Morgunblaðið - 20.01.1982, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 20.01.1982, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1982 11 Fjórraddað á þorra- blóti Höfðhverfunga og Grenvíkinga ÞORRABLÓT Átthagafélagsins Höfða, félags Höfðhverfunga og Grenvikinga syðra, verður haldið föstudaginn 22. janúar, á bóndadag- inn. Blótað verður í Félagsheimilinu á Seltjarnarnesi. Þorramatur verður á borðum, hangikjöt, súrmeti og svið, pylsur og pungar, lundabaggar og laufabrauð, harðfiskur, hákarl og brennivín. Annáll að norðan er nú fastur liður á þessum þorrablótum og flytur hann að þessu sinni Sigríð- ur Sverrisdóttir, kennari á Greni- vík. Heiðursgestur blótsins verður Anna Guðmundsdóttir, sem lengi var ljósmóðir á Grenivík, og drjúgur hluti blótsgesta mun fyrst hafa séð dagsins ljós með hennar fulltingi. Almennur söngur verður að vanda, fjórraddaður sem vera ber: Heiðstirnd bláa hvelfing nætur, Nú er frost á Fróni o.s.frv. Þorrablót þetta er hið þriðja í Flugleyfi fengið á leiðinni Glasgow - Kaupmannahöfn: Gert ráð fyrir þremur ferðum í viku hverri sögu féiagsins. Hafa þau verið hið bezta sótt, á þriðja hundrað manns komið og þótt góð skemmt- un} ungum sem öldnum. I félaginu er einkum fólk úr Grýtubakkahreppi, ættað þaðan eða tengt með einhverju móti, þ.e. úr Höfðahverfi, af Grenivík, innan af Kjálka og onúr Dalsmynni, eins utan úr Fjörðum og utanaf Látra- strönd — Fjörðurnar eru nú í eyði og Ströndin að mestu. Þorrablótin sækja fjölmargir víðar að en af þessu svæði, einkum fólk ættað úr nærliggjandi byggð- arlögum og er það fólk allt mjög velkomið til blótsins sem og aðrir gestir, ungir og aldnir. Félagið hefur á dagskrá sinni fyrir utan skemmtanahald, eink- um fræðastarfsemi, sem lýtur að þessum byggðarlögum. Þetta nafnlausa norðvesturhorn Þingeyjarþings á sér sérstæða menningararfleifð, sem sumir kalla hvorki þingeyska né ey- firska. Sumir kalla þetta vestur- þingeyskt svæði, sumir út-ey- firskt, enn aðrir þing-eyfirskt. Blótgoði að þessu sinni verður Valdimar G. Kristinsson frá Höfða, sem lengi var mjólkurbíl- stjóri þeirra Höfðhverfunga og við góðan orðstír, auk þess sem hann stjórnaði löngum dansi á Grenivík hér áður fyrr, segir í fréttatil- kynningu blótsnefndar. Formaður Þorrablótsnefndar er Sveinn Sæmundsson viðskipta- fræðingur. 25 % ofslóttur í tilefni af 100 ára afmæli Samvinnuhreyfingarinnar á íslandi hefur Skipadeild Sambandsins ákveðið að veita viðskiptavinum sínum 25% afslátt af skráðum flutningsgjaldatöxtum stykkjavöru til eða frá Hamborg í janúar og febrúar 1982. Út- og uppskipun greiðist samkvæmt töxtum. Farmbókanir annast: Skipadeild Sambandsins, Sambandshúsinu, Sölvhólsgötu, Reykjavík, sími 28200 Norwegische Shiffahrtsagentur G.m.b.H. Kleine Johannisstrasse 10, 2 Hamburg 11, Sími: 040-361.361, Telex 214823 NSA D. Áætlaðir lestunardagar i Hamborg: HELGAFELL 25.janúar HELGAFELL 12.febrúar JÖKULFELL ö.febrúar HELGAFELL 3.mars SKIPADEILD SAMBANDSINS Flugleiðir hafa nú fengið leyfi til aukins áætlunarflugs milli Glasgow og Kaupmannahafnar. Þetta kom fram í bréfi sem Birni Theódórssyni, framkvæmdastjóra Markaðssviðs Flugleiða, barst frá breska flugmálaráðuneytinu fyrir helgina. Flugleyfið gerir ráð fyrir þrem ferðum í viku. Svo sem fram hefur komið í fréttum ráðgera Flugleiðir að taka upp að nýju, flug milli ís- lands, Glasgow og Kaupmanna- hafnar, en það hafði staðið í meira en 30 ár þegar breska flugmálastjórnin krafðist þess að Flugleiðir hættu flugi á þess- ari áætlunarleið. Um tíma voru daglegar áætl- unarferðir milli íslands, Glas- gow og Kaupmannahafnar en frá 1967 var áætlunarferðin far- in þrisvar í viku þ.e. á mánudög- um, miðvikudögum og föstudög- um, uns félagið varð að draga úr því fyrir tveim árum síðan. Flugleiðir munu á allra næstu dögum taka endanlega ákvörðun um hvernig flugi þessu verður hagað og hvenær það hefst. Frá Kynningardeild Flugleiða Reykjavíkurflugvelli ÞÚ AUGLÝSIR UM ALLT LAND ÞEGAR ÞÚ AUGLÝSIR í MORGUNBLAÐINU GULLFALLEGUR GOLFIEINA VIKU ■FYRIR RÖSKAR 1.500 KRÓNUR Til þess að létta þér snúningana í kulda og skammdegi gerum við þér tilboð, sem erfitt er að hafna. Volkswagen Golf fyrir aðeins kr. 221.00 á sólarhring.* Ekkert kílómetragjald! LOFTLEIDIR BÍLALEIGA Tilboðið stendur aðeins frá 10. janúartil 31. janúar 1982. Notaðu þér þetta einstæða tækifæri. Svona tilboð gefast ekki hvenær sem er. Bílaleiga Loftleiða Reykjavíkurflugvelli - sími 21188 og 21190 ‘Tímabundiö tilboðsverð án söluskatts. •2^21190

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.