Morgunblaðið - 24.02.1982, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 1982
43
En hvað hefur gerst, hvers
vegna er raunin ekki sú að lýðræð-
isflokkarnir í borgarstjórn starfi
saman að hinum ýmsu málaflokk-
um? Og hvers vegna ganga and-
stæðingar okkar nú jafnvel svo
langt að gefa í skyn að sjálfstæð-
ismenn séu upp til hópa nazistar,
sem beiti svipuðum brögðum til
áróðurs. Slík brigslyrði birtust á
síðum Dagblaðsins og Vísis fyrir
nokkrum dögum, frá alþýðu-
flokksmanni, sem ég hef hingað til
talið mann varkáran í orðavali —
og án nokkurrar öfgastefnu. Jafn-
vel Alþýðuflokkurinn virðist því
leggja sig allan fram við að forða
því að sjálfstæðismenn nái aftur
meirihluta. — Og nota til þess
jafn fólskuleg brögð.
Því spyr ég: Eru borgarmálin
hætt að vera eitthvað til að lifa
fyrir hjá þessum mönnum og orðin
eitthvað sem þeir nota til að lifa
af? Því systurnar hræsni og lygi
eru dregnar fram og sýndar á for-
síðum eða í forystugreinum dag-
blaðanna og í ríkisfjölmiðlum.
Fámenn klíka
Ég ætla ekki að fjölyrða um
stefnu okkar eða andstæðinganna
í borgarmálum. Ég get þó ekki lát-
ið hjá líða að lýsa áhyggjum mín-
um yfir því hvernig stjórnkerfi
Reykjavíkurborgar hefur fest í
höndum fámennrar klíku — og
hvernig stöðugt verður örðugra að
vinna þær viðgerðir sem þarf, því
lengur sem hinn þröngi hópur er
við völd. Því verður okkur að tak-
ast að sýna Reykvíkingum fram á
hvert stefnir — og um það hlýtur
kosningabaráttan að snúast. Stað-
reyndin er sú, að að baki efstu
manna í prófkjöri sjálfstæð-
ismanna tl borgarstjórnarkosn-
inganna voru tæplega 4000 at-
kvæði.
Að baki efsta manns ALþýðu-
bandalagsins í borgarstjórnar-
prófkjöri þeirra sem nú er nýaf-
staðið eru nákvæmlega 341 at-
kvæði. Af völdum svo fámenns
hóps situr þessi maður nú sem for-
seti borgarstjórnar og setur öðr-
um flokkum skilyrði.
Jafnvel Kristján Benediktsson
sem þó fékk 942 atkvæði í próf-
kjöri framsóknar verður að beygja
sig og bugta fyrir þessum valda-
mikla manni. Sjá ekki allir sam-
Iíkinguna! Sjá ekki allir að styttra
er á milli Reykjavíkur og Ráð-
stjórnarríkjanna en margir
halda? Og óðum styttist á milli
þessara staða. Handhafar valdsins
í Ráðstjórnarríkjunum drottna
með nokkur hundruð atkvæði að
baki sér, en tryggja svo vald sitt í
almennum kosningum þar sem
viðlíka blekkingarslagorð og hið
íslenska slagorð: „Kjósið gegn
kaupránsflokkunum" blekkti kjós-
endur við síðustu borgarstjórn-
arkosningar.
Er það ósk okkar Reykvíkinga
að viðhalda slíku stjórnkerfi?
Kallast þetta að hafa jafnan rétt á
sama tíma og Reykvíkingar berj-
ast fyrir jöfnun atkvæðisréttar
allra Islendinga? Og til hvers er
verið að endurskoða meginþátt
stjórnarskrár okkar með jöfnun
atkvæðisréttar í huga, ef ekki er
horfst í augu við þessa eða viðlíka
staðreynd?
Við eigum allt að vinna
Ágætu samherjar!
Ég er sannfærður um að það
fólk sem valist hefur til forystu í
borgarmálefnum okkar flokks, er
búið öllum þeim kostum sem gera
sigur vísan, en vissulega höfum
við verk að vinna. Að mörgu leyti
verður þessi kosningabarátta
frábrugðin hinum fyrri. Við eigum
allt að vinna og ólíklegt er að
Reykvíkingar láti kosningaslagorð
blekkja sig að þessu sinni. Þeir
hafa fengið að fylgjast með starf-
semi þeirrar borgar, sem þeir búa
í, þeir hafa kynnst því hvernig
skattar hækka og báknið þenst út
í öfugu hlutfalli við framkvæmdir.
Að mínu mati eru þeir fullkom-
lega dómbærir á ástandið, án þess
að ítarlegar upplýsingar berist til
þeirra inn í gegnum bréfalúguna
daginn fyrir kosningar. Sigurlíkur
okkar eru því miklar, en aðeins ef
við stöndum sameinuð — og gegn
því munu andstæðingar okkar
harðast vinna. Þeir munu leíta
uppi hverja óánægjustunu og gera
úr henni háværar yfirlýsingar um
óeiningu.
Góðir sjálfstæðismenn! Við vit-
um betur.
Trú mín og bæn er sú að eftir
þetta kvöld göngum við sameinuð,
ekki aðeins í borgarmálum — héð-
an fer heill stjórnmálaflokkur,
einn og óskiptur. Vígaferlum er
lokið.
