Morgunblaðið - 25.08.1981, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1981
37
Ragnar og Nasi.
,«
Bencdikt o« Valsi.
Tómas ojf Bjarki.
því ferill hans er eindæma glæsi-
legur. Aðeins tólf ára gamall
byrjaði hann að hleypa hestum til
skeiðs á kappreiðum og ávallt
verið í fremstu röð í unglinga-
keppnum sem hann hefur tekið
þátt í.
Tómas, sem nú keppir í fyrsta
skipti á Evrópumóti, verður á
hestinum Bjarka, 7 v., rauðbles-
óttum, frá Vallanesi í Skagafirði.
Hann er undan Háfeta 804 frá
Krossanesi og hryssu frá Valla-
nesi.
Tómas hefur keppt á Bjarka,
bæði í unglingakeppnum og
kappreiðum í sumar og hafa þeir
náð ágætis árangri. Varð Tómas
til dæmis stigahæstur unglinga á
Islandsmótinu í sumar. Besti tími
Bjarka í skeiði er 25,8 sek. í 250 m
skeiði og 16,0 sek. í 150 m skeiði.
Tómas og Bjarki keppa i fimm-
gangi, skeiði og hlýðniæfingum.
Fimmti maðurinn er Benedikt
Þorbjörnsson, 25 ára Reykvíking-
ur, nú búsettur i Borgarfirði og
starfar við eigin búskap og tamn-
ingar. Þetta er í annað sinn sem
Benedikt fer á Evrópumót, en
hann var meðal keppenda í Dan-
mörku 1977. Benedikt hefur starf-
að við tamningar um árabil, bæði
hérlendis og erlendis við góðan
orðstír. Einnig hefur hann tekið
þátt í sýningum og keppnum hér á
landi og erlendis og náð góðum
árangri.
Benedikt keppir á hestinum
Valsa, 8 v., brúnum, frá Lamb-
haga. Valsi er undan Frey frá
Lambhaga og Lísu frá sama stað.
Benedikt hefur náð ágætis árangri
með Valsa, varð meðal annars í
þriðja sæti í A-flokki gæðinga á
fjórðungsmótinu á Kaldármelum í
fyrra, efstur í A-flokki hjá Dreyra
í sumar. Einnig sigruðu þeir í
fimmgangi og gæðingaskeiði í
íþróttakeppni hjá Faxa í vor. Besti
tími Valsa í skeiði er 25,5 sek.
Benedikt og Valsi keppa í fimm-
gangi og skeiði.
Tveir fjórgangshestar verða í
liðinu og keppir Eyjólfur ísólfsson
á öðrum þeirra. Eyjólfur er 31 árs
Reykvikingur og starfar sem reið-
kennari og tamningamaður við
hestamiðstöðina Dai. Hefur Eyj-
ólfur staðið í fremstu röð sem
tamningamaður, reiðkennari og
sýningamaður síðastliðin ár. Af
afrekum hans ber eflaust hæst
sigur í B-flokki gæðinga á lands-
mótinu 1978, er hann sýndi Hlyn
frá Akureyri með miklum glæsi-
brag. Eyjólfur keppir á Krumma,
7 v., brúnum, frá Skörðugili í
Skagafirði. Hann er undan Hrafni
802 frá Holtsmúla og Rabba-
Brúnku frá Skörðugili. Árangur
þeirra í sumar hefur verið með
ágætum, stigahæstir í tölti, fjór-
gangi og hlýðniæfingum á deild-
armóti Fáks í vor og í fimmta sæti
í B-flokki gæðinga á fjórðungs-
mótinu á Hellu í sumar. Einnig
sigraði Eyjólfur í hlýðniæfingum
á Islandsmótinu í sumar. Eyjólfur
og Krummi keppa í tölti, fjórgangi
og hlýðniæfingum.
Á hinum fjórgangshestinum
keppir Reynir Aðalsteinsson, 36
ára Reykvíkingur, nú búsettur i
Borgarfirði. Reynir er, eins og
Eyjólfur, reiðkennari og tamn-
ingamaður, og hefur hann starfað
við tamningar í rúman áratug.
Hann hefur keppt á öllum Evrópu-
mótum sem haldin hafa verið og
er hann sá maður sem hvað mesta
reynslu hefur í þessum efnum.
Reynir er eini meðlimur Félags
tamningamanna sem lokið hefur
svokölluðu meistaraprófi FT og
getur því með réttu kallað sig
tamningameistara.
Hesturinn, sem Reynir keppir á,
heitir Fleygur og er 7 v., grár, frá
Stokkhólma. Hann er undan
Stokkhólma-Rauð 618 og hryssu
frá Stokkhólma. Reynir hefur ver-
ið með Fleyg í keppni í sumar og
skilað góðum árangri, varð í
fimmta sæti í tölti á íslandsmót-
inu í sumar, í fyrsta sæti í tölti og
fjórgangi á íþróttamóti hjá Faxa
og efstur í B-flokki hjá Dreyra.
Reynir og Fleygur keppa í tölti og
fjórgangi.
VK
émz/M -
Bergljót Ingólfsdóttir
Sonja, krónprinsessa í Noregi
Norðmenn eru mjög stoltir af Sonju krónprinsessu og ekki að
undra. konan er glæsileg og þykir ails staðar koma fram með
sóma. Hún er talin mjög smekklega klædd og ha'gt að sjá sönnun
þess á meðfylgjandi myndum, sem teknar voru í heimsókn til
Parísar snemma sumars.
Fatnaðurinn er teiknaður af tískuteiknaranum Per Spook og
þótti vel við hæfi í sjálfri tískuborginni. sérstaklega vakti athygli
rauður, síður kjóll. sem hér sést á mynd. og hún klæddist á
dansleik.