinn er dýrastur og beztur, að áliti þeirra sem selja hann. Ef við athugum fyrst seinna atriðið kemur í ljós, að það hefur mikið til síns máls. íslenzki fisk- urinn er mjög góður frá náttúr- unnar hendi, loftslagið heppilegt til að varðveita fiskinn, sjómenn og starfsfólk i fiskvinnslu og framleiðendur hafa skilning á vöruvöndun. Það er og hlýtur alltaf að verða mikil barátta að halda uppi gæðum framleiðslunn- ar og þar má aldrei slaka á og þá verða líka þær aðstæður að vera fyrir hendi, að hægt sé að halda uppi gæðum vörunnar. Samkeppn- in við nágrannaþjóðir okkar er nógu erfið á mörkuðunum, þó að við slökum ekki á gæðum fram- leiðslunnar. Við erum ekki á réttri leið þegar eitt mesta vandamál okkar á Bandaríkjamarkaði er orðinn úldinn fiskur. íslendingar þurfa alltaf og fá oftast hæsta verðið en samt er allt á hausnum i fiskvinnslunni hér á landi. Afleiðingin verður sú, að ákveðnir markaðir dragast saman eða leggjast niður vegna þess að neytendur eru ekki tilbúnir að borga það verð sem við krefjumst, og við hættum að framleiða og selja á þá markaði. Sú þróun hefur orðið undanfar- ið, að við höfum orðið að treysta á fáa en mjög stóra markaði fyrir okkar afurðir eins og þorskflaka- markaðinn í USA, skreiðarmark- aðinn í Nígeríu og saltfiskmarkað- inn í Portúgal. Einhver af þessum mörkuðum getur lokast eða minnkað verulega af ástæðum, sem við ráðum ekkert við og þá getur orðið erfitt að finna markaði annars staðar, og setur það meiri þrýsting á hina stóru markaðina. Við þurfum að geta verið inná sem flestum mörkuðum þó að við séum ekki mjög stórir á hverjum fyrir sig. Vegna verðbólgunnar hefur fiskvinnslan neyðzt til að reka þessa hörðu og óskynsamlegu verðstefnu og þrátt fyrir þetta háa verð verður ekkert eftir hjá fram- leiðendum vörunnar. Það er alveg útilokað að við getum flutt hina miklu verðbólgu út úr landinu sem er hérna innanlands. Við erum ekki einir í heiminum og megum ekki gleyma samkeppninni frá nágrannaþjóðum okkar, sem styrkja margar sinn sjávarútveg mjög mikiö og gerir það þeim auðveldara um vik á öllum mörk- uðum, að selja sína vöru. Lokaorð: Hér að fram'an hefur verið stiklað á stóru um ýmis atriði í sjávarútvegi. Ég tel, að gott sé fyrir alla sem starfa í sjávarút- vegi og þjóðina alla að hugleiða hvert stefnir í þessum efnum og hvert stefna skuli. Allar tegundir fiskvinnslu hafa dregizt aftur úr undanfarin ár, bæði vegna þess að afkoma hefur ekki leyft uppbygg- ingu og lánafyrirgreiðsla hefur verið léleg, enda þýðir líka lítið að vera að taka lán, ef ekki er hægt að borga þau og þá eru líka fáir tilbúnir að lána. Sú stefna, sem fylgt hefur verið undanfarið, að fiskvinnslan hefur verið svelt, gerir það að verkum að illa ræðst við þann afla sem fæst í dag og ástandið á eftir að versna ef aflinn eykst eins og allt útlit er fyrir í dag. Ég tel, að það sé engum til heilla, hvorki þjóðinni, útgerð- armönnum né sjómönnum að leggja slíkt kapp á uppbyggingu flotans eins og gert er í dag, en vanrækja fiskvinnsluna, heldur þurfi þetta að haldast í hendur. Verkefnin eru alls staðar fyrir hendi til að auka og stækka frystihúsin, stækka og bæta salt- fiskverkunarstöðvar og auka herzlu og vöruvöndun á skreið því að skreið og hertir þorskhausar eru líka mannamatur. Við íslendingar