Morgunblaðið - 21.10.1981, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1981
25
*
41
Lausn á
vandamálui
+ Nýveriö birtist mynd af hundi í
þessum þætti, en það var óvart
— þátturinn heitir nefnilega Fólk
í fréttum. En það kemur fyrir að
fólk bregöi sér í líki hunda og þá
í sprelli, en stundum sakir geð-
rænna vandamála sem þarf ekki
að skýra. Afhverju leikkonan Bo
Derek skríöur eins og hundur á
þessari mynd og maður hennar
teymir hana í ól, er ekki vitaö
glögglega, en Bo sagði aöspurö:
„Við getum ekki leyst vandamál
okkar með öðrum hætti.“ Ekki
munu þó slíkar gönguferöir vera
daglegur viöburður í lífi þeirra
hjóna.
Bernhard
Langer
þénar
mest...
+ Það er lítiö skrifað í íslensk blöð
um gólfmót erlendis og margir
kunnustu golfleikarar heims okkur
ókunnir. Bernhard Langer er einn,
24 ára gamalla þýskur maöu og
þykir sérlega geðþekkur og
prúömannlegur í framgöngu sinni.
Reiknihestar segja aö han þóni
mest allra golfleikara í Evropu
þetta árið og nýverið vann hann
30 þúsund dollara í sigurlaun á
Bob Hope British Classic, og
myndin sem hér fylgir sýnir kapp-
ann halda á risastórri ávísun með
Bob gamla Hope eftir að sigurinn
var í höfn. Af einhverjum sökum
eru ekki nema 15 þúsund dollarar
færöir inn á ávísunina, en Langer
hreppti sem só 30 þúsund dollara
á þessu móti fyrir aö koma í mark
fjórum höggum á undan Peter
Oosterhuis.
Á þessu ári hafa runniö i vasa
Bernhards Langers nálægt 160
þúsund. dollarar, sem eru um 1,2
milljónir íslenskar og sveltur eng-
inn með þær árstekjur. Langer
sigraði m.a. á Opna þýska meist-
aramótinu, auk mótsins hans Hop-
es og lenti annar á Opna breska
meistaramótinu. Bernhard Langer
finnst sem hann só nú tilbúinn að
keppa á amrískum stórmótum.
^ BOB HOPE BRITISH CLASSIC
Standard Chartered
Ltmiletí
•UA
-L.„
'‘•vlT....
-k,
+ — Æi strákar, látiði nú stelpuna í friöi, sagði
Elisabet Taylor við Ijósmyndarann Ron Galella,
þegar hann byrjaði að smella af henni dansandi viö
núverandi mann sinn John Warner í veislu mikilli
eftir aö Tony-verðlaununum var úthlutað.
Owett síðastur í mark
+ Hlauparinn heimsfrægi Steve Owett var sérstakur gestur á íþróttahátíð skólabarna í East Sussex á
Englandi, sem haldið var nýlega í Brighton, heimabæ Steve Owetts. Þar tók hann þátt í keppni í hjólastól
og varð síðastur. Menn höfðu á orði aö það hefði verið í fyrsta sinn sem Steve Owett hefði sýnst ánægöur
með að tapa, en eins og sjá má af myndinni kom hann skælbrosandi í mark. Eftir keppnina gaf hann svo
næstum 200 eiginhandaráritanir.
Steve Owett sagðist ekki ætla aö taka þátt í keppni á hlaupabrautinni fyrr en næsta sumar og heföi
hann því góðan tíma til að venjast hjónabandinu, en Owett er nýlega kvæntur.
félk f
fréttum
-r
úr myrkri
Varla hefur nokkur íslenzk .&/
hljómsveit komið eins oft á
óvart og Utangarðsmenn. Þó
hljómsveitin sé ekki lengur ,j
starfandi er enn mikiö púöur í ýr
henni. Nú skjóta Utangarðs- jju
menn föstu skoti úr myrkrinu,
því enn ein platan er komin út
meö þeim.
Þetta er 16 laga plata sem spannar feril Utangarðs-
manna og er aðalefni plötunnar 10 þrælgóð lög, sem
aldrei hafa áður veriö þrykkt á plast.
Auk þessara laga er hér að finna 6 af vinsælustu lögum
hljómsveitarinnar og er spilatími plötunnar alls 50 mín-
útur. Einnig fylgja
góðar upplýsingar
um hvert lag fyrir
sig, auk þess sem
ferill
Utangarðsmanna
er rakinn
lauslega.
Heildsöludreiting
ftaÍAOf M
Simar 85742 og 85055
HLJÓMOflLD
m^KARNABÆR
1 sugaveg. 66 - GUesrbæ _ Austurstrvti 22
Sími frá skiptiboröi 85055