Morgunblaðið - 20.01.1982, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1982
15
„Þar er gert meira af því að brjóta ein-
staklinginn niður en góðu hófi gegnira
- segir Hrafnkell Jónsson á Eskifirði um Alþýðubandalagið,
en hann hefur nú gengið til liðs við sjálfstæðisfélag staðarins
HRAFNKELL Jónsson, fyrrum
bæjarfulltrúi Alþýdubandalags-
ins á Eskifirði og formadur
Verkalýðsfélagsins Árvakurs á
staðnum, gekk í Sjálfstæðisfé-
lag Eskifjarðar í byrjun þessa
mánaðar. í samtali við Morgun-
blaðið í gær sagði Hrafnkell
m.a. að svik Alþýðubandalags-
ins frá því í kosningabaráttunni
1978 og störf flokksins í ríkis-
stjórn hefðu fyllt mælinn þann-
ig, að hann hefði gengið úr Al-
þýðubandalaginu í maí á síðasta
ári. Að vel athuguðu máli hefði
hann síðan ákveðið að gerast fé-
lagi í Sjálfstæðisflokknum og
sagðist telja sínum málum bezt
borgið þar.
Morgunblaðið spurði Hrafn-
kel um aðdraganda og ástæður
fyrir úrsögn úr Alþýðubandalag-
inu og þess, að hann hefur nú
gerzt liðsmaður Sjálfstæðis-
flokksins.
„Aðdragandinn að þessari
ákvörðun minni er nokkuð
langur," sagði Hrafnkell. „Ár-
ið 1978 vann Alþýðubandalag-
ið kosningasigur, sem meðal
annars leiddi til þess, að ég
fór hér inn í bæjarstjórn, sem
fulltrúi Alþýðubandalagsins.
Sem fulltrúi Alþýðubanda-
lagsins á Eskifirði stóð ég að
því að samþykkja aðild
bandalagsins að ríkisstjórn.
Upp úr því fóru efndir á kosn-
ingaloforðum Alþýðubanda-
lagsins og ég fór að efast um
ágæti stefnu flokksins. Loforð
eins og „samningana í gildi“
virtust vera gefin þvert um
hug. i
Síðan hefur mér orðið það æ
ljósara að stefna bandalagsins
er ekki æskileg fyrir okkar
þjóðfélag. Hún er byggð á
þessum gömlu, ágætu stefnu-
miðum um frelsi, jafnrétti og
bræðralag, en ég get ekki séð
annað, en frelsið sé mismikið
eftir því hverjir eiga í hlut,
jafnréttinu sé ætlað að gera
suma menn jafnari en aðra og
það leiðir eðlilega til þess, að
bræðralagið verður dálítið
undarlegt.
Eg taldi, að þegar þingmenn
Alþýðubandalagsins héðan að
austan, sem ég þekktí báða að
því að vera einarða talsmenn
orkuframkvæmda á Austur-
landi í stjórnarandstöðu,
væru komnir í þá aðstöðu að
annar var orðinn æðsti maður
orkumála í landinu og hinn
áhrifamaður í þingflokki, þá
mætti vænta þess, að þeir
myndu færa okkur Austfirð-
inga nær því að fá virkjað
grunnafl í fjórðungnum. Ég
hélt því, að það væri þess vert
að veita þeim stuðning, en
verð að játa að störf þeirra
hafa valdið mér verulegum
vonbrigðum.
Mín skoðun er sú að miðað
við það ástand, sem ríkir í
atvinnumálum í dag, verðum
við hvort sem okkur líkar bet-
ur eða verr að nýta orkuna til
hins ýtrasta á þessum áratug.
Að öðrum kosti siglum við inn
í verulegt atvinnuleysi. Það er
eðlilegt, að menn velti fyrir
sér hvernig fjármagna á upp-
hyggingu orkufreks iðnaðar,
en það er mín skoðun, að við
komumst ekki hjá því, að
draga úr hagvexti og þá kaup-
mætti hjá launþeganum eða
ráðast í stórfelldar orku-
framkvæmdir og uppbyggingu
á orkufrekum iðnaði. Áð mín-
um dómi verður það ekki gert
nema með verulegum hluta
erlends fjármagns. Því fylgir
vissulega áhætta, en ég treysti
okkar sérfræðingum til þess
að standast útlendingum
snúning í samningum.
Ég starfaði í Alþýðubanda-
laginu sem sósíalisti og taldi
mig á tíma að minnsta kosti,
róttækari en meðaljóninn í
Alþýðubandalaginu. Ég verð
að játa það hreinskilnislega
að eftir að hafa starfað þar í 6
Á síðastliðnu ári voru 12 tog-
arar gerðir út frá Vestfjörðum
allt árið og var heildarafli þeirra
55.900 lestir. Meðalafli togar
anna var 4.659 lestir á árinu. Ár
ið 1980 voru togararnir 13 og
heildaraflinn 58.663 lestir. Með-
alaflinn þá var 4.513 lestir.
Hér á eftir má sjá afla Vest-
fjarðatogaranna síðastliðið ár
og eins árið 1980, en þessar
upplýsingar koma frá ísa-
Hrafnkell Jónsson
ár og kynnst innviðum þar all-
vel tel ég nú, að þær hugsjón-
ir, sem þar var barist fyrir séu
mér ekki að skapi. Ein ástæð-
fjarðarskrifstofu Fiskifélags
Islands.
Afli hvers togara 1980 og
1981:
1981: 1980:
lestir lestir
Páll Pálss., Hnífsdal 5.712 5.175
Dagrún, Bolungavík 5.335 5.798
Július Geirmundsson,
ísafirði 5.075 5.283
Guðbjörg, ísafirði 4.991 5.758
Bessi, Súðavík 4.941 4.925
an er sú, að þar er gert meira
en góðu hófi gegnir af því að
brjóta niður einstaklinginn.
Ég geri mikinn mun á því, að
byggja einstaklinginn upp
sem mann og því að tala um
einstaklingshyggjuna með það
eitt í huga að menn geti grætt
sem mest hver á öðrum.
Mér óar við því á hvern hátt
er verið að breyta þessu
þjóðfélagi okkar úr þjóðfélagi
þar sem einstaklingurinn er
ábyrgur sinna gerða og þjóð-
félaginu yfir í það að gera
menn að múgsál, sem ekki er
ábyrg fyrir neinu og afsalar
sér þeim rétti að taka sjálf-
stæðar ákvarðanir og standa
eða falla með þeim. Það er
mín skoðun að innan Sjálf-
stæðisflokksins sé von til þess
að það verði snúið af þessari
braut,“ sagði Hrafnkell A.
Jónsson.
Gyllir, Flateyri 4.799 5.034
Framnes I, Þingeyri 4.468 4.179
Elín Þorbjarnardóttir,
Suð. 4.400 5.101
Tálknfirðingur,
Tálknafirði 4.369 4.524
Guðbjartur, ísafirði 4.296 4.507
Sölvi Bjarnason,
Tálknafirði 4.087 2.530
Heiðrún, Bolungavík 3.427 3.317
Guðmundur í Tungu,
Patreksfirði 1.609 2.532
Sigurey, Patreksfirði 422
Vestfirðir:
Meðalafli togaranna um
4.600 lestir á árinu
HÚSEININGAR HF
Einingahúsin frá Siglufirði hafa vakið verðskuldaða
athygli fyrir gæði. Enda sitja efnisgæði, vöruvöndun og
framleiðslutækni í fyrirrúmi hjá Húseiningum h/f.
Fleiri og fleiri gera sér grein fyrir kostum timbur-
húsa, og þá ekki síst einingahúsa úr völdum viðar-
tegundum. Sérstaklega hafa tvílyft hús frá Húseiningum
h/f vakið mikla athygli.
Það er staðreynd að einbýlishús frá Húseiningum
h/f þurfa ekki að kosta meira en 4-5 herbergja íbúð í
fjölbýlishúsi, en kaupendur ráða verðinu að nokkru leyti
sjálfir þar sem hægt er að kaupa húsin á mismunandi
byggingarstigum frá verksmiðju. Möguleikarnir á út-
færslu þeirraeru því sem næst óendanlegir.
Þeir sem hafa hug á því að fá Siglufjarðarhús til
uppsetningar á fyrri hluta þessa árs eru beðnir að hafa
samband við Húseiningar h/f, sími (96) 71340 eða
söluskrifstofuna í Reykjavík,
hjá Guðmundi Óskarssyni,
verkfræðingi, Skipholti 19,
sími (91) 15945.
Nú er rétti tíminn til
að tryggja sér
fallegt einbýlishús frá Siglufirði
til afgreiðslu næsta vor!