Morgunblaðið - 03.01.1982, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1982
Brompton Hospital — Gallery III:
„Mér finnst ég hafa fengið
framlengingu á lífsvíxli“
EftirPál
Steingrímsson
I Kensington-hverfi nærri
miðborg London stendur stór
múrsteinsbyKKÍng með nokkrum
álmum, rauð að lit. A miðri öld-
inni sem leið, þegar „ljónið" stóð
enn traustum fótum í öllum
heimsálfum, risu ört slík slot sem
setja sterkan svip á hverfin upp af
Thames. Þessi bygging er merkt
með koparskiltum Brompton
ilospital. Otrúlega margir Islend-
ingar hafa dvalið á Brompton.
Þeirra vegna og kannski ennfrek-
ar vegna þeirra sem eiga eftir að
fá þar lækningu, gerum við þenn-
an pistil.
Allt frá stofnun Brompton-
sjúkrahússins 1841 hafa læknar
þar einskorðað sig við brjósthols-
lækningar og aðgerðir. Berklar
voru upphaflega sá kvilli sem
strítt var við, en síðar önnur
lungnamein og hjartasjúkdómar.
Arið 1967 var gerð fyrsta til-
raun í Englandi til að græða æðar
framhjá þrengslum í kransæðum.
1970 hófust þessar aðgerðir á
Brompton og hafa staðið óslitið
síðan. Aðferðin hefur lítið breytzt
en tæknin hefur þróazt og öryggi
aukizt.
Brompton er að hluta einkaspít-
ali og tekur við fólki víðsvegar að
úr heiminum. Frá janúarbyrjun
til 1. október 1981 voru á Gallery
III, sem er deild fyrir útlendinga,
sjúklingar frá 30 þjóðlöndum. En
viðstaðan er ekki löng. Á 10.—13.
degi útskrifast menn af sjúkra-
húsinu og aðrir koma í staðinn. Á
síðasta ári voru yfir 300 hjartaað-
gerðir framkvæmdar á Brompton.
Af því má ráða, að læknarnir hafa
staðgóða þekkingu og þjálfun,
enda er hlutfallstala dauðsfalla
orðin sáralág og þau tilfelli má
langoftast rekja til örvæntingar-
aðgerða.
Þeir, sem leitað hafa lækninga í
London á síðustu árum, hafa ef-
laust heyrt Önnu Cronin nefnda
og mjög líklega kynnzt henni.
Anna býr í London. Strákarnir
hennar voru ötulir blaðasalar og
báru mömmu sinni fréttir af ís-
lenzkum sjúklingum ef þeir urðu
varir við þann þjóðflokk á Hamm-
ersmith-sjúkrahúsinu í hverfinu
sem þau áttu heima. Önnu rann
blóðið til skyldunnar gagnvart
löndum sínum og vandi komur
sínar í spítalann. Oft kom hún
færandi hendi eða gegndi nauð-
synjaerindum fyrir þá sem mál-
litlir voru og ófærir til ferðalaga.
Fórnfýsi Önnu verður seint
metin. Árum saman gegndi hún
þessari „skyldu" sinni. Fyrir henni
voru allir jafnir og kvöðunum
fjölgaði eftir því sem á leið. Það
veit enginn hve mörgum hún rétti
hjálparhönd eða hve marga hún
hýsti, meðan þeir biðu vanda-
manna sinna á spítölum í borg-
inni.
Það er fyrst fyrir ábendingu
fólks sem naut hennar í erfiðleik-
um sínum, að því er hreyft að hún
fengi umbun fyrir álag sitt. Nú
þiggur hún laun frá Trygginga-
stofnun ríkisins og hefur ákveðnar
kvaðir gagnvart sjúklingum og
fylgdarfólki. En ég held að fáir
geri sér grein fyrir hver stoð er í
hennar þætti og því síður hver
binding og erfiði liggur í vinnu
hennar alla daga, virka sem helga.
Enginn sér henni bregða og aldrei
flíkar hún sjálfri sér.
Þetta hvarflaði að okkur þegar
farið var að rifja upp snúningana
sem hún tók af fylgdarfólki okkar
og vanda, sem hún leysti án þess
Kiistján Eyjólfsson hjartasérfræð-
ingur.
að nokkur yrði þess var. Stundum
voru Islendingar í mörgum
sjúkrahúsum samtímis og engirm
veit hve London er stór fyrr en
hann á erindi á tvo, þrjá staði
sama daginn.
Upplýsingarnar, sem hér fara á
eftir, byggjast á reynslu tíu krans-
æðasjúklinga og viðtölum við þá.
Það eru: Ásgeir Bjarnason garð-
yrkjumaður, Benedikt Steingríms-
son skrifstofumaður, Bjarni Árna-
son klæðskeri, Bragi V. Pálsson
trésmiður, Lúísa Bjarnadóttir
meinatæknir, Svanur Ágústsson
veitingamaður, Þórður Her-
mannsson skipstjóri, Þorleifur
Kristmundsson prestur og Þor-
steinn Magnússon trésmíðameist-
ari.
