Morgunblaðið - 25.08.1981, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 25.08.1981, Qupperneq 18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1981 Engin filma í nýrri myndavél Tókýó. 21. áKÚst. AP. SONY-FYRIRTÆKIÐ kynnti í daj; nýja myndavél, sem Keymir myndir á scKuldisk i stað venju- lcKrar filmu. Myndavélin lítur út eins ok venjuleRar myndavélar. en vegur um 700 Krömm. Búist er við að myndavélin, sem kölluð hefur verið „Mavica", verði komin á almennan markað eftir 18 til 24 mánuði. Á seguldiskinum rúmast 50 stakar myndir er hægt verður að Lýst eftir bílstjóra sem týndist með £241.000 SCOTLAND Yard heíur nú birt mynd og lýsingu af leiguhílstjóra. sem hvarf á fimmtudag. Svo óheppilega vildi til. að með honum hurfu 241.000 pund. sem farþegi hafði skilið eftir í tösku í hilnum á meðan hann „skrapp inn í eina búð“. Eigandi peninganna, sem stundar viðskipti í London, er frá Nígeríu. Leigubílstjórinn hafði keyrt hann í banka til að sækja peningana. Hann stakk þeim í tösku en gleymdi að taka hana með sér í búðina. Leigubílstjórinn heitir Christopher Butler. Hann er hár og dökkhærður, með gat í öðru eyranu og „tattóveraður" á báða handleggi. Leigubillinn fannst ekki langt frá búðinni á föstudag. Lögreglumaður sagði, að leigubílstjórinn hefði kannski veikst eða honum verið rænt. Vilja banna vopn í geimnum Samcinuóu þjoóunum. 21. ápiúst. AP. SOVÉTMENN haía la*t það til við Kurt Waldheim fram- kvæmdastjóra. að tillögu þeirra um hann við staðsetningu allra vopna út í geimnum verði sett á dagskrá 36. fundar Allsherjar- þingsins. er hefst 15. september næstkomandi. Að sögn sérfræðinga hjá SÞ, eru Rússar greinilega áhyggjufullir út af því forskoti sem Bandaríkja- menn náðu á þá í kapphlaupinu um geiminn með tilkomu geim- skutlunnar. Rússar hafa sakað Bandaríkjamenn um að hafa á prjónunum áform um að flytja ýmiss konar vopnabúnað út í geiminn með geimskutlunni. Til er sáttmáli sem bannar að kjarnorkuvopnum verði komið fyrir úti í geimnum. sýna á sjónvarpsskermi með því að koma diskinum fyrir í sérstöku tæki. Einnig er verið að þróa framköllunartæki, svo hægt verði að framkalla litmyndir á pappír. Hægt verður að taka diskinn hvenær sem er úr vélinni og framkalla af honum og setja hann svo aftur í til áframhaldandi notkunar. Hægt verður að má út af honum og nota hann því aftur og aftur án þess að myndgæðin versni. Fyrst um sinn verður hin nýja myndavél sett á markað í Japan og er gert ráð fyrir að þar verði hún seld á 150.000 jen, eða jafn- virði 646 dollara. Gert er ráð fyrir að hver seguldiskur kosti um 600 jen eða 2,60 dollara og tækið til að spila af disknum á sjónvarps- skermi muni kosta um 50.000 jen, eða 215 dollara. Litill strákur gengur framhjá bifreið i Ijósum logum i Belfast án þess svo mikið sem að líta upp. Barist er i Belfast upp á næstum hvern einasta dag. Þann dag sem myndin var tekin. lést 10. fanginn i Maze-fangeisinu af völdum mótmælasveltis. Enn einn íri í mótmælasvelti ERLENT BclfaKt. 24. áfcÚNt. AP. TÍU FANGAR hafa látist í mót- mælaverkföllum gegn bresku stjórninni í Maze-fangelsinu á Norður-írlandi siðan Bobby Sands hóf mótmælaverkfail 1. marz sl. Bernard Fox, scm er í 12 ára fangelsi fyrir sprenginguna á Greenan Lodge-hótelinu í Belf- ast 1977. gekk til liðs við fimm aðra félaga sina úr írska lýðveld- ishernum. IRA, i dag og hóf mótmælasvelti. Ilann kom i stað Patrick Quinns, sem læknar hafa fengið leyfi til að hjarga frá dauða, en hann missti meðvitund 31. júli, eftir að hafa ekki neytt matar í 46 daga. - Carron vill hitta Thatcher Owen Carron, sem var kjörinn á þing í síðustu viku, sagði í dag, að hann vildi hitta Margaret Thatch- er, forsætisráðherra Bretlands að máli. Hann vildi ræða vandann í Maze-fangelsinu. Carron var kjör- inn í þingsæti Sands. Talsmaður Thatchers sagði, að viðbrögð hennar við ósk Carrons myndu fara eftir hvað hann vildi ræða. „Ef hann ætlar bara að endurtaka kröfurnar fimm, sem fangarnir hafa lagt fram, þá er ólíklegt, að hann fái fund með forsætisráðherranum. Við verðum að bíða og sjá hvað hann vill.