Morgunblaðið - 10.09.1981, Síða 24

Morgunblaðið - 10.09.1981, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1981 Prjónastofan Dyngjan á Egilsstöðum: Fatlaðir og þroska- heftir í Sum- argleði... Fjölmenni var á skemmtun SumarKleðinnar fyrir fatiaöa ok þroskahefta í Tónabæ sl. sunnudaKkvöld ... Vandinn sá sami í PRJÓNASTOFUNNI Dynífj- unni á EKÍlsstöðum vantar nú fólk. Sagði Guðmundur Bene- diktsson. framkvæmdastjóri prjónastofunnar. að það hefði háð fyrirtækinu í morn ár. — Við erum með góðan kjarna í Innlend húsgagna- og innréttingaframleiðsla á í vök að verjast: Markaðshlutdeildin hefur hrapað úr 90% í 35—40% EINS og á undanförnum árum á húsgagna- og innréttingaiðnaður mjög í vök að verjast gagnvart innflutningi, en innflutningur húsgagna og innréttinga hefur aldrei verið meiri en á siðasta ári og benda tölur yfir innflutning fyrstu sex mánuði þessa árs tií þess, að hann muni enn aukast, segir m.a. í frétt frá Félagi húsgagna- og innréttingaframl- eiðenda. — Arið 1980 nam innflutningur húsgagna og innréttinga 1,55% af heildarinnflutningi landsmanna, en fyrstu sex mánuði þessa árs nam hann 1,64% af heildarinnfl- utningi. Gengisþróun undanfarinna mánaða hefur bitnað mjög á sölu erlendra húsgagna og innréttinga, sem á nær eingöngu í samkeppni við vörur frá Evrópu. Sem dæmi má nefna, að um 60% alls inn- flutnings húsgagna og innréttinga er frá Danmörku, Svíþjóð og Noregi, en gengi gjaldmiðla þess- ara landa hefur hækkað um aðeins 5% að meðaltali frá desember 1980 til júní 1981. Á sama tíma hefur launakostnaöur innlendra framleiðenda hækkað um 25%. Auk þess, sem að framan grein- ir, á innlend framleiðsla húsgagna og innréttinga í samkeppni við meira og minna ríkisstudd fyrir- tæki í nágrannalöndunum. Þrátt fyrir ítrekaðar óskir félagsins um aðgerðir af hálfu íslands til jöfn- unar mun á samkeppnisstöðu inn- lendra framleiðenda gagnvart erl- endum keppinautum, hefur lítið orðið um aðgerðir af hálfu stjórn- valda. Þrátt fyrir mikla aukningu framleiðni í húsgagna- og innrétt- ingaiðnaði á síðustu 10 árum hefur markaðshlutdeild innlendra framleiðenda húsgagna minnkað úr 90% niður í um það bil 50% 1979. Afleiðingar þessarar þróun- ar hafa m.a. orðið þær, að frá 1974 til 1979 hefur starfsmönnum í húsgagnaiðnaði fækkað úr 661 í 513, eða um 20%. Ef tekið er tillit til aukningar innflutnings frá 1979 til 1980 má búast við að hlutur innlendra framleiðenda á húsgögnum sé kominn niður í 35-40%. vinnu, sagði Guðmundur, en okkur hefur alltaf vantað fólk. Hér á Egilsstöðum er yfirfullt að gera í fiski, og sem betur fer er ekki atvinnuleysi, en eins og gefur að skilja bitnar það á fyrirtækjum sem þessum þegar mikið er að gera í fiskinum. Skortur á fólki stafar semsé ekki af uppgangi fyrirtækisins, heldur má segja hann sé landlægur hér. Vandamál okkar eru alveg þau sömu og prjónaiðnaðarins út um allt land. Dyngjan var rekin með tapi sl. ár og hefur ekki verið lokað, því menn vilja sjá til hvaða aðgerðar stjórnvöld hyggjast grípa til, og ég vona sannarlega að við fáum leiðréttingu, því nóg eru verkefn- in. Það eru margir samverkandi þættir sem orsaka vandann, geng- isþróun í Vestur-Evrópu og ótal skattar, og það sem lítur að fyrirtækjum er að auka framleið- Kaupmannafélag Vestfjarða: Varanlegar aðgerðir til stuðn- ings verslun í striálbýli AÐALFUNDUR Kaupmannafé- lags Vestfjarða var haldinn í Hnífsdal sl. laugardag. Þar las formaður, Benedikt Bjarnason, skýrslu félagsins, gjaldkeri þess lagði fram reikninga, Gunnar Snorrason, formaður Kaup- mannasamtakanna, flutti ávarp. og erindi fluttu þau Arndís Björnsdóttir, Óskar Jóhannsson og Friðrik Þór Óskarsson. Fund- arstjóri var Úlfar