Það er áberandi, að engir tveir
lýsa sjúkdómseinkennum og að-
draganda eins. Þetta er svo breyti-
legt að maður gæti ætlað að um
marga sjúkdóma væri að ræða,
enda eru viðbrögð einstaklinganna
og fyrsta meðhöndlun oft í litlu
samræmi við það sem síðar kemur
í ljós að gera þarf. Þó eru hér í
tilfellum allskýrar línur, það er að
segja kransæðastífla eða blóð-
tappi sem leynir sér ekki. Æða-
þrengsl eru undantekningarlítið
orsök stíflunnar. Þegar æðin lok-
ast eru einkennin ótvíræð.
„Það var engum blöðum um að
fletta. Eg fékk blóðtappa, missti
meðvitund og var fluttur með
sjúkraflugvél í Landspítalann."
Þ.K.
Að sumum læðist kvillinn án
beinna þrauta, en veldur úthalds-
leysi og mæði sem smátt og smátt
ágerist.
„Var eins og þreyta eða doði
sem leiddi út í handlegg og alveg
upp í kjálka þegar verst var.“
B.V.P.
Margir benda svo á einstakt at-
vik, þar sem ráð eru tekin af þeim,
líkaminn hættir að hlýða. Hjá
flestum gerist þetta við líkams-
átök og fylgir þá sársauki fyrir
brjósti og fram í handlegg. Vosbúð
eða geðshræring geta ráðið úrslit-
um, en óþægindin geta einnig gert
vart við sig í svefni og hvíld.
„Seiðingsverkur í brjóstholinu
að nóttu til. Fann ekki til hans við
vinnu fyrr en síðar." Þ.M.
Þeir einstaklingar sem koma við
sögu þessa pistils hafa hver sína
reynslu. Þeir eru á aldrinum
40—62 ára. Engir tveir eru úr
sömu starfsstétt. Sá, sem síðast
kom úr slagnum, hefur aðeins ver-
ið heima í tvær vikur, en sá, sem
lengsta reynslu hefur, var einn
fyrstur Islendinga til að gangast
undir aðgerð, en það var í október
1974.
Fáir Þeirra, sem spurðir voru,
gerðu sér í fyrstu grein fyrir hvað
á seyði var. Það er einnig athygl-
isvert, að læknar eru oft í vafa.
Sjúkdómseinkennin villa í mörg-
um tilfellum og draga athygli frá
raunverulegum kvilla en benda til
annarra sjúkdóma sem hafa lík
einkenni, eins og t.d. streita,
vöðvabólga, rifjagigt o.fl
Sérfræðingar í hjartasjúkdóm-
um eru þó á varðbergi ef einhver
þáttur sjúkdómslýsingar bendir
til æðaþrengsla. Hjá karlmönnum
yfir fimmtugt eru kransæðasjúk-
dómar langtíðasta dánarorsökin
og konum sem náð hafa sama
aldri er einnig hætt við veikinni.
I hjartalínuriti o.fl. rannsókn-
um má sjá hvort um kransæða-
þrengsl er að ræða, en ástand æð-
anna vita menn ekki um fyrr en
þær hafa verið myndaðar. Þetta
kallast hjartaþræðing. Þá er farið
með þunna slöngu inn í slagæðina
frá nára upp í hjarta og leið slöng-
unnar birtist svo á myndskermi og
gallar þeir sem kunna að vera á
kransæðum, þegar skuggaefni er
dælt inn í op æðarinnar. Þessi
svæði eru kortlögð og sú teikning
notuð til glöggvunar ef úr aðgerð
verður. En lyfjameðferð er fyrsta
ráðið.
Algengast er, að læknar láti
sjúklingum sínum í té nitroglycer-
intöflur sem látnar eru bráðna
undir tungurót, glycerinið víkkar
út æðarnar og flýtir þannig fyrir
súrefnisflutningi til hjartans. Við
það hverfur verkur í brjósti og
menn geta aukið vöðvaálag. Ten-
ormin er einnig algengt í meðala-
skápum kransæðasjúklinga, það
dregur úr súrefnisþörf hjarta-
vöðvans og jafnar hjartsláttinn.
Ekki eru mörg ár síðan farið var
að gera kransæðaaðgerðir með
nokkru öryggi. Læknar hér heima
hafa verið tregir að ýta sjúkling-
um sínum í svo stóra aðgerð upp á
Dr. Gibson og systir Smith vitja Ásgeirs Bjarnasonar á stofu 3.
Orsakir kransæðastíflu og aðgerðir
1. Hverjar eru orsakir kransæöa-
þrengsla?
Svar: Kransæðar þrengjast
vegna f>ess að fituefni og stundum
kalk sest innan á æðaveggina.
Frumorsökina þekkja menn ekki,
en vissir þættir valda aukinni
hættu á myndun æðakölkunar.
Erfðir virðast veigamiklar en aðrir
áhættuþættir eru: reykingar, hár
blóðþrýstingur, aukning fituefna í
blóöi, hreyfingaleysi, streita og
offita.
2. Hver er tíðni sjúkdómsins á ís'
landi?
Svar: Eftir fimmtugt eru hjarta-
sjúkdómar algengasta dánarorsök
hjá körlum og þar vega kransæöa-
þrengsl langmest.
3. Hefur hún aukist á síöustu ár-
um?
Svar: Svo virðist sem dánartíöni
af völdum kransæöasjúkdóma hafi
náð hámarki og tölur benda til að
tíönin heldur minnki. Ekki er Ijóst
af hverju það stafar.
4. Hverjir fá helst kransæöakvilla
(aldur — kyn — iðja — líkams-
ástand)?
Svar: Kvillinn er mun algengari
hjá körlum einkum í yngri aldurs-
flokkum. Konur fá sjaldan einkenni
um kransæöaþrengsl fyrir fimm-
tugsaldur. Hjá karlmönnum innan
við fertugt er sjukdómurinn fátíður.
Að öðru leyti er erfitt að segja
hverjum hættast er.
5. Hvað er gert við sjúkdómin-
um?
Svar: Læknar setja sjúklingum
sínum almennar lifsreglur eins og
t.d. að hætta að reykja, grennast
eða breyta um mataræði ef blóð-
mælingar sýna hækkandi blóðfitu.
Algengasta lyfjagjöf eru nytróglys-
erin-töflur sem látnar eru bráöna
undir tungurót til að eyöa brjóst-
verkjum eða víkka æðar fyrir
áreynslu. Ýmis önnur lyf eru notuð
t.d. til að draga úr súrefnisþörf
hjartans.
6. Er skuröaögeröin vænlegust?
Svar: Það þarf að meta hverju
sinni. Ef lyfjameðferð ber ekki til-
ætlaöan árangur veröur aö reyna
aðrar leiöir. Til þess aö ákveöa
hvort skuröaögerð sé ráöleg er
nauösynlegt að gera hjartaþræö-
ingu og mynda kransæöar. Þá
kemur í Ijós hvar þrengslin liggja
og einnig ástand hjartavöðvans.
Aðgerð kemur einkum til greina ef
þrengsli eru á fleiri en einni megin-
grein og staðsetning þrengslanna
er nálægt stofnæö (upptökum).
7. Hve margir Islendingar gang-
ast undir uppskurð?
Svar: Árið 1979, 34 — 1980, 29,
í ár stefnir að því aö fjöldinn verði
einhvers staðar milli 50—60.
8. Hvar voru aögeröirnar fram-
kvæmdar?
Svar: Allar aögeröirnar eru
framkvæmdar erlendis, í Englandi
og Bandaríkjunum. Um 70% þeirra
eru gerðar á Brompton.
9. Hverjar eru batahorfur þeirra
sem gengist hafa undir aðgerö?
Svar: 80—90 af hundraði fá
verulegan bata. Stór hluti þessa
hóps verður verkjalaus og aðrir fá
mun sjaldnar tilkenningu þrengsla
eða verkja.
10. Hve löngu frá aögerð má
reikna með að fullreynt sé hvernig
hún hefur tekist?
Svar: Eftir tvo mánuði má nokk-
uð sjá hvernig aðgerð hefur tekist,
eða þegar sjúklingurinn er farinn
aö leggja á sig nokkuö líkamsálag.
11. í hverju er aðgeröin fólgin?
Svar: Eftir svæfingu er líkamshiti
sjúklingsins lækkaður verulega
með kælingu Hjartavöðvinn er
kældur sérstaklega og starfsemi
hans stöðvuð. Samtímis eru slöng-
ur tengdar viö slagæöar og bláæö-
ar. Meðan á aögerö stendur sjá
hjarta- og lungnavél um starfsemi
þessara liffæra. Bláæð er tekin úr
fæti og tengd á kransæöarnar
framhjá þrengdum svæðum.
Ágræddu æöarnar taka þá við
blóöflutningi sem áður var hindr-
aður.
12. Verða þessar aðgerðir fram-
kvæmdar hér heima í náinni fram-
tíð?
Svar: Það hefur staöiö til í nokk-
ur ár að hefja þessar aögeröir hér
heima. Þjálfun starfsfólks er í
gangi, en fjárframlag til aö setja á
stofn hjartaskurölækningaaöstööu
nú mun hafa veriö felld niður á
frumvarpi til fjárlaga sem liggur
fyrir Alþingi.
13. Eru einhverjar markverðar
nýjungar á döfinni, sem varða
meðferö kransæðasjúklinga?
Svar: Tilraunir með ný lyf eru
stöðugt í gangi. Einnig tilraunir
með að víkka út þrengsli með
þræðingu án skuröaðgeröar.