Morgunblaðið - 10.09.1981, Síða 32

Morgunblaðið - 10.09.1981, Síða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1981 Jón Þ. Árnason: Lífriki og lífshættir LXVIII Hungur og hraðgróðahyggja Spurninyin er: Hvenœr taka Jlokksmálamenn Nordurlanda ai) búa þjódir sínar undir aÖ innleysa mannúöarvixlana, eöa var rausiö kokslepja einber? Hún er allt að 9 klst. að sækja eldivið til að geta veitt sér og sín- um heita máltið. Offjölgun hins yfirgnæfandi meirihluta allsþurftaþjóða í samtökum Sameinuðu þjóðanna, sem um næstu aldamót mun að áliti færustu sérfræðinga telja nálægt 5.000.000.000 af áætluð- um 6.300.000.000 mannfjölda á jörðinni, eða yfir 80%, hlýtur að sjálfsögðu að krefjast skjótra og rösklegra aðgerða. Sérstaklega af hálfu þeirra, er í þrábyiju hafa staðhæft og staðhæfa, að þeim séu engin veraldleg vanda- mál ofvaxin. Hér á ég auðvitað við mann- valið með „ismana" sína og allar »hyggjurnar“, sem fyrirhafnar- lítið, jafnvel af sjálfu sér, unga út úrlausnum við hvers kyns kröggum og klípum, áföllum og erfiðleikum, jafnóðum og að höndum bera. Einkum þó í orðum — í milljónatali. Og á pappírum — í tonnatali. Brosir dýrð í norðri Nú er því hins vegar þannig farið, að skvaldrið eitt, jafnvel þótt blaðfest sé, gerir nákvæm- lega enga stoð. Það getur, gert, og gerir raunar oftast, illviðráð- anlega bolvun, vekur í bezta falli meðaumkvun og aðhlátur. Áhættulítið mun því mega halda fram, að ræðustraumar og papp- írsskriður, sem átt hafa upptök sín í glerhúsinu á Manhattan, hafi iðulega gefið fullt tilefni til slíkra geðhrifa. Á.m.k. ekki síður en ef þróðursonur Gróu á Leiti, forsætisráðherra Islands á með- an Ólafur R. Grímsson og Þórar- inn Þórarinsson fá ráðið, og hinir 3 og 14 meðliðhlaupar hans gæfu á eigin kostnað út bækur, sem bæru titlana: „Drengskapur er vort aðalsmerki" (metsölu- bók) og „100 ráð við hégóma- skap“. Reyndar er líklegt að áminnzt- ir „stjórnmálamenn" og aðrir íslenzkir áhlaupamenn fyrir framgangi bræðralags og jöfn- unar með mönnum, hljóti að hafa öðru þarfara að sinna, fyrr en margur hyggur, heldur en að efla bókmenntalega plönturækt, þó svo að eftirsjá yrði sár. Það líður sem sé óðum að skuldadögum. Fylgispekt íslands og annarra Norðurlanda við heimtufrekju vanþroskaþjóða á alþjóðavettvangi verður tæpast goldin með orðunum og handa- uppréttingunum einum saman öllu lengur. Raunveruleikinn þröngvar sér miskunnarlaust í fangið: Dekurbörnum Sameinuðu þjóðanna fjölgar með sprengju- krafti. Bara af þeim sökum einum verður þröngbýli þeirra stöðugt tilfinnanlegra. Þegar þar við bætist, að þær bylta landrými, sem af náttúrunnar hendi var Padís líkast, í urðir og eyðimerkur af ofurkappi, er engu líkist fremur en sjálfs- morðsæði, liggur í augum uppi, að milljarðar vonleysisheimsins muni krefjast þegnréttar á með- al þjóða, sem byggja strjálbýl lönd og hafa átt þá trúarjátn- ingu helgasta, „að allir menn eru skapaðir jafnir", auk annarrar „lífsSpeki" af svipaðri sort. Allar Norðurlandaþjóðirnar eru fámennar, þær eiga yfrið nógu og vannýttu landrými að fagna. Fólksfjölgun á Norður- löndum fer lækkandi, eins og reyndar í flestum öðrum löndum hins hataða hvíta kynþáttar (afsakið hið ólýðræðislega, ókristilega og bannfærða orðl). Þær hafa áratugum saman tekið kröftuglega undir kröfur fagur- litu þjóðanna um að auðæfi, sem vestrænar þjóðir einar gætu nytjað á og undir botni heimsút- hafanna, skuli umyrðalaust telj- ast „sameign alls mannkyns", og fylgdu þeim eftir með að taka undir þótanir um „að hrinda Bandaríkjamönnum