Morgunblaðið - 25.08.1981, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1981
47
Faxaflóakeppnin:
Upp í 15 mílna siglinga-
hraði Skýjaborgarinnar
MEÐALHRAÐI sigurvejíarans í
kappsÍKlinKU Faxaflóakeppninn-
ar sl. laugardag frá Kópavoni til
Akraness var 10 mílur á klukku-
stund ok mesti hraói hjá þeim
bát, SkýjaborKU Hlyns Ingimars-
sonar, var 15 mílur. Það hefur
þvi verið knálega sixlt, enda
komst vindhraðinn i Ilvalfjarð-
arstrenKnum upp í 9 vindstig.
VeBna óvænts vindhraða urðu
nokkrir erfiðleikar hjá sumum
keppenda. sérstaklega bátnum
Súsonnu, sem stýrið brotnaði á,
en keppendur voru þó aldrei í
veruleKri hættu vegna vindhvells-
ins ok voru aðstandendur Faxa-
flóasÍKlingarinnar ánægðir með
keppnina.
5 Jóhann Reynisson, skipstjóri á
Súsönnu, sagði í samtali við Mbl. í
gær, að stýrið hefði brotnað þegar
skútan fékk á sig hnykk, en hann
sagðist oft hafa verið á skútunni í
mun verra veðri. Stýrið neðan
sjólínu hreinsaðist burtu. „Við vor-
um með 5 ha. utanborðsmótor en
það var ekki nóg á móti veðrinu og
ekki einu sinni þegar Sif tók okkur í
tog, en við höfðum alltaf þann
möguleika að sigla undan til Akra-
ness. Það var því aldrei nein hætta
á ferð, en við erum þakklát skip-
verjum á Sif fyrir aðstoðina og
SVFÍ brást snaggaralega við eins
Nokkur óhöpp
urðu í
stormhvelli
og þeirra var von og vísa á Gísla J.
Johnsen."
Það var Siglingafélagið Ýmir í
Kópavogi og Siglingasamband ís-
lands, sem stóðu fyrir þessari
kappsiglingu á kjölbátum, þ.e.
stærri seglbátum. Keppni þessi,
svokölluð Faxaflóakeppni, er haldin
ár hvert og er liður í punktakeppni.
Skipstjórar bátanna mættu allir
óvenju snemma um morguninn til
þess að útbúa báta sína fyrir harða
siglingu því spáð var austan- eða
suðaustan 4—6 vindstigum. Voru
siglingakapparnir á því að þetta
gæti orðið skemmtileg sigling, þó
var rætt um, að Hvalfjarðarstreng-
urinn gæti orðið slæmur í þessari
átt, sérstaklega ef vindstyrkur yk-
ist.
Ellefu skútur hófu keppnina inni
á Skerjafirði kl. 10.10 og skyldi siglt
stórskipasiglingaleið út úr Skerja-
firði út að bauju nr. 6, fyrir bauju 9
og inn á höfnina á Akranesi. Þar
átti að halda kyrru fyrir um nóttina
en sigla síðan sömu leið til baka
daginn eftir.
»
í stuttu máli gekk öllum bátunum
vei út fyrir bauju 6. Flestir sigldu
undir rifuðu stórsegli og lítilli
fokku, en eigi að síður náðu minni
bátarnir að „plana" ofan á öldun-
um. En eftir því sem utar dró út á
flóann jók vind samfara nokkurri
ölduhæð. Rétt utan við bauju 6
brotnaði stýrið af seglbátnum „Sús-
önnu“ og kom systurskúta, „Sif“,
henni til aðstoðar, en aðrir bátar
voru það langt á undan að áhafnir
þeirra sáu ekki hvernig komið var.
Sif tók síðan Súsönnu í tog, en gekk
fremur illa þar sem vindur var
beint á nefið. Radíóamatör í landi
hafði fylgst með skútunum og gerði
hann Slysavarnafélaginu viðvart.
Slysavarnafélagið brá skjótt við og
björgunarbáturinn Gísli J. Johnsen
kom Súsönnu til hjálpar og dró
hana inn á Skerjafjörð. Ennfremur
voru skip á Faxaflóa beðin um að
litast um eftir hinum skútunum.
Klukkan 12, þegar fremstu bát-
arnir áttu eftir u.þ.b. 2 sjómílur að
bauju 9, mátti greinilega sjá óveð-
ursský yfir Hvalfirði og urðu Ari
Bergmann og Bjarni Hannesson,
scm báðir sigldu 18 feta Micro-
bátum, fyrstir til þess að snúa
bátum sínum til hafnar og taka
stefnu beint á Akranes. 3 aðrir
bátar fylgdu fljótlega á eftir en 4
héldu áfram að bauju 9 enda voru
það mjög vel útbúnir og stórir
bátar.
Um klukkan 12.30 var komið
hvassviðri og vindur 9 vindstig í
hviðunum enda lét Hvalfjarðar-
strengurinn vita af sér með hauga-
sjó. Þegar hér var komið má teljast
mildi að allar minni skúturnar
höfðu tekið stefnu á Akranes.
