Morgunblaðið - 24.02.1982, Side 6
38
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 1982
Rabbað viö
Gunnar
Guðsveinsson
Mánuði fyrir síðustu jól
opnaði verzíunin Island Center f
miðbæ Helsingnr í Danmörku.
Eigendur verzlunarinnar eru
þeir Gunnar Guðsveinsson og
Baldur Heiðdal, en báðir hafa
þeir búið í Danmörku um nokk*
urra ára skeið. Gunnar var hér á
landi fyrir nokkru og átti Morg-
unblaðið þá samtal við hann.
Fljótlega kom í Ijós að Gunnar
fæst við ýmislegt annað en fyrr
nefnda verzlun, hann rekur
heildverzlun undir nafninu Blá-
fell, er umboðsmaður ferða-
skrifstofunnar Útsýn og fleira
mætti nefna, en Gunnar var
fyrst spurður um verzlunina Is-
land Center.
Frá opnun verzlunarinnar Island Center í Helsingnr skömmu fyrir síðustu jól, frá vinstri Baldur Heiðdal, Gunnar
Guðsveinsson, Þórunn og Einar Ágústsson, sendiherra fslands.
matreiddi ég fjóra rétti úr ýsu,
sem líkuðu mjög vel og menn áttu
erfitt með að trúa að væri úr hrá-
efninu, sem ég hafði sýnt skömmu
áður.
íslenzki fiskurinn er aðeins dýr-
ari en það, sem yfirleitt er á boð-
stólum í Danmörku. Hann er hins
vegar mun betri og þar liggja
okkar möguleikar. I upphafi er
erfitt að halda svona verzlun
gangandi fjárhagslega. Tolla og
söluskatt þarf að greiðan innan 30
daga, kaupendur vilja gjaldfrest
og seljendur vilja fá borgað sem
fyrst. Þetta er því erfitt meðan
verið er að fá hringrásina í gang,
en ég held að þetta sé allt að
koma.“
Fjölbreyttur
ferðamannastaður
Það var á síðasta ári, að Gunnar
tók að sér ákveðin verkefni fyrir
ferðaskrifstofuna Útsýn, en fyrir-
tækið bauð þá upp á hótel og íbúð-
ir fyrir Útsýnarfarþega í Hels-
inger og nágrenni. I fyrrasumar
voru þarna um 350 manns á veg-
um Útsýnar og var almenn
„Verzlunin er til húsa í ágætu
og skemmtilega innréttuðu hús-
næði í miðbæ Helsingor. Við bjóð-
um upp á margvíslegar íslenzkar
vörUr. í stuttu máli get ég nefnt
fisk frá íslandi, sem við kaupum
frá ísfisk í Kópavogi. Reyndar
bjóðum við upp á fleira en frosinn
fisk, seljum m.a. tólg svo fólk geti
keypt það hjá okkur, sem með á að
borða að íslenzkum venjum. Þá er
harðfiskur á boðstólum, flatkökur
og fleira þjóðlegt. Lambakjöt
bjóðum við upp á og fleira mat-
arkyns. Keramik seljum við frá
Glit, ullarvörur og mokkafatnað
að heiman.
Danir sækja talsvert í fiskinn,
en það tekur sinn tíma að kenna
Dönum að borða ýsuna okkar. ís-
lendingar fá sérstakan afslátt og
við erum í sambandi við íslend-
ingafélagið og hús Jóns Sigurðs-
sonar í Kaupmannahöfn. Það tek-
ur sinn tíma að byggja svona
verzlun upp, en opnun hennar
vakti mikla athygli og óhætt er að
segja að salan aukist jafnt og
þétt.“
— Síðan er það heildverzlunin
Bláfell?
„Við Baldur skiptum þannig
með okkur störfum, að hann sér að
mestu leyti um verzlunina, en ég
er hins vegar með heildverzlunina.
Við höfum verið að vinna upp
markað fyrir ýmsar vörur frá fs-
landi og síðasta árið hef ég lagt
mikla áherzlu á lagmeti og frosinn
fisk að heiman. Nú hefur mér tek-
Kennir Dönum að borða
íslenzkan fisk og sér um Út-
sýnarfarþega í Helsingor
mmmm Wmá
I ll IIÍ IlMHg l l . /íé
Stór innisundlaug er á hótel Marienlyst.
Sólbaðspallur við hótelið, ströndin í baksýn.
izt að koma íslenzku lagmeti inn í
Magasin du Nord, sem margir ís-
lendingar þekkja, og það eitt er í
raun stórsigur fyrir okkur, en
fleiri stór fyrirtæki hafa sýnt
áhuga á að selja íslenzkt lagmeti.