niður af 38. hæð“, þegar þeir, öllum að óvör- um, fóru fram á umhugsunar- frest. Og á sínum tíma var það einungis vegna samstöðu Banda- ríkjarnanna og Rússa, að þeim tókst ekki að fá „rétt“ ölmusu- ríkjanna til hugsanlegra nátt- úruauðæfa á tunglinu viður- kenndan og staðfestan að al- þjóðalögum. Af ofangreindum ástæðum, og vissulega ýmsum öðrum, ættu engin sérstök vandkvæði að hljótast af aðflutningum nokk- urra milljónatuga manna — sem „allir eru skapaðir jafnir" — í kærleiksfaðm þjóða, er skilyrð- islaust hafna öllum „fordómum" út af varhugaverðum áhrifum og afleiðingum gjörólíkra lífsvið- horfa, lífshátta, trúarbragða, siðgæðisvitundar, erfðaeigin- leika, arfleifðar, uppruna, hæfi- leika, umhverfis o.s.frv., etc. Að því er Island varðar sér- staklega, ætti margföldun vinnuafls að koma sér einkar vel, því að ekki er alveg víst, að bændur og sjómenn á góðum aldri reynist nógu margir og ginkeyptir fyrir að leigja sig til sálardrepandi færibandavinnu í þeim fjölda stóriðjubákna, sem allir íslenzkir flokkaforstjórar eru á einu máli um, að verða hljóti bjargræði ættjarðarinnar og ómetanleg prýði. Ógildar afsakanir Óbótaverk þau, sem mannkyn- ið hefir frá upphafi unnið á náttúruríkinu, verða sjálfsagt aldrei tíunduð til neinnar hlítar. Gengnar kynslóðir eiga sér sannarlega gildar málsbætur. Þær vissu ekki betur en að gjafmildi lífríkisins og auður jarðar væru takmarkalaus og óþrjótandi. Allar götur fram á fyrri helming líðandi aldar mátti með góðum vilja fallast á að sú fávísi væri fyrirgefanleg, einkum að því er varðar fólk, sem varla átti lífsvon til næsta dags, nema grípa til þess, er hendi var næst. Oftast voru lífsbjargir síður en svo auð- fengnar, því að mikið vantaði á, að afl entist til teljandi ofnýt- ingar. En upp úr miðri 20. öld, alveg þó sérstaklega eftir að The Club of Rome birti 1. skýrslu sína (Dennis Meadows, Donella Meadows o.fl.: „The Limits to Growth") árið 1972, féllu allar afsakanir fyrir frekari náttúru- spjöllum og lífríkisránskap dauðar niður. Með birtingu hennar höfðu öll „rök“ hagvaxt- arboðenda átt að vera úr sög- unni, eða a.m.k. aftökuverð. Sú hefir þó ekki orðið raunin á. Áþreifanlegar og lífsógnandi áhrif vinstrimennsku hafa ekki gert mikið meira en að vekja almennt umtal og nokkra valda- litla, en þeim mun þekkingarrík- ari einstaklinga og ábyrgari í hugsun og störfum, til athafna, sem eftir atvikum verður þrátt fyrir allt að teljast bærilegur árangur. Hins vegar fer fjarri að hinna minnstu straumhvarfa hafi orð- ið vart. Enn sem áður er eitri spúð viðstöðulaust út í and- rúmsloftið; vötn, ár, fljót og höf menguð skolpi, sorgj)g banvæn- um úrgangi efnaiðnaðarins. Dýralífi er útrýmt hömlulaust. Akrar, engi og önnur gróðurlönd eru lögð undir malbik og stein- steypu, og ofurseld sóknarmætti eyðimerkurinnar. Síðan Vesturlönd, aðallega sökum ofurvalds þrælstjórnar- ríkjanna og frjálslyndisafla víðs vegar um heim, hrintu nýlendum sínum á vald eigin ógæfusmíða, tók vitanlega allt á hraðrás niður í botnlaust fen. Þannig hlaut óhjákvæmilega að fara; og ekki sízt af því að hagvaxtartrú- aðir og aðrir efnishyggjumenn töldu hinum nýfrjálsu trú um, að þeir gætu náð framleiðslu- og neyzlustigi kapitaliskra þjóðfé- laga samkvæmt nokkrum snögg- soðnum áætlunum innan fárra ára. Ekki var litið við að hvetja þá og hjálpa til að varðveita og efla náttúrubundna bjargræðis- vegi sína, fyrst og fremst land- búnað (akuryrkju og kvikfjár- rækt). Slíkt var ekki sæmandi, það þótti ekki nógu fínt. „Velferð“ í sandi og ösku Við hæfi þóttu stálverksmiðj- ur og skrifstofuhald, flókinn efnaiðnaður og skýrslugerðar- vélar, farþegaflugvélar og einka- bílar, benzínsölustjiðvar og lúx- ushótel, skemmtistaðir og emb- ættismannahallir. Þetta og því- umlíkt var álitið affarasælast ölium, sem voru að kveðja stein- öldina og áttu að þjappa sér saman í milljónaborgum til að hagvaxa. Afleiðingarnar gátu þess vegna ekki með nokkru móti orðið aðrar cn þær urðu og eru: Eymd og volæði, sem ekki aðeins leiðir hina voluðu fram af glöt- unarbarminum, heldur ógnar líka beinlínis tilveru allra ann- arra jarðarbúa. Ég á vitanlega ekki við stríðs- aðgerðir öreigaþjóðanna gegn „ríku þjóðunum", heldur stríð þeirra gegn höfuðskepnunum, sér í lagi gróðurríkinu, fyrst og fremst regnskógabeltum jarðar. Viðar- og viðarkolabrennsla er nú talin 62% í Asíu, 57% í Afríku, 37% í Suður-Ameríku — en aðeins 2% í Evrópu — af heildarnotkun hitaorku. Þessi hlutföll segja ekki alla söguna, því að eyðing regnskóga hefir áhrif um allan heim, hin gríðar- lega tortíming þeirra hefir ekki aðeins í för með sér dauðadóm yfir þeim, er búa í viðkomandi löndum, hún gæti ein sér orðið dauðadómur yfir öllu mannkyni. Vísindamenn hafa rökstuddar áhyggjur af, að hin „grænu belti breytist í rauðar eyðimerkur", ef hið margbrotna, líffræðilega hringrásarkerfi skóganna rask- ast. Steppurnar og eyðiflæmin, sem til yrðu vegna ágengni manneskjunnar, myndu þá verða eins konar háhitaofnar, knúðir sólarorku, er gætu hraðað koltvíildisþéttun í gufuhvolfinu langt yfir hættumörk, að því er „Der Spiegel" (Nr. 30, 20. júlí þ.á.) segir. Og ennfremur: „Ef regnskógarnir verða úr leik sem náttúrlegur heimshita- stillir, gætu sífellt svæsnari þurrkar, flóðahörmungar og veðrahamhleypur haft heims- slitaafleiðingar í för með sér. Ennþá eru vísindamenn þó ekki sammála um, hversu afdrifarík- ar hugsanlegar veðurfarsbreyt- ingar kynnu að verða. Samt virðist óyggjandi, að bara einnar gráðu hitahækkun andrúms- loftsins myndi leiða af sér, að kornuppskera Bandaríkjanna, sem milljónir manna í heiminum eiga líf sitt undir komið, muni minnka um ellefu prósent." Engin grið Samt sem áður er haldið áfram að höggva niður og bræla upp. Fyrir stundarhag þykir framtíð fórnandi (samkv. „Di- agnosen", „The Ecologist", „Mut“, „Der Spiegel", „Environ- ment“, í ágúst þ.á.): Á síðastliðnum 100 árum hefir regnskógabelti Vestur-Afríku rýrnað úr 700.000 km* í 190.000 km2, og með sama áframhaldi fellur síðasta tré Fíiabeins- strandarinnar árið 1985. Við rætur Himalajafjalla hafa Indverjar ráðið niðurlögum yfir 5.000.000 ha regnskóga. Afleið- ing: Hinn nakti og skorpni jarð- vegur getur ekki drukkið í sig regnfeikn monsunvindanna, þau belja fram sem brún leðja Gang- esfljóts, er ber fram 6.000.000 t af frjósamri gróðurmold árlega á haf út. Þúsundir Indverja láta lífið í flóðum, milljónir missa heimili sín. Af frumskógabelti Mið- Ameríku (Mexiko-Panama) er aðeins Vs hluti eftir. Á Amazonsvæðum Brasiliu, mesta regnskógabelti heims, verða milljónir hektara bráð níðhögga ár hvert, nú þegar hefir yfir 10% verið breytt í sand og ösku. Árið 1981 lifa um 13.000.000 manna í „Polígono das Secas", á norðausturhluta þurrkasvæðisins, á þröskuldi hungurdauðans, en þar hefir varla komið dropi úr lofti í 2 ár. Og í Suðaustur-Asíu geysar blátt áfram of 'knaræði gegn skógunum. Á árunum 1950— 1973 24-faldaðist útflutningur timburs. í ofhlöðnum björgunarbát Gamlir „fordómar" Stálverksmiðjur ístað akurvrkju

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.