Morgunblaðið - 25.08.1981, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1981
23
f.
• Ásgeir Sigurvinsson lék sinn fyrsta leik með Bayern i deildar-
keppninni um siðustu helgi og stóð sig mjög vel.
'
Eyjamenn fylgja
toppliðunum
ÍBV sigraði KA í 1. deild i Gyjum
á föstudagskvöldið. 1—0 urðu
úrslit þessa fjöruga leiks sem
hauð upp á góða skemmtun og
miirg markta’kifa'ri. KA getur
þvi kvatt drauminn góða um
Kvrópukeppni á næsta ári en
Eyjamenn fvlgja enn fast á eftir
toppliðunum og munu koma
verulega við sögu i lokaátökun-
um sem framundan eru en þeir
eiga eftir leiki við Víking, Val og
Breiðablik.
Eyjamenn voru sterkari aðilinn
í f.h. þegar þeir léku undan sól og
vindi og strax á 5. mín. opnuðu
þeir vörn KA skemmtilega en
Ómari Jóhannssyni mistókst í
góðu færi. 11 mín. síðar fengu
KA-menn gullið tækifæri til að ná
forustunni. Elmar Geirsson óð þá
upp kantinn og gaf vel fyrir
markið, Gunnar Gíslason stökk
yfir boltann sem þá barst til
Ásbjörns Björnssonar. Hann
komst einn að marki ÍBV en Páll
Pálmason kom yel út á móti og
gómaði knöttinn af tánum á Ás-
birni. Laglega gert hjá Páli. Eyja-
menn voru strax komnir aftur í
sókn og á 19. mínútu kom markið
sem, þegar upp var staðið, reynd-
ist vera sigurmark þessa leiks.
Þetta mark kom eftir snjalla
sóknarlotu IBV, Sigurlás Þor-
leifsson sendi boltann yfir til
hægri á Ómar Jóhannsson sem
brunaði inn að marki KA og fast
og nákvæmt skot hans hafnaði í
hliðarnetinu innanverðu, gott
mark, góður undirbúningur. Eyja-
menn voru töluvert aðgangsharð-
ari það sem eftir var hálfleiksins
en þrátt fyrir góð færi tókst þeim
ekki að bæta við marki. Jafnvel
ekki þegar einn varnarmanna KA
gerði sér lítið fyrir og gaf boltann
þvert fyrir eigið mark beint á tvo
ísr 1:0
Eyjamenn sem þar voru fyrir
óvaldaðir með öllu en ágætur
markvörður KA, Aðalsteinn Jó-
hannsson, bjargaði málunum á
elleftu stundu.
Síðari hálfleikurinn byrjaði
heldur betur með tilþrifum og á
fyrsta stundarfjórðungnum komu
fjögur upplögð marktækifæri. Sig-
urlás var á ferðinni fyrstur með
stórkostlegan einleik í gegnum
vörn KA eins og hún lagði sig en
skoti Sigurlásar var naumlega
bjargað á marklínu. Viðar Elías-
son og Kári Þorleifssoii áttu báðir
hörkugóð skot að marki KA en
naumlega framhjá og svo átti
Ásbjörn Björnsson góðan skalla
rétt yfir mark IBV úr mjög góðu
færi. Eftir þessi ósköp jafnaðist
leikurinn nokkuð og KÁ kom meir
inn í leikinn enda höfu þeir á 15.
mín. skipt inn manni i sóknina en
fækkað í vörninni. Þetta varð til
að skerpa sóknarleik iiðsins veru-
lega en aftur á móti opnaðist vörn
þeirra oft á tíðum upp á gátt.
Mikið fjör var í leiknum en þrátt
fyrir góða tilburði og nokkur
upplögð færi tókst liðunum ekki
að skora. Besta tækifæri leiksins
féll Sigurlási Þorleifssyni í skaut
þremur mín. fyrir leikslok. Bræð-
urnir Kári og Sigurlás komust
tveir gegn einum í sókn, Kári lék
að vítateignum, dró varnarmann-
inn til sín og gaf síðan á Sigurlás
sem var fyrir opnu marki en skaut
hátt yfir. Óvanalegt að Sigurlási
bregðist svo bogalistin í opnu færi.
