Morgunblaðið - 20.01.1982, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1982
Dalvík:
Heilsugæzlustöd-
in fær ad gjöf tæki
til blóðrannsókna
Dalvík, 18. desember.
Á GAMLÁRSDAG afhentu konur úr
kvenfélögunum úr Dalvíkurlæknis-
héraði Heilsugæslustöðinni á Dalvík
tæki ætluðu til blóðrannsókna. Er
þetta tæki af fullkomnustu gerð sem
notað er utan sjúkrahúsa.
Það var á sl. ári að Kvenfélag
Hríseyjar, Kvenfélagið Hvöt á
Árskógsströnd, Kvenfélagið Til-
raun í Svarfaðardal og Kvenfélag-
ið Vaka á Dalvík hófu söfnun til
kaupa á áðurnefndu tæki. í sam-
ráði við héraðslækni, Eggert
Briem, varð að ráði að þessi gerð
tækja var keypt og sá hann jafn-
framt um kaup á þeim.
Við afhendingu gat héraðslækn-
ir þess að í þessu tæki mætti
framkvæma allar þær blóðrann-
sóknir sem nauðsynlegar væru á
heilsugæslustöð. Þá kom fram hjá
kvenfélagskonum að upphaflega
var gert ráð fyrir að tækið kostaði
kr. 40 þús., en endanlegar kostnað-
ur varð kr. 53.600,00. Þrátt fyrir
þessa verðhækkun afhentu þær
héraðslækni sparisjóðsbók með kr.
12.000,00 sem afgang söfnunarfjár
og skyldi þeirri upphæð varið til
frekari tækjakaupa í heilsugæslu-
stöðina. Gátu kvenfélagskonur
þess að engri söfnun á þeirra veg-
um hefði verið betur tekið en þess-
ari og hefðu allir verið reiðubúnir
til að leggja eitthvað af mörkum.
Færðu þær öllum gefendum bestu
þakkir fyrir. Fréttaritarar.
Opið
frá 18-01
Halldór Árni verður
í diskótekinu
Skákáhugafólk athugið, að
blindskákmótið
hefst á föstudagskvöldið kemur,
22. janúar kl. 20.00.
Þú ert skák og mát í
ÓDAX.
Japönsk skólastúlka er gleymir
að geta aldurs, segist hafa mikinn
áhuga á íslandi og vill eignast ís-
lenzka pennavini:
Eri Morimoto,
258-3 Nakamura,
Ozu-shi,
Ehime,
795 Japan.
Kanadískur frímerkjasafnari,
kona, óskar að komast í bréfasam-
band við íslendinga. Hún getur
ekki um aldur:
Jean l’vke,
R.R. nr. 2,
Carleton Place,
Ontario K7C 3P2,
Canada.
Átján ára japönsk stúlka með
áhuga á tónlist og íþróttum óskar
eftir bréfasambandi við íslenzkar
stúlkur:
Rika Ehara,
11-27 Dote 2 chome,
Kazo-shi,
Saitama,
347 Japan.
Fimmtán ára japönsk stúlka
með áhuga á ferðalögum vill skrif-
ast á við íslenzk ungmenni á svip-
uðu reki:
Kayoko Komatsu,
Tokko,
Hinai-machi,
Kitaakita-gun,
Akita-ken,
T018-57 Japan.
A skíðum skemmti ég mér
°^fáakv>Ö IÁ
Þaö er í kvöld, sem við höldum
sérstakt skíðakvöld í Hollywood
og þar verður kynnt
HQLUWOOD ^ghdSqO
URVAL W
STJ0RNUFERÐ
TIL AKUREYRAR
Nú fer hver ad verða síðaatur að láta skrá sig í þessa skemmtiferð, því að aðsóknin í hana
hefur verið alveg gífurleg, það hefur starfsfólkiö á Úrval fengið að finna fyrir, því þar hefur
síminn verið rauöglóandi, sem sagt fullt af hressu og kátu fólki er búiö að ákveöa sig með
ferðina. Farið veröur frá Reykjavík, föstudaginn 29. janúar, og komið til baka sunnudaginn
31. janúar. Gist verður í Skíöahótelinu í svefnpokaplássi. Innifaliö í verði er: morgunverð-
ur, rútuferðir og inngangur á skemmtun í H-100 á laugardagskvöld. Þetta allt færðu fyrir
sama sem engan pening, kr. 1.150.-.
Þaö er ekki vitlaust aö bregða sér í snjóinn fyrir norðan eins og snjóleysiö hefur nú verið
mikið hér fyrir sunnan og rifja upp skíðakunnáttuna.
í kvöld veröur kynnt sérstök spurninga-
keppni sem fram fer á fimmtudags- og
sunnudagskvöld nk., meö þátttöku gesta.
Veitt veröa vegleg verðlaun, Stjörnuferö til
Akureyrar.
Asgeir Bragason verður á fullu í
diskótekinu.
Allir skíðamenn eru
sérstaklega velkomnir
HQUJWOOS f
kvöld