Morgunblaðið - 03.01.1982, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 03.01.1982, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1982 5 Gleymum ekki þeim gæðum, sem við njótum Ávarp dr. Gunnars Thoroddsens, forsætisráðherra á gamlárskvöld Góðir íslendingar! Það er alltaf hollt og ekki síst um áramót að huga að því jöfnum höndum er vel gengur og hinu sem á móti blæs. Um leið og menn leiða hugann að því er þá vantar og þeim óskum sem þeir fá ekki fullnægt, er öllum gagnlegt að líta einnig á það sem menn hafa, þau gæði sem menn njóta, oft umfram ýmsa aðra menn. í fjölmörgum þjóðlöndum býr frjálshuga og frjálsborið fólk við eymd og áþján, skort og skömmt- un. Samtök þess bannfærð, fang- elsanir að næturþeli, aftökur í dagrenning. Fyrir hverjar sakir? Óhlýðni við harðstjórn, andmæli gegn ofbeldi. A Islandi njótum við frelsis til orðs og athafna, getum stofnað og starfrækt félög til hagsmuna- gæslu, til iðkunar áhugamála, og til hjálpar og líknar öðrum mönnum. Við njótum mannrétt- inda, mannhelgi, friðhelgi einka- lífs, búum við löghelgað lýðræði, samofið íslenskri þjóðarsögu og þjóðareðli. Úti í heimi er andlegt frelsi víða fótum troðið, frjáls hugsun kaf- færð, mannhelgi svívirt. Þeim mönnum sem eru svo djarfir að heimta, að stjórn standi við gerða milliríkjasamninga um mannleg réttindi, er varpað í dýflissur eða þeir læstir inni í vistarverum vit- firringa. A Islandi ríkir málfrelsi, funda- og félagafrelsi. Hér geta allir skammað alla. í fjölmiðlum ríkis- ins mega menn atyrða ríkisstjórn og ráðamenn að vild og gera það oft ómælt við mikinn fögnuð áheyrenda. Mörg er sú þjóð, er þarf að búa við stjórn, sem fámennur, harð- snúinn hópur hefur komið á fót í krafti innlends eða erlends her- valds, og engin tök á að losna við slíka landstjórn, þótt mikill meiri- hluti þjóðar sé henni andsnúinn og vilji hana burt, veg allrar ver- aldar. Á íslandi ræður fólkið sjálft í almennum kosningum. Það getur losnað við ríkisstjórn að minnsta kosti á fjögurra ára fresti og jafn- vel oftar. En fólkið getur líka látið stjórn starfa áfram, ef það vill. Víða um lönd stynja milljónir manna undir atvinnuleysi. Fátt er ömurlegra atvinnuleysinu. Æskufólk, sem lokið hefur námi og undirbúningi undir lífsstarfið, hlaðið starfsorku og löngun til að vinna landi sínu og sjálfu sér gagn, fær mánuðum, misserum og árum saman ekki handtak að vinna. Slíkt ástand er þyngra en tárum taki. Á Islandi erum við svo lánsöm að vera laus við atvinnuleysi. í nokkrum greinum vantar fólk til starfa, hins vegar er sumstaðar árstíðabundinn atvinnuskortur, eins og jafnan hefur verið á ís- landi. Á því verður að reyna að finna lausn. Við strendur sumra landa horfa menn með þungum hug á urin fiskimið, eydd af ofveiði og rán- yrkju útlendra yfirgangsmanna eða af skammsýni landsmanna sjálfra. Hér heima höfum við íslend- ingar nú tekið sjálfir í okkar hendur yfirráð yfir öllum fiski- miðum, 200 mílur umhverfis land- ið. Nú stjórnum við veiðunum sjálfir, nú veltur á okkur, hvernig til tekst. Um sumt hefur vel geng- ið. Þorskstofninn í heild og