Morgunblaðið - 21.10.1981, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 21.10.1981, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1981 15 Símamynd AP. Kreml-stjórnin veitti í gær skrifstofu PLO-samtakanna í Moskvu fulla stjórnmálalega viðurkenningu, þannig að framvegis mun skrifstofan njóta sömu réttinda og sendiráð erlendra ríkja í borginni. Brcsneff, forseti Sovétríkj- anna, tilkynnti Yasser Arafat, leiðtoga PLO, um hina nýju upphefð á sérstökum fundi í Kreml. Litið er á viðurkenninguna sem stóraukinn stuðning Sovétstjórnarinnar við PLO og vilja hennar til að láta til sín taka í Miðausturlöndum, en vestrænir stjórnmálafræðingar telja að Sovétmönnum sé mikið í mun að styrkja stöðu sína þar eftir að erkióvinurinn, Sadat, er úr sögunni. Ljósklæddi maðurinn við hlið Arafats á myndinni er Ponomarev, en síðan koma Brésneff og Gromyko, utanríkisráðherra. AP-símamynd. Antwerpen: Mikil sprenging í gyðingahverfi Ævintýralegur flótti frá AusturÞýskalandi Yordingborg, 20. október. AP. TVENNUM hjónum og lítilli tveggja ára gamalli stúlku tókst um helgina að flýja frá AusturÞýskalandi yfir til Ilanmerkur á kajökum og þykir furðu gegna, að þau skyldu komast lífs af úr sjóferðinni, sem tók þau 14 stundir. „I»að er kraftaverki líkast, að þau skyldu ekki farast á leiðinni,“ var haft eftir Erik Rasch, lögreglustjóra í Vordingborg. „Veðrið var slæmt, úrhellisrigning og ferðin öll hin hættulegasta.“ Fólkið, sem bjó í Austur-Berlín, lagði upp snemma á sunnudags- morgni á fjórum kajökum og hafði hvorki með sér vistir né hlífðarföt til að vekja ekki grunsemdir ann- arra. Þau höfðu hins vegar með- ferðis lítinn utanborðsmótor, sem haldið er á með höndunum, og með hans hjálp gátu þau látið einn kaj- akann draga hina. Þegar þannig hafði til gengið í tíu tíma hvolfdi tveimur bátanna og við það fóru önnur hjónanna í sjóinn. Þeim tókst þó að komast upp í hina kajakana tvo við illan leik og hírðust þar aðþrengd í fjóra tíma þar til þau rak að landi á dönsku eynni Mön. Fólkið var að vonum aðfram- komið af vosbúð þegar það komst á land, en það var starfsfólk á veitingastað á ströndinni sem f.vrst kom auga á það. Strax var hlúð að fólkinu, það drifið í heitt bað og fengin þurr föt, og eftir góða næturhvíld hafði það náð sér að fullu. Þá var hjónunum og litlu stúlkunni komið í Eystrasaltsferj- una til Vestur-Þýskalands, en þar ætla þau að biðjast hælis. Antwcrpon, 20. okt. AP. TVÆR KONUR létust, 16 særðust alvarlega og 83 fengu mjnniháttar meiðsl þegar sprengja sprakk í bíl í gyðingahverfi Antwerpen-borgar í Belgíu í morgun. Sprengingin varð rétt við lítið samkunduhús en þar var mannmargt í morgun vegna sér stakrar hátíðar gyðinga. Sprengingin var svo öflug, að nálæg bygging skemmdist það mikið, að óttast er að hún hrynji, og einnig brotnuðu rúður í aðal- tarstöð Antwerpen- Vikið frá vegna óvar- legra orða Wa.shinglon, 20. okl. AP. HÁTTSETTIIM herforingja var í dag vikið úr störfum fyrir Þjóðaröryggis- ráðið bandaríska vegna þess, að hann hafði komist