Morgunblaðið - 03.01.1982, Page 23

Morgunblaðið - 03.01.1982, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1982 23 Jóhanna Hjaltalín Dennis - Minning Kædd 18. september 1920 Dáin 26. desember 1981 Ilin langa þraut er lidin, nú Inksins hlaustu fridinn, «g allt er orðid rótt, nú sa-ll er sigur unninn og sólin hjört upp runnin á hak við dimma dauðans nótt. Fyrst sigur sá er frnginn, fyrst sorgar þraut er Kengin, hvað getur grætt oss þá? Oss þykir þungt að skilja, en það er (>uðs að vilja, og gott er allt, sem (íuði er frá. Valdimar Briem Á morgun, hinn 4. janúar 1982, mun bálför ástkærrar tengdamóð- ur minnar, Jóhönnu Hjaltalín Dennis, verða gerð frá Dómkirkj- unni kl. 10 árdegis. Jóhanna varð bráðkvödd 26. desember 1981, rúmlega 61 árs að aldri. Jóhanna fæddist 18/9 1920 í Reykjavík. Foreldrar hennar voru Ingibjörg Jónsdóttir og Hjörtur Lúter Hjaltalín. Þau eru bæði lát- in. Hún ólst upp hjá föðurömmu sinni, Dagbjörgu Guðjónsdóttur ljósmóður. Dagbjörg var Jóhönnu alla tíð mjög kær, enda mesta sæmdarkona að áliti þeirra sem hana þekktu. Snemma varð vart mjög mikilla námshæfileika hjá Jóhönnu, en hugur hennar stóð ekki tii langskólanáms, heldur átti leiklistin hug hennar allan. Smáútdráttur úr leikskrá Leik- félags Hafnarfjarðar, er leikritið Hans og Gréta var sett á svið, lýs- ir best lifsskeiði Jóhönnu á sviði leiklistarinnar: „Allt frá barnæsku hefur frú Jó- hanna haft brennandi áhuga á leiklist. Allir hennar bernskuleik- ir snerust um leiklistina. Skrifaði hún leikþætti, saumaði búninga, útbjó leiktjöld, hóaði saman ná- grannabörnum, æfði þau og setti á svið leiki sína strax barn að aldri. Stundum var leiksviðið ekki annað en lítil kjallarageymsla, en stund- um vistleg stofa og nágrannar og ættingjar barnanna hrifnir áhorf- endur. En glæsileiki leiksviðsins skipti ekki mestu máli fyrir hana. Áhugi hennar var hinn sami, hvert sem leiksviðið var. Strax og aðstæður leyfðu, hóf hún nám í Leikskóla Ævars Kvar- an og að því loknu byrjaði hún að leika hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar leikárið 1948—49 og lék þá hlut- verk Nancyar í „Gasljósi". Hún hefur farið með mörg önnur veiga- mikil hlutverk hjá LH, t.d. hlut- verk Júlíu í „Draugalestinni", hlutverk ömmunnar í „Aumingja Hönnu" og nú síðast hlutverkið Lafði Essie í gamanleiknum „Hvílík fjölskylda". Þar að auki hefur hún ferðast um landið með leikflokkum, sem sýnt hafa á ýms- um stöðum. Einnig hefur hún vak- ið á sér athygli sem snjall upples- ari. „Hans og Gréta“ er fyrsta leik- ritið sem hún sér um leikstjórn í.“ Jóhanna giftist Óla Þ. Haralds- syni 25. desember 1941. Áttu þau tvær dætur, Valgerði, gifta undir- rituðum, og Dagbjörgu Hjördísi, gifta John R. Pinkney, búsetta í Bandaríkjunum. Jóhanna og Óli slitu samvistum eftir 12 ára sam- búð. Jóhanna giftist öðru sinni Robert Lee Dennis jr. árið 1955. Þau áttu heimili í Charleston í Suður-Karólínu. Eignuðust þau 4 börn, Ingu Nettie, Robert Lee, Helen Muriel og Benjamín Daníel, er lést af slysförum 5. desember 1968. Hann var augasteinn móður sinnar. Sá missir fékk mjög á Jó- hönnu og má segja, að hún hafi ekki borið sitt barr frá þeim degi. Jóhanna og Robert Lee slitu sam- vistum og fluttist Jóhanna alkom- in til tslands árið 1973. Hugur Jóhönnu stóð allur sem fyrr til leiklistarinnar, en sökum heilsubrests fékk hún sig aldrei til þátttöku á ný. Hún fékkst lítillega við upplestur í útvarpi er heim var komið og sannaðist það á ný hversu snjall upplesari hún var. Ég þakka þau árin sem kynni okkar Jóhönnu stóðu. Ég tel mig mun ríkari eftir að