hrygn- ingarstofninn virðist fara vaxandi ár frá ári. Um suma aðra stofna hefur út- koman orðið lakari. Vð verðum að læra af reynslu og vera menn til þess að stjórna vitlega þessum dýrmætu gæðum, sem okkur hefur nú auðnast að ná fullum umráðum yfir, en það var einn af hinum stóru áföngum í sjálfstæðisbar- áttu landsmanna. I sumum olíulöndum standa menn á næstunni frammi fyrir þverrandi lindum, sem gefið hafa á undangengnum árum gnótt fjár og auðlegð. En menn eru þar á fullri ferð að ausa af olíulindum, sem nægja í nokkur ár eða áratugi og endurnýjast ekki. Islendingar eiga þær auðlindir og auðsuppsprettur sem ekki þverra né þorna meðan regn drýp- ur af himni á íslenska fold. Og stórvirkjanir og orkunýting eru stærstu viðfangsefni þjóðar- innar nú og á næstu árum til auk- innar farsældar fyrir land og lýð. Margar þjóðir hafa á undan- förnum árum þjáðst og þjakast af hörmungum hernaðarátaka. í Asíu, í Afríku, í Suður-Ameríku og fyrir botni Miðjarðarhafs. Þau átök hafa leitt meiri hörmungar yfir fólkið en orð fá lýst. Og nú hefur vina- og viðskipta- þjóð okkar, Pólverjar, lent undir þeim járnhæl, sem molar allt það sem tengt er frelsi og mannhelgi. Til Pólverja beinist hugur okkar, samúð og fyrirbænir í raunum þeirra, þessarar virtu þjóðar sem um aldir hefur varðveitt frelsis- eldinn í brjósti sér, þann eld, sem aldrei má slokkna. Við íslendingar, friðelskir og vopnlausir, höfum verið svo gæfu- samir að vera lausir við slík ósköp. Við eigum þá ósk heitasta að stuðla að friði. Við leggjum því lið, að samningar náist um gagn- kvæman samdrátt vígbúnaðar með útilokun kjarnorkuvopna og styðjum heilshugar sérhverja við- leitni í þá átt. Þannig njótum við íslendingar lýðræðis, mannréttinda, mann- helgi, frjálsrar menningar, at- vinnu og ýmissa kosta, sem mörg- um öðrum þjóðum er meinað að njóta. Nú er mörgum Islendingum svo farið, að hugur þeirra snýst öllu meira um það, er þeir ekki fá, en hitt sem þeir hafa. í fornum sög- um segir svo frá merkum landa okkar, að hann var þykkjuþungur sem aðrir íslendingar og þótti illt, ef hann fékk eigi það er hann beiddi. í karpi um dægurmál, í óánægju yfir því að fá ekki einhverjar kjarabætur, sem menn telja að nágranninn njóti, megum við aldr- ei missa sjónar af hinum dýrmætu grundvallargæðum í lífi mann- anna, sem íslendingar góðu heilli njóta. Fyrir réttu ári greindi ég hér frá efnahagsáætlun ríkisstjórnar- innar, þær aðgerðir í efnahags- málum höfðu þrjú aðalmarkmið. I fyrsta lagi að tryggja lands- mönnum næga atvinnu. I öðru lagi að draga svo úr verð- bólgu að hún lækki í um 40% á árinu 1981. I þriðja lagi að tryggja kaup- mátt launafólks. Þegar nú er litið yfir farinn veg kemur það í ljós, að tekist hefur á liðnu ári að ná þessum þrem markmiðum. Atvinna hefur verið næg í landinu, það hefur tekist að forða atvinnuleysi. Verðbólgan, sem hafði verið tvö undanfarin ár kringum 60% hvort árið, verður í ár um 40% frá upphafi til loka árs. í fyrra horfði svo, að án efna- hagsaðgerða myndi kaupmáttur tekna minnka í ár, en raunin hef- ur orðið sú, að kaupmáttur hefur heldur aukist á