megum ekki gleyma að við höfum lifað á sjávarútvegi undanfarna áratugi og munum gera það áfram og þá þurfum við að byggja upp og starfa miðað við að nýta okkur þá auðlind sem sjórinn er sem bezt, en fljóta ekki sofandi að feigðarósi eins og staðan er í dag. Á hverju ári eru birtar skýrslur um fjölda skráðra slysa frá ýms- um félögum og stofnunum, sem starfa að þessum málaflokki. Úr skýrslum Öryggiseftirlits ríkisins, nú Vinnueftirlits ríkisins, má fá margvíslegar upplýsingar, m.a. um fjölda skráðra vinnuslysa í honum ýmsum greinum atvinnu- lífsins, og hlutflalslega skiptingu þeirra eftir aldursflokkum. Það atriði úr skýrslunni, sem ég ætla sérstaklega að fjalla um í grein þessari er hinn mikli fjöldi vinnuslysa í aldursflokknum 16— 20 ára, en þau eru um 26% allra skráðra vinnuslysa, og hvað hægt sé að gera til að fækka þeim. Ég býst við, að fiestir séu mér sammála um að fátt sé átakan- legra en þegar unglingur, sem er að stíga sín fyrstu spor út í atvinnulífið, lendir í alvarlegu vinnuslysi og lætur lífið eða verð- ur öryrki allt sitt líf af völdum þess. Aldrei verður komið í veg fyrir öll vinnuslys, en ég er sannfærður um að fækka megi þeim stórlega, þegar hafl er í huga að um 80% allra vinnuslysa er talið stafa af yfirsjón i starfi. Það sem fyrst og fremst þarf að gera er að stórauka Ira>ðslu ,um þessi mál. Fyrir nokkrum árum var eitt mesta vandamálið í okkar „um- ferðarmenningu" hin tíðu umferð- arslys barna og unglinga. Með sameiginlegu átaki Umferðarráðs, lögreglu og fræðsluyfirvalda, hvað varðar umferðarfræðslu ungbarna og barna í yngstu bekkjum grunnskóla, hefur tekist að draga stórlega út þessum slysum. Ég sé ekki að annað lögmál ætti að gilda með vinnuslys. Það þarf að byrja á því að kenna nemend- um 8. og 9. bekkjar grunnskólans undirstöðuatriðin í öryggismálum atvinnulífsins, síðan halda því áfram í framhaldsskólunum og úti í atvinnulífinu. Ekki má gleyma þætti sjón- varpsins, en það hefur gert marga góða hluti í sambandi við örygg- ismál, en mætti gera enn betur t.d. með föstum þætti um heilsuvernd og öryggismál á vinnustöðum og í heimahúsum. Nú vilja eflaust margir lesendur spyrja, er þetta ekki kennt í grunnskólum eða framhaldsskól- um? þessu er auðvelt að svara, það á að kenna þetta í öllum verk- námsskólum og iðnskólum, en í framkvæmd fer sáralítið fyrir því. í gegnum allan grunnskólann geta nemendur farið án þess að hafa fengið svo mikið sem eina kennslustund í sambandi við ör- yggismál á vinnustöðum eða hjálp í viðlögum. Ég tel að fræðsluyfirvöld hafi brugðist í þessu máli, það má líkja því við slys í kerfinu þegar það er haft í huga að þúsundir barna og unglinga þyrpast út á vinnumark- aðinn á hverju vori, ýmist til sumarvinnu eða til lengri dvalar. Hvernig skyldi nú sanda á því að þetta er svona? Eflaust eru til margar skýringar. Eina tel ég vera þá að þetta er alíslenskt fyrirbrigði og við samningu námsskrár fyrir grunnskóla hafi ekki verið tekið mið af okkar sérstöðu hvað þetta varðar og lítið sem ekkert um það í námsskrá nágrannaþjóða! I nágrannalöndum okkar þekkj- ast varla vinnuslys í þessum aldursflokki. Þar eru sumarfrí skólanemenda aðeins 3—4 vikur og lítið um að þau fari að vinna á þeim tíma og eftir skólann tekur við herþjálfun. Þannig eru erlend- ir