hafa fengið að njóta ógleymanlegra stunda í ná- vist hennar, hvort heldur var við i að hlýða á frásögn, upplestur sagna eða ljóða, eða fjörugar um- ræður um menn og málefni. Megi Guð varðveita minningu hennar. Baldur Bragason Ljósm.: Sig. Sigm. Jólasveinar skemmta börnum á jólasamkomu í Hrunamannahreppi. Hrunamannahreppur: Góð, gleðileg og rauð jól Sydra-Langholti, 30. des. 1981. HÉR í Hrunamannahreppi voru rauð jól að þessu sinni. Á þorláks- messukvöld fennti nokkuð en snjó- inn tók upp í blíðviðrinu á aðfanga- dag. Samgöngur hafa því verið greið- ar; vegir eru sem á sumardegi. Það er ólíkt frá í fyrra en þá var hér allt á kafi í snjó, samgöngu- og raf- magnstruflanir. Nú var allt í besta lagi um jólin og þó að hvasst yrði aðfaranótt annars jóladags varð hér ekkert tjón. Að venju messaði séra Sveinbjörn Sveinbjörnsson jóla- dagana í sóknarkirkjum sínum að Hruna og Hrepphólum og var kirkjusókn mikil sem endranær. Nú milli jóla og nýárs stóð kvenfé- lagið fyrir jólaskemmtun fyrir börn svo sem það hefur gert í nær 30 ár. Þar er jafnan mikið fjöl- menni en auk heimabarna koma oft burtfluttar konur með börn sín ekki síst þegar samgöngur eru jafn greiðar sem nú. Þrjú myndarleg jólatré úr skógræktargirðingu ungmennafé- lagsins á Álfaskeiði voru sett upp á Flúðum um hátíðirnar, við skól- ann, félagsheimilið og á skemmt- un barnanna. Ungmennafélagið sýndi gamanleikinn „Betur má ef duga skal“. Þá hélt sama félag einnig jóladansleik. Kvikmyndin „Punktur, punktur, komma, strik" var sýnd við mikla aðsókn og ára- mótagleði verður í félagsheimil- inu. Það er því mikið um að vera í félagslífinu á milli þess að bænda- fólkið gengur að sínum hefð- bundnu bústörfum án tillits til þess hvað dagarnir heita. Búféð þarf alltaf sína umönnun. — Sig. Sigm. Benedikt Jónsson - Minningarorö Norræni menningarsjóðurinn: „Land og synir“ hlaut styrk til text- unar á Norðurlandamál Fæddur 1. nóvember 1885. Dáinn 19. desember 1981. Þar sem góðir menn fara eru Guðsvegir. Á Þorláksmessudag í vaxandi jólastemmningu barst mér andlátsfregn míns gamla vin- ar Benedikts Jónssonar. Hann var Skaftfellingur að uppruna en fæddur suður með sjó, alinn upp við kröpp kjör þess tíma en varð sterkur og gjörvilegur maður og bar gæfu til að halda kröftum, minni og andlegu atgervi fram undir það síðasta, ævidagurinn var orðinn langur og á ýmsu hafði gengið. Síðustu árin dvaldi hann á elliheimilinu Ási í Hveragerði og nú síðast á Grund þar sem hann lést þann 19. þ.m. Það má segja að þessi lausn- arstund frá þrautum þessa heims hafi verið honum kærkomin jóla- gjöf, frá þeim Guði sem hann ef- aðist ekki um að réði lífi og dauöa, og kallaði okkur að lokum til sín og annars lífs, enda var hann löngu tilbúinn í þessa síðustu ferð. Það eru nú um 36 ár síðan ég kynntist Bensa, sem nágranna mínum í Hveragerði, en þar hafði hann löngum athvarf er hann var ekki lengur heimilisfaðir, hjá bróður sínum Páli og Guðrúnu konu hans í Skaftafelli meðan þeirra naut við. Einnig vorum við samstarfsmenn í vinnuflokkum í brúar- og vegavinnu, hann var hörkuduglegur ma'ður enda uppal- inn við að þurfa að vinna fyrir kaupinu sínu, sem stundum var víst ekki hátt í hans ungdæmi. En honum var fleira til lista lagt en gróf vinna, til dæmis á fjölskylda mín útprjónaða vettlinga eftir hann, skrautlega og fínlega unna sem hver hannyrðakona gæti ver- ið fullsæmd af að hafa unnið, hann hafði lært að prjóna á yngri árum og fékkst eitthvað við það sér til afþreyingar nú síðari árin. Það var dæmigert fyrir Bensa hvað hann varðveitti í sér barns- lundina, að hann