Skúturnar komu svo ein af ann-
arri inn á höfnina á Akranesi upp
úr klukkan 13 nema „Frekjan",
rúmlega 22ja feta bátur. Áhöfn
hennar hafði treyst um of á hjálp-
arvélina, en hún hafði bilað þegar
mest á reyndi og þar sem Frekjan
átti í barningum á móti vindi og
stjórsjó út af Skipaskaga kom
Akraborgin að og dró hana til
hafnar.
Slysavarnafélagið hafði gert
ráðstafanir til þess að kalla út
björgunarsveitirnar á Seltjarnar-
nesi og Akranesi, því lengi var
óttast um eina skútu, sem hóf
keppni en kom hvorki á Akranes né
inn á leguna í Kópavogi. Síðar kom
í ljós að þessi skúta hafði snúið við
skömmu eftir að keppni hófst og
lagst við Kársnesbryggjuna í Kópa-
vogi.
Sigurvegari Faxaflóakeppninnar
var Skýjaborg Finns Ingimarsson-
ar, 27 feta skúta, sem sigldi á 1 klst.
og 40 mín. Nr. 2 varð Nornin undir
skipstjórn Andrésar Árnasonar, 22
feta skúta, og í þriðja sæti á þessari
19 mílna siglingaleið varð Brobant
undir stjórn Viðars Olsen, 30 feta
skúta.
Súsanna í togi hjá Gísla J. Johnsen úti á Faxaflóa, en þá var kröpp
alda og mikill vindur. Ljiwmynd Mbl. RAX.
beiðni fyrr en á sunnudag og um
hádegið lagði þyrla varnarliðsins
af stað fyrir milligöngu Slysa-
varnafélagsins. Eins og áður sagði
var birgðavél í fylgd með þyrlunni
og fékk hún tvisvar eldsneyti á
leiðinni. Um klukkan 15.15 var
komið að togaranum og voru þá um
5 vindstig þar sem hann var
staddur og ölduhæð um 3 metrar.
Um 20 mínútum síðar var sjúkling-
urinn kominn um borð í þyrluna í
hendur læknis sem þar var. Lækn-
irinn tilkynnti síðan að nýru sjúkl-
ingsins störfuðu ekki eðlilega og að
gera þyrfti viðeigandi ráðstafanir á
því sjúkrahúsi, sem leggja ætti
sjúklinginn inn á. Þyrlan kom
síðan að Borgarspítalanum um
klukkan 17.15 eftir rúmlega 5
stunda flug og var sjúklingurinn þá
þegar lagður inn á gjörgæzludeild
og mun líðan hans eftir atvikum.
Jakob Hafstein. framkvæmdastjóri
Slysavarnafélagsins ásamt flugstjóra
þyrlunnar, Wayne Stanley og læknin-
um Robertu Gunnett.
Ljósmynd Mbl. ÓI.K.M.
Sjúklingurinn færður frá þyrlunni inn i Borgarspitalann.
Frá afhendingu verðlauna i Faxaflóakeppninni. Hlyn Ingimarssyni
veitt verðlaunin. Ljósmynd Mbl. Kristján Einarsson.
bessi mynd er tekin um borð i skútunni sem sigraði, Skýjaborginni,
sem sigldi á allt að 15 milna hraða til Akraness. Hlynur er við
stjórnvölinn. Ljósm. Mbl. Kristján Einarsson.
Súsanna komin á lygnan sjó með aðstoð Gísla J. Johnsen. Um borð i
Súsönnu voru f jórir skipverjar. Ljósmynd Mbl. RAX.
Ný plata með Hauki
Morthens væntanleg
IIAUKIJR Morthens hefur
lokið við að syngja tvö Iök
sem koma munu út á plötu
innan skamms. Hljómsveitin
Mezzoforte annaðist undir-
leik.
Lögin heita „Tilhugalíf"
eftir Nönnu Jónsdóttur við
texta Hjördísar Morthens, og
„Hvert liggur leið“, en það er
erlent lag. Haukur mun hafa
á prjónunum að syngja inná
stóra plötu í haust.
Jóhann Helgason tók nokk-
ur lög upp í stúdíói í Los
Angeles, en hann var þar á
ferð ásamt Helgu Möller og
komu þau fram á íslend-
ingaskemmtun 17. júní síð-
astliðinn. Lögin koma út á
sólóplötu í haust. Jakob
Magnússon annaðist upptöku
og hljóðblöndun.
Byggðasjóður:
Grindvíking-
ar fá'lán til
togarakaupa
BYGGÐASJÓÐUR hefur nú sam-
þykkt að veita útgerðaraðilum í
Grindavík 2.5 milljóna kr. lán til
kaupa á togaranum Guðsteini. sem
nú er eign Samherja hf. í Ilafnar-
firði.
Lánið er veitt með ýmsum skil-
yrðum, svo sem millifærslu á fiski
og er auk þess að mestu vísitölu-
hundið, en enn er ekki ljóst hvort af
þessum kaupum verður, þar sem
aðalfundur Samherja hf. á eftir að
taka endanlega ákvörðun um hvort
Guðsteinn verður seldur. Mun sú
ákvörðun verða tekin um næstu
mánaðamót.