Morgunblaðið - 03.01.1982, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 03.01.1982, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1982 25 Hinir íslensku Bítlar HLJÓMAR í Keflavík voru óneitanlega vinsælasta ís- lenska dægurlagahljóm- sveitin á sjöunda áratugnum — hinir íslensku Bítlar. Þessa mynd tók Ólafur K. Magnússon, Ijósmyndari Mbl., þegar þeir kappar voru á hátindi frægöarferils síns t íslensku hljómlistarlífi. En hvar eru þeir fjórmenningar nú? Rúnar Júlíusson spilar enn og býr í Keflavík og rekur þar hljómplötuutgáfu; Erlingur Björnsson starfar í Fríhöfn- inni á Keflavíkurflugvelli og býr í Sandgeröi og er sá eini fjórmenninganna sem lagt hefur hljómlistina á hilluna (a.m.k. opinberlega); Gunnar Þóröarson semur lög og spil- ar af sama krafti og áður og gefur út hljómplötur sem slá í gegn og býr í Reykjavík; Eng- ilbert Jensen er hljóö- færaviðgerðarmaður „ í Reykjavík og alltaf annað veifið með annan fótinn í poppinu. En nú er tími hljómsveita sem Hljóma liö- inn, að því er viröist, og engin íslensk danshljómsveit hefur náð þvilíkum vinsældum og Hljómar áttu aö fagna hjá ungmennum sjöunda ára- tugsins . . . AFÖRNUM VEGI Samantekt J.F.Á. v Rallýmeistarar HINIR miklu meistarar í íslensku ralli, bræðurnir Jón og Ómar Ragnars- synir voru nýverið heiðraöir fyrir góöa frammistööu í þessari íþrótt. „Land- samband íslenskra akstursíþróttamanna" hélt þeim hóf eitt mikið og þar var þeim afhentur veglegur farandbikar sem íslandsmeisturum liðins árs og einnig fengu þeir að gjöf einn bikarinn hvor. í hófið komu konur þeirra kappa og glöddust með þeim þegar þeim voru afhent verðlaunin góðu og tók Gunnlaugur Rögnvaldsson þá þessa mynd af tveimur bræðrum og eiginkonum þeirra, Helgu Jóhannsdóttur, konu Ómars, og Petru Baldurs- dóttur, konu Jóns. Þá hefur blaöið fregnaö að Renault-verksmiðjurnar í Frakklandi hyggist styrkja þá félaga á næstu árum til rallaksturs, því þetta er dýr íþrótt, en þeir bræður vinna einmitt íslensk rallmót akandi Renault- bifreið . .. BJÖRT mey og hrein nefnist fyrsta skáldsaga Gudbergs Aðalsteinssonar sem nýlega kom út hjá bókaforlaginu Erni og Örlygi. Samtímasaga sem seg- ir frá ungu fólki í Keykjavík — „sannkölluð Odals- eóa Hollywood- saga“, eins og sagði í auglýsingum. Nei, þetta er ekki sjálfsævisaga, segir Guðbergur Aðalsteinsson í stuttu spjalli, nei, nei, þessi saga er ekki byggð á eigin reynslu. En „sönn“ held ég að hún sé eigi að síður. Sagan gæti vel hafa gerst og hefur ef til vill gerst, sögupersón- urnar eru samferðamenn okkar, held ég að ég megi fullyrða. Guðbergur er af Vatnsleysu- ströndinni og er nú starfandi raf- virki í Reykjavík. En af hverju tók hann að skrifa skáldsögu? Ja, ætli það hafi ekki hreinlega verið af því, að ég var sjónvarpslaus þegar ég flutti hingað og þá tók ég að nýta kvöldin skynsamlegar en ég hafði áður gert. Ég hætti sem sagt að horfa á imbakassann og las meira en ég gerði og svo æxlaðist þetta einhvern veginn af sjálfu sér, að ég fór að skrifa. Útkoman er þessi bók, lljörl mey og hrein, og tók hún miklum breytingum í samn- ingu. Guðbergur varðist allra frétta af því livað tæki núvið hjá honum á ritvellinum, en neitaði því þó ekki, að hann væri með eitt og annað í smíðum, en hvort það kæmi nokk- urn tímann fyrir almenningssjónir, það væri annað mál... Ungt fólk í Reykja- vík á bók Jólaskap í Eyjum Á sundmóti barnaskólans í Vestmannaeyj- um núna fyrir jólin voru keppendur eins og gefur að skilja í jólaskapi. Þegar allri keppni var lokið syntu þeir um laugina með logandi kertaljós í hendi sér. Svo röðuðu börnin sér upp í grunnu lauginni og mynd- uðu orðið „jól“, enda skammt til þeirrar hátíðar og börnin flest hver iðandi í skinn- inu af tilhlökkun til jólanna. Sigurgeir ljósmyndari Morgunblaðsins í Vestmanna- eyjum tók þá þessar myndir ...

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.