var fyrst og fremst einn af okkur ungu strák- unum þó hann væri þá um sextugt og taldi sig ekki hafinn yfir að taka þátt í ærslum okkar og glensi þó hann væri orðinn roskinn og ráðsettur eins og það var kallað, já þar fannst ekki hið svokallaða kynslóðabil. Síðan skildu leiðir, oft liðu mörg ár sem við sáumst ekki en jafnan var hann sami vinur minn, þegar fundum okkar bar saman, tröll- tryggur þeim sem hann tók sem vinum sínum og sýndi það einnig gagnvart syni mínum sem hann tók tryggð við. Þó hann byggi lengi við sjó var hann í eðli sínu mikill sveitamaður og hafði á efri árum mikið yndi af að fara um sveitir og heimsækja vini og ætt- ingja og komast þannig í tengsl við uppruna sinn, enda dvaldi hann nokkuð í sveit og vann þar fyrir sér og átti nokkrar ær sér til ánægju frekar en ávinnings. Tvö börn hafði hann eignast í hjónabandi sínu og gerði hann sér far um að halda góðu sambandi við þau enda unni hann þeim mjög og talaði oft um þau og þeirra hagi. Eg kveð nú þennan gamla vin minn og þakka honum fyrir alla vináttu og tryggð í minn garð, í þessari stuttu minningargrein minnist ég hans eins og hann kom mér fyrir sjónir og vel tel ég hon- um hafi dugað sá boðskapur sem okkur er sagður við ferminguna og hljóðar svo: „Vertu trúar allt til dauðans og Guð mun gefa þér lífs- ins kórónu." Guð blessi hann Bensa minn. Guðgeir Sumarliðason, Bitru. NORRÆNI menningarsjóðurinn hefur veitt alls 28.500 dönskum krónum til að styrkja textun kvik- myndarinnar Land og synir á dönsku annars vegar og finnsku hins vegar. Þetta var í fyrsta skipti að veittir voru styrkir til textunar kvikmynda á Norðurlöndum og meðal annarra styrkþega var Fjalakötturinn, kvikmyndaklúbb- ur framhaldsskólanna, sem hlaut 10.000 danskar krónur til að texta tíu finnskar kvikmyndir á ís- lensku. Alls bárust 35 umsóknir til nefndarinnar sem úthlutaði þess- um styrkjum. Féð sem nefndin hafði yfir að ráða voru 300.000 danskar kr. og var þeim skipt niður á fimmtán umsækjendur. Á næsta ári er gert ráð fyrir að veita u.þ.b. helmingi hærri upp- hæð til þessarar starfsemi í tveimur úthlutunum. Er umsókn- arfrestur til 1. mars annars vegar en til 15. ágúst hins vegar. Leiðrétting í ÁRAMÓTAGREIN Sverris Páls- sonar, skólastjóra, fréttaritara Morgunblaðsins á Akureyri, slædd- ist inn meinleg villa, er leiðréttist hér með. Er talað var um biskups- kjör var sagt að séra Pétur Sigur- geirsson hefði skilið eftir mikið skarð, en þar átti að sjálfsögðu að standa starf, „sem hafði mikil áhrif“. Er Sverrir og lesendur blaðsins beðnir velvirðingar á mistökunum. Móöir okkar, tengdamóöir, amma og langamma, KRISTÍN GUÐMUNDSDÓTTIR, Hringbraut 88, veröur jarösungln frá Dómklrkjunni þriöjudaginn 5. janúar kl. 10.30. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Blindrafélagiö. Guöný Siguröardóttir, Björn Bjarnason, Ágústa Siguröardóttir, Hörn Siguröardóttir, Finnur Kristinsson, Guöfinna S. Drewry, F. Gray Drewry, Auður Siguröardóttir, Hafsteinn Einarsson, barnabörn og barnabarnabörn. Faöir okkar, + JÓHANNESORMSSON, Mávahlíð 44, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju, miðvikudaginn 6. janúar kl. 3 e.h. Anna Jóhannesdóttir, Pálína Jóhannesdóttir, Sigríöur Jóhannesdóttir, Helga Jóhannesdóttir. t RAGNHILDUR ÞORVALDSDÓTTIR, Melabraut 61, Seltjarnarnesi, verður jarðsungin frá Neskirkju mánudaginn 4. januar kl. 3. Stefán Jónsson, Kristín K. Stefánsdóttir, Þórarinn Bjarnason, Guóbjörg V. Stefánsdóttir, Kristján R. Kristjánsson, Guörún Stefánsdóttir, Helgi Hjaltason, og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.