“ Fangarnir hafa lagt fram fimm kröfur, sem myndu veita þeim viss réttindi sem pólitískum föngum, en skæruliðar á Norður-írlandi nutu þannig réttinda á árunum 1972-1976. Breska stjórnin segir, að fangar, sem haga sér vel, njóti nú þegar þessara réttinda, en hún muni ekki ræða frekar um lausn deil- unnar, fyrr en mótmælasvelti verði hætt. Anwar Sadat: Lífláta ber Khadafy 99 - ef hann reynist bera ábyrgð á árásinni á bandarisku þotumar i siðustu viku kaíró. Napoli. Trípolí. 21. áKÚst. AP. ANWAR Sadat Egyptalandsfor- seti sagði í dag, að lífláta ba'ri Moammar Khadafy Libýuleið- toga cf i Ijós kæmi, að hann hefði fyrirskipað líhýsku orrustuflug- mönnunum að skjóta á handa- rísku orrustuþoturnar við Libýu- strendur í síðustu viku. er fram fóru æfingar sjötta flota Banda- ríkjanna í Miðjarðarhafi. Banda- rísku flugmennirnir svöruðu árásinni og skutu báðar líhýsku þoturnar niður. „Ég leyfi mér að fordæma Khadafy og tel að hann beri ábyrgð á því sem fyrir kom,“ sagði Sadat. „Ef það var hann sem fyrirskipaði árásina á bandarísku flugvélarnar, á hann skilið að verða líflátinn fyrir þessa brjál- æðislegu ákvörðun," sagði Sadat. Sadat sagði ákvörðun Khadafys brjálæðislega, þar sem hann hefði fyrirskipað þungum og hægfleyg- um sovézksmíðuðum orrustuþot- um af gerðinni SU-22 að ráðast á bandarísku F-14-þoturnar, er væru talsvert hraðfleygari. Sagð- ist hann fyrir nokkrum vikum hafa fyrirskipað flugher Egypta- lands að leggja sínum SU-22- þotum vegna þess að þær væru þungar og svifaseinar. Sadat sagði ennfremur, að so- vézk herskip hefðu tekið sér stöðu rétt fyrir utan 12 mílna landhelgi Egypta. Bandarísku orrustuflugmenn- irnir, sem skutu líbýsku þoturnar niður í síðustu viku, sögðu á blaðamannafundi í Napólí í dag, að þeir hefðu ráðizt á líbýsku þoturnar í sjálfsvörn. „Ég sá að þeir skutu á okkur og þar sem við gátum átt von á frekari árásum, þá var það hið eina sem ég átti um að velja að skjóta sjálfur," sagði Henry Kleeman flugmaður. „Ég gerði mér grein fyrir því um leið, að þetta gæti valdið miklu fjaðrafoki, en ég átti ekki um annað að velja.“ Flugmennirnir sögðust báðir hafa séð er líbýsku flugvélarnar skutu og einbeitti önnur sér að því að granda flugskeytinu, en hin skaut á líbýsku þoturnar. Bandarísku flugmennirnir voru á eftirlitsflugi meðfram æfinga- svæðinu, og á einum og hálfum sólarhring fyrir loftbardagann urðu bandarískar eftirlitsflugvél- ar 39 sinnum varar við ferðir líbýskra flugvéla. Vart varð einnig við ferðir líbýsks kafbáts á æfingasvæðinu meðan æfingarnar stóðu yfir. Aðmírálar í sjötta flotanum og flugmennirnir sögðu á fundinum, að ljóst hefði verið fyrirfram, að hætta hefði verið á árekstrum meðan á æfingunum stóð, því þær hefðu farið fram á svæði sem Líbýumenn hefðu gert tilkall til. Haig, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, sagði í dag í tilefni loftbardagans, að Bandaríkin myndu ekki framar líða Sovétríkj- unum og leppríkjum þeirra, svo sem Líbýu, ólöglegar og órétt- lætanlegar ögranir. Hann sagði allt benda til þess, að líbýsku flugmennirnir hefðu verið í árás- arferð. Khadafy Líbýuleiðtogi kom í dag til Sýrlands á leið sinni um Miðausturlönd, þar sem hann hef- ur m.a. rætt við Arabaleiðtoga um samstöðu um aðgerðir í kjölfar loftbardagans við Líbýustrendur í síðustu viku. E1 Salvador: Tugir manna hálshöggnir San Salvador. 24. ágúst. AP. TALA þeirra. sem látist hafa í pólitískum ofbeldisverkum i E1 Salvador. hækkaði enn í síðustu viku. er lík margra tuga manna, er höfðu verið hálshöggnir, fund- ust. Að sögn yfirvalda, fundust frá fimmtudegi til laugardags á litlu svæði við Santa Ana lík 34 manna er höfðu verið hálshöggnir. Tugir líka, er hlotið höfðu sam- bærilega meðferð, fundust víðs vegar um landið um helgina. Talið er, að aftökusveitir hægri- sinnaðra öfgamanna beri ábyrgð á þessum aftökum, og fullyrða heimildir, að minnst eitt hundrað menn hafi verið dregnir út af heimilum sínum í síðustu viku og hálshöggnir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.