Morgunblaðið - 10.09.1981, Síða 1

Morgunblaðið - 10.09.1981, Síða 1
44 SIÐUR 200. tbl. 68. árg. FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1981 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Umdeild tUlaga nm írjálsar kosningar (ídansk. 9. soptember. AP. VARSJÁRDEILD Samstöðu lagði fram tillögu á þingi Samstöðu í dag. þar sem þess var krafist að efnt yrði til frjálsra kosninga í landinu. en tillagan var ekki tekin til meðferðar, þar sem áður hafði verið samþykkt á þinginu, að ræða ekki forystuhlutverk Kommúnistaflokksins í pólskum þjóðmálum. Litið er svo á, að tillagan, sem gerir ráð fyrir- breytingum á lögum Samstöðu, sé ögrun við Kommúnistaflokkinn. Er þess krafist í tillögunni, að efnt skuli til frjálsra leynilegra kosninga, þar sem ótakmarkaður fjöldi frambjóðenda geti boðið sig fram til þings og sveitastjórna. Fram- bjóðendur eru valdir sérstaklega af sérstóku flokksapparati við núverandi skipulag. Meirihluti þingfulltrúa sam- þykkti á þinginu, að forystuhlut- verk pólska Kommúnistaflokksins skyldi ekki rætt á þinginu, en Lech Sobieszek frá Gdansk, einn af stofnendum Samstöðu, sagði í dag að brögðum hefði verið beitt við kosningarnar, og krafðist hann þess að tillaga Varsjárdeildarinn- ar yrði tekin fyrir, og að greidd yrðu um hana atkvæði í leynilegri kosningu. Fjölmiðlar í A-Þýzkalandi, Sov- étríkjunum, Tékkóslóvakíu og víð- ar í Austur-Evrópu gagnrýndu fulltrúa á þingi Samstöðu harð- lega í dag, og voru þeir meðal annars sakaðir um íhlutun í inn- anríkismál annarra ríkja með því að samþykkja stuðning við barátt- umenn fyrir frjálsum verkalýðs- félögum í ríkjum A-Evrópu. Málgagn pólska Kommúnista- flokksins, Trybuna Ludu, sagði þessa samþykkt vera tilraun til afskipta af málum annarra, og nánast kröfu um breytingar á þjóðfélagsgerð viðkomandi ríkja. Var greinin í Ludu lesin upp í útvarpi og sjónvarpi í Póllandi. Alan Cranston öldungadeildar- maður frá Kaliforníu, sem ræddi í dag við ráðamenn í Varsjá, sagði á blaðamannafundi, að hinar miklu heræfingar Rússa í nágrenni pólsku landamæranna væru „ugg- vænlegar", og varaði við því að innrás í Pólland hefði enn verri afleiðingar fyrir samskipti Banda- ríkjamanna og Rússa en innrásin í Afganistan. Dean Fischer formæl- andi utanríkisráðuneytisins sagði í dag, að enn sæust þess ekki merki að tilgangur æfinganna sé að undirbúa innrás í Pólland. Austur-þýzka fréttastofan ADN sagði í kvöld, að leiðtogar Sam- stöðu seildust eftir völdum og hefðu „skorað pólsku stjórnina á hólm“ að nýju. I harðri og óvæg- inni gagnrýni á hin óháðu verka- lýðssamtök tíundaði fréttastofan kröfugerðir samtakanna, sem er nýmæli. TUC hafnar tillögu Foots lllackpool. 9. septombor. AI*. ^ I>ING BREZKU verkalýðssamtakanna (TUC) hafnaði í dag hugmyndum Michael Foots, leiðtoga Verkamannaflokksins, um að samtökin og ríkisstjórn, er flokkurinn veitti forstöðu, gerðu með sér samning um takmarkaðar launaha'kkanir. Akvörðun þingsins, sem einnig Verkamannaflokknum við Denis krafðist ýmissa aðgerða í efna- hagsmálum, er ganga þvert á stefnu stjórnar Margrétar Thatchers, er talin mikill sigur fyrir vinstri öflin í flokknum, og að sama skapi áfall fyrir Foot. Tony Benn, fyrrum orkuráð- herra, leiðtogi vinstriaflanna í flokknum, gagnrýndi harðlega tillögur Foots um kjaramála- bandaiag í ávarpi á þinginu. Sagði Benn að flokksforystan, er væri fylgjandi kjaramála- bandalagi, áframhaldandi veru í EBE og að Bandaríkjamenn fengju um ókomna framtíð að geyma kjarnorkuvopn í Bret- landi, væri á, undanhaldi. Hún sæi sæng sína uppreidda. Benn keppir um varaformennsku í Healey, fyrrum fjármálaráð- herra, en kosið verður í það embætti á flokksþingi Verka- mannaflokksins 27. september nk. Þing TUC samþykkti tillögu um að Bretar dragi sig einhliða og þegar í stað út úr Efnahags- bandalaginu, en Foot, sem áður var andstæðingur veru í EBE, hefur sagt að semja verði um brottför Breta úr bandalaginu. Þá samþykkti þingið kröfur um að fjármagni verði veitt til atvinnuveganna til að skapa fleiri atvinnutækifæri, að inn- flutningsbönn verði sett á