Morgunblaðið - 25.08.1981, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 25.08.1981, Qupperneq 28
36 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1981 Evrópumót íslenskra hesta: EINS OG FRAM hefur komið í fréttum var nýlega valið lið það er keppir fyrir íslands hönd á Evrópumóti íslenskra hesta sem fram fer í Noregi dagana 29. — 31. áxúst nk. Þeir, sem valdir voru, eru allir nokkuð reyndir reiðmenn. Allir hafa þeir keppt á Evrópumótum áður, að undanskiidum tveimur knöpum. Segia má, að þeirra reyndastur sé Reynir Aðalsteinsson, en hann hefur keppt á öllum Evrópumótum sem haldin hafa verið, en þau eru fimm talsins. Árangur íslendinjja á þessum mótum hefur verið mjöK KÓður hin seinni ár, og óhætt mun að fullyrða, að fá eða enjíin landslið íslands í öðrum íþróttaj?reinum hafa átt jafnmikilli velj?engni að fagna í keppni við aðrar þjóðir og landslið hestaíþróttarinnar. I>ví til sönnunar má nefna hér nokkra punkta um frammistöðu íslands á þessum vettvangi. í Austurríki 1975 má segja aö velgengni íslands í þessum mótum hafi byrjað. Þá sigraði Reynir Aðalsteinsson í tölti á Degi frá Núpum og á sama móti sigraði Albert Jónsson í hlýðniæfingum á Ljóska frá Hofsstöðum. Var sá sigur sætur, því íslendingar voru þá hálfgerðir nýgræðingar í hlýðniæfingum. í Danmörku 1977 var frammistaða okkar manna stórglæsileg. Þá varð Sigurður Sæmundsson Evrópumeistari, en það verður sá keppandi er flest stig fær samanlagt á mótinu. Einnig var um fjórfaldan íslensk- an sijpar að ræða í skeiðinu og var Sigurður þar í fyrsta sæti á Leikni frá Dýrfinnustöðum, annar varð Sigurbjörn Bárðarson á Gými, þriðji Ragnar Hinriksson á Gretti og fjórði Reynir Aðalsteinsson á Stokkhólma-Blesa. Sýndu íslend- ingarnir mikla yfirburði í skeiðinu og má segja að þar stöndum við feti framar en aðrar þjóðir. í Hollandi 1979 veiktust allir hestar íslenska liðsins eins og alþjóð er kunnugt. Leit út fyrir, að íslensku knaparnir yrðu á áhorf- endabekkjunum í það skiptið. En þá brugðust Þjóðverjar fljótt og vel við og lánuðu íslendingum fjóra hesta sem sóttir voru með hraði til Þýskalands. Var hér um að ræða hesta sem ekki komust inn í þýska liðið. Var almennt talið að jslendingar ættu enga möguleika á verðlaunum, þar sem þeir höfðu aldrei komið á bak þessum hestum áður og jafnvel aldrei séð þá fyrr. Fjórir íslendingar, þeir Sigurð- ur Sæmundsson, Ragnar Hinriks- son, Reynir Aðalsteinsson og Að- alsteinn Aðalsteinsson komu skemmtilega á óvart með þvi að hlanda sér í toppbaráttuna. Hæst bar árangur Ragnars, en hann keppti á stóðhestinum Fróða frá Ásgeirsbrekku. Sigraði hann í fimmgangi og varð í fyrsta til þriðja sæti í skeiði, auk þess varð hann stigahæstur og þar með Evrópumeistari. Sýndu íslensku knaparnir og sönnuðu þarna fjöl- hæfni sína á svo eftirminnilegan hátt. Á þessum mótum hafa tvö lið skorið sig úr sem sterk liðsheild, en það eru lið íslands og Þýska- lands. Þjóðverjarnir hafa verið sterkastir í tölti og fjórgangi og má segja, að þeir hafi verið nær einráðir í þessum greinum. Styrk- ur íslands hefur hinsvegar fyrst og fremst legið í skeiði og fimm- gangi, eins og lesa má úr fram- angreindri afrekaupptalningu. Og svo er einnig nú, enda miðast þær reglur, sem í gildi eru varðandi