unglingar mun eldri en þeir íslensku þegar þeir hefja störf úti í atvinnulífinu. Þótt engin kennsla um örygg- ismál hafi farið fram í grunnskól- um þá tel ég engu að síður, að gert sé ráð fyrir henni í grunnskólalög- unum, og vitna ég í þau máli mínu til stuðnings. I lögum um grunnskóla segir m.a. í 2. gr.: Hlutverk grunnskól- ans er, í samvinnu við heimilin, að búa nemendur undir líf og starf í lýðræðisþjóðfélagi, sem er í sí- felldri þróun. Starfshættir skól- ans skulu því mótast af umburð- arlyndi, kristilegu siðgæði og lýð- ræðislegu samstarfi. Skólinn skal temja nemendum víðsýni og efla skilning þeirra á mannlegum kjör- um og umhverfi, á íslensku þjóð- félagi, sögu þess og sérkennum og skyldum einstaklingsins við sam- félagið. Grunnskólinn skal leitast við að haga störfum sínum í sem fyllstu samræmi við eðli og þarfir nem- Skólastjórahjónin að Laugum i Þingeyjarsýslu. Sigurður Krist- jánsson og Stefania Jónasdóttir. og fjolskylda voru í gær kvodd af Þingeyingum með fjölmennu sam- sæti að Laugum. Þar voru margar ræður fluttar og þess minnst með virðingu og þökk, að Sigurður hefur starfað við Lauga- skóla í þrjátíu og átta ár, og um þrjátíu ár sem vinsæll og farsæll skólastjóri. Heimili skólastjórahjón- enda og stuðla að alhliða þroska, heilbrigði og menntun hvers og eins. Tilvísun lýkur. í 42. gr. sömu laga segir m.a.: Þar, sem nemendur eru þátttak- endur í atvinnulífinu um tak- markaðan tíma á skólaárinu, skal heimilt að meta það að nokkru til jafns við verklegt nám, sbr. j-lið. Fræðsluráð skal í samráði við launþega- og atvinnurekendasam- tök og hlutaðeigandi skólastjórn skipuleggja atvinnuþátttöku nem- enda, þar sem slíkrar skipulagn- ingar er þörf, og skal metið að nokkru sem verklegt nám. Tilvís- un lýkur. Ég sem þessa grein rita, kenni við iðnskóla. Meðal nemenda minna á sl. vetri voru 25 samn- ingsbundnir nemendur úr hinum ýmsu greinum málmiðnaðarins, allir höfðu þeir hafið störf í sínum iðngreinum. Ég kenndi þeim m.a. öryggismál, ég kannaði hjá þeim hvernig tekið hefði verið á móti þeim er þeir komu í fyrsta skipti til náms á verkstæðunum. Aðeins eitt fyrirtaeki tók þannig við nemanda sínum að til fyrirmynd- ar má telja, nemandinn fékk fylgdarmann, sem kynnti honum verkstæðið, og allt sem laut að öryggismálum þess. Þetta fyrir- tæki stofnsettu Þjóðverjar og virðast þeir vera nokkuð langt á undan okkur í þessum'fnálum. Með lögum frá Alþingi í maí 1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, var stigið stórt spor í þessum málum. Það er von mín að allir þeir aðilar sem um þessi mál eiga að fjalla þ.e. Vinnueftirlit ríkisins, aðilar vinnumarkaðarins og fræðsluyf- irvöld, taki nú höndum saman og vinni markvisst að því að fækka vinnuslysum, minnugir þess að í ár er ár fatlaðra og að öll ár eiga að vera ár slysavarna. Rafn Sigurðsson kennari. anna hefur ávallt verið í alþýðu- skólahúsinu, og þá jafnframt verið annað heimili fjölda æskufólks sem í gær mætti að Laugum sem fulltíða fólk og þakkaði af alhug liðin skólaár og árnaði hjónunum heilla um ókomin ár. Frá skólanum fengu hjónin að gjöf málverk af staðnum, gert af Sigurði Hallmarssyni. — Fréttaritari. Laugar í Reykjadal: Skólastjórahjónin kvödd eftir 38 ára starf

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.