vissar vörutegundir og að brezkur ið- naður verði þjóðnýttur í auknum mæli. Gro Haarlem Brundtland Kare Willoeh Stjórnarskipti óumflýjanleg í Noregi: Vinstri flokkamir tapa stöðugt fylgi Osló.!). scplembor. FrA fréttaritara Mhl.. Jan-Krik l.auró utt Al’. SKOÐANAKÖNNUN, sem birt var í dag og talin er afar þýðingarmikil. hendir enn á ný til þess, að vinstri flokkarnir haldi ekki um stjórnartaumana á næsta kjortímahili. Stjórnarflokkarnir hafa tapað fylgi miðað við sams konar könnun í júní, en horgaralegu flokkarnir hins vegar ba-tt við sig. Verkamannaflokkurinn hefur tapað 1,4% miðað við júní og nýtur nú stuðnings 35,5% kjós- enda. Fylgi Venstre, sem stutt hefur stjórn Verkámannaflokks- ins, hefur einnig hrapað um 1,4% frá því í júní, eða úr 5,9% í 4,5%. Njóta stjórnarflokkarnir því fylg- is 40% kjósenda, miðað við 46,4% í síðustu kosningum. Skoðanakönnunin hefur ávallt þótt marktæk og jafnan hafa niðurstöður hennar orðið keimlík- ar kosningaúrslitunum. Gro Haarlem Brundtland, formaður Verkamannaflokksins, hefur þó enn neitað að viðurkenna að á hana halli. Hún heldur því statt og stöðugt fram, að óeining borg- aralegu flokkanna í ýmsum mál- um, kunni að verða Verkamanna- flokknum í hag á síðustu stundu. Hefur Brundtland haldið því fram, að flokkur sinn sé í sókn, þrátt fyrir að kannanirnar bendi til annars. Úrslit kosninganna eru talin miklu skipta fyrir pólitíska framtíð frúarinnar. Hægriflokkurinn hefur aukið fylgi sitt úr 31,5% í 32,1% frá því í júní. Kristilegi þjóðarflokkurinn hefur einnig bætt við sig og nýtur fylgis 11,4% kjósenda, en Mið- flokkurinn hefur hins vegar orðið fyrir fylgistapi miðað við júní- könnunina, hrapað úr 7,9% í 6,6%. Samtals njóta þessir þrír flokk- ar fylgis 50,1% kjósenda, miðað við 45,8% í kosningunum 1977. Búist er við því, að borgaralegu flokkarnir hefji stjórnarmyndun- arviðræður þegar að kosningum loknum. Búist er við að Kare Willoch veiti nýrri stjórn forystu, hvort sem um verður að ræða þriggja flokka stjórn borgaralegu flokkanna eða minnihlutastjórn Hægri flokksins. Skrílslæti eftir ósigur Oslú. 9. september. AP. ENSKIR knattspyrnuáhang- endur fóru með skrílslátum um miðhorg Óslóar í kvöld. eftir að enska landsliðið í knattspyrnu hafði heðið ósigur íyrir því norska í leik í riðlakeppni heimsmeistarakeppninnar í Osló. Vonir Englendinga um að komast í úrslitakeppnina á næsta ári eru þar með nánast úr sögunni. Enska liðið tapaði 1-2. Formælandi lögreglunnar í Osló sagði í kvöld, að margir ensku knattspyrnugestanna hefðu verið handteknir og fleiri handtökur lægju í loftinu, því enn stæðu yfir slagsmál er brotist hefðu út á ýmsum stöðum í Osló. Ólætin hófust á áhorfendapöllunum áður en leiknum lauk. Talið er að ensku áhorfendurnir hafi stofnað til slagsmálanna í öllum tilvikum, en þeir eru frægir fyrir að taka ósigri illa. Lögreglan var með mikinn viðbúnað á leikvanginum og utan hans, en fékk lítt við ráðið í fyrstu. Sjá nánar á íþróttasíðum. Frelsissveitir tapa Gulbahar Islamahad. 9. scptombor. AP. SVEITIR sovézkra og afganskra stjórnarhermanna hafa endur- heimt hina mikilva'gu borg Gulha- har. sem er 70 kílómetra norður af Kahúl. og eru nú að þröngva sér inn í I’anjshir-dalinn. sem frelsiss- veitirnar hafa á sinu valdi. að sögn vestrænna diplómata. Hermdu sömu fregnir, að mikið mannfall hefði orðið í hardögum um Gulbahar. Borgin hefur verið á valdi frelsissveitanna um margra mánaða skeið. Hún er við mynni Panjshir-dals og skammt frá þjóð- veginum er liggur frá Kabúl til sovézku landamæránna. Fregnir frá Kabúl herma enn- fremur, að síðustu daga hafi fjöldi særðra sovézkra og afganskra her- manna, sem þangað hafi verið fluttir til aðhlynningar, verið meiri en nokkru sinni fyrr. Tveir franskir ljósmyndarar sögðu, að frelsissveitirnar hefðu byrjað að draga sig út úr Gulbahar fyrir 12 dögum, er þeir voru á ferð í nágrenni borgarinnar. Óljóst er hvenær borgin féll í hendur so- vézku hersveitanna. Þrjár fyrri tilraunir sovézka innrásarliðsins til að taka borgina misheppnuðust.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.