þannig að orði í ræðu, sem hann hélt, að „Kússar eru þegar knmnir af stað — og munu brátt láta til skarar skríða". Reagan Bandaríkjaforseti sagðist vera ósammála þessum orðum her- foringjans, Robert L. Schweitzers að nafni, en hrósaði honum þó, sagði, að hann væri „góður hermaður", sem áfram myndi gegna þýðingarmiklum störfum fyrir land og þjóð. Yfirlýsing Reagans kom nokkru eftir að háttsettur embættismaður Hvíta hússins sagði fréttamönnum, að Schweitzer hefði verið látinn fara frá sem helsti ráðgjafi Þjóðarörygg- isráðsins í varnarmálum og fluttur til starfa fvrir herinn. Veður Akureyri vantar Amsterdam 8 skýjað Aþena 28 heiðskírt Barcelona 22háltskýjaö Berlin 9 skýjað Briissel 12 rigning Chicago 12 skýjað Denpasar vantar Dublin 14 heiðskírt Feneyjar 18 skýjaö Frankturt 12 rigning Færeyjar 3 rigning Gent 15 skýjað Helsinki 5 rigning Hong Kong 26 skýjað Jerúsalem 27 heið8kírt Jóhannesarborg 14 skýjað Kaupmannahófn 9 rigning Kairó 31 HeiÖ8kírt Las Palmas 23 skýjað Lissabon 27 heiðskírt London 13 rigning Los Angeles 36 heiöskírt Madrid 25 heiðskírt Malaga 24 skýjaö Mallorka 22 skýjaö Malaga 24 skýjað Mexíkóborg 17 skýjaö Miami 30 heiðskírt Moskva 4 skýjað New York 11 heiðskirt Nýja Delhí 35 heiöskírt Osló 7 heiðskiit ParÍ8 15 skýjað Perth vantar Reykjavík 1 lettskýjaö Ríó de Janeiro 25 rigning Rómaborg 24 heiðskirt San Francisco 21 heiðskírt Stokkhólmur 6 skýjaö ASSOCIATED PRESS Jaruzelski — síðasta hálmstrá Sovétmanna Moskvu, 20. október. AP. HEILLAÓSKIR Brezhnevs Sovét- forscta til Jaruzclskis, hershöfðingja og hins nýja leiðtoga pólska komm- únistaflokksins, sýna Ijóslega, að Krcmlverjar halda enn í það hálm- stráið, að pólska kommúnista- flokknum takist að komast til fyrri virðingar og valda í Póllandi. Að sögn vestrænna sendimanna í Moskvu virðist Sovétstjórnin nú með öllu ráðalaus hvað varðar ástandið í Póllandi, að valdbeitingu einni und- anskilinni. A meðan þeir hins vegar skirrast við að grípa til hennar, geta þeir aðeins vonað, að Jaruzelski tak- ist það, sem Kania tókst ekki, en það er að koma flokknum aftur til fyrri áhrifa eftir 13 mánaða stanslaust undanhald. Þegar Jaruzelski hlaut útnefn- inguna nú á dögunum, barst hon- um ákaflega innilegt skeyti frá Brezhnev og það minnti menn á, að ekki fékk Kania verri viðtökur á þeim bæ, þegar hann tók við völd- unum sumarið 1980. „Það fer ekk- ert á milli mála, að Kremlverjar láta sig enn dreyma um góðu, gömlu dagana og markmið þeirra hafa ekkert breyst,“ var haft eftir einum diplómatinum þegar hann vakti athygli á því hve skeytin væru keimlík. I Póllandi hefur hins vegar margt breyst og efast nú margir um, að kommúnistaflokkurinn eigi yfirleitt afturkvæmt til fyrri valda Jaruzelski, hinn nýi leiðtogi pólska kommúnistaflokksins — síðasta von Kússa um að góðu, gömlu dagarnir megi aftur renna upp í Póllandi. án þess að hrinda af stað stórkost- legum verkföllum og mótmælaöldu um allt landið. Samstaða er ekki lengur óviss tilraun tiltölulega fárra manna, heldur skipulögð samtök milljóna