Morgunblaðið - 25.08.1981, Síða 26
3 4 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1981
Tveir vestur-þýzkir piltar skrifa
og segjast vilja skrifast á við
íslenzkar stúlkur á aldrinum 17 til
20 ára. Þeir geta ekki eigin aldurs:
Frank Riedel,
Amselstrasse 28,
2200 Elmshorn,
W-Germany
og
Steffen Siclaff,
Holzweg 47,
2200 Elmshorn,
W-Germany.
Fimmtán ára sænsk stúlka óskar
eftir pennavinum á aldrinum 14
til 17 ára. Tónlist, ferðalög, bóka-
lestur, bréfaskriftir o.fl. eru meðal
helztu áhugamála hennar:
Annika Söderberg,
Risvágen 12.
S-29034 Fjálkinge,
Sverige.
Norsk 38 ára húsmóðir óskar eftir
bréfaskiptum við íslenzkar konur.
Hún á tvær ættleiddar dætur, 11
og 12 ára stúlkur frá Kóreu:
Lillian Jensen.
Ililton 150 B
N-2040 Klöfta,
Norge.
Tvítug japönsk stúlka hefur áhuga
á tónlist, matreiðslu og að eignast
islenzka pennavini:
Tomoko Konishi.
3—7 Kitamemachi,
Sendai-city 980,
Japan.
Tvítug frönsk ungfrú skrifar á
mjög góðri ensku og segist hafa
hrifizt svo af landi voru við að
horfa á sjónvarpsþætti í heima-
landi sínu nýverið, að hún á enga
ósk heitari en að komast í penna-
samband við jafnaldra sína hér á
landi. Hún býr í litlum bæ í
Normandy og hefur hin margvís-
legustu áhugamál:
Ilélene Lcfebvre,
150 Avenue de Nice,
76230 Bois Guillaume,
France.
Ung dönsk stúlka, sem hefur
áhuga á íþróttum, dansi, tónlist
o.fl., óskar að komast í bréfasam-
band við íslenzkar stúlkur á aldr-
inum 12 til 14 ára.
Susanne Risager,
Kirkevangen 12,
8420 Knebel,
Danmark.
Hvern einasta dag, daprast
sólskin sumarsins við fréttir frá
hinu forna menningarlandi,
Persíu, sem nú kallast Iran.
Nær hvern föstudagsmorgun
og einnig aðra daga eru þar
fjöldamorð framin á vegum
klerka og stjórnenda. Allt á það
að vera í nafni Allah — hins
eina sanna Guðs.
Og þótt ótrúlegt sé, væri
líklega hægt að finna þessum
firnum haturs og grimmdar,
hefnda og djöfulæðis forskrift og
réttlætingu í sjálfri biblíu krist-
inna þjóða.
Sumir kristnir menn, meira að
segja háttskrifaðir guðfræð-
ingar og góðar hugsandi konur,
telja þar allt ritað fingri hins
alvalda Guðs, þrátt fyrir yfirlýs-
ingar Jesú um hið gagnstæða.
Það er of langt mál fyrir þessa
stuttu hugleiðingu um baráttu
gegn hinu illa.
Fyrirsögn þessarar greinar
„Við gluggann" er ein þessara
mótsagna ritninganna og sú,
sem mest virðist dáð af því
veslings, djöfullega gamalmenni,
sem í sínu hatursbrjálæði gerir
þjóð sína, sem gæti verið ham-
ingjusömust í heimi, aumasta
allra og landið sitt auðuga,
fornfræga og fagra að helvíti á
jörðu. Það geta auðvitað allir
brjálast. En hættulegust er sú
brjálun, sem verður hópsefjun.
Þar eru dæmin frá síðustu
heimsstyrjöldum deginum ljós-
ari.
Og hópsefjun, fjöldablinda er
bezt vakin og efld með tilvitnun í
svonefndar helgar ritningar.
Rangtúlkun á þeim og bókstafs-
blinda lesenda er því hættan
mesta á örlagatimum mannkyns.
Þar gætu margir svonefndir
trúmenn átt mikla sök. Einu
sinni var kristin kirkja á svipuð-
um refilstigum og „Islam" nú í
íran.
Og til er fólk meira að segja
bæði greint og gott hér á yztu
norðurslóð, sem telur sig geta
fullyrt samkvæmt biblíunni, sem
er að mörgu leyti, einkum
Gamla-Testamentið, móðir Kór-
ansins, að einungis 144 þúsundir
sálna muni bjargast á dómsdegi,
þegar Guð sjálfur láti sína
aftökusveit hrinda öllum hinum
milljónum milljóna, kynslóð eft-
ir kynslóð í ginnungagap heljar!