Ágústsson og fundarritari Gunnlaugur Jónas- son. Fundurinn gerði meðal annars eftirfarandi ályktanir: 1. Fundurinn beinir því til stjórn- valda, að sérstakar ráðstafanir verði nú þegar gerðar, til að bæta hag verzlana í strjálbýli með varanlegum aðgerðum. I því sambandi er bent á lækkun rekstrarkostnaðar með niðurfell- ingu á opinberum álögum og jöfnuði orkukostnaðar. Heimilað verði að reikna vexti af vöruvíxl- um smásölu inn í vöruverðið, eins og heildsölu er heimilt að gera. Öpnaður verði aðgangur að hagkvæmum lánafyrirgreiðslum fyrir smásöluverzlun í dreifbýli, hjá Byggðasjóði, sökum erfiðs birgðahalds. 2. Fundurinn lýsir stuðningi við framkomið frumvarp til breyt- inga á lögum um söluskatt, er varðar söluskattsálagningu á flutningskostnað vöru út um land. Fundurinn bendir hinsveg- ar á að stefna beri að því, að kostnaður við flutning á vöru heildverzlana og framleiðenda til ladsbyggðarverlzlana, verði felldur inn í heildsöluverð al- mennt, til þess að ná sama heildsöluverði um land allt. 3. Fundurinn krefst þess, að verzl- anir og aðrir þjónustuaðilar fái greiddan kostnað við innheimtu söluskatts og opinberra gjalda, enda er það augljóst sanngirn- ismál. 4. Fundurinn telur það grundvall- arþýðingu fyrir smásöluverzlun- ina, að álagning sé raunhæf í öllum vöruflokkum. Er brýnt, að nú þegar verði hafizt handa um endurskoðun og leiðréttingu á álagningarákvæðum í samræmi við raunverulegan dreifingar- kostnað. Stefna ber að því, að álagning verði gefin frjáls, þar sem næg samkeppni er fyrir hendi. Núverandi stjórn Kaupmanna- samtaka Vestfjarða skipa Benedikt Bjarnason, formaður, Heiðar Sig- urðsson, Gunnlaugur Jónasson, Margrét Guðbjartsdóttir og Hall- grímur Matthíasson. Aðalfulltrúi í fulltrúaráði Kaupmannasamtaka Islands er Jónatan Einarsson og varamaður hans er Úlfar Ágústs- Fundarmenn á aðalfundi Kaupmannafélags Vestfjarða. Og allir skemmtu sér konunglega ... Rannsóknaráð rikisins: Fundur vísinda- nefndar OECD - um vísinda- og tækniþróun á íslandi SÉRSTAKUR fundur OECD (Organisation for Economic Coop- eration and Development) verður haldinn um visinda- og tæknimál á íslandi í dag og á morgun, dagana 10. og 11. sept. Fundurinn er lokaþáttur úttektar sem gerð hefur verið á vegum vísindanefndarinn- ar. að tilhlutan Rannsóknaráðs ríkisins. Til undirbúnings ráð- steínu þessarar fór fram víðtæk upplýsingasöfnun um íslenzk vís- inda- og tækniþróunarmál, og sér- stök sendinefnd kynnti sér stöðu og horfur í rannsóknamálum á Íslandi og skrifaði álitsgerð sem liggja mun frammi á ráðstefnunni. Til fundarins er boðið fulltrúum íslenzkra rannsónastofnana og Há- skólans, embættismönnum og full- trúum atvinnuveganna. Fundinn sitja fulltrúar ýmissa aðildarríkja OECD þ.á.m. Norðurlanda, Hol- lands, Írlands o.fl. landa. Nokkrum erlendum gestum er boðið sérstak- lega til að flytja erindi um mál sem snerta áhugasvið íslands í þessu sambandi. Sendinefndin, sem áður er minnst á, er skipuð dr. Cristopher Freeman, prófessor frá Sussex-háskóla, og hr. James Mullin, ráðuneytisstjóra í kanadíska vísindaráðuneytinu, sem er núverandi forseti vísindanefndar OECD, og munu þeir leggja fyrir til umræðu spurningar sem varða stefnu íslendinga í vísinda-og tæknimálum. Er sérstaklega til þess ætlazt að íslenzkir þátttakendur velti þessu umræðuefni fyrir sér, en einnig munu fulltrúar annarra landa gera grein fyrir skoðunum sínum og reynslu. Til umræðu munu verða mál er geta varðað miklu um þróun atvinnu- og efnahagslífs, og uppbyggingu tækniþekkingar í landinu á komandi árum, ekki síst með hliðsjón af- ákvörðunum um nýtingu íslenzku orkulindanna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.