Verslunarskóli íslands:
Starfsnámskeið fyr-
ir verslunarfólk
Verslunarskóli fslands mun á næst-
unni efna til sérstakra námskeiða f
ýmsum greinum verslunarstarfa.
l>orvarður Elíasson skólastjóri tjáði
Helgi ívarsson
Hafnarfjörður:
Helgi Ivarsson
slökkviliðsstjóri
Nýr slökkviliðsstjóri hefur verið
ráðinn í Hafnarfirði. Er það Helgi
ívarsson sem starfað hefur í
slökkviliðinu á Keflavíkurflugvelli.
Hann er ráðinn til starfa frá næstu
mánaðamótum og var hann einn af
tíu umsækjendum um starfið.
Mbl. að námskeið þessi væru ætluð
utanskólafólki 18 ára og eldri sem
vildi mennta sig í viðkomandi fogum
eða endurnýja þar fyrri kunnáttu
sína.
Auglýst eru 10 námskeið og taka
þau 40 til 60 tíma hvert. Kennt er
þrjú kvöld í viku eftir kl. 18:20 og
standa þau yfir í 10 vikur, frá því í
byrjun mars og fram í maí. Sagði
Þorvarður að kennarar skólans
sæju að mestu um kennslu, gert
væri ráð fyrir allmikilli heima-
vinnu og að hvert námskeið sam-
svaraði eins vetrar námi í viðkom-
andi námsgrein. Ekki sagði hann
fyrir hendi sérstaka fjárveitingu til
þessa námskeiðahalds og því yrðu
væntanlegir nemendur að greiða af
því allan kostnað, sem væri milli
1.000 og 2.800 kr.
Námskeiðin verða í eftirtöldum
greinum: 1) Vélritun I, þ.e. fingra-
setning, uppsetning bréfa o.fl. 2)
texta- og upplýsingameðferð, þ.e.
tölvunotkun og innsláttur, rit-
vinnsla, tímaskipulagning, skjala-
varsla, 3) tölvunotkun og Basic-
forritun, undirstöðuatriði kennd,
forrit lesin og skýrð, 4) bókfærsla I,
almenn færslutækni og uppgjör, 5)
bókfærsla II, fjárhagsbókhald og
túlkun niðurstaðna, launabókhald,
6) rekstraráætlanir og fjármála-
stjórn, 7) ensk verslunarbréf, orða-
forði og uppsetning bréfa, 8) versl-
unarréttur, grundvallaratriði ís-
lensks réttarkerfis, samningar,
kaup, 9) tjáning og framkoma,
framsögn og æfingar, 10) verslun-
arstjórn, haldið í samvinnu við
Kaupmannasamtök íslands.
51 Sundaborg
HF. Simi 84000 - 104 ReyK)avlk
Veitum viðskiptavlnum okkar tækniþjónustu. 9
Af hvcrju VE
ASEA r
ASEA mótorar eru sterkir og
endingargóðir.
ASEA mótorar þola erfiðar
aðstæður.
ASEA mótorar eru 15—20% létt-
ari en mótorar úr steyptu járni.
ASEA mótorar hafa rúmgóð
tengibox.
ASEA mótorar ganga
ASEA mótorar eru einangraðir
skv. ströngustu kröfum.
ASEA mótorar hafa hitaþol
ströngustu kröfum.
VERZLUNARRAÐ
ÍSLANDS
Aðalfundur 1982 verður haldinn fimmtudaginn 25.
febrúar nk. í Kristalsal Hótel Loftleiða klukkan 10.30.
Dagskrá
10.30 — 10.
10.45 — 11.
11.15 — 11.50
ÍW'
r\
11.50 — 12
12.30 — 13
13.15 — 13
13.30 — 14
QyW ►. OWmoii
14.45 — 15.30
Kurt NtcoHn
15.30 — 15.
15.45 — 16.
Jón MagnÚMon
16.15
16.45
17.15 — 19.
Fundarstjóri
45 Mæting og móttaka fundargagna.
15 Setningarræöa:
Hjalti Geir Kristjánsson. formaöur V.í.
ÞÁTTASKIL í ÍSLENSKUM EFNA-
HAGSMÁLUM.
— nauðsyn markvissrar framtíöar-
stefnu —
1. Erindi Dr. Gylfi Þ. Gíslason, prófessor.
2. Fyrirspurnir.
15 Störf V.í. og fjárhagur 1980—1981.
Árni Árnason, framkvæmdastjóri V.í.
00 Hádegisveröur í Víkingasal.
30 Kaffi í Kristalsal.
45 EFNAHAGSLÍF Á TÍMAMÓTUM.
— Vandi velferðarríkisins, hvað tekur
viö? —
1. Erindi Dr. Curt Nicolin stjórnarfor-
maöur ASEA, SAS og sænsku vinnu-
veitendasamtakanna (SAF).
2. Almennar umræöur og fyrirspurnir.
STÖRF, STEFNA OG SKIPULAG V.í.
1982—1983:
1. Fjárhags- og framkvæmdaáætlun.
2. Almennar umræöur.
3. Laga- og skipulagsbreytingar.
4. Almennar umræður.
Kaffi.
KOSNINGAR.
1. Úrslit stjórnarkjörs.
2. Kosin 7 manna kjörnefnd.
3. Kosnir 2 endurskoöendur.
4. Kosning formanns V.j.
16.45 Önnur mál.
Fundarslit.
Móttaka aö Þverá.
.00
Jón Magnússon.
Kosningu til stjórnar ráðsins lýkur klukkan 17.00
miðvikudaginn 24. febrúar. Atkvæðum skal skila
á skrifstofu V.í. að Laufásvegi 36 fyrir þann tíma.
VINSAMLEGAST TILKYNNID ÞÁTTTÖKU í SÍMA 11555.