Morgunblaðið - 21.10.1981, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1981
Konrád Axelsson og llörður Arinbjarnar, en þeir reka félagið Myndkynn-
ingu sem stendur að sýningunni.
Meistarar á Kjarvalsstöðum
Al) KJARVALSSTt>1)1!M stendur nú yfir sýning á
um 130 grafíkmyndum eftir fjölda franskra mynd-
listarmanna. Sýningin var opnuð laugardaginn 17.
október sl. og verður opin daglega frá 14—22 til 1.
nóvember nk. llm 50 listamenn eiga myndir á
sýningunni og má meðal þeirra nefna þá ('hagall,
Braque, Matisse, Picasso, Miro, Vasarely, Dorny
og fleiri.
Blm. Morgunblaðsins leit þar við í vikunni og
hitti fyrir þá Hörð Arinbjarnar og Konráð Ax-
elsson, en félagið Myndkynning, sem þeir reka
saman, stendur að sýningunni. Hörður var
spurður um aðdraganda sýningarinnar:
„Félagið Myndkynning hefur frá 1976 haldið
árlegar sýningar hér að Kjarvalsstöðum, og er
þetta fimmta sýningin á vegum félagsins; hér
hafa verið haldnar sýningar ’76 að síðasta ári
undanskildu. Á flestum sýningunum hafa verið
blönduð myndverk, en ein sýning var haldin á
verkum Salvador Dali og á þessari sýningu eru
eingöngu grafíkmyndir eftir franska myndlist-
armenn."
Er þetta sölusýning?
„Já, nær allar myndirnar eru hér til sölu,
verðið á myndunum er mjög viðráðanlegt, flest-
ar myndirnar kosta frtl.000 til 3.—4.000, en
dýrasta myndin er eftir Miro og kostar um
60.000.“
Er ekki mikið verk að setja upp svona sýn-
ingu?
„Jú, það er búið að vinna hér baki brotnu.
Jóhannes Jóhannesson málari og Guðmundur
Benediktsson settu upp myndirnar og hafa unn-
ið hér mjög gott verk.“
Við lítum í kring um okkur í salnum, og
hvarvetna blasa við litrík myndverk, sett upp í
skemmtilegum umgerðum. Á einum veggnum
gegnt inngöngudyrunum hanga nokkrar
svarthvítar grafíkmyndir eftir Pablo Picasso,
einhvern frumlegasta listamann fyrr og síðar.
Þar rétt hjá eru myndir efti Théo Tobiasse úr
litröðinni um ævintýri H.C. Andersen í líflegum
og skærum litum. í sýningarskrá segir að Tobi-
asse hafi ekki snúið sér að hreinni myndlist fyrr
en á fertugsaldri en hann hafði mest unnið að
auglýsinga- og skreytilist.
í salnum má einnig sjá myndir eftir Victor
Vasarely en hann er einn af áhrifamestu lista-
mönnum Frakklands, og vinnur myndir í
„optískum" formstíl. Þrjár myndir á sýningunni
eru eftir Joan Miro, og er ein þeirra dýrasta
myndin sem er til sölu og kostar eins og áður
segir rúmar 60.000 krónur. Miro er meðal
fremstu listamanna samtímans og hefur sér-
stakan stíl sem engum öðrum er líkur. Svo vitn-
að sé aftur í sýningarskrána, stendur þar að
hann hafi eftirfarandi að segja um myndlifun
sína:
„Óhreyfileikinn heillar mig. Flaska eða glas
eða stór steinn á auðri sjávarströnd eru í sjálf-
um sér dauðir hlutir. í ímyndun minni verða
þessir hlutir þó upphaf eða kveikja mikillar
hreyfingar. Kyrrð þeirra tengist í vitund minni
óendanlegri rúmkennd, án upphafs eða endis.
Því speglast slík form í list minni eins og glóð-
arhnettir sem eldfjall spýr, og þeir nema ekki
staðar innan myndflatarins, heldur stefna
langt, langt út fyrir hann ...“
Við göngum út undir þessum orðum Miros og
þökkum Myndkynningu þetta framtak.
Tölvunámskeið
★ Viltu skapa þér betri stööu á vinnumarkaönum?
★ Viltu læra aö vinna meö tölvu?
★ Á námskeiöum okkar lærir þú aö færa þér í nyt
margvíslega möguleika sem smátölvur, (micro-
computers) hafa upp á aö þjóöa fyrir viöskipta- og
atvinnulífiö.