Evrópuúrtökuna, að því að ná sem sterkustum fimmgangshestum inn í liðið. Sigurbjörn oj? Adam. F'yrstur inn í íslenska liðið að þessu sinni kemur Sigurbjörn Bárðarson, en hann varð stiga- hæstur í úrtökunni. Sigurbjörn er 29 ára Reykvíkingur, búsettur við Elliðavatn. Hann hefur stundað tamninga síðastliðin tíu ár og verið með hross í keppni, bæði í kappreiðum og á sýningum og ávallt í fremstu röð. Er þetta þriðja Evrópumótið sem Sigur- björn fer á sem keppandi. Hestur- inn sem Sigurbjörn keppir á, heitir Adam og er 9 v., jarpur, frá Hólum í Hjaltadal. Faðir hans er Drafnar frá Vatnsleysu og föður- Hrejjjíviður og Rökkvi. Glæsi- legur árangur á undan- förnum árum faðir er Baldur frá Vatnsleysu. Móðir er Vinda frá Hólum. Adam hefur keppt eingöngu í skeiði og hefur hann náð ágætis árangri. Besti tími hans er 23,0 sek. og hefur hann oftsinnis hlaupið á þeim tíma. Skemmst er að minn- ast kappreiðanna á Mánagrund 9. ágúst, en þá sigraði Adam í skeiði og skaut þar aftur fyrir sig fremstu vekringum landsins. Má segja, að Adam hafi þar kvatt íslenskar kappreiðar á skemmti- legan hátt. Sigurbjörn og Adam keppa í tölti, fimmgangi, skeiði og hlýðniæfingum. Annar á blaði í íslenska liðinu er Hreggviður Eyvindsson, 22 ára Reykvíkingur. Hann starfar sem tamningamaður við hestamiðstöð- ina Dal. Hreggviður hefur getið sér gott orð sem sýningamaður og knapi á kappreiðum og þá í skeiði. Er skemmst að minnast frammi- stöðu hans í töltkeppninni á Fjórðungsmótinu á Hellu í sumar, en þar sigraði hann á hestinum Goða, sem hann hefur náð góðum árangri með síðastliðin ár. Þetta er í fyrsta skipti sem Hreggviður keppir á Evrópumóti. Hann keppir á stóðhestinum Rökkva 926, 8 v., brúnum, frá Ríp í Skagafirði. Hann er' undan Hrafni 802 frá Holtsmúla og Stygg frá Svaða- stöðum. Rökkvi var sýndur í flokki stóðhesta 6 v. og eldri á fjórð- ungsmótinu og hlaut í aðalein- kunn 7,84. Hann var einnig sýndur í gæðingakeppni Fáks í vor og hlaut hann þá í einkunn 8,37. Hreggviður og Rökkvi keppa í tölti, fimmgangi, skeiði og hlýðni- æfingum. Á eftir Hreggviði kemur Ragnar Hinriksson, þrítugur tannsmiður, búsettur í Borgarnesi. Ragnar hefur lengi verið á meðal fremstu tamningamanna landsins og margsinnis staðið með hesta í verðlaunasætum, bæði kappreið- um og sýningum. Hæst ber að sjálfsögðu árangur hans á síðasta Evrópumóti, er hann varð Evrópu- meistari og má segja, að nú fari hann til Noregs í þeim tilgangi að verja titilinn. Ragnar keppir á hestinum Nasa, 7 v., brúnnösótt- um, frá Akureyri. Faðir hans er Svarti-Blesi og föðurfaðir Þytur 947 frá Akureyri. Móðir hans er ónafngreind rauðblesótt hryssa frá Svaðastöðum. Ragnar og Nasi urðu í fjórða sæti á íslandsmótinu á Melgerðismelum í sumar. Þeir félagar keppa í tölti, fimmgangi, skeiði og hlýðniæfingum. Næstur kemur svo Tómas Ragn- arsson, 15 ára Reykvíkingur. Tóm- as, sem er yngsti keppandinn og jafnframt sé yngsti sem valinn hefur verið til að keppa á Evrópu- móti fyrir íslands hönd frá upp- hafi. Tómas er ennþá gjaldgengur í unglingakeppnum og er þetta óvenju skjótur frami hjá svo ungum reiðmanni. En hann hefur sannað, að þetta er engin tilviljun, Reynir og Fleyjfur. Eyjólfur og Krummi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.