En sem sagt 1—0 sigur ÍBV en
„Ekkert grín að vinna
fast sæti í Bayern-liðinu
- segir Ásgeir Sigurvinsson, sem lék á laugardaginn sinn
fyrsta deildarleik meö Bayern Munchen og stóö sig mjög vel
ÞAÐ TEKUR sinn tíma að komast inn í þýzku knattapyrnuna og ég er
ánægöur með gang mála hingað til, sagði Ásgeir Sigurvinsson er Mbl.
ræddi við hann í MUnchen á sunnudaginn, en daginn áöur hafði Ásgeir
leikið sinn fyrsta leik í „Bundesligunni", 1. deildinni þýzku. Ásgeir var
ánægður með frammistöðu sína í leiknum og Uwe Fibelkorn,
fréttaritari Mbl. í Vestur-Þýzkalandi hælir Ásgeiri mjög fyrir leikinn.
Segir Fibelkorn að Ásgeir hafi byrjaö rólega en sótt sig mjög þegar á
leikinn leið og verið einn bezti maður liösins. Honum var skipt útaf á
67. mínútu. Bayern vann Werder Bremen í MUnchen 3:1 að viöstöddum
45 þúsund áhorfendum.
Mörkin skoruöu Deieter Hoeness (tvö) og Rummenigge.
I leiknum gegn Werder Bremen
tók Ásgeir stöðu Wolfgang Kraus
sem tengiliður hægra megin.
— Ég er alveg óvanur að leika
þessa stöðu en þetta gekk bara vel
hjá mér, sagði Ásgeir. Hann bætti
við að seinna i leiknum hefði hann
skipt um stöðu við Bernd Dúrn-
berger og verið tengiliður vinstra
megin. — Mín gamla staða er
tengiliðastaðan á miðjunni og þar
er Paul Breitner eins og kóngur í
ríki sínu og stjórnar spilinu. Hann
er geysilega góður leikmaður og
enginn ógnar veldi hans á miðj-
unni, segir Ásgeir. Hann sagði
ennfremur að sú staða sem hann
lék á laugardaginn væri mjög
krefjandi, 90% hlaup og 10%
bolti.
ÁHORFENDUR TÓKU
ASGEIRI VEL
Sem fyrr segir var Ásgeiri skipt
útaf á 67. mínútu og var sú
ráðstöfun ekki vel séð hjá áhorf-
endum, að sögn Uwe Fibelkorns,
en þeir tóku Ásgeiri strax mjög
vel.
Eins og menn eflaust muna
meiddist Ásgeir illa í hné í
úrslitaleik belgísku knattspyrn-
unnar sl. vor. — Ég er eiginlega
búinn að ná mér til fulls af
þessum meiðslum, finn bara til ef
ég hitti boltann illa. Ég er í góðri
æfingu en þar sem ég hef aðeins
leikið tvo leiki vantar mig mikil-
vægustu þjálfunina, sem maður
fær í sjálfum leikjunum. En von-
andi kemur þetta allt með fleiri
leikjum, sagði Ásgeir.
Aðspurður sagði Ásgeir að það
væri ekkert grín að vinna sér fast
sæti í jafn góðu liði og Bayern-
liðið er í dag. — Bayern hefur
spilað um 20 leiki í haust, æfinga-
leiki, leiki gegn þekktum liðum í
Æfingamótum og svo deildarleiki
og unnið þá alla. Enda eru leik-
mennirnir hver öðrum betri og
samheldnin ótrúlega góð. Ég bíð
því alveg rólegur eftir mínu tæki-
færi. Ég fékk tækifæri á laugar-
daginn en ég veit ekki hvort ég
verð í liðinu þegar við mætum
Fortuna Dusseldorf á miðvikudag-
inn. Um næstu helgi leikum við í
bikarkeppninni og förum síðan á
æfingamót hjá Real í Madrid. Þar
mun ég örugglega leika, því
Breitner og Rummenigge leika þá
vikuna með þýzka landsliðinu.