þessu ári. En þótt ýmsir hlutir hafi gengið vel í ár og mörgu miðað í rétta átt, hafa horfur versnað um afkomu þjóðarinnar á næsta ári. Þegar þjóðhagsáætlun var lögð fram á Alþingi í október síðastliðnum var búist við því að útflutningstekjur Islendinga myndu aukast á næsta ári um fjóra til fimm af hundraði. En nú er talið að ekkert verði af þessum áætlaða vexti. Sá bati í efnahagslífi Vesturlanda, sem menn töldu líklegan, lætur á sér standa. Það kemur meðal annars fram í sölutregðu og lágu verði á kísiljárni og áli og dregur þetta úr gjaldeyristekjum okkar. Horfur um loðnuveiði eru nú dekkri en fyrr og verður því að gera ráð fyrir minni útflutningstekjum af henni en áður var ætlað. Þessar versnandi horfur ásamt áframhaldandi viðnámi gegn verðbólgu gera nauðsynlegar á næstunni ýmiskonar aðgerðir í efnahagsmálum. Öll eru þau mál til umfjöllunar og undirbúnings á vegum ríkisstjórnarinnar. En það vandamál sem mest kallar að þessa stundina er ákvörðun fiskverðs til þess að veiðar og vinnsla geti starfað með eðlilegum hætti. Öll þjóðin hlýtur að heita á þá aðilja, sem hlut eiga að ákvörðun fiskverðs, að sýna þann samningsvilja, er ásamt at- beina ríkisstjórnarinnar dugi til þess að ná niðurstöðu nú sem næst áramótum, svo að firra megi þjóð- ina því tjóni, sem stöðvun aðalat- vinnuvegar þjóðarinnar myndi valda. Það er varasamt að svífa á létt- um og ljósum skýjum í bjartsýnis- draumum og fögnuði yfir því sem vel gengur og gæta ekki óveðurs- skýjanna dökku. En það er ekki síður skaðvænlegt að sjá örðug- leikana eina, mikla þá fyrir sér og gleyma öllu því sem jákvætt er. I yfirsýn og mati á því, sem gera þarf, verður hvorttveggja að skoð- ast saman. Þau eru ekki örugg í hendi okkar öll þau gæði sem við njótum. Við verðum að gæta þeirra vel og vandlega. Og ekki eru allir erfiðleikarnir óviðráðanlegir eða óyfirstíganlegir, ef tekist er á við þá af djörfung, festu og fyrir- hyggju. Við getum sjálf ráðið við svo margt, ef viljinn er fyrir hendi. Það er meira sannmæli en sumir hyggja, að vort lán býr í oss sjálf- um. Góðir íslendingar! Ég þakka samstarf á því ári, sem nú er senn liðið í aldanna skaut. Ég árna ykkur öllum árs og frið- ar á því ári, sem nú gengur í garð. Gleðilegt ár! Líf marqra væri , fátæklegra án HHÍ Þær 136 milljónir sem HHÍ greiðir vinningshöfum í ár láta margan drauminn, smáan og stóran, rætast. Hitt er ekki minna um vert að með aðstoð HHl hefur einn glæstasti draumur þjóðarinnar allrar ræst,- að gefa æsku þessa lands betri tækifæri til að afla sér menntunar. Efling Háskóla íslandser hagurallrarþjóöarinnar. Vinningaskrá: r • •• •■■■■ ■■•■■•■• •••• ■■■• ■■■■ •■■■ • ••• ■ ••• *••• •■•• ••■• •••••••• •••••••• ••■• •••• ■■• J 9 @ 200.000- 1 800.000 - 9 — 50.000,- 450.000- 9 — 30.000- 270.000- 198 — 20.000,- 3.960 000 - 1 053 — 7 500- 7.897.500- 27.198 — 1.500- 40.797.000 - 106.074 — 750- 79 555 500 - 134.550 134 730.000 - 450 — 3 000- 1.350 000 - 135.000 136.080 000 - HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ISLANDS hefur vinninginn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.