Morgunblaðið - 20.01.1982, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 20.01.1982, Qupperneq 32
Síminná QQflOO afgreiðslunni er OOUOO MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1982 50 metra gos í Geysi í gær „Stórkostlegasta gos í áratugi“ - sagdi Sigurbergur í Laug í Haukadal GEYSIR gaus einu stærsta gosi sem um getur í áratugi í gær eftir að 40 kg af sápu höfðu verið sett í hann síð- degis í gær. Varð hvernum svo um sápuna, eins ojí einn úr hópi heimamanna orðaði það, að hann gaus um 50 metra háu gosi 5 til 10 mínútum seinna, en frá því í haust hefur Geysir gosið oft á dag eftir að rauf, sem verið hefur í hvernum frá 1935, var dýpkuð í haust af heimamönnum. Sú framkvæmd var hins vegar gerð án samráðs við Geysisnefnd og menntamála- ráðuneytið og hafa þeir aðilar nú óskað rannsóknar Rannsóknar- lögreglu ríkisins á jarðraskinu við Geysi. Sigurbergur Jónsson í Laug í Haukadal sagði í samtali við Mbl. að gosið í gær „væri það stórkost- legasta sem hann hefði séð í ára- tugi, allt frá árinu 1935“. Morgunblaðsmenn heimsóttu Geysi í gær og birtast viðtöl við heimamenn og myndir á miðopnu blaðsins í dag. Steindórsstödvarmálið: Lögbanns óskað? Steindórsstöðvarmálið er enn í at- hugun hjá samgönguráðherra, Steingrími Hermannssyni, og hefur ekki verið tekin endanleg ákvörðun um framhald þess. Samkvæmt þeim heimildum, sem Morgunbiaðið hefur aflað sér, mun þó nánast ákveðið að gripið verði til þess að óska lögbanns á rekstur stöðvarinnar. A því eru þó þeir annmarkar, að venjulega er það sá aðili, sem mestra hagsmuna á að gæta, sem óskar lögbanns, en í þessu tilfelli er það Frami. Það er hins vegar ljóst að mjög hárrar tryggingar verður krafizt, verði lögbann samþykkt. Það mun því vera Frama ofviða að leggja fram þá upphæð, sem væntanlega verður krafizt, og því verður samgöngu- ráðuneytið að koma til, annaðhvort með því að leggja fram tryggingu fyrir Frama eða óska lögbanns sjálft. Sjá viðtal við Úlf Markússon, formann Frama, á bls. 18 í dag. Eskifjörður: Bæjarfulltrúi Alþýðubandalags gengur í Sjálfstæðisflokkinn HKAFNKELL Jónsson, fyrrum bæj- arfulltrúi Alþýðubandalagsins á Eskifirði og formaður Verkalýðsfé- lagsins Arvakurs á staðnum, gekk í Sjálfstæðisfélag Eskifjarðar í byrjun þessa mánaðar. í samtali við Morgunblaðið í gær sagði Hrafnkell m.a. að svik Alþýðubandalagsins frá því í kosningabaráttunni 1978 og störf flokksins í ríkisstjórn hefðu fyllt mælinn þannig, að hann hefði gengið úr Alþýðubandalaginu í maí á síðasta ári. Að vel athuguðu máli hefði hann síðan ákveðið að gerast félagi í Sjálfstæðisflokkn- um og sagðist telja sínum málum bezt borgið þar. Sjá viðtal við Hrafnkel á bls. 15. 50 stöðumælar eyðilagðir að undanfórnu FIMMTÍl! stöðumælar hafa ver ið eyðilagðir og peningaboxum úr þeim stolið nú á rúmri viku. í fyrradag voru fjórir unglingar handtcknir fyrir að brjóta upp stöðumæla og stela peningabox- unum úr þeim. Talsvert fór að bera á því, að stöðumælar væru brotnir og peningaboxunum stolið eftir að gjaldmiðilsbreytingin tók gildi en um þverbak hefur keyrt að undanförnu. Á síðastliðnu ári voru 119 stöðumælar eyðilagð- ir. Ljóst er, að þjófarnir hafa ekki haft umtalsverðar fjár- hæðir upp úr krafsinu, en hins vegar skiptir tjónið, sem þeir hafa valdið, tugum þúsunda króna. Ljóst er að unglingar hafa verið á ferðinni og hafa þeir notað sleggjur og stór skrúfjárn til að brjóta upp stöðumælana. Karl (iuðlaugsson hjá Keykjavfkur borg starfar við að gera við mælana. Mynd Mbl. ÓI.K.M. Gosið í Geysi í hámarki í gær þegar það náði um 50 metra hæð. Ljósmynd Mbi. Kagnar Axeisson. Efnahagspakki rfkisstjórnarinnar: Enn er heitt í kolunum innan ríkisstjórnarinnar „Það er heitt í kolunum í bili og málin á því stigi að það er ekkert hægt að segja um hvenær niðurstaða fæst. Það verður alla vega ekki á morgun,“ sagði einn þingmaður stjórnarliðsins er Mbl. spurði hann álits á því í gær, hvenær „efnahagspakka“ ríkisstjórnarinnar væri að vænta. Kíkisstjórnar fundi, sem halda átti í gærmorgun, var frestað til dagsins í dag, en í gær funduðu efnahagsnefndir og ráðherranefnd Gunnars Thoroddsen, Svavars Gestssonar og Steingríms Hermannssonar um málið. Viðmælendur Mbl. úr hópi stjórnarliða voru á einu máli um það í gær, að ekki væri að vænta neinna niðurstaðna í dag, og þeirra mætti jafnvel bíða í nokkra daga. Á fundi ríkisstjórnarinnar í dag verða málin áfram til umfjöllunar og því Ijóst, að engra tillagna er að vænta á Alþingi í dag, eins og ríkis- stjórnin stefndi að, en það kemur saman á ný kl. 14 í dag að afloknu jólaleyfi þingmanna. Ágreiningurinn snýst enn um verðbótavísitöluna samkvæmt heimildum Mbl., hvort og þá hvern- ig hróflað skuli við henni. Þá hefur vafist fyrir mönnum hvernig standa eigi að breytingu og upp- skurði á fjárlögum, en það virðist Ijóst að skera þarf niður um allt að hundrað milljónir króna. Fjárveit- inganefndarmenn Framsóknar og Alþýðubandalags hafa lagt ákveðn- ar hugmyndir um hvernig standa megi að niðurskurðinum fyrir ráðherranefndina, en stjórnarlið- um vex mjög í augum, hvernig unnt á að vera að hrófla við fjárlögun- um, sem samþykkt voru á Alþingi rétt fyrir jól, eftir mikla vinnu og umræður. Þingflokkur Alþýðubandalagsins kom saman til fundar í gær og samþykkti að fela ráðherrum sín- um að halda áfram að starfa að málinu. Þingflokkurinn kemur saman til fundar á ný í dag. Einn viðmælandi Mbl. úr stjórnarliðinu sagði í gær, að e.t.v. mætti vænta einhverrar almennrar stefnumark- andi yfirlýsingar frá ríkisstjórn- inni á næstunni, en hann taldi af og frá að takast myndi að ná sam- stöðu um alia þætti þessa máls fyrr en í fyrsta lagi um helgina.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.