★ Námiö fer aö mestu fram meö leiösögn tölvu og
námsefniö er aö sjálfsgöu ailt á íslensku. Námsefniö
hentar auk þess vel fyrir byrjendur.
★ Á námskeiöunum er kennt forritunarmáliö BASIC, en
þaö er langalgengasta tölvumáliö sem notaö er á
litlar tölvur.
Innritun í síma 25400
GOÐ MYND
er
vinsæl
jólagjöf
Pantiö
tímanlega
Verid
velkomin
í myndatöku
hiá mér.
Verslið hjá
fagmannmum
LJOSMYNDAÞJONUSTAN S.F
LAUGAVEGI 178 REYKJAVIK SIMI 85811
í stuttu máli
Stífla brast
Nýju Delhi, 19. október. Al*.
FUNDIST hafa lík 120 manna,
er fórust þegar stífla brast í
Karnataka-fylki árla í dag og
óttast er, að enn fleiri hafi far-
ist. Þúsundir manna misstu
heimili sín og uppskera eyði-
lagðist. Flestir íbúar á svæð-
inu við Gopinathapura, þar
sem stíflan var, voru sofandi
þegar stíflan brast. Mikil flóð
urðu og sópuðust vegir m.a. í-
burtu.
— O —
50 bátar sukku
Keirút, 19. október. Al*.
KÁRVIÐRI á l’ersaflóa sökkti
um 50 fiskibátum í nágrenni
Hormuz-sunds, skammt frá
hafnarbænum Bandar Abbas,
um helgina. Ad sögn útvarpsins í
Teheran hafa lík 57 sjómanna
fundist, en óttast er, að um 200
hafi farist í fárviðrinu.
— O —
Lögreglumenn
skotnir
Mílanó, 19. október. Al*.
TVEIR lögregluþjónar týndu
lífi og sá þriðji slasaðist lífs-
hættulega í skotbardaga við
vopnaða menn í miðborg Míl-
anó í dag. Mennirnir vopnuðu
komust undan, en lögreglan
stöðvaði bíl þeirra á venjulegri
eftirlitsferð. Þeir komust und-
an eftir skotbardagann. Talið
er, að þeir hafi annaðhvort
verið hryðjuverkamenn eða fé-
lagar í einhverri neðanjarð-
arhreyfingu. Skipst var á um
30 skotum, og særðust tveir
vegfarendur lítillega í bardag-
anum.
— O —
Manntjón
í jarðskjálfta
( arat as, 19. októbor. Al*.
AÐ MINNSTA kosti 10 fórust,
er jarðskjálfti, að styrkleika 5,8
stig á Richterkvarða, skók hér
uð á landamærum Kólumbíu og
Venezúela um miðnætti á laug-
ardagskvöld. Tugir manna slös-
uðust og mikið af húsum hrundi
eða stórskemmdist.
— O —
Kopelev fær
friðarverðlaun
Krankfurl, 19. október. AP.
VESTUR-þýskir bóksalar
veittu sovéska andófsmannin-
um Lev Kopelev hin árlegu
friðarverðlaun sín í gær fyrir
ritverk hans og þýðingar á
verkum þýskra höfunda.
Kopelev, sem nú er 69 ára að
aldri, var sviptur sovéskum
ríkisborgararétti fyrr á þessu
ári og býr í V-Þýskalandi.
Verðlaunin, sem eru að upp-
hæð 25 þúsund mörk, eru talin
æðstu menningarverðlaun sem
veitt eru árlega í V-Þýska-
landi.
í tilkynningu samtakanna
segir, að þrátt fyrir stanslaus-
ar ofsóknir, hafi Kopelev ekki
gefist upp við ritstörfin og
baráttu sína fyrir mannrétt-
indum í Sovétríkjunum.
— O —
Fyrsta
handtakan
Karlsruhr, 19. októb«‘r. Al*.
FYRSTA handtakan vegna árás-
arinnar á yfirmann Bandaríkja-
hers í Evrópu 15. sept. fór fram í
dag.
Ung kona frá Frankfurt sem
stundar háskólanám var hand
tekin á Tóstudag fyrir að kaupa
tjald sem fannst skammt frá
staðnum þar sem skotið var á
Frederick Kroesen hershöfð-
ingja.
Talið er að árásarmennirnir
hafi legið í leyni í tjaldinu áður
en þeir veittu hershöfðingjanum
fyrirsát.