Þetta eiga samt að vera börnin
hans, þessa „góða“ og „vitra"
alföður, guðfræðinganna. Hann
hve nú samt ætla að þyrma
einhverjum í viðbót vegna kross-
festingar sins bezta sonar.
Huggun það! Hér skal á þetta
bent einmitt til að sýna fram á,
hve fjarlægð þessara „auga fyrir
auga og tönn fyrir tönn“ kenn-
inga er mörg þúsund mílur frá
Kristi og kenningum hans.
Enda var hann gæddur nægri
dirfsku og vizku til að afneita
þeim algjörlega í ræðum sínum,
þótt þær væru lögmál í hans
eigin biblíu, og hjá hans eigin
þjóð.
Um slík fræði viðhafði hann
sérstakt orðalag í hógværð sinni:
„Þér hafið heyrt að sagt var,
en ég segi yður allt annað."
Og þarna sagði hann:
„Þér skuluð ekki rísa gegn
meingjörðamanni. Slái einhver
þig á vinstri vanga, þá snúðu
einnig þeim hægri að honurn."
Fjarstæða, en samt kristinn
dómur.
Og hann sagði annað enn
fjarstæðara að dómi spekinga
styrjaldafársins.
Um illgresið og góðgresið á
akrinum sagði hann:
„Látið hvorttveggja vaxa sam-
an til kornskurðardags," þá að-
skilst það af sjálfu sér að dómi
lífsins sjálfs, og heilbrigðrar
skynsemi, mætti bæta við.
Hér er Jesús eins og alltaf svo
himinhátt yfir öllu, sem jafnvel
helztu spekingar Gamla-Testa-
mentisins, þrátt fyrir alla þess
vizku, gátu teygt sig á sínum
stærstu stundum.
Það er meira fagnaðarefni en
flesta grunar á þessu afmæli
kristniboðs á íslandi, að þessari
litlu þjóð hefur oft á örlaga-
stundum tekizt að eiga meira af
kristindómi Friðriks biskups
hins saxneska en hefndarhug
Þorvaldar víðförla, hinna fyrstu
kristniboða íslands.
Það sannar einmitt frelsi og
farsæld líðandi stundar, þar sem
ein helzta vinaþjóð íslands nú,
er einmitt sú, sem vitandi eða
óvitandi kúgaði og rændi um
aldaraðir að ýmissa dómi.
Við gætum verið í sporum Ira
og Englendinga nú eða borist á
banaspjót eins og valdhafar í
íran þessa daga, ef ekki hefði
komið til forystu jafnkristnir
menn og prestssonurinn frá
Rafnseyri á sínum tíma eða
samningamenn í landhelgismál-
um, þótt engir þeirra væru með
réttlæti hins svokallaða „Guðs
orðs“ fræðimanna á vörum.
„Auga fyrir auga, tönn fyrir
tönn,“ er í anda og sannleika
lögmál og yfirskrift haturs og
hefnda, harma og þjáninga, eyði-
leggingar og eyðingar. Það er
helstefna heimsku og grimmdar,
stöðnunar og dauða.
Sönn þróun lífs á jörðu er
frelsun mannsins frá hinum
þungu og sáru byrðum barátt-
unnar við óvini, nema þá með
óbeinni andstöðu í þolgæði og
með því að launa illt með góðu.
Þar virðist einn maður á
þessari öld heimsstyrjalda hafa
komizt lengst, sem brautryðj-
andi og fyrirmynd í fótspor
Krists og til fullkomnunar
kristnum dómi í samskiptum
þjóða og stjórnenda. Það var
Mahatma Gandhi. Hve mörgum
milljónum mannslífa hann hefur
bjargað verður aldrei útreiknað í
nokkurri tölvu eða reiknivél,
hvað þá heldur það, sem aldrei
verður talið, eins og þjáningar,
sorgir, hatur og hefndir, sem af
styrjöldum leiðir. fregnir frá
íran, írlandi, Afghanistan og
fleiri löndum. sem nú eru erindi
dagsins, ættu sannarlega um-
fram allt að hvertja fólk til
frelsis úr bókstafsþrældómi alls
konar trúarbragða og guðfræð-
inga, sem þykjast geta sett sig í
hásæti sem fulltrúar alls konar
guða.
Þar gildir til gæfu hinn frjálsi
kraftur Krists, sem segir um
andstæðinga sína: „Þeir vita
ekki hvað þeir gera.“
Auðvitað verður að vernda sig
gegn þeim á viturlegan hátt, en
aldrei með hatri, pyntingum og
aftökum. „Þeir, sem með vopn-
um vega, munu fyrir vopnum
falla" er eitt af sígildum orðum
Jesú.
Sú manngöfgi hins frjálsa lífs,
sem Kristur boðaði mun í fram-
tíð fullvissa mannkyn jarðar um
það, að allar yfirlýsingar, hvort
sem þær eiga upphaf að rekja til
„helgra ritninga" eða stórmenna
allt frá Móse til Maós, allar
fyrirskipanir, sem fela í sér
hefndir og dauða, eru heimsku-
legar, eitraðar og skapa áfram-
haldandi böl, eymd og þjáningar.
Fjandskapur sigrar aldrei
fjaldskap. Það getur góðvildin
ein í öllu sínu umkomuleysi.
Margfalt meira vinnst með
blíðu en stríðu.
Einn helzti fræðimaður Nýja-
Testamentisins, sá, sem margir
telja að ýmsu leyti næstan Jesú
sjálfum, sagði um sína ritningu,
þrátt fyrir alla aðdáun og lær-
dóm. Það var Páll postuli:
„Bókstafurinn deyðir. Andinn
lífgar."
Ætlar nú heimurinn að fylgja
bókstaf Khomeinis erkiklerks
eða kærleiksanda Krists?
Það gerir gæfumuninn um alla
framtíð.
„Auga fyrir auga,
tönn fyrir tönn"
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
J^þjónusta^ Ljósborg hf. er flutt aö Laugavegi 168. Brautar- holtsmegin. Ljósprentun — fjöl- ritun. Bílastæði. Sími 28844. Ljósritun — smækkun Fljót afgreiðsla. Bílastæði. Ljósfell, Skipholti 31. sími 27210. Víxlar og skuldabréf í umboðssölu. Fyrirgreiðsluskrifstofan, Vestur- götu 17, sími 16223, Þorleifur Guðmundsson, heima 12469. \ húsnæói ; L Keflavík Höfum til sölu rúm- góöa 2ja herb. íbúö viö Máva- braut í mjög góöu ástandi. Sér inngangur. Losnar fljótlega. 4ra herb. sérhaaöir viö Austurbraut, og Hringbraut. Vandaö viölaga- sjóöshús meö vel rœktaöri lóö. Njarövík 2ja herb. íbúö tilbúin undir tréverk. Afhendist strax. Sandgeröi Einbýlishús í smíðum. Fullfrá- gengiö að utan. Fasteignasalan Hafnargötu 27, Keflavík, sími 1420. ; félagslíf \ • 4 1 Filadelfia Almennur biblíulestur í kvöld kl. 20.30. Ræöumaöur Einar J. Gíslason EEQnAEFI AG 3- Síöasta ferö tll Hveravalla /jpfAA rcnUArcLAvj helgina 28 ágúst _ 30 ágúst ISLANDS Ath.: í þessari ferö verður enn- ai ni i^ati o fremur gengiö á Hrútfell. 0LDUG0TU 3 4. Síöasta miövikudagsferö f SÍMAR 11798 og 19533. ►)essu sumri 26 * agust kl. 08. — Ferðafélag islands 1. Norður fyrir Hofsjökul 27 — 30 ágúst (4 dagar). Eklö norður Kjöl og suöur Sprengisand. Gist í húsum. 2. Berjaferö 4. sept. — 6. sept. Gist í húsi.
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Aukavinna
Okkur vantar fólk til þrifa á flökunarvélum,
eftir vinnutíma á kvöldin. Uppl. hjá verkstjóra
í síma 21400 og 23043.
Atvinna
Starfsfólk vantar til starfa, hjá Hraðfrysti-
stöðinni í Reykjavík. Unnið eftir bónuskerfi,
keyrsla í og úr vinnu. Mötuneyti á staðnum.
Uppl. veitir verkstjóri í síma 21400 og 23043.
Aðstoð óskast
á tannlækningastofu frá 1. sept.
Umsóknir er greini aldur og fyrri störf sendist
augl.deild Mbl. fyrir fimmtudagskvöld merkt:
„T — 1830“. ~
H