Morgunblaðið - 20.01.1982, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JANUAR 1982
t
ÁSTRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR,
I. é Eyrarbakka 24. júlí 1901,
andaðist á Borgarspítalanum aö kvöldi 11. þ.m.
Útförin hefur fariö fram í kyrrþey.
Hjúkrunarfólki eru færöar innilegar þakkir.
Sigríöur Guömundsdóttir,
börn og systkini hinnar látnu.
t
Maöurinn minn og faöir okkar,
AGNAR NORÐFJÖRO,
Kjartansgötu 6,
lést i Landspítalanum 19. janúar.
Ingibjörg Noröfjörö
og börn.
Sigurbjörg Unháll
Jónsdóttir - Minning
Fædd 27. mars 1899
Dáin 19. desember 1981
Laujrardaginn síðasta fyrir jól
barst okkur sú sorgarfregn að Sig-
urbjörg Unháll, eða Bogga frænka
eins og hún var jafnan kölluð á
okkar heimili, væri látin.
Hafði það borið brátt að þ ví
daginn áður hafði hún gengið til
sinna starfa svo sem hún var vön.
Sigurbjörg var fædd að Unhól á
Stokkseyri, dóttir hjónanna Mar-
ínar Gísladóttur og Jóns Bene-
diktssonar en þar bjuggu þau um
árabil.
Ung fluttist Sigurbjörg með for-
eldrum sínum til Reykjavíkur þar
sem hún ólst upp ásamt systkin-
um sínum. Af þeim dóu þrjú korn-
ung, þau Sigurjón, Þórarinn og
Marín. Helgi, sem elstur var
þeirra systkinanna, dó tæplega ní-
tján ára en þau sem náðu fullorð-
insaldri af börnum Marínar og
Jóns voru þær systur Sigurbjörg,
Sigurrós, Sólveig og Helga, en af
þeim er nú Sólveig ein eftir.
í byrjun árs 1920 hélt Sigur-
björg til Danmerkur til náms þá
liðlega tvítug.
Lýsir það best áræði og vilja-
styrk þessarar ungu stúlku á þeim
tímum fátæktar og allsleysis.
Leiðin lá til Skodsberg bade-
sanatorium þar sem hún lærði
sjúkranudd.
Að námi loknu kom hún heim að
+ Elskuleg dóttir okkar og systir, VILHELMÍNA KRISTÍN MAGNÚSDÓTTIR, Vesturbergi 74, lézt i Landspitalanum 16. janúar. Jarösett veröur frá Bústaöakirkju, föstudaginn 22. janúar, kl. 15. Sigurbjörg Siguröardóttir, Magnúa M. Guómundsson, Guömundur Þór Magnússon. + Þökkum innilega auösýnda samúö vegna andláts og jarðarfarar fööur okkar og tengdafööur, ÞORKELS KRISTJÁNSSONAR, fyrrverandi fulltrúa, Dalbraut 27. Siguröur Ómar Þorkelsson, Inga Eiríksdóttir, Margrét Þorkelsdóttir, Magnús Friðriksson.
+ Bróöir minn og frændi, VIGFÚS JAKOBSSON, skógfræöingur, andaöist aö heimili sinu í Kaliforníu, 14. janúar 1982. Minningar- athöfn og bálför hefur fariö fram. Aska hins látna verður jarösett að Hofi í Vopnafiröi. Fyrir hönd vandamanna, Inga Jakobsdóttir Black, 61, Muth Drive, Orínda 94563, California. Einar Helgason. + Innilegar þakkir færuhri viö öllum þeim sem sýndu okkur samúö og vinarhug viö andlát og útför fööur okkar, tengdafööur og afa, INGIMUNDAR GUDMUNDSSONAR, Vegamótum, Djúpavogi. Guöný Ingimundardóttir, Siguröur Gíslason, Valdís Ingimundardóttir, Ingvar Þorleifsson, Erla Ingimundardóttir, Ingimar Sveinsson, og dætrabörn.
+ Þökkum innilega auösýnda samúö og vináttu viö andlát og útför fööur okkar, tengdafööur, afa og langafa, BJARNA ELÍS GUNNARSSONAR, Aöalstrasti 8, ísafirói. Runný Bjarnadóttir, Högni Marseliusson, Birna Bjarnadóttir, Daniel Jónsson, Gunnar Bjarnason, Helga Eyjólfsdóttir, Brynjólfur Bjarnason, Margrét Ólafsdóttir, Danielína Bjarnadóttir, Jón Víkingsson, barnabörn og barnabarnabörn.
+ Útför dóttur okkar, móður oa systur, BRYNJU ASGEIRSDÓTTUR, fer fram frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 21. janúar kl. 10.30. Hildur Frímann, Ásgeir Gíslason, börn og systkini.
+
Móðir okkar, fengdamóöir og amma,
INGIBJÖRG ODDSDÓTTIR,
Litlageröi 2,
veröur jarösungin frá Bústaöakirkju, fimmtudaginn 21. janúar, kl.
1.30.
Blóm og kransar afþakkaöir, en þeim sem vildu minnast hennar er
bent á Bústaöakirkju eöa líknarstofnanir.
bórir bóróarson, Stella Magnúsdóttir,
og barnabörn.
t
Útför
SKÚLA SKÚLASONAR,
fyrrverandi ritstjóra,
fer fram í Neskirkju, Nesbyen, Hallingdal, föstudaginn 22. þ.m.
Ingibjörg Skúladóttir, Karl Eiríksson,
Guörún bórhildur, Knut Berg,
Hallgrim Skúli, Gro Skúlason.
+
Astkær eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi,
JENNI KRISTINN JÓNSSON,
Álfheimum 44,
verður jarösunginn frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 21. janúar,
kl. 13.30.
Blóm vinsamlegast afþökkuö, en þeim, sem vildu minnast hins
látna, er bent á Hjartavernd.
Svava Sveinsdóttir,
Erla Jennadóttir, Kristján Wiium,
Erlingur A. Jennason, Sigrún Ingimarsdóttir,
Kristinn Stefánsson, Hjördís Guömundsdóttir,
og afabörnin.
+
Flytjum alúöarþakkir öllum sem sýndu okkur samúö og vinarhug
viö andlát og útför,
ELINBJARGAR BALDVINSDÓTTUR.
borbjörg Jónsdóttir,
Baldur Jónsson, Guörún Stefánsdóttir,
og barnabörn.
+
Þökkum auösýnda samúö og vinsemd viö andlát og útför móöur
okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu,
MARGRÉTAR VESTMANN.
bórlaug Vestmann,
Elsa Vestmann,
Aöalsteinn Vestmann,
Jóna Vestmann,
Friðrik Vestmann,
Magnús Magnússon,
Hallur Sveinsson,
Birna Ingólfsdóttir,
Emil Guömundsson,
Guörún Hjaltadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum af alhug öllum þeim, sem auösýndu okkur samúö og
hluttekningu viö fráfall og útför eiginmanns míns, fööur okkar,
tengdafööur, afa og langafa,
BÖDVARSINGVARSSONAR
frá Ásum, Vestmannaeyjum,
Álfheimum 30, Reykjavík.
Ólafía Halldórsdóttir,
Marta Böövarsdóttir,
Dóra Böövarsdóttir,
Ásta Böövarsdóttir, Halldór Guómundsson,
Ásdís Böövarsdóttir, bóröur Snjólfsson,
Ármann Böðvarsson, Jóna Bjarnadóttir,
Hilmar Böövarsson, Sæbjörg Jónsdóttir,
Reynir Böövarsson, Sigurlaug Vilmundardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
nýju og vorið 1924 stofnsetti hún
nuddlækningastofu að Hverfis-
götu 18 ásamt vinkonu sinni og
skólasystur Helgu Heiðar.
En á námsárum sínum í Dan-
mörku hafði hún kynnst þeim
manni, sem síðar átti eftir að
verða hennar lífsförunautur til
æfiloka.
í byrjun árs 1928 tók hún sig
upp að n ýju og fluttist til Svíþjóð-
ar, þar sem hún í júní það saman
ár gekk að eiga eftirlifandi eig-
inmann sinn Isak Karlsson. Tóku
þau sér ættarnafnið Unháll sem er
sænska þýðingin á Unhól á
Stokkseyri, sem var eins og fyrr
segir fæðingarstaður Sigurbjarg-
ar.
Mestallan sinn starfsaldur
bjuggu þau á Hultafors þar sem
Isak starfaði sem yfirlæknir í yfir
þrjátíu ár.
Þeim hjónum varð tveggja
dætra auðið. Eddy Lidén gift Sven
Lidén, bæði læknar í Gautaborg.
Eiga þau tvö börn; og Gull Ohlson
sem gift er Per Ove Ohlson. Eru
þau hjónin menntaskólakennarar
í Borás og eiga þrjú börn.
Sigurbjörg og Isak bjuggu sér
fallegt heimili að Hultafors. Var
það ekki eingöngu fallegt að ytri
búnaði heldur miklu fremur vegna
þeirra hlýju og gestrisni sem mað-
ur naut þar.
Þar er ávallt gott að koma og
gott að dvelja og á ég margar ljúf-
ar minningar frá heimsóknum
mínum til þeirra.
En það var ekki alltaf bjart yfir
heimili þeirra sæmdarhjóna.
Fyrir liðlega tuttugu árum fór
að bera á þeim sjúkdómi hjá Isak
sem kom honum í hjólastólinn
sem hann hefur verið bundinn við
síðasta hálfa annan áratuginn.
En í mótlætinu sýnum við styrk
okkar og hefur verið aðdáunarvert
að fylgjast með því með hve mik-
illi natni og umhyggjusemi hún
hefur hlúð að og hugsað um mann
sinn. Má segja að hún hafi tæpast
vikið frá honum öll þessi ár.
Það gefur því auga leið að miss-
irinn er mikill og sorgin sár og
votta ég honum mína dýstu sam-
úð, ásamt dætrunum tveimur,
fjölskyldum þeirra og systurinni
Sólveigu.
Sigurbjörg var töfrandi kona og
glettin og hafði næmt auga fyrir
því broslega og óvenju dillandi og
smitandi hlátur.
En undir glettninni bjó alvaran
og djúp hugsun og kom það oft
fram í viðræðum við hana.
Hún var trúuð kona og hefur án
nokkurs vafa dáið sátt við Guð og
menn fullviss um það að hún fengi
að hitta ástvini sína aftur því hún
treysti orðum postulans er hann
segir í fyrra bréfi sínu til Þessa-
loníkumanna:
„Því að sjálfur Drottinn mun
með kalli með höfuðenglis raust
og með básúnu Guðs, stíga niður
af himni og þeir sem dánir eru í
trú á Krist munu fyrst upp rísa;
síðan munum vér sem lifum, sem
eftir erum verða ásamt þeim
hrifnir burt í skýjum til fundar
við Drottin í lofinu, og síðan mun-
um vér vera með Drottni alla
tíma.
Huggið þér hvern annan með
þessum orðum."
Megi elskuleg frænka mín nú
hvíla í friði.
Jón Karlsson