Morgunblaðið - 25.08.1981, Page 36

Morgunblaðið - 25.08.1981, Page 36
44 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1981 Hver ba& um hrácxn hvítlcujk. ?" ást er... ... að koma henni á óvart með afmœlis- yjöfinni. TM Reg. U.S. P«l Oft — aM nghts reserved • 1979 Los Angotes Tlmes Syndtcate Ég saxði konunni minni að þaA virri natura'finK hjá tíomlu skátunum! HÖCNI HREKKVÍSI Enn um Bítlana og BRC: „Að sjálfsögðu ber mér að svara því skítkasti“ Til Vclvakanda Kæra Binna Áður en ég svara bréfi þínu langar mig til þess að vitna í orð Alan Longmuir, bassa- og synthesiserleikara The Rollers (úr Zig Zag, júlí 1981): „When you hear some of the early Beatles records you relise they weren’t that brilliant musicans at the time. That’s what happ- ened to us.“ Ég hef aldrei hent skít í Bítlana (nema að það sé skít- kast að segjast meta Rollers meira en þá). Ástæðan fyrir því að Bítlarnir blönduðust í málið er sú að skallapoppshatarar (eins og Zýkúrta & Co.) eru óhræddir við að kalla BCR bölvaða skallapoppara en þegar Bítlarnir eru nefndir er ekkert sagt, jafnvel þótt báðar hljóm- sveitirnar hafi spilað svokölluð súkkulaðilög (þín orð) á mesta vinsældaskeiði sínu. Ég hef aldrei mælt á móti því að Bítlarnir séu vinsælasta hljómsveit allra tíma. Þú spyrð hvað sé svona sérstakt við The Rollers (eins og tónlist þeirra sé núna). Ef þú hefur hlustað á þrjár síðustu plötur The Rollers („Elevator" „Voxx“ & „Ricoch- et“) þá er ég ekki hissa á að Bítlaaðdáanda eins og þér hafi ekki líkað þær, þar sem þær eru lítið í ætt við „Manana" (BCR ’72) og „She loves you“ (Beatles ’64) Satt er það að Bítlarnir og BCR eiga margt sameiginlegt (það var önnur ástæða fyrir því að Bítlarnir blönduðust í mál- ið). Það er líka satt að Rollers misstu niður mikið af vinsæld- um sínum þegar þeir ætluðu að breyta ímynd sinni og fara að spila tónlist eftir sínu eigin höfði, en það líkaði ekki hljómplötufyrirtækinu þeirra (Arista records) og þeir urðu ekki lausir mála frá Arista fyrr en á síðasta ári. En árið 1978 reis upp mikill persónulegur ágreiningur milli Clive Davis (þáverandi forseta Arista) og Stuart Wood (The Rollers), og eins og Woody segir sjálfur: „That put the band in the toilet for two years." Einnig áttu Rollers í vandræðum með þá- verandi umboðsmann sinn, Tam Paton, sem þeir losnuðu við um leið og Arista. Vesenið í kringum Les McKeown (fyrrum söngvara BCR) er alkunna, en hann hætti í hljómsveitinni í ágúst 1978, og þá fór að síga á ógæfuhliðina, eins og áður segir, þó svo að Duncan Faure (núverandi Rollers-söngvari) hafi gengið til liðs við þá í desember ’78. En eins og Alan kemst að orði: „It’s a great feeling to get out of it all ... especially Arista. That was like a load on us all the time.“ Það getur vel verið að ég sé heimskur, en ég skammast mín ekkert fyrir að hafa meira álit á The Rollers en The Beatles. Eins og ég hef áður sagt var það aldrei ætlun min að skíta Bítl- ana út með þessum skrifum mínum, en hins vegar gerðu Zýkúrta og hans félagar lítið annað en að henda skít í Rollers og að sjálfsögðu ber mér að svara því skítkasti. Ég bind ennþá veikar vonir við það að sjónvarpið sýni BCR-þáttinn (jafnvel þó það sé í þriðja sinnið) fyrir þá fáu sem ekki sáu hann (munið að ég bað ekki fyrstur um endursýning- una). Og að lokum langar mig að biðja meðlimi og aðdáendur hljómsveitarinnar Tappa tík- arrass margfaldlega afsökunar á ruglingi mínum í bréfi sem birtist þann 13. þ.m. Hr. Flínkur. Misheppnað framsóknarferðalag: „10 rútur villtust þar fram Ég vil taka undir með gömlu konunni sem hringdi í Velvak- anda 19. ágúst sl. Ég var ein af þeim sem fóru í ferðalag með Framsóknarflokknum og eins og hún segir var reyndin sú að fólk var leitt, þreytt og óánægt eftir það. Hver sjoppa var þrædd á leiðinni, og hangið yfir því tímunum saman þó fólk ætti að hafa og hefði með sér nesti. Þetta var mikið auglýst og áttu allir að vita það. Það var farið inn á hálendið og þessar 10 rútur villtust þar fram og aftur. — í þeim bíl sem ég var í, bíl nr. 4, var fararstjórinn alveg ófær, var að vísu með kort en vissi ekkert. Síðar var hangið í Skálholti — þar höfðu flestir komið áður. Tveir menn áttu að tala en sem betur fer gleymdist hátalari eða var bilaður. En þeir höfðu ráð og aftur“ utan dagskrár og fóru að sýna fólkinu Skúðaréttir, sem verða 100 ára 29. ágúst og eru snilld- arlega hlaðnar. Ekki var minnst á hver væri svona mikill snill- ingur að hlaða veggi, en það er Sigurþór Skæringsson, Þorláks- höfn, sem þarna á heiðurinn af. Inni í almenningnum stóð svo fólkið, þreytt og kalt, — og þar stóðu ræðumennirnir uppi á réttarveggnum og töluðu, en engan langaði að hlusta á þetta sem búið var að margsegja í bílunum, ásamt pólitík. Ég fór í fyrra í Þórsmörk og það var dýrðlegur dagur, 17 rútur og allt gekk svo vel. En það er önnur saga — vonandi verður þetta skipulagt betur næst. Þakka fyrir birtingu. Sigrún Jónsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.