GOTT AÐ BÚA
í MUNCHEN
Að sögn Ásgeirs hefur honum
og Ástu Guðmundsdóttur unnustu
hans verið tekið mjög vel í Múnch-
en. Félagið útvegaði þeim nýtt
raðhús og þau eru smám saman að
ná tökum á þýzkunni. Ásgeir sagði
að gott væri að búa í Múnchen,
fólkið væri afar vingjarnlegt en
dýrtíð væri þar óskapleg. Þrátt
fyrir það smellti Ásgeir sér á
nýjan bíl, Porche 930 turbo. Ás-
geir sagði ennfremur að leikmenn"
Bayern héldu miklu meira hópinn
en hann hefði átt von á, þeir færu
út að borða saman með konum og
kærustum og svo hefði liðið farið
saman í tvær veiðiferðir, svo
dæmi væru nefnd. Skipulagning á
öllu hjá sjálfu félaginu væri stór-
kostleg og í því efni væri ekki um
neinn samanburð að ræða við
belgísku knattspyrnuna, þar sem
Ásgeir lék áður.
Þjálfari Bayern er ungverskur,
Pal Csernai, hreint frábær þjálf-
ari að mati Ásgeirs en lítið fyrir
að tala eða blanda geði við leik-
mennina. Eftir leikinn á laugar-
daginn kom Csernai til Ásgeirs,
klappaði honum á öxlina og kink-
aði kolli, það mun vera sú mesta
viðurkenning sem hann lætur í
ljós eftir leiki, svo Ásgeir má vel
við una.
RUMMENIGGE SÁ BEZTI
Að síðustu var Ásgeir spurður
að því hvort eitthvað eitt atriði
hefði komið honum sérstaklega á
óvart hjá hans nýja og heims-
fræga félagi og hann svarar að
bragði. — Það hefur ýmislegt
komið mér á óvart en ekkert eins
og Karl Heinz Rummenigge. Ég
hafði séð hann í sjónvarpi og vitað
að hann væri góður leikmaður. En
ég hafði aldrei ímyndað mér að
hann væri eins rosalega góður og
hann er. Hann hefur hreinlega allt
sem prýða má einn knattspyrnu-
mann, hraða, leikni og skothörku.
Ef hann sleppur laus í vítateign-
um getur ekkert stöðvað hann.
Rummenigge er örugglega lang-
bezti knattspyrnumaður sem ég
hef nokkru sinni séð.
- SS.
• bjálfari Bayern Csernai ásamt Ásgeiri og Bertram Beierlorzer.
tölur eins 4—2 hefðu gefið réttari
mynd af gangi leiksins.
Kári Þorleifsson var besti mað-
ur ÍBV, barðist óhemjuvel, kom
vel aftur og sótti boltann og
skapaði mikinn usla í vörn KA.
Sigurlás Þorleifsson, Gústaf Bald-
vinsson og Þórður Hallgrímsson
áttu allir góðan dag.
AfhraKAsKÓAur dómari þcssa lciks var
(írctar Ntiróíjt»ró.
í stuttu máli: IIclKafcllsvollur 1. dcild.
ÍBV - KA l-ft(l-O).
Mark ÍBV: Ómar Jóhannsson 19. min.
ÁminninKar: Jóhann Jakohsson KA ok
Jóhann GcorKsson ÍBV sáu Kult.
Domari. (írctar NorÓfjdrd.
— hkj.
Lið ÍBV:
Páll Pálmason 6, Ágúst Einarsson 6, Viðar Elíasson 6, Þórður
Ilallgrímsson 7, Valþór Sigþórsson 6, Snorri Rútsson 6, Gústaf
Baldvinsson 7, Jóhann Georgsson 6, Sigurlás borleifsson 7. Kári
borleifsson 8, Omar Jóhannsson 6, Helgi Einarsson (vm.) lék aðeins í 5
min.
Lið KA:
Aðalsteinn Jóhannsson 6, Steinþór bórarinsson 5, Guðjón Guðmunds-
son 7. Haraldur Haraldsson 6. Erlingur Kristjánsson 6. Gunnar
Gíslason 6, Elmar Geirsson 6, Eyiólfur Ágústsson 7, Hinrik
bórhallsson 6. Jóhann Jakobsson 6, Ásbjörn Björnsson 7. Gunnar
Blöndal (vm.) 6.