Pólverja, sem eru reiðubúin að láta til sín taka. Þau hafa látið stöðugar hótanir Sov- étmanna sem vind um eyru þjóta og virðing og myndugleiki Jaruz- elskis hefur engu um það breytt. Þrátt fyrir það binda Rússar miklar vonir við Jaruzelski, enda er hann almennt talinn miklu ákveðnari maður en Kania. í við- tali, sem AP-fréttastofan átti við Stefan Bartkowski, formann pólska blaðamannafélagsins, frjálslyndan mann, sem rekinn var úr kommúnistaflokknum í fyrri viku, sagði hann, að Jaruzelski væri „síðasta útspil flokksins. Að honum frágengnum er fyrirtækið stjórnlaust". Kania reyndist ófær um að gera hvorum tveggja til geðs, ráða- mönnum í Moskvu og verkamönn- unum í Samstöðu, þannig að til þess hlaut að koma, að hann yrði að fara frá. Hvort Rússar hafa átt beinan þátt í því er ekki vitað, en trúlega hafa þeir grátið þurrum tárum, enda er það haft fyrir satt, að þeir hafi verið búnir að vara þá báða, Kania og Jaruzelski, við og skipa þeim að fara með völdin í Póllandi meira en að nafninu til. Sovétmenn eru óhressir með ástandið í Póllandi, en þrátt f.vrir það virðast þeir vilja hafa biðlund með stjórnvöldum þar ögn lengur. Augljóst er, að þeir binda vonir sínar við, að Jaruzelski takist bet- ur upp en Kar.ia og forði þannig Rússum frá því að taka málin í eigin hendur með öllum þeim af- leiðingum, sem það hefði, ekki fyrir Pólverja, heldur fyrir þá sjálfa. Sv. borgar nokkru fjær. Sjúkrabílar komu strax á vettvang eftir sprenginguna og lögreglan girti af allt svæðið, sem er ein helsta miðstöð demantaiðnaðarins i Evr- ópu. Þetta er annað tilræðið við gyð- ~ inga í Antwerpen á rúmu ári en í júlí í fyrra köstuðu tveir arabar handsprengjum að hópi gyðii ga- barna, sem voru á leið í sumarbúð- ir, með þeim afleiðingum, að eitt barn beið bana og 20 slösuðust. Lestunar- áætlun Skip Sambandsins munu ferma til íslands á næstunni sem hér segir: ROTTERDAM: Helgafell .. 27/10 Arnarfell .. 18/11 Arnarfell .. 2/11 Arnarfell .. 16/12 ANTWERPEN: Helgafell .. 28/10 Arnarfell .. 19/11 Arnarfell ... 3/12 Arnarfell .. 17/12 GOOLE: Helgafell ... 24/10 Arnarfell ... 16/11 Arnarfell ... 30/11 Arnarfell ... 14/12 LARVIK: Hvassafell ... 26/10 Hvassafell ... 9/11 Hvassafell ... 23/11 Hvassafell ... 7/12 GAUTABORG: Hvassafell ... 27/10 Hvassafell ... 10/11 Hvassafell ... 24/11 Hvassafell ... 8/12 KAUPMANNAHÖFN: Hvassafell ... 28/10 Hvassafell ... 11/11 Hvassafell ... 25/11 Hvassafell ... 9/12 SVENDBORG: Arnarfell ... 26/10 Hvassafell ... 29/10 Hvassafell ... 12/11 Dísarfell ... 13/11 Helgafell ... 18/11 Hvassafell ... 26/11 Helgafell ... 5/12 Disarfell ... 8/12 HAMBORG: Dísarfell .... 4/11 Helgafell .... 17/11 Helgafell .... 4/12 HELSINKI: Dísarfell .... 9/11 Dísarfell .... 4/12 Disarfell .... 28/12 GLOUCESTER, MASS: Skaftafell .... 30/10 Skaftafell ........ 30/11 HALIFAX, KANADA: Skaftafell ......... 3/11 Skaftafell ......... 3/12 m SKIPADEILD SAMBANDSINS Sambandshúsinu Pósth. 180 121 Reykjavik Sími 28200 Telex 2101

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.