Morgunblaðið - 21.10.1981, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1981 1 1
Beztu þakkir til
fjármálaráðherra
eftir Kjartan
Jóhannsson
Ragnar Arnalds, fjármála-
ráðherra, hefur séð ástæðu til
þess að ráðast að mér með
gífuryrðum í Morgunblaði,
Þjóðvilja og ríkisútvarpinu.
Svo mikið lá við, að Þjóðvilj-
inn tók málið fyrir á þremur
stöðum í sama tölublaðinu.
Ástæðan er sú, að ég benti á
veigamiklar veilur í fjárlaga-
gerðinni og upplýsti að hinu
leytinu, að ráðherrann hefði
beinlínis farið með rangt mál,
þegar hann fullyrti frammi
fyrir alþjóð, að ekki væri í
frumvarpinu neinn liður
vegna efnahags- og kjara-
mála. Um seinna atriðið er
það að segja, að ráðherrann,
Ragnar Arnalds, hefur þegar
étið ofan í sig fyrri ummæli
og þrátt fyrir gífuryrðin í
minn garð, segir hann að það
sé „hárrétt" hjá mér að þessi
liður sé í frumvarpinu. Ekki
eykur það trúverðugheit
ráðherrans að afneita lið sem
er í frumvarpinu, ráðast að
þeim sem bendir á að svo sé,
en játa því svo í leiðinni, að sá
sem úthúðað er hafi rétt fyrir
sér.
Varðandi fyrra atriðið er
það að segja, að svo ágætlega
tekst til hjá ráðherranum í
Morgunblaðsgrein sinni, að
hann tekur dæmi um, hvernig
útgjöld eru flutt að geðþótta
milli A- og B-hluta fjárlaga.
Það er því óþarfi fyrir mig að
standa í sérstökum frekari
útskýringum. Mér nægir að
láta orð Ragnars sjálfs sanna
mál mitt. Þannig segir orð-
rétt í grein ráðherrans:
„Fjármagnsútgjöld
Kröfluvirkjunar hafa ýmist
verið færð í A-hluta eða
B-hluta. Árin 1975—78
voru þau færð í B-hluta,
1979-81 í A-hluta, en 1982
(þ.e.a.s. í fyrirliggjandi
frumvarpi) í B-hluta aftur.“
Kjartan Jóhannsson
Hvað þetta merkir má líka
lesa í grein ráðherrans, því að
hann segir á öðrum stað:
„Ef fyrirtæki voru færð í
stórum stíl í A-hluta í
B-hluta og þau síðan látin
taka lán mætti með rökum
segja að ríkisútgjöld kæmu
ekki til skila.“
Svo rekur ráðherra, að það
sé nú reyndar svipaða sögu að
segja um svonefndar byggða-
línur, en skýlir sér á bak við,
að svona hafi þetta verið áð-
ur. Ráðherra afneitar því
ekki, að hér sé ranglega að
farið. Sannfæringin er greini-
lega sú, að aðferðin sé röng,
því hann segir í grein sinni,
að þetta sé atriði sem „orkar
tvímælis".
Enn getur ráðherra þess að
framkvæmdir séu færðar til
gjalda í A-hluta, þegar þær
skili ekki arði í ríkissjóð.
Þetta er einmitt mergurinn
málsins, en þessi regla er
bara þverbrotin í fjárlaga-
gerðinni, eins og dæmið, sem
ráðherrann rekur sjálfur í
grein sinni, sannar.
Ég er ráðherranum vita-
skuld þakklátur fyrir að
styðja málflutning minn þeim
ágætu rökum, sem í grein
hans birtast. Hitt á ég erfið-
ara með að skilja, hvers
vegna ég er svona vondur karl
og á að hljóta öll þessi fúkyrði
af hálfu ráðherrans fyrir að
benda á þær veilur og skekkj-
ur í fjárlagagerðinni, sem
brengla niðurstöður, úr því að
hann sannar svo eftirminni-
lega, að ég hef á réttu að
standa.
„Viðráðanleg-
ir“ biðlistar?
— leiðrétting
í FRÁSÖGN Mbl. af umræðum í borg-
arstjórn Reykjavíkur í gær kom fram
að Markús Orn Antonsson, borgarfull-
trúi, hefði getið þess í ræðu, að fjórtán
hundruð börn hefðu verið á biðlistum
dagvistarstofnana Reykjavíkurborgar
við síðastliðin mánaðamót.
Nokkrar línur féllu út í vinnslu
blaðsins, en í sambandi við þetta
mál vitnaði Markús í blaðaummæli
Guðrúnar Helgadóttur þar sem hún
hefði tekið fram að biðlistar dag-
vistarstofnana væru „mun viðráð-
anlegri nú en áður“.
Varpaði Markús fram þeirri
spurningu í umræðunum, hvort lík-
legt væri að foreldrar þessara fjór-
tán hundruð barna tækju undir um-
mæli Guðrúnar um „viðráðanlega“
biðlista.
2,9% hækkun láns-
kjaravísitölu
SEÐLABANKINN hefur nú reikn-
að út lánskjaravísitöluna fyrir nóv-
ember nk. og reynist hún vera 282
stig. Lánskjaravísitalan fyrir sept-
embermánuð var 274 stig. Er hækk-
unin því 2,9% milli mánaða.
Stórleikur í
Höllinni í kvöld
l
l
VIKINGUR
FH
Kl. 20.
Nú er spenna í 1. deildinni.
Víkingar nú er nauðsyn aö fjölmenna
Ykkar stuöningur
æ U lillR í HÖlUWA
sjÁio babai rULBK
u Aiinvki atti cnr cnci
HANDKNATTLEIKSDEILD VIKINGS
Þeir fremstu
ve/ja
HLJOMTÆKJADEILD
Éjp KARNABÆR
W HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999
með
„Linytron Plus
myndlampa er
japönsk tækni
í hámarki.