Morgunblaðið - 10.09.1981, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 10.09.1981, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1981 37 x. félk f fréttum / * Olivia og Cliff kœrustupar? + Olivia Newton-John og Cliff Richard hafa þekkst í 10 ár, en nú síðustu árin hafa kynni þeirra orðið nánari að því er fróðir halda fram. Þegar Cliff var á sínu fyrsta söngferðalagi í Bandaríkjunum nú ekki alls fyrir löngu, var Olivia allt í einu komin til Los Angeles og þau sáust víða saman og þótti mjög gott á milli þeirra. Þægilegar hárgreiðslur Hvernig lýst ykkur á þessar hárgreiðslur fyrir veturinn? Það sem þær eiga sameiginlegt allar, er að það þarf ekki mikið fyrir þeim að hafa. Er það ekki einmitt þannig, sem konurnar, sem vinna úti, vilja hafa það? Liz Taylor segir ástar- sambandið uppspuna + Liz Taylor er sögð bálreið út í slúðurdálkahöfunda vegna frctta þess efnis. að hún og leikstjórinn Zev Bufman eigi í ástarsambandi. Zev Bufman leikstýrir verkinu „Litlu refirnir“ á Broadway en Liz Yaylor fer með aðalhlutverk þess leiks og þykir hafa staðið sig með einstakri prýði í hlut- verki sínu. Hvað varðar ástarsamband þeirra Bufman og Taylor, þá segir Liz að hér sé um algjöran þvætting að ræða, því hún sé alltaf jafn ástfangin af þing- manninum sínum, John Warner. Segist hún alltaf taka flugvél frá New York til Washington, þegar hún eigi frí, þó það sé ekki nema eina kvöldstund. Segir Liz ennfremur að það sé hreint og klárt ógnvænlegt, hvernig blöðin geti spilað með líf fólks, eins og þeirra í þessu tiifelli. Zev Bufman ber þessa frétt líka til baka og segist vera búinn að vera hamingjusamlega giftur í 20 ár og hann eigi 3 myndarleg börn. Er Ingemar Stenmark í giftingarhugleiðingum? + Ingemar Stenmark. skíðakappinn frægi. sem nú býr í Mónakó. og vinkona hans, Ann Uvhagen, sjást mikið saman og er sagt að mjög fari vel á með þeim. Ann. sem hefur starfað sem flugfreyja hjá Lufthansa. hefur lagt starfið á hill- una um tíma. Segja sænsku hlöðin að allir búist við að skötuhjúin fari að gifta sig inn- an tiðar. Joe Jaekson þykir einhver skemmtilegasti karakter nýbylgjunnar. Uppátæki hans hafa verið margvísleg og ætið hefur hann komið glettilega á óvart. Joe Jackson dustar nú rykið af gömlum og góðum „djömp og djæv“- slögurum á 4. plðtu sinni. Spilagleðin og fjörið er ótrúlegt og það stenzt enginn Joe Jackson snúning þegar sveiflugleði Jumpin’ Five nær yfir- höndinni. Graham Maby Niek Weldon Joa Jackaon Larry Tolfraa Raul Oliviara Peta Thomax Dova Bitelli Heildsöludreifing stdðorhf Símar 85742 og 85055.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.