Fyrirtæki okkar hefur frysti-
geymslu fyrir lager og auk lag-
metisins hefur Magasin du Nord
áhuga á frosna fiskinum, en um
það verður ekki tekin ákvörðun
fyrr en við getum boðið vöruna í
fallegum neytendaumbúðum og er
sá þáttur í athugun.
Stórar stofnanir sýna áhuga
„Markmiðið er að koma frysta
fiskinum inn í stórverzlanir,
stærri stofnanir og auk þessa hafa
spítalar í Danmörku sýnt þessum
íslenzku vörum mikinn áhuga og
ég er bjartsýnn á að okkur takist
að koma þessari góðu vöru víða
inn. Spítalarnir hafa einkum sýnt
áhuga á ýsuflökum og stórlúðu í
bitum og þar er um mjög stóran
markað að ræða.
Okkur hefur tekizt að selja síld
og kavíar á veitingahús, en þó að-
eins í litlum mæli. Eins og ég
sagði áðan þarf í raun að kenna
Dönum að borða ýsu. Til að sanna
mál mitt um gæði vörunnar og
möguleikana á matreiðslu snaraði
ég mér eitt sinn inn á eitt albezta
veitingahúsið í Helsingor. Þar ef-
uðust menn um, að ég segði satt og
rétt frá, svo ekki var um annað að
ræða en að fara inn í eldhús. Þar
ánægja með þennan sumarleyf-
isstað. í sumar reiknar fyrirtækið
með verulegri aukningu í ferðum
til Helsinger og áætlar sjö brott-
farir, en flogið er með leiguflugi
Flugleiða til Kaupmannahafnar.
í samtali við Morgunblaðið
sagði örn Steinsen, framkvæmda-
stjóri, að boðið yrði upp á herbergi
og íbúðir á hótel Marienlyst, sem
er rómað hótel í Helsinger, en
einnig eru sumarhús á boðstólum
á Helsingorsvæðinu og í Gilleleje.
Verðið fyrir tveggja vikna ferð
fyrir hjón með tvö börn yngri en
12 ára og íbúðir á Hótel Marien-
lyst er 17 þúsund krónur. Innifald-
ar eru ferðir frá Kastup flugvelli
til Helsinger og til baka og mat-
arpakkar fyrir hvern einstakan.
Meðal þess, sem er boðið uppá, eru
fjórar skoðunarferðir; til Kaup-
mannahafnar, Norður-Sjálands,
Jótlands (Legolands) og skemmti-
ferð um Helsinger að kvöldi. Einn-
ig má nefna, að hægt er að fá
keypta helgardvöl á Marienlyst
frá föstudegi til sunnudags fyrir
þá, sem eru að ferðast um Dan-
mörku eða Svíþjóð og vilja eyða
helgi á góðu hóteli.
Við spyrjum Gunnar Guð-
sveinsson hvað Helsingor hafi upp
á að bjóða sem ferðamannastaður.
„Helsinger er mjög fjölbreyttur
ferðamannastaður. Ef við byrjum
á því sem flestir spyrja um, þá er
þarna góð strönd og hreinn sjór.
Hægt er að komast í veiði skammt
undan ströndinni og siglinga-
íþróttin er vinsæl. Aðeins 5 mín-
útna ferð frá hótelinu eru 18 holu
golfvöllur og tennisvellir eru við
hótelið. Ef fólk er að hugsa um
ferðalög, lengri eða skemmri, þá
tekur 20 mínútur að fara yfir til
Helsingborgar í Svíþjóð með ferju,
sem fer á 20 mínútna fresti. Til
Kaupmannahafnar fer lest á hálf-
tíma fresti og innan 40 mínútna er
lestin komin í næsta nágrenni við
Tívolí í miðborg Kaupmannahafn-
ar. í Helsinger og nágrenni eru
merkar minjar og hallir, sem
geyma mikla sögu, t.d. Krónborg-
arkastali og Friðriksborgarhöll.
Hótelið sjálft býður upp á
marga möguleika, en þar eru 208
herbergi og eru þá 64 íbúðir með-
taldar. Á hótelinu eru margir
ráðstefnusalir, danssalur, spila-
víti, leikherbergi ýmiss konar og
fleira mætti nefna. Sumarhúsin
eru sömuleiðis vel útbúin og vin-
sæl af þeim, sem þar hafa búið,“
sagði Gunnar Guðsveinsson.