Morgunblaðið - 03.01.1982, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1982
7
HT TGVRKJ A
eftirsr. ÓlafSkúlason dómprófast
Vonin við áramót
Fyrsti sunnudagur nýja árs-
ins, og enn eru jól. Við gefum
þeim þrettán daga, og vildu þó
sumir, að þeir væru ennþá
fleiri. Ekki aðeins börnin, sem
sjá í þeim gleði hinna full-
orðnu og gjafir í ótrúlegum
mæli, heldur líka þeir, sem sjá
í jólum umsköpun manna og
bjartari tíma. Vildu þeir þess
vegna, að áhrif jóla fengju að
vara árið allt, ævina alla, já,
að dagar þeirra væru ekki að-
eins fastákveðnir þréttán,
heldur næðu til allra daga
áhrif himna eins og við þekkj-
um í hátíð jóla.
Og ég er alveg viss um það,
að kveðjan dýrlega hljómar
enn víða, þótt kannski sé ekki
alveg jafnsterkur hljómurinn í
dag og hann var á aðfangadag
eða jóladagana tvo, þegar einn
býður öðrum gleðileg jól. Þó
hitti ég vin, sem sagðist eiga
bágt með að taka sér í munn
þessa kveðju nú á þessum jól-
um. Hann var alltaf að hugsa
um skuggana, sem hvíldu yfir
þeim austur í Póllandi og átti
bágt með að tengja þá gleði.
En skyldu þeir ekki líka í
Varsjá eins og í Vestmanna-
eyjum hafa boðið hver öðrum
gleðileg jól? Og ætli kveðjan
hafi ekki ómað með sömu
áherzluvoninni í Gdansk eins
og í Grundarfirði? Var vonin
nokkuð veikari í auga hinna
fjölmörgu kirkjugesta í þessu
hrjáða landi, heldur en hér hjá
okkur, þar sem allir hafa frelsi
til hvers, sem þá fýsir og búðir
bjóða fleira en við þurfum? Af
hverju? Jú, af því einfaldlega
að gleðin er ekki einvörðungu
fólgin í hinu ytra, þegar við
tengjum hana jólum. Það er
ekki aðeins um að ræða gleð-
ina okkar, við erum líka að
tala um gleði himna. Það er
gleði Guðs, og vonin okkar
þrátt fyrir skugga, af því að
Guð hefur gripið inn í. Og
vegna þessa, í krafti þeirrar
trúarreynslu, sem pólska þjóð-
in varðveitir, þá þykist ég vita
það, að bænin hjá þeim í
kveðjunni dýrlegu á hæstum
jólum, hefur verið, ef nokkúð,
ennþá sterkari en hér hjá
okkur, þar sem gleðin kom
áreynslulaust og engin byssa
var í augsýn.
Austur í Póllandi hafa þeir
látið kveðjuna um gleðileg jól
flytja bæn um handleiðslu,
bæn um leiðsögn, bæn um
meiri hlýðni við vilja Guðs,
sem megi verða svo hjá ein-
staklingnum á heimili hans,
sem hjá herra þjóðar i stjórn-
arhöll. Og þegar við höfum
verið að segja gleðileg jól — og
gerum það enn — þá erum við
að flytja bænarákall vegna
allra þeirra, sem meir hafa af
skuggum. Þess vegna má róm-
urinn vera styrkur áfram,
máttugur og knýjandi, svo að
hann opni himna, rétt eins og
fyrr var, þegar englar sungu
við fæðingu Krists.
Og er þá nokkur furða með
hið framanskráða í huga, að ég
eigi þá bæn heitasta, að áhrif
jóla fjari ekki út, þótt senn séu
dagar þeirra þrettán að baki?
Þau þurfa að minna okkur á
kærleika og þá um leið ábyrgð
eins á öðrum. En það sýnir
okkur vitanlega, hvernig heim-
urinn er í raun og veru, að
þessu er alls ekki þann veg far-
ið. Þeir eru svo miklu fleiri,
sem leggja eyra eftir kröfum
heims en boðskap himna, allt-
of margir, sem sjá aðeins hið
ytra en gleyma því, sem að
baki umbúða varðveitist. Jólin
eru vitanlega ekki undanskilin
þessari meðferð, kannski jafn-
vel sízt þau, eins og þessi saga
skýrir. Það voru tvær frúr að
skoða í verzlanir ekki mörgum
dögum fyrir aðfangadag. Þær
dáðust að útstillingunum og
glæsilegu vöruvali. En í einni
búðinni hafði verið komið fyrir
jötu og öllu því, sem slíkri
helgimynd tilheyrir, innan um
varninginn, sem konurnar
höfðu áhuga á að skoða. Þá
sagði önnur þeirra full vand-
lætingar við hina, þar sem þær
stóðu fyrir framan Jesúbarnið,
Maríu, Jósef og jötuna: „Uss,
svona er það alltaf. Alls staðar
reynir kirkjan að troða sér
með boðskap sinn.“
Vitanlega er mikil kald-
hæðni í þessari sögu, og
kannski hefur hugur ekki fylgt
máli hjá konunni, en þó eru
þeir sorglega margir, sem vilja
jól án jötu, hátíð án himna og
gera sér þess vegna aðeins
dagamun án þess að boðskap-
urinn að baki nái fram til
þeirra. En ég hef stundum ver-
ið að velta því fyrir mér, hvort
það hvarfli aldrei að þeim, sem
þannig er farið, að þeir séu
hálfvegis að svindla? Rétt eins
og sá, sem er að leggja kapal
og hefur rangt við, já, svindlar
þannig á sjálfum sér, til þess
að fá útkomu, sem ekki er til
staðar. Boðskapur himnanna
um þetta leyti árs er hinn sami
og endranær, að Guð elski
börnin sín, og kirkjan er ekki
neitt að troða sér fram á þess-
um góðu dögum og ryður ekki
þeim til hliðar, sem sjá aðeins
tilefni til að halda matarveizl-
ur og hlaða upp pakkafjalli.
Þverstæður hafa alla tíð verið
til staðar og verða það áfram,
meðan myrkrið reynir að úti-
loka ljósið og boðskap himna
er ekki hleypt þar að, sem
fjallað er um málefni jarðar og
jarðarinnar barna. En ljósið
skín samt, og gleði jóla hefur
verið til staðar, hvort heldur
er á íslandi eða Póllandi, af því
að í gleðinni er bæn og henni
er vonin tengd með fyrirheiti
sínu um bjartari daga. Og ég
held þá líka, að innst inni skilji
allir þetta, líka þeir, sem ekki
vilja vita af jötu í búðarglugga
síðustu dagana fyrir jól. Innst
inni skilja þeir, að boðskapur-
inn er um kærleika, um ljós í
myrkri, um frelsara, og að sá
sem ekki vill vita af barninu í
jötunni fullorðnu, er að gera
sér úr því glansmynd, sem
hafa skyldi áhrif á lífið allt —
í raunveruleika þess, viðfangs-
efnum og vonum.
En nú hugsa sjálfsagt fleiri
um það, sem framundan er,
heldur en dagana, sem jólum
eru merktir, og senn eru allir
horfnir þetta skiptið. Það er
nýtt ár, sem er hafið. Ekki
lengur skrifað 1981 heldur
fögnum við hinu nýja í tölu-
stöfunum 1982. Hvers þörfn-
umst við þá helst? Margt
mætti sjálfsagt hér nefna,
allra þeirra þátta, sem efst eru
á baugi hjá þeim, sem við við
höfum valið til þess að leiða
okkur. Ég vil þó aðeins geta
eins, og lít þá enn jafnt til
baka eins og fram á leiðina:
Von ársins nýja og allra þeirra
annarra, sem á eftir fylgja er
fólgin í því, að boðskapur jóla,
boðskapur Krists, megi njóta
hljómgrunns í hjörtum
manna. Aðeins við það er von
til þess, að byssan hverfi, hatr-
ið víki og bræðralag verði
raunverulegt. Kirkjan þarf því
að „troða sér fram með boð-
skap sinn“, ekki aðeins í Pól-
landi í skugga ófriðar, heldur
líka á íslandi, þar sem frelsið
veitir möguleika. í óskum mín-
um nú um gleðilegt nýtt ár, er
fólgin bæn, bænin um það, að
áhrifamáttur himna aukist, að
trúin vaxi og Drottinn Jesús
verði tilbeðinn, ekki aðeins í
orði tyllidaga, heldur einnig í
veruleika hins venjubundna
lífs. Gerist það þá verður árið
gott. Gleðilegt nýár!
Hressingarleikfimi
kvenna og karla
Kennsla hefst aftur fimmtudaginn 7. janúar 1982 í leikfimisal Laugar-
nesskóla. Get bætt viö örfáum nemendum. Fjölbreyttar æfinqar Músík
Slökun.
Upplýsingar í síma 33290. Ástbjörg S. Gunnarsdóttir,
iþrottakennari.
tmmmmmm—mmmmmmm^mmnmmmm^m^mmm^^m^nmmmm*
GENGI VERÐBRÉFA 1. JANÚAR 1982
VERÐTRYGGÐ
SPARISKIRTEINI RÍKISSJÓÐS: Solugengi pr. kr. 100.-
1970 1. flokkur 7.220,71
1970 2. flokkur 5.791.02
1971 1. flokkur 5.159,73
1972 1. flokkur 4 471.84
1972 2. flokkur 3.796,08
1973 1. flokkur A 2.791,75
1973 2. flokkur 2.571,43
1974 1. flokkur 1.775,23
1975 1. flokkur 1.454,74
1975 2 flokkur 1.095.78
1976 1. flokkur 1.038.23
1976 2. flokkur 834,66
1977 1. flokkur 775.22
1977 2. flokkur 649.36
1978 1. flokkur 529.20
1978 2. flokkur 417.66
1979 1. ftokkur 353.16
1979 2. flokkur 274,03
1980 1 flokkur 209,00
1980 2. flokkur 164.82
1981 1. flokkur 144,69
★ 1981 2. flokkur 108.36
Medalávoxtun spariskirteina umfram verd-
tryggmqu er 3.25—6%.
VERÐTRYGGÐ
HAPPDR/ETTISLÁN
RÍKISSJÓDS
A — 1972
B — 1973
C — 1973
D — 1974
E — 1974
F — 1974
G — 1975
H — 1976
I — 1976
J — 1977
Sölugengi
pr. kr. 100.-
2.672.19
2,178.83
1 853.02
1.571.33
1.074,85
1.074,85
712.98
679.38
516.91
480.98
Ofanskráö gengi er m.v. 4% ávöxtun
p.á. umfram verötryggingu a'uk vinn-
ingsvonar. Happdrættisbréfin eru gef-
in út á handhafa.
HLUTABRÉF
Eimskipafélag
íslands
Tollvöru-
geymslan hf.
Skeljungur hf.
Fjarfestingarf.
íslands hf.
Kauptilboö
óskast
Kauptilboö
óskast
Sólutilboö óskast
Sólutilboö
óskast.
VEÐSKULDABREF
MED LÁNSKJARAVÍSITÖLU:
Sölugengi m.v. nafnvexti Ávöxtun
2V»% (HLV) umfram
1 afb./ári 2 afb./ári verótr.
1 ár 95.79 96.85 7%
2 ár 93,83 94.86 7%
3 ár 91.95 92,96 7%
4 ár 90.15 91,14 7%
5 ár 88.43 89.40 7%
6 ár 86.13 87.13 7V«%
7 ár 84.49 85,47 7V«%
8 ár 82,14 83,15 7V*%
9 ár 80,58 81,57 7V?%
10 ár 77.38 78.42 8%
15 ár 70,48 71,42 8%
VEÐSKULDABREF
ÓVERDTRYGGD:
Solugengi m.v. nafnvexti
12% 14% 16% 18% 20% (HLV) 40%
1 ár 68 69 70 72 73 86
2 ór 57 59 60 62 63 80
3 ár 49 51 53 54 56 76
4 ár 43 45 47 49 51 72
5 ár 38 40 42 44 46 69
TÖKUM OFANSKRÁO VERD-
BRÉF í UMBOÐSSOLU
MkrannGARrkM iiumu hp.
VERÐBRÉFAMARKAÐUR, LÆKJARGÖTU 12 R.
Iðnaðarbankahúsinu. Sími 28566.
Opiö alla virka daga frá kl. 9.30—16.
Knattspyrnu-
þjálfari óskast
Færeyskt íþróttafélag óskar eftir aö ráöa knatt-
spyrnuþjálfara fyrir 2. deildar lið sitt í knattspyrnu.
Þess er óskað, að viðkomandi geti leikiö með félag-
inu og geti hafið störf ekki síöar en 1. marz næst-
komándi, en keppnistímabilinu lýkur í september.
Einnig væri æskilegt að viðkomandi gæti tekiö aö sér
þjálfun í handknattleik og aöra flokka í knattspyrn-
unni.
Þeir, sem áhuga hafa, eru beönir að snúa sér til
Hjartar Gíslasonar í símum 26562 og 10100.
Gullfalleg
amerísk
baðhandklæði
Verö frá kr. 59,-.
Eldhúshandklæöi frá kr. 22.20.
Lándsins mesta úrval.
Vörumerki: Cannon — Martex
o.fl.
Sendum í póstkröfu.
21 tegund auk mikils litaúrvals.
VIRKA
Klapparstíg 25—27,
sími 24747.