Morgunblaðið - 25.08.1981, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 25.08.1981, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1981 35 Daginn sem þátttakendur koma til Bandarikjanna hittast þeir i aðalstöAvum Sameinuðu þjóðanna. Á myndinni eru, e( grannt er skoðað, islensku þátttakendurnir i hópnum, þau Sigriður Pétursdóttir, sérkennari, Bragi Benediktsson, félagsmálastjóri, og Kolbeinn Pálsson, starfsmaður Æskulýðsráðs Reykjavikur. Félagsmálanámskeið í Bandaríkjunum SÍÐUSTU 20 árin hafa nær 40 íslendingar tekið þátt í fjög- urra mánaða námsdvöi í Bandaríkjunum á vegum CIP (Council íor International Programs). Slíkar námsferðir eru ætlaðar fólki sem vinnur að félagslegum störfum, bæði sem sjálfhoðaliðar eða að at- vinnu, starfsfólki félagsmála- stofnana og þeim sem hlynna að fólki með scrþarfir. Um þessar mundir er aug- lýst eftir umsóknum fyrir námsdvölinni vestra sumarið 1982 sem er frá aprillokum fram í ágústlok. Dvölin vestra skiptist í tvennt. Fyrstu vikurnar búa þátttakendur hjá gistifjölskyld- um og sækja fyrirlestra í há- skólum þar sem þeir búa. Síðari vikurnar vinna menn á stofnun- um svipuðum þeim og þeir starfa við heima. Dvölin vestra er ókeypis og jafnvel lagðir til vasapeningar enda eru þátttak- endur í vinnu hluta af tímanum. Flestir hafa og fengið ferða- styrki. Um 200 manns frá um 100 löndum koma ár hvert til náms- dvalar á vegum CIP. Það er almennt álit þeirra íslendinga sem sótt hafa þessi námskeið, að þau hafi veitt margvíslega innsýn og reynslu bæði starfslega og persónulega, enda er náið samstarf með fólki af ólíkasta bakgrunni og takast oft góð kynni með þátttakend- um. Islensku þátttakendurnir hafa myndað með sér samtök til þess að annast fyrirgreiðslu við CIP hérlendis. Starfshópurinn sem í ár annast undirbúning og val væntanlegra þátttakenda ársins 1982 veitir allar nánari upplýsingar, en hann skipa: Bergljót Líndal, hjúkrunar- forstjóri, Heilsuverndarstöð Reykjavíkur, Jóna Hansen, Reykjavíkurdeild Rauða kross- ins, Jón Bjarman fangaprestur, Tómas Einarsson kennari, Kristjáh Sigurðsson, Unglinga- heimili ríkisins, Kópavogi, Bernharður Guðmundsson, Biskupsstofu. Umsóknareyðublöð fást hjá Fulbright-stofnuninni, Nesvegi 7, Reykjavík. Umsóknarfrestur er til 7. september. Gólfteppi — Utsala - - Gólfteppi Seljum í dag og næstu daga gólfteppabirgöir okkar á stórlækkuöu veröi. Allt á aö seljast. Borgarás, Sundaborg 7. Sími: 81044. Evrópumót í hestaíþróttum Ákveðiö hefur verið, vegna fjölda áskorana, að efna til aukaferöar á Evrópumótið í hestaíþróttum í Larvik í Noregi. Farið veröur út föstudagsmorgun og komiö heim mánudagskvöld. Feröin kostar 2.950 með ökuferðum að og frá Larvik. Unnt er að útvega örfá gistirúm á beztu hótelum í Larvik á kr. 170—215 per. nótt eöa svefnpokapláss, 4—6 manna standhúsum á kr. 40 per. nótt. Aðeins 50 sæti fáanleg En þegar er einhverju af því ráðstafað. Hvetjum íslenzku sveitina til afreka. í Larvik er þessa dagana sól og hiti. Hittumst í Larvik. Skráningu lýkur í síöasta lagi kl. 6, miövikudaginn 26. ágúst. Síminn er 30178. Nýtt — nýtt frá Sviss, Þýskalandi og Svíþjóð, pils og blússur. Frá ítalíu angorapeysur. Glugginn, Laugavegi 49. SIEMENS BÁTAR UTANBORÐSMÓTORAR mánuðum Viö bjóðum nokkra TERHI báta og CHRYSLER utanborðsmótora meö þessum kjörum næstu daga. Stæröir á bátum: 8 fet — 12Vi fet og 14’/2 fet. Mótorar: 4 — 6 — 7,5 — 9,9 — 15 og 20 hestöfl. Mjög takmarkað magn. Vélar & T® ki hf. TRYGGVAGATA 10 BOX 397 REYKJAVlK